Morgunblaðið - 19.05.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.05.1966, Blaðsíða 5
ílmmtudagur 19. maí 1966 MORGUNBLAÐID 5 Framboðslistirm á Patreksfirði SAMEIGINLEGUR framboðs- listi Alþýðuflokksins, Framsókn arflokksins og Sjálfstæðisflokks ins til hreppsnefndarkosninga 22. maí 1966 í Patrekshreppi á Patreksfirði er skipaður þess- um mönnum: . 1. Svavar Jóhannsson, ' bankaútibússtjóri. 2. Ásmundur B. Olsen, ) oddviti 3. Baldvin Kristjánsson, ' rafvirkjameistari. ' 4. Bogi Þórðarson, framkvæmdastjórL 5. Ólafur H. Guðbjartsson, húsgagnasmíðameistari. 6. Bragi Thoroddsen, verkstjóri. 7. Ingvar Guðmundsson, skipstjóri. 8. Snorri Gunnlaugsson, vélgæzlumaður. 9. Ólafur Bæringsson, • gröfustjóri. 10. Ólafur G. Ólafsson, verkstjóri. 11. Guðmundur Óskarsson, ver zlunar st j ór L 12. Hafsteinn Davíðsson, rafveitustjóri. 13. Gísli Snæbjörnsson, útgerðarstjóri. 14. Valgeir Jónsson, raf virkj ameistar L Framboðslisti til sýslunefndarkosninga: 1. Ingólfur Arason, kaupmaður. 2. Bragi Thoroddsen, verkstjóri. Hitaveita fyrir Akranes IJr erindi Sveins Einarssonar AKRANESI, 16. mai. — Sveinn S. Einarsson, verkfræðingur, flutti yfirgripsmikið snilldar erindi hér sl. mánudag, 9. þ.m. Sjálfstæðismenn höfðu boðað til fundar um jarðhita og var öll- um heimill aðgangur. Sveinn sagði m.a. Láta mun nærri að árlega sé eytt 450—500 millj. kr. til olíukaupa til húshitunar. Að- eins 4% ibúðarhúsnæðis á íslandi er hitað upp með rafmagni. Talið er að 60—70% lands- manna hafi möguleika á að njóta jarðvarma til upphitunar. Og er Akranes í hópi þeirra byggðarlaga, sem möguleika hafa á að nýta jarðvarma. Gerði hann ráð fyrir að það kostaði okkur 11-12 millj. króna þessi 6500—7000 tonn, sem við notum af olíu á ári hverju til upphitunar. Samkvæmt reynslu af rekstri hitaveitna hér á landi, er rekstr- arkostnaður um 12—15% af kostnaðarverði og mætti því hitaveita fyrir Akranes kosta 80—90 millj. króna til að standa undir sér fjárhagslega. Mögu- leikar Akurnesinga til hitaveitu eru aðallega bundnir við tvö svæði, Leirársvæðið og hins veg- ar svæði þau, sem tekin voru til rannsóknar sl. sumar og þá eink- um við Innra-Hólm. Aðalókost- urinn við Leirársvæðið er, að vegalengdin til Akraness er rúm- lega tvöföld á við vegalengdina frá Innra-Hólmi. Lausiega má áætla kostnað Kaffisala Kven- félags Laugar- nessóknar ÞAÐ mun almennt viðurkennt, að kvenfélög safnaðanna hér í borg hafi starfað með sérstakri prýði og komið á hávaðalausan hátt mörgu góðu til leiðar. Auðvitað þurfa þau ýmsan stuðning og góðvild borgaranna og af þeirri ástæðu eru þessar línur skrifaðar. Núna í dag, Uppstigningardag, efnir eitt þessara félaga, Kven- félag Laugarnessóknar, til sinn- ar árlegu Kaffisölu. Klukkan 2 verður guðsiþjónusta í Laugar- neskirkju, þar sem séra Páll Pálsson, sem áður þjónaði í Vík í Mýrdal, mun predika, en kaffi- salan hefst svo klukkan 3 í Laugarnesskólanum og nýtur þar velvildar og skilnings hins ágæta skólastjóra, Gunnars Guðmundssonar. við aðveituæð frá Leirá milli 30 til 50 millj. króna. Á báð um þessum svæðum þarf að framkvæma djúpboranir. Kostar hver metrL sem boraður er 1500—2000 kr. 500 m. djúp hola kostar því 750 þús. til milljón kr. Koma Sveins S. Einarssonar hingað hefur skilað okkur áfram í hitaveitumálunum. — Oddur. Að þessu sinni verður kaffi- salan að því leyti frábrugðin venjunni að nú verður þarna jafnframt sýning á merkilegri handavinnu elztu félagskonunn- ar, frú Guðrúnar Jónsdóttur frá Þyrli. Allt munir, er hún hefur gjört eftir sjötugt og sumt nú á síðustu tveim árum, en hún varð níræð snemma á þessu ári. Ber þessi sýning vott íslenzkri heim- ilismenningu, eins og 'hún var bezt á undanförnum árum og öldum, unnin í kyrrð og hljóð- leik, þar sem hugur, hjarta og hönd, allt í senn, fylgdist að. Það hefir aldrei neinn að und- anförnu farið óánægður frá kaffisölu kvennanna í Laugar- nessókn. Skólasalurinn var full- ur í fyrra fram undir kvöld af glöðum andlitum yngri og eldri sem margir höfðu auðsjáanlega ánægju af að hittast þarna. Það er fullvíst að hverjum einstökum verður þarna tekið eins og einmitt 'hann sé alveg sérstaklega velkominn — og ágóðinn rennur allur í líknar- sjóð félagsins. Garðar Svavarsson. Búvinnunámskeið fyrir borgarbörn — á vegum Æskulýðsráðs og Bún aðarfélagsins BÚ VINNUN ÁMSKEIÐ fyrir böm, sem ætla í sveit í sumar, verður 'haldið vikuna 23.—28. maí n.k. á vegum Búnaðarfélags fslands og Æskulýðsráðs Reykja víkur. En slík námskeið hafa áður verið haldin vorin 1962 og 1963 við vaxandi aðsókn. Nám- skeiðið hefst mánudaginn 23. maí kl. 2 e. h. að Fríkirkjuvegi 11. Og fer innritun fram þar daglega kl. 14—18 og í síma 15937. Námskeiðinu er þannig hagað að ráðunautar frá Búnaðarfélagi íslands og Reykjavíkurborg o. fl. ræða við börnin um sveitastörf, búfé, garðrækt og búvélar og sýna kvikmyndir og litskugga- myndir. Börnin læra björgun úr dauðadái með blástursaðferð- inni og hjálp í viðlögum og er kvikmynd til skýringar. Þá verður farið í heimsókn til Sláturfélags Suðurlands, í Mjólkurstöðina og skógræktar- stöðina í Fossvogi. Þá verður börnum kennd meðferð hesta á vegum Fáks í reiðskólanum á Skeiðvellinum. Farið verður að Bessastöðum, en þar fer fram verkleg kennsla í garðrækt, búfjárhirðingu og meðferð bú- ardaginn 28. maí með ferðalagi í búfjárræktarstöð Búnaðar- sambands Suðurlands að Lauga- dælum með viðkomu í gróður- húsi í Hveragerði. Umsjónarmenn með námskeið- inu eru Jón Pálsson og Agnar Guðnason. Sagði Jón frétta- mönnum, að enginn vafi væri á að börn hefðu gott af svona kynning á sveitinni. Borgar- börn hefðu gott af að komast í snertingu við sveitalíf. Aðeins væri slæmt að geta ekki gert það á raunhæfari hátt en þetta. Agnar upplýsti að ekkert væri gert til að örva sveitaveru barna hér á landi. Erfitt væri að koma börnum og unglingum í sveit. Nú hafa um 250 unglingar 12-16 ára skráð sig til vinnu hjá ráðn- ingarstofu Landbúnaðarins. Af yngri börnunum, 12-14 ára yrði sennilega hægt að útvega 50-60 sveitadvöl, en öll þau eldri kæm ust í sveitavist, ef þau krefjast þá ekki of mikils kaups. Þátttaka í Búvinnunámskeið- inu kostar kr. 50.00 og eru ferðir í reiðskóla Fáks, Skógræktar- stöðina og að Bessastöðum inni- faldar, en Laugardælaferðin Nemendur á Búvinnunámskeiði skoða grísi að Laugardælum. ORL AN E-sny rti vö rur Á morgun föstudag 20. maí og laugardag 21. maí er sérfræðingur frá ORLANE snyrtivöruverksmiðjun- um frönsku til viðtals í verzluninni REGNBOGINN í Bankastræti fyrir þá, sem vilja fá ókeypis leið- beiningar um notkun ORLANE-snyrtivaranna. GJÖRIÐ SVO VEL OG LÍTIÐ INN Regnboginn BANKASTRÆTI .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.