Morgunblaðið - 19.05.1966, Blaðsíða 19
n>r • 'tf . - - i j ■
Fthimtuiagur 19. maí 1966
\’ iii iii $1 iil *ii fi. Vi 'NÁl
MORGU NBLAÐSÐ
19
Fró Sjálfstœðiskonum
Útgefandi: Landssamband Sjálfstæðiskvenna.
Ritstj.: Anna Bjarnason og Anna Borg.
Hún er forstöðukona Elliheimilisins
og form. Æskulýðsráðs Keflavíkur
Rætt við frú Sesselju Magnús-
dóttur bæjarfulltrúa í Keflavík
FRÚ Sesselja Magnúsdóttir í
Keflavík, sem er í fjórða sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins hefur
á undangegnu kjörtímabili verið
m.a. formaður Æskulýðsráðs
Keflavíkur. Er við hittum frúna
heima hjá formanni Sóknar á
sunnudaginn notuðum við tæki-
færið til að rabba ofurlítið við
Sesselju um starf hennar og um
framkvæmdir bæjarstjórnarinn-
ar á sviði æskulýðs-, menning-
ar- og mannúðarmála. — Frú
Sesselja er afar þekkt og vin-
sæl kona í Keflavík eins og geta
má nærri. Hún er gift Axel Páls-
syni, sem nú rekur fiskverkunar-
stöð þar og eiga þau hjón þrjá
uppkomna syni. Tveir eru kvænt-
ir og eru barnabörnin orðin 10
talsins. — Frúin hefur verið for-
Stöðukona elliheimilisins Hlé-
vangs frá stofnun þess eða í 8
ár, þannig að hún kann glögg
skil á elztu og yngstu bor.gurum
Keflavíkur.
Æskulýðsheimili og
tónlistarskóli
— Hvað hefur merkast gerzt
hjá ykkur í æskulýðsmálum?
— Á vegum Sjálfstæðisflokks-
ins var keypt gamalt hús að
Austurgötu, því breytt og gert að
eeskulýðsheimili. Starfsemi þess
hefur farið ört vaxandi, á sl.
vetri komu þar á þriðja hundr-
að barna á aldrinum 10—14 ára
til ýmis konar tómstundaiðju,
m.a. bast- og tágavinnu. —
Fyrir þrem árum var stofnaður
tónlistarskóli sem er til húsa
í æskulýðsheimilinu og hefur
formaður okkar í Sókn, frú Vig-
dís Jakobsdóttir, verið formaður
skólanefndarinnar frá upphafi.
Skólastjóri var ráðinn Ragnar
Björnsson, en hann hefur verið
í árs leyfi í Þýzkalandi og hef-
ur frá Vigdís því verið skóla-
stjóri í vetur. — Það er ærið starf
því aðsókn hefur verið gífurlega
mikil, eða um 218 nemendur. Er
þetta mjög góður liður í æsku-
lýðsstarfinu. Eru kennarar skól-
ans 11 talsins og kennt á fjöl-
mörg hljóðfæri, og þar að auki er
rekin sérstök barnamúsíkdeild,
og einnig er söngkennsla.
Þá hafa báðar bindindisstúkur
bæjarins aðsetur sitt þarna. Hús-
næðið fer þegar að verða of lít-
ið fyrir alla þessa starfsemi og
Sjálfstæðismenn vilja beita sér
fyrir því að húsnæðið verði auk-
ið. Við höfum þarna stóra og
góða lóð. Ber að þakka ágætu
fólki sem starfað hefur þarna að
þessu máli þann góða árangur
sem náðst hefur.
Dagheimili og ieikvellir
— Hvernig standa mál yngstu
borgaranna, dagheimili og leik-
vellir?
— Hér hafa verið starfræktir
tveir gæzluveilir og áformað er
að koma upp þremur til við-
bótar. Hafá verið pöntuð leik-
tæki á vellina sem verða við
Nónvörðu, Mávabraut og svæði
milli Lyngholts og Miðholts.
Verða vellirnir fyrst í stað rekn-
ir sem opnir vellir, en síðar kom
ið á fót gæzlu. — Kvenfélag
Keflavíkur hefur í mörg ár rek-
ið dagheimili að sumrinu og
fram að jólum. Heimilið var
stofnað á sínum tíma með sam-
ekotum frá bæjarbúum og þótti
mikið framtak, en bærinn hefur
styrkt starfsemi þess. En í ört
vaxandi bæjarfélagi er þetta
dagheimili orðið of lítið, er því
bærinn að byggja stórt og veg-
legt barnaheimili sem vonir
standa til að geti tekið til starfa
í haust. Verður það afhent Kven
félaginu til rekstrar. Ber að
þakka Kvenfélagi Keflavíkur
þess góða starf hér í bænum og
þá ekki sízt fyrrverandi for-
manni þess, frú Guðnýju Ásberg,
er var formaður félagsins í yfir
20 ár og hefur nýlátið af störf-
um.
Verður þetta til mikils hag-
ræðis fyrir þær mæður, sem
stunda vinnu utan heimilisins,
því það heimili verður starfrækt
allt árið.
Sumardvalir barna
— Hafið þið nokkrar sumar-
búðir fyrir börn eða þess háttar
starfsemi?
— Það hafði mjög borið á
góma hjá okkur í bæjarstjórn-
inni hvernig ætti að koma á fót
slíkri starfsemi. En nú er kom-
inn skriður á það mál. Er verið
að reisa sumardvalarheimili í
Krísuvík á vegum þjóðkirkjunn-
ar fyrir Kjalarnesprófastsdæmi
og hefur verið áformað að hafa
það með nokkuð nýstárlegu
sniði. Ætlunin er að byggt verði
sameiginlegt mötuneyti og síð-
an sjái hvert bæjar- og sveitar-
félag um að reisa svefnskála í
kring. Hugsanlegt er- að reka
þetta heimili sem heimavistar-
skóla á vetrum fyrir börn, sem
af einhverjum orsökum ekki
geta stundað nám í barnaskól-
unum.
Heilsuverndarstöð
— Hvað er að segja um heil-
brigðismálin?
— Samþykkt hefur verið að
koma hér á fót heilsuverndar-
stöð og var kosin nefnd til þess
að hrinda málinu í framkvæmd.
í henni eiga sæti Helgi S. Jóns-
son heilbrigðisfulltrúi bæjarins,
Kjartan Ólafsson héraðslæknir
og Arnbjörn Ólafsson læknir.
Frú Sesaelja Magnúsdóttir ritan, fru Vigdis Jakobsdottir formaður og fru Einka Arnadottir gjald
keri. Ljósm.: Heimir Stigsson.
100 konur starfa í kven-
félaginu Sólin í Keflavík
S.L. sunnudag heimsóttum við
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
í Keflavík. Mikill einhugur
hefur ríkt í þeim félagsskap,
konurnar verið duglegar við að
safna fé til ýmissa menningar-
mála og langaði okkur til þess
að frétta nánar af starfinu.
Á heimili formannsins, frú
Vigdísar Jakobsdóttur, eigin-
konu Alfreðs Gíslasonar bæjar-
fógeta voru staddar gjaldkeri
félagsins frú Eiríka Árnadóttir
og ritari þess frú Sesselja Magn-
úsdóttir. Aðrar konur í stjórn
Sóknar eru Guðný Árnadóttir,
varaformaður, Þórunn Ólafs-
dóttir, Elísabet Ásberg og Jóna
Einarsdóttir. Leystu þær frúrn-
ar greiðlega úr spurningum
okkar yfir ilmandi kaffi og góm
sætum kökum.
— Hve margár konur eru í
Sókn og hvernig er fundarsókn
hjá ykkur?
— Það eru um 100 konur í
félaginu og fundarsókn hefur
verið alveg prýðileg, sérstaklega
þegar miðað er við að það eru
alltaf sömu konurnar sem sækja
fundina, og margar hverjar eru
í öðrum félögum og hafa í
mörgu öðru að snúast.
Heimsóknir úr öðrum félögum
— Hve margir fundir eru
haldnir hjá ykkur?
—* Við h.öfum haldið um 4
fundi á vetri og höfum við feng
ið konur úr Vorboðanum í Hafn
arfirði og Hvöt í Reykjavík í
heimsókn og til fyrirlestrahalds.
Hefur það verið ákaflega vin-
sælt. Einnig höfum við haldið
uppi nokkurri húsmaeðra-
fræðslu. Og svo höfum við hald-
ið bazar í fjáröflunarskyni.
— Hvaða málefni hafið þið
aðallega styrkt með fjárfram-
lögum?
— f vetur átti kirkjan hér 50
ára afmæli og gáfum við þá
silfurvasa. Nú svo höfum við
styrkt ýmsa aðila sem hafa átt
um sárt að binda, en við skul-
um ekki tala um það.
Ánægðar með fulltrúa sinn
í bæjarstjórn
— Við erum alveg sérstaklega
ánægðar með Sesselju í bæjar-
stjórninni, sagði frú Vlgdís. —
Hún er dugmikil og vinsæl af
öllum hér í Keflavík. Við erum
stoltar af henni og sömuleiðis
af flokknum að hann er sá eini
sem hefur konu í öruggu sæti á
lista sínum.
— Og framtíðin?
— Við lítum bjrtum augum á
framtíðina og kosningarnar
framundan. Bæjarstjórnin hefur
gert afar mikið fyrir okkur a
þessu kjörtímabili sem nú er á
enda og við þurfum ekkert að
óttast á sunnudaginn.
Við þökkuðum frúnum fyrir
spjallið og höldum af stað heim
leiðis.
Frú Sesselja Magnúsdóttir.
Fyrst var áformað að reka heilsu
verndarstöðina í sambandi við
sjúkrahúsið, en það reyridist
ókleift þar eð sjúkrahúsið verð-
ur senn orðið lítið fyrir svo stór-
an kaupstað. Bærinn á húseign
að Túngötu 11, jpar sem tann-
læknir staðarins hefur verið til
húsa, en er hann flutti í eigið
hsúnæði var ákveðið að reka
stöðina þar. f sumar verða gerð-
ar smávægilegar breytingar á
húsinu, og vonir standa til að
stöðin geti tekið til starfa næsta
haust. Verður starfandi þar
barnalæknir, hjúkrunarkona og
bæjarljósmóðirin. Verður það til
hins mesta hagræðis fyrir bæjar-
búa að hafa barnasérfræðing á
staðnum. Þar mun einnig fara
fram bólusetning og eftirlit með
vanfærum konum.
Elliheimilið Hlévangur
— Viljið þér segja okkur eitt-
hvað frá starfsemi elliheimilisins.
Eruð þér ekki forstöðukona
þess?
— Jú, ég hef veitt elliheim-
ilinu forstöðu frá upphafi, eða i
8 ár. Upphafsmaður þessarar
stofriunar er Jón Guðbrandsson,
verkamaður, sem lézt á sl. árL
Hann gaf fyrir 8 árum veglegt
hús að Faxabraut 13 til þess að
stofnað yrði elliheimili og
skömmu fyrir andlát sitt gaf
hann einnig hæð í öðru húsi
sínu, Faxabraut 15A, til sömu
starfsemi. — Alls er nú rúm
fyrir 20 manns á heimilinu. Hef-
ur vistgjöldum verið mjög í hóf
stillt, þannig að ekki hefur allur
ellistyrkur gamla fólksins farið
í vistgjöld, það hefur jafnan haft
nokkurn afgang, svona rétt í
vasapeninga o. þ. 1.
— Hefur ekki heimilið hlolið
opinberan styrk?
— Jú, það hefur hlotið árlega
60 þús. kr. frá ríki og 60 þús.
kr. frá bænum. Hefur rekstur
heimilisins gengið mjög vel og
verið mér sönn ánægja að veita
því forstöðu.
Áherzla lögð á
íþróttastarfsemi
— Þetta er sem sagt í örum
vexti hjá ykkur?
— Já, það má nú segja að hér
sé allt í örum vexti. Á fjárhags-
áætlun bæjarins hefur verið veitt
fé til stækkunar barnaskólans,
gagnfræðaskólans og íþrótta-
húss.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
sérstaka áherzlu á að koma upp
stóru og vönduðu íþróttahúsi, og
hefur verið stefnt að því að gera
sem mest og bezt fyrir íþróttirn-
ar, enda hefur íþróttafólkið okk-
ar getið sér góðan orðstír og
orðið okkur til sóma bæði á inn-
lendum og erlendum vettvangi,
sagði frú Sesselja Magnúsdóttir
að lokum.