Morgunblaðið - 19.05.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.05.1966, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. max 1966 r 2 Sex 1. Lægsta tilboð miðað við út- hoðsskilmála nam 93,4 millj. kr. — Það var frá þýzka fyrir- tækinu Hochtief og Véltækni sf. — Framkvæmdir hefjast síðar í sumar tilboð bárust í gerð áfanga Sundahafnar STAKSTFIHAR Kveðjur fil Reykvíkinga Á lista kommúnista er ung <>g UöguJeg kona, en ekki aS sama skapi lítillát. Hún hefur allgóða menntun eins og sálfræðingur sá, sem frætt hefur Reykvíkinga á því, að öll vandamál mundu Jeysast, ef hin mikla menntun ihans yrði nýtt. Og þessi kven- frambjóðandi kommúnista fer heldur ekki dult með það, að ;hú n sé bæði gáfuð og menntuð, gagnstætt því sem sé um meiri- Jiluta Reykvíkinga. Um þá segir Jiun í ríkisútvarpinu: „Sjálfstæðisflokkurinn treyst- Ir áframhaldandi svefngöngu kjósenda. Ef til vill er svo al- gjört vanmat á gáfnafari kjós- enda réttmætt. íhaldsflokkar um allan heim eiga alltaf öruggan ákveðinn hóp kjósenda, hégóm- legt, einfalt milliséttarfólk, menningarsnauða smáborgara“. Þetta er þá álit það, sem þessi konukind hefur á þeim meiri- hluta Reykvikinga, sem tryggt hafa sér og sínum trausta og góða borgarstjórn. En Morgunblaðið getur bæði sagt henni og sálfræðingnum hennar alvitra, að Reykvíkingar vilja gjarnan halda áfram að vera heimskir í þeirra augum — vera „hégómlegt, einfalt milli- stéttarfólk og menningarsnauðir smáborgarar“. Og nafngiftirnar munu þeir þakka á verðugan hátt nk. sunnudag. Hinn fullkomni ódrengskapur Á forsíðu kommúnistamál- gagnsins í gær birtist stór mynd af trésmiðjunni Víði. hinu mikla fyrirtæki, sem Guðmundur Guð- mundsson hefur byggt upp af mesta dugnaði og kjarki, sem hér hefur þekkzt, þótt hann hafi, eins og alkunnugt er átt við örðugleika að etja, sem öðrum hefði orðið um megn að yfir- stíga. Undir myndinni stendur: „Trésmiðjan Viðir hefur haft mikið umleikist á undanförnum árum. Eigandi hennar er fram- bjóðandi Sjálfstæðisflokksins og hefur merkt glugga verzlunar sinnar Sjálfstæðisflokknum. — Skattalögreglan hefur ekki séð ástæðu til að heimsækja hann“. Og í grein, sem á eftir fylgir, er hinum freklegustu aðdróttun um haldið áfram. Árás þessi er einhver hin svívirðilegasta, sem sézt hefur hér á landi, og vissulega munu þeir Reykvíkingar margir, sem minnast þessa einstaka ódreng- skapar í garð Guðmundar Guð- mundssonar næsta sunnudag. F ramsóknarkonan og brennivínið Kona sú, sem Framsóknar- flokkurinn býður kjósendum upp á á framboðslista sinum, rit- ar grein í Tímann, þar sem hún segir m.a.: „Langflestir samkomustaðir hafa vínveitingaleyfi, og þar er öllum innan 21 árs aldurs bann- aður aðgangur. Sá eiginlegi skemmtanaiðnaður sér sér ekki hag í að halda opnum skemmti- stöðum fyrir æskufólkið. Hann miðast fyrst og fremst við hagn- aðarsjónarmið. Það eru léleg uppeldisáhrif á ungiinga að standa utan við dyr samkomuhúsa og reyna að svíkj- ast inn, reyna jafnvel að falsa nafnskírteini sin til að sýnast eldri en þeír eru“. En hvernig var það? Voru ekki ungir Framsóknarmenn búnir að finna ráðið? Höfðu þeir ekki vín veitingar á fundi, þar sem ekk- ert 21 árs aldurstakmark var og enginn þurfti að sýnast eldri en hann var? Sumir hefðu raunar gjarnan mátt vera svolítið yngri til að teljast réttir fundarmenn á æskulýðsfundi. TILBOÐ í gerð 1. áfanga Sunda hafnar voru opnuð í gær hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur-' borgar að viðstöddum borgar- stjóra, Geir Hallgrímssyni, hafnarstjórn og bjóðendum og umboðsmönnum þeirra. Sex til boð bárust og hið lægsta miðað við útboðsskilmála nam 93.451.599 krónum. Það var frá þýzka fyrirtækinu Hochtief og Véltækni sf. Forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Valgarð Briem opnaði tilboðin og var hið fyrsta frá þýzka fyrirtæk- inu Hochtief í Essen og Vél- tækni h.f. Var það miðað við út boðsskilmála og nam 93.451.599 krónum. Annað tilboð var frá Royal Netherlands Harbour Works Company Ltd. og Stefáni Ólafs syni, verkfræðingi. Miðað við útboðsskilmála nam það 124.029.500 krónum, en einnig var sent fráviksboð að upphæð 115.842.800 krónur. Þriðja tilboðið var frá danska fyrirtækinu E. Phil & Sön og nam 114.900.000 krónum miðað við útvoðsskilmála. Fyrirtækið sendi einnig tvö frávikstilboð að upphæð 105.108.800 krónur og 92.781.800 krónur. Fjórða tilboðið var frá sænska fyrirtækinu Skánska Sements- gjutriet og Malbikun h.f. og nam það miðað við útboðsskilmála 102.250.000 krónum, en þessir aðilar sendu einnig frávikstilboð að upphæð 81.700.000 krónur. Fimmta tilboð var frá fyrir- tækinu Johnson Construction í Stokkhólmi og barst það í skeyti. Miðað við útboðsskil- mála bauðst fyrirtækið til að vinna verkið á kostnaðarverði með 13% álagi, en það bauðst einnig til að vinna verkið sam kvæmt eigin teikningum fyrir 119.972.000 krónur. Sjötta tilboð var frá Ingeniör F. Selmer í Osló, sem bauðst til að vinna verkið með fráviki mið að við útboðsskilmála fyrir 102.989.600 krónur. Er Valgarð Briem hafði lesið upp tilboðin skýrði hann frá því, að samkvæmt kostnaðaráætlun hafnarstjórnar myndi bygging 1. áfanga Sundahafnar kosta 98 milljónir króna. Samkvæmt útboðsskilmálum á FR AMB J ÓÐENDUR Sjálfstæð- isflokksins á Seltjarnarnesi efndu til almennra funda um hreppsmál í Mýrarhúsaskóla mánudaginn 16. og þriðjudág- inn 17. þ. m. Á fundunum flutti oddviti, Karl B. Guðmundsson, ávarp og Sigurgeir Sigurðsson, sveitar- stjóri ræddi hreppsmál og svar- aði fyrirspurnum. Mjög margar fyrirspurnir bár ust á báðum fundunum, og var að byggja 379 metra langan hafnarbakka með 2 álmum í Vatnagörðum, vinna að dýpkun þar og sprengja djúpsker út af Pálsflaki. Gert er ráð fyrir, að Skagaströnd, 18. maí. ÍBÚÐARHÚSIB að Víkum á Skaga brann til kaldra kola í morgun. Þetta var gamalt timb- urhús, járnvarið að utan, tvær hæðir og kjallari. í Víkum búa hjónin Karl Árnason og Margrét Jónsdóttir, og voru þrír upp- komnir synir þeirra heima. Samkvæmt frásögn Jóns Bene- diktssonar, bónda í Höfnum, sagði hann að um kl. 5.30 í morgun hefðu hjónin vaknað við mikla reykjarlykt, og skipti það engum togum, að efri hæðir hússins urðu alelda. Þau komust þó í síma og gátu látið vita hvernig komið var á næstu bæj- um. Ekkert var hægt að gera til bjargar íbúðarhúsinu, en það FIMMTUDAGINN 12. maí voru liðin 100 ár frá því, að Svíar fengu þjóðkjörið þing. Af því tilefni efndu Sviar þá til mikilla hátíðahalda þann dag, og buðu m.a. fjórum fulltrúum frá þing- um hinna Norðurlandanna. Af hálfu Alþingis sóttu þessi hátíða höld, þeir Birgir Finnsson, for- seti Sameinaðs þings, Sigurður Ó. Ólason, Hannibal Valdimars- son og Björn Fr. Björnsson. Hátíðahöldin hófust Jd. 11 um morguninn með móttöku í þing- þeim svarað af sveitarstjóra. Fundarstjóri á báðum fund- unum var Snæbjörn Ásgeirsson og fundarritarar frú Guðrún Einarsdóttir og Kristinn B. Guð mundsson,, lögfræðingur. Ágæt- ar undirtektir fundarmanna og hin mikla fundarsókn er fundar boðendum mikil hvatning tit aukinna átaka í kosningunum nk. sunnudag. X—D hafnarbakkinn verði gerður úr steyptum kerum. Hafnarstjóri, Gunnar Guð- mundsson, tjáði Morgunblaðinu að ráðgert væri að framkvæmd- ir við Sundahöfn hefðust þegar búið væri að vinna úr tilboðum þeim sem bárust og semja við verktakann. Yrði það síðar í sumar. Áður en tilboð voru opnuð óskaði fulltrúi Verks h.f., Birg- ir Frímannsson, að fá upplýsing ar um hverjir hefðu sent til- boðin. Þegar honum var tjáð, að það væri ekki unnt sökum þess að tilboðin væru lokuð, bað hann um að fá tilboð Verks h.f. afhent aftur. tókst að bjarga fjósi og hlöðu, sem stóðu fast norðan við bæ- inn, enda var vindur norðaust- an. Stóð því af fjósi og hlöðu, en þær byggingar voru byggðar úr steinsteypu. Einhverju lítils- háttar tókst að bjarga úr kjall- ara hússins, en engu af innbúi á. efri hæðunum. Hús og innbú var vátryggt. — Þórður. ÞAÐ er nú mjög i athugun, að m.s. Katla, sem er eign Eim- skipafélags Reykjavíkur, verði seld á næstunni til Grikklands. húsinu. Þar fluttu fulltrúar hinna Norðurlandanna stutt ávörp og afhentu gjafir. Birgir Finnsson afhenti gjöfina frá Alþingi og var það ljósprentuð útgáfa Sturlungu. Ingvaldsen, forseti norska þingsins afhenti sænska þinginu að gjöf stóra silfur- slegna ölkrús, Paasio, forseti finnska þingsins afhenti stóran kristalklump, sem var allur hol- aður út, og mátti nota sem blómavasa, og loks afhenti Bom- holt, forseti málverk frá danska þinginu. Eftir hádegið var svo mikil samkoma í Konserthuset, og þar fluttu ávörp Fridolf Thapper, forseti annarar þingdeildarinn- ar sænsku, og Svíakonungur. Þá var flutt frumsamin kantata af stórri hljómsveit og blönduðum kór eftir sænska tónskáldið Gerow. Um kvöldið var svo haldin mikil veizla í Stadshuset, þar sem saman voru komnir um 1200 gestir. Var þeim öllum af- hent að gjöf bók, sem nefnist Þjóðfélagið og þingið, sem var sérstaklega tekin saman vegna þessa afmælis, auk silfurpenings og þriggja frímerkja, sem voru sérstaklega gefin út í tilefni af- mælisins. Dauft yfir síldveiðunum HELDUR dauft var yfir síld- veiðunum fyrir Austfjörðum í gær. Þar voru um 15 bátar að kasta 65 mílur austur af Seley, en fengu lítið. Þó fékk Barði þar 1000 tn. Færðu þeir sig þá dýpra, eða á þann stað, þar sem Jón Kjartansson var um hely- ina, en urðu ekki varir; Sigurð- ur Bjarnason og Gísli Árni leit- uðu ennþá dýpra, og urðu þeir varir við nokkra síld, og var Sigurður Bjarnason byrjaður að kasta í gærkveldi. Færeysku síldveiðibátarnir, sem voru að veiðum á þvi svæði þar sem Hafþór fann fyrst síld, voru nú komnir á slóðir íslenzku bátanna. Hafþór fann í gær ágætar torfur austur af Glett- inganesi, en þær lágu mjög djúpt, og því óvist hvað verður úr þeim. Ægir var i gær kominn á móts við Langanes, en hann hafði þá farið vestur og norður um land á leið austur, og hafði þá enga síld fundið. 2 sækja um Laufásprestakall UMSÓKNARFRESTUR um Laufásprestakall rann út þann 15. þ.m. Umsækjendur eru tveir, séra Bolli Gústafsson sókn arprestur í Hrísey og séra Sigur- páll Óskarsson, sóknarprestur á Bíldudal. (Frá skrifstofu biskups) Talið á föstudag SAMKVÆMT upplýsingum er Mbl. aflaði sér hjá skrifstofu biskups íslands hefur verið ákveðið að talning í kosning- unnj um Garðaprestakall hefjist k). 9 árdegis n.k. föstudags- morgun. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér hjá Óskari A. Gíslasyni, forstjóra Eimskipa- félags Reykjavikur, þá komu hinir grísku kaupendur til Ant- werpen og Hamborgar, og litu þar á skipið á floti. Gerðu þeir ákveðið tillboð í skijflð við það tækfæri, þó með þeim fyrir- vara, að fá síðar að skoða það I þurrkví. Katla mun fara til flokkunarviðgerðar í Svíþjóð núna um næstu mánaðamót, og munu hinir grísku kaupendur þá líta frekar á skipið. Að því loknu verður endanleg ákvörð- un um kaupin tekin. Ekki vildi Óskar að svo stöddu gefa upp, hverjir hinir grísku kaupendur væru, né hve tilboðið væri hátt. Eimskipafélag Reykjavíkur hefur nú átt Kötlu í 16 ár, en hún var byggð sérstaklega fyrir saltfisksflutninga milli fslands og Miðjarðarhafslandanna. Hef- ur hún síðan lengzt af verið i þeim flutningum, og er að öll— um líkindum eina íslenzka skip- ið, sem hefur siglt alla leið til S. Amepíku. Auk þess hefur Katla einnig verið i timbur- fiutningum frá Finnlandi’ og Rússlandi. Katla er 232ö d. w, að stærð og sagði Óskar, að hún hefði ætíð reynzt hið mesta happaskip. Gnrðahreppur SJÁLFSTÆÐISFÓLK! — Hafið samband við kosningaskrifstof- una að Lyngási 8. Veitið upp- lýsingar og leytið upplýsinga. Þeir, sem verða fjarverandi á kjördegi munið að kjósa áður. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- félagsins Lyngási 8. — Símar: 52340 — 52341 — 51690. Fiölmennir fundir D-litans á Seltjarnarnesi Húsbruni að Vík- um á Skaga Litlu sem engu tókst að bjarga af innbúi 4 þingmenn á afmæli sænska þingsins Albingi gaf Sturlungu — Ijósprentaða VorAiir Yz th“ ep|ri? VCl UUI glld Ud oclu:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.