Morgunblaðið - 19.05.1966, Page 23
Fimmtudagur 19. maí 1966
MOHGUNBLAÐIÐ
23
— Páll Llndal
Framhald af bls. 32.
arinnar, en hinir eru borgar-
ritari og borgarverkfræðing-
ur. —
Borgarlögmaður segir, að lög-
fræðileg störf fyrir borgina séu
tiltölulega lítill hluti af störfum
sinum. „Fyrir dómstólum eru
t.d. nú mjög fá mál, sem borgin
stendur í“, segir Páll Líndal.
„Þau mál, Sem við eigum í eru
annars vegar um baetur vegna
slysa, eða annars konar bótakröf
ur, en hins vegar innheimtur
fyrir borgarstofnanir. Annað er
varla teljandi.
„Mikill hluti af daglegu starfi
fer í undirbúning borgarráðs-
funda og borgarstjórnarfunda og
í athugun ýmissa mála, sem
snerta borgin í heild eða ein-
stakra mála, sem til mín
er vísað. Hingað berst ákaf-
lega mikið af alls kon-
ar erindum um hvaðeina, bæði
frá innlendum aðilum og erlend
um. Við reynum að gera öllum
bréfriturum einhverja úrlausn,
a.m.k. beina viðkomandi erindi
í réttan farveg, koma bréfrit-
ara í samband við þá stofnun,
sem hefur með höndum umrætt.
máiefni. í>á er ákaflega erilsamt
hér, bæði koma margir til að
reka erindi sín og þá eru hinir
ekki fáir, sem nota símann.
Seinni hluti dagsins fer mikið
í fundarhöld, og þvi reyni ég að
afgreiða samborgarana sem mest
fyrir hádegi. í>að er mjög út-
breidd skoðun, að opinberir
starfsmenn, og þá ekki sízt svo-
kallaðir yfirmenn séu morgun-
svæfir í betra lagi. Ég vil nota
þetta tækifæri til að leiðrétta
það, því að okkar skrifstofa er
algerlega tekin til starfa á slag-
inu kl. 9.00, enda erum við öll
á stimpilklukku — frá borgar-
stjóra og niður úr!“
Borgarlögmaður heldur áfram:
„Skrifstofa borgarstjóra er þjón
ustustofnun fyrir aðrar borgar-
stofnanir. Hér eru t.d. fjölrituð
og ljósprentuð öll gögn borgar-
fultrúa. Tækjakostnaður skrif-
stofunnar var mjög aukinn og
bættur á síðastliðnu ári.“
Húsatryggingar Reykjavíkur
Við víkjum talinu nú að starfi
borgarlögmanns við Húsatrygg-
ingar Reykjavíkur, sem stofnað-
ar voru 1954 og tryggja allar
húseignir í Reykjavík fyrir
bruna. „Húsatryggingar Reykja-
víkur eru allstórt vátryggingar-
félag“, segir borgarlögmaður,
„og ekki verður annað sagt en
starfsemi þeirra hafi gengið
mjög vel. Brunabótaverð allra
þeirra húsa sem þær tryggja er
um 22 milljarðar króna. Við höf
um að undangengnu útboði end-
urtryggingu hjá Brunabótafélagi
íslands á mjög hagstæðum kjör-
um. Eigin áhætta trygginganna
er 28 milljónir króna. begar haft
er í huga, að ársiðgjöld eru rúm
•r 20 milljónir, var talið rétt að
kaupa sérstaka tryggingu ein-
•takra tjóna, er kynnu að raska
fjárhag trygginganna verulega.
Fyrir ötulleik forstjóra Bruna-
bótafélagsins, Ásgeirs Ólafsson-
*r, komumst við nýlega að mjög
góðum kjörum um endurtrygg-
ingu einstakra tjóna, sem nema
ineira en 5 milljónum.
Iðgjöld Húsatrygginga Reykja
víkur hafa farið hlutfallslega
lækkandi undanfarin ár, og er
ég ekki í vafa um, að húseig-
ertdur í Reykjavík telja þau kjör
sem við bjóðum mjög viðunan-
leg.“
,,Mið langar til að spyrja um
eitt, borgarlögmaður. Hvar er
skrifstofa þessa vátrygginga-
félags?“
„Húsatryggingarnar hafa furðu
einfalt skrifstofuhald. Fyrir ut-
an mig, ef telja á mig með, hafa
þær éinn starfsmann, sem fær
skrifstofuaðstöðu hjá byggingar-
fulltrúa i Skúlatúni 2. Gjald-
heimtan sér um innheimtu ið-
gjalda. Fyrir þetta greiða Húisa-
tryggingarnar að sjálfsögðu, en
orðið „skrifstofubákn“ á varla
við um þetta fyrirtæki, a.m.k.
ekki í dag.“
„Þegar hugað er að því, að
rekstur trygginganna hefur geng
ið svo vel sem lýst er, mætti
spyrja, hvað er gert við ágóð-
ann?“
Borgarlögmaður svarar á
þessa leið: „Hverju vátryggingar
félagi er að sjálfsögðu nauðsyn-
legt að hafa varasjóði til að geta
staðið við skuldbindingar sínar,
ef illa tekst til. En að öðru leýti
verð ég að vísa í lögin um bruna
tryggingar í Reykjavík, þar sem
segir, að tekjum skuli varið til
lækkunar á iðgjöldum, sem ég
tel að við höfum gert, og til efl
ingar brunavörnum. Það höfum
við framkvæmt á þann veg, að
Húsatryggingar lánuðu fyrir
nokkrúm árum hitaveitunni
15 milljónir króna til að
koma hitaveitu í borgina,
en það stórminnkar brunahættu
eins og allir vita. Þær hafa tekið
á sig kostnað við eflingu slökkvi
liðsins. Þær hafa síðast en ekki
sízt kostað byggingu hinnar
glæsilegu slökkvistöðvar, sem
tekin var í notkun á laugardag-
inn var.
Hagfraeðideild
„Hvað er að segja af hagfræði-
deild borgarinnar?“
„Það er helzt að segja, að
starfsemi hennar var endurskipu
lögð á sl. ári, og er ætlunin
að auka mjög starfsemi hennar.
Undanfarið hafa störfin aðallega
verið gerð framkvæmdaáætlun-
ar borgarinnar í samráði við
hlutaðeigandi borgarstofnanir,
en áætlunin var eins og kunnugt
er lögð fram á síðasta fundi
borgarstjórnar.
Ætlunin er að auka verulega
upplýsingastarfsemi deildarinn-
ar fyrir borgarfulltrúa og borg-
arstofnanir og má gera ráð fyrir
að sú starfsemi komist í fast
form í sumar.“
Slökkviliðið
„í erindisbréfinu er slökkvi-
liðið talið meðal málefna, sem
borgarlögmaður fer með.“
„Ég get varla sagt, að þar sé
um mikil vandamál að ræða í
daglegu starfi, a.m.k. sem til mín
koma þó að við höfum mikil
samskipti slökkviliðsstjóri og ég
vegna ýmissa málefna. Nú er bú
ið að semja um fasta hlutdeild
Kópavogs, Mosfellshrepps og Sel
tjarnarneshrepps í rekstrarkostn
aði slökkviliðins í Reykjavík.
Eg tel, að þessl samningur sé til
mikillar fyrirmyndar um sam-
starf sveitarfélaga, þar sem hér
er um augljósa vinnuhagræð-
ingu að ræða, sem hlýtur að
spara samfélag.inu stórfé.“
Skipulags-
og byggingarnefndarmál
Svo sem sagt var í upphafi er
borgarlögmaður formaður skipu
lagsnefndar Reykjavíkurborgar,
og spurðumst við fyrir um þann
þátt í starfi hans.
Undirbúningsvinnan að aðal-
skipulagi Reykjavíkur, sem
menn þekkja nú orðið, hefur tek
ið geysilegan tima fyrir mig, bar
sem ég var frá byrjun starfandi
við það.
Vinnan við það að undirbúa
skipulagið er kapítuli út af fyrir
sig, en þá kem ég að því per-
sónulegra, en það er gerð ís-
lenzka textans og ritstjórn bók-
arinnar. Ef eg á að lýsa staffinu
mjög losaralega var það á þessa
leið: Við heimamenn öfluðurn
upplýsinga um hvaðeina, sem
nauðsynlegt var talið, sömdum
drög að texta, sem síðan var
þýddur á dönsku eða ensku. Síð-
an sömdu samstarfsmenn okkar
í Kaupmannahöfn upp úr þessu
sinn texta í náinni samvinnu við
okkur. Þegar að því kom að
gera íslenzka textann, dæmdist
það á okkur Einar B. Pálsson
verkfræðing að sjá um hann.
Samvinnan við Einar var með
þeim ágætum, að ég á ekki orð
til að lýsa, og bar hann hita og
þunga dagsins í þessu samstarfi.
„Hvað er að segja um bygg-
ingarnefndina?“
„Mér finnst“, segir Páll Lín-
dal, „að störf byggingarnefndar
séu í eðli sínu framhald af störf
um skipulagsnefndar. Hún sjái
um framkvæmd á þeim ákvörð-
unum sem skipulagsyfirvöld
hafa tekið. Fyrir fundi bygg-
ingamefndar eru uppdrættir at-
hugaðir af fulltrúum ýmissa
borgarstofnana, þannig að
tryggt sé, að ’þeir séu í sam-
ræmi við reglur um ýmis tækni-
efni. Eins og menn vita er leyfi
nefndarinnar áskilið til hvers
konar nýbygginga og breytinga
á eldri húsum. Til skamms
tíma hafa verið of mörg. dæmi
þess, að húsum væri breytt í
„óleyfi“ og jafnvel risu upp
heil hús án byggingarleyfa. Ég
ætla, að þessi ósvinna sé að
mestu úr sögunni núna.“
Manntalsskrifstofan
Borgarlögmaður hefur með
höndum stjórn Manntalsskrifstof
unnar og við spyrjumst fyrir
um þá stofnun.
Hann svarar á þessa leið:
„Borgin hefur sem slík vissar
skyldur gagnvart þjóðskránni,
t.d. að fylgjast með flutningurn
manna til og frá, fjalla um stofn
þann að íbúaskrá, sem hagstof-
an gerir. Borgin þarf líka gagn-
vart almenningi að hafa upplýs-
ingamiðstöð um ‘hvaðeina, sem
snertir þesi mál. Þegar kosning-
ar fara fram, eru borginni lagð-
ar vissar skyldur á herðar. Þessi
verk eru unnin af manntalsskrif
stofunni. Margir munu þeirrar
skoðunar, að nóg sé að setja
fram lista og þá sé allt iclappað
og klárt. Það er mikill misskil.n
ingur. Undirbúningur kosning-
ana er geysimikið starf. Það
gera sér fæstir ljóst, hve mik'.a
vinnu það kostar að láta fara
fram — ég vona snurðulaust —
kosningu á tíu stöðum í borg-
inni. Á kjördegi starfa t.d. í icjör
stjórnum yfir 200 manns.
Það hefur verið árátta hjá
sumum við undanfarnar kosning
ar að gera Manntalsskrifstofuna
tortryggilega, en ég er því mjög
feginn, að slíkum leiðindaáróðri
virðist hætt, enda ástæðulaust
með öllu. Þá þykir mér ekki hátt
seilzt, þegar það er talið eitt-
hvert sérstakt nauðsynja- eða
framfaramál að fá skipulagi
skrifstofunnar breytt. Hún þarf
að leysa tiltekin verkefni, sem
borginni er skylt að sjá um, og
er það aðeins fyrirkomulagsatr-
iði, hvenýg þau verkefni verða
leyst. Starfslið getur varla ver-
ið minna — þrír menn, sem eru í
einu herbergi.
Almannavarnir
„Undanfarndr kosningar hafa
almannavarnir oft komizt á dag-
skrá. Hvað er um þær að segja?“
„Það er því miður of lítið“,
segir borgárlögmaður. Stjórnar-
völdin, bæði borgaryfirvöld og
Alþingi haf skammtað naumt fé
til almannavarna, svo að starfs-
möguleikar eru mjög takmark-
aðir en framkvæmdir kostnaðar
samar, eins og allir vita. Ef eitt-
hvað skyldi koma fyrir, þannig
að til kasta almannavarna komi
sem við öll vonum, að verði
ekki, þá er ég hræddur
um, að kallað verði — og
það hárri röddu — „Hvað
hefir verið gert?“ Okkur í al-
manna-varnanefnd, sem erum
fyrst og fremst embættismenn,
sem verðum þar að vera, hvort
sem okkur er ljúft eða leitt, er
þetta ákaflega vel ljóst.
Almannavarnanefnd hefur
eins og ég sagði mjög takmörkuð
fjárráð. Nú er að hefjast bygg-
ing birgðageymslu í Reykjah'.íð
í Mosfellssveit, í undirbúningi
er stofnun hjálparsveita, yfir
stendur endurnýjun tækja og
þjálfun starfsmanna, svo að
nokkuð sé nefnt. Almannavarna-
nefnd hefur nú bækistöð í
slökkvistöðinni nýju, enda
slökkviliðsstjóri framkvæmda-
stjóri nefndarinnar. Auk hans
nýtur nefndin starfskrafta ágæts
brunavarðar, Bjarna Bjarnason-
ar, sem kynnt hefur sér almanna
varnir sérstaklega og vinnur fyr-
ir nefndina hluta úr degi.
Fræðslumál, barnaverndarmál
og fleiri slík mál eru nefnd í
erindisbréfinu. Hvað er að segja
um þessi mál, borgarlögmaður?
„Þau hafa verið rædd svo mik
ið í blöðum undanfarið, að ég
tel ekki ástæðu til að fjölyrða
um þau, enda hef ég ekki verið
svo lengi í starfi, að ég hafi get-
að sinnt þeim að marki, enda
önnur mál og þá einkum skipu-
lagsmálin tekið mest af tíman-
um undanfárið eins og áður er
nefnt.
Um barnaverndarmál vil ég
segja það, að þar má vænta tölu
verðra breytinga á næst-
unni. Þessi mál hafa verið könn-
uð all ýtarlega og fyrir borgar-
ráði liggja álitsgerðir um þessi
efni.
Listir og menninigarstofnanir
„Mér finnst, að undanfarið
hafi’verið settar upp óvenjulega
margar höggmyndir í Reykjavík.
Er það eki rétt borgarlögmað-
ur?“
„í þessu sambandi vildi ég visa
í viðtal, sem ég átti við Morgun
blaðið fyrir skömmu um mynda
styttur í Reykjavík. Þar held ég,
að fram hafi komið allt það, sem
ég vildi sagt hafa um þau efni.
Ég held þó, að það séu ekki ýkj-
ur, að undanfarin ár hafi verið
meira sett upp af standmyndum
á almannafæri en nokkru sinni
áður og Reykjavík sé hvað snert
ir fjölda slíkra verka á almenna-
færi alveg samkeppnisfær við
aðrar höfuðborgir Norðurlanda.
Mín skoðun er sú, að við ætt-
um á næstunni að fá afsteypur
af verkum erlendra meistara til
að auka fjölbreytnina, jafnframt
því sem við „notum innlenda
menn“ eins og þar stendur. Nú
er verið að gera afsteypur af
þrem verkum eftir Ásmund
Sveinsson í Osló.“
Það er af þessu Ijóst, að borg
arsjóður stendur undir kostnaði
við gerð höggmynda. Við spyrj-
um því Pál Líndal, hvernig sé
um málverkakaup.
„Ég hef að vísu ekki „löggilt-
an smekk“, en þó ætla ég, að
ekki sé ofmælt, að það mundi
teljast mjög góð listsýning, ef
öll málverk borgarinnar yrðu
sett á eina sýningu, sem ég vona
að verði innan skamms. Borgin
á mjög góðar myndir eftir alla
okkar fremstu málara og alltaf
bætist við. Ég mundi segja, að
frekar skorti á úrval verka hinna
yngri manna, en fullur áhugi er
að bæta úr því.“
„Það virðist eðlilegt að spyrja,
hvað líði myndlistarhúsunum á
Miklatúni. Hvað er af þeim að
segja?“ y
Páll Líndal svarar á þessa
leið: „Ég geri ráð fyrir, að endan
legir uppdrættir aHnnesar Dav-
íðssonar arkitekts liggi fyrir um
miðjan júlí, þannig að þá verði
hægt að bjóða út byggingu
þessa. Hannes hefur gert nokkra
breytingu á útliti hennar, en að
öðru leyti er um óbreytta upp-
drætti að ræða frá því, sem sam
þykkt var á áttræðisafmæli Kjar
vals. Mér þykir sennilegt, að
framkvæmdir geti hafizt áður en
langt um líður, enda verulegri
fjárhæð ætlað til slíks auk fram-
laga frá myndlistarmönnum, sem
eru samstarfsaðilar.“
„Hvað er að segja um aðrar
byggingar undir menningarstofn
anir?“
„Þá er fyrst að víkja að hinu
margumrædda borgarleikhúsi.
Það mál er í höndum Leik-
félags Reykjavíkur, en borgar-
sjóður mun vafalaust styrkja þá
byggingu myndarlega og hefur
þegar verið veitt fé til slíks.
Byggingin er ráðgerð í hinum
nýja miðbæ, sunnan Miklu-
brautar, og muri félagsstjórnin
ákveðin í að hafa norræna sam-
keppni arkitekta um uppdrætti.
Aðstaða safnsins er, þrátt fyr-
ir vegleg húsakynni að Þing-
holtsstræti 29, orðin allerfið.
Borgaryfirvöldum var þetta
ljóst, og því var á sl. ári feng-
inn til ráðuneytis borgarbóka-
vörðurinn í Gautaborg, sem er
einn mestur sérfræðingur Svía
um almenningsbókasöfn. Hann
hefur skilað ýtarlegri greinar-
gerð um bókasafnsmál Reykja-
víkur auk þess sem hann flutti á
sínum tíma erindi fyrir borgar-
fulltrúa og fleiri um þessi mál.
Nú hefur verið skipaður nýr
borgarbókavörður, Eiríkur
Hreinn Finnbogason. Þykir ekki
rétt að ganga endanlega frá
tillögum, fyrr en hann er kom-
inn til starfa. Mín skoðun er sú.
að bygging aðalbókasafns í hin-
um nýja miðbæ sé næsta verk-
efnið. Þar við hliðina á ætti að
rísa bygging hins gamla og
virðulega Landsbókasafns, þann
ig að þau tvö gætu bætt hvort
annað upp og komið upp skyn-
samlegri verkaskiptingu. Þessi
hugmynd á sennilega ekki upp
á pallborðið hjá, sumum, sem
munu helzt vilja komb. Lands-
bókasafninu út á háskólalóðina.
Önnur mannvirki?
„Til skamms tíma hafði ég
með höndum framkvæmdastjórn
fyrir byggingarnefnd sýnipgar-
og íþróttahússins í Laugardal.
Það er nú komið í gagnið eins
og kunnugt er, en ég lét af þessu
starfi um sl. áramót.
Ákveðin er bygging nýs æsku-
lýðsheimilis við norðanverða
Tjörnina, þar sem Tjarnarbær
er og slökkvistöðin gamla. Er
ætlunin, að sú bygging taki
við þeirri starfsemi, sem nú er
að Fríkirkjuvegi 11“.
Skrifstofan
Ef við snúum nú aftur að upp-
hafinu, skrifstofu borgarstjóra,
þá er spurningin sú, hvort þessi
skrifstofa sé ekki óþarflega fjöl-
menn og þarafleiðandi of dýr í
rekstri.
Borgarlögmaður svarar þessu
svo sem hér segir: „Það fer að
sjálfsögðu eftir því, hvaða verk-
efni ætlazt er til, að skrifstof-
an leysi af hendi. Það mætti
sjálfsagt dreifa starfsliðinu á
ýmsar stofnanir og spara þannig
til málamynda. Stefnan hefur
hins vegar verið sú að sameina
sem mest, þannig að nýtt sé sem
bezt tækjakostur og kunnátta
starfsliðs.
Oftlega láta alvarlegir menn í
ljós miklar áhyggjur út af
þessu „skrifstofubákni“, sem sé
alveg að sliga borgarbúa. f
þessari skrifstofu vinna sam-
tals rúmlega 40 manns. Þar sem
ég veit, að bankarnir hafa yfir-
leitt mjög hægkvæman rekstur,
tiltölulega einfalt skrifstofuhald,
móðgar það væntanlega engan,
þótt ég gizki á, að starfslið í
hinni margræddu skrifstofu
borgarstjóra sá álíka margt og
minnsta bankanum í Reykja-
vík“.
Við spyrjum Pál Líndal að
lokum um það, hvernig honum
falli þetta umfangsmikla starfs
og spyrjum: Hvernig er að vera
borgarlögmaður? Hann svarar:
„Það starf, sem ég hef með
höndum er hvort tveggja í senn
mjög lærdómsríkt og mjög
skemmtilegt. Hingað í skrifstof-
una er stöðugur straumur fólks
og enn fleiri hringja, þannig
að ekki á vantar fjölbreytnina.
Mín skoðun er sú, að hlutverk
okkar embættismanna sé það
fykrst og fremst að leitast við að
leysa mál borgarana og að
minnsta kosti að þeir fari sæmi-
lega ánægðir af okkar fundi, þótt
þeir hafi ekki fengið framgang
sinna mála. Það er skylda okkar
að hlusta á röksemdir þeirra,
setja okkur í þeirra spor, en
halda þó á málstað borgarinnar
með fullri einurð, þegar hags-
munir beggja geta ekki farið
saman. Oft koma til mín menn,
sem vilja fá samþykkt eitthvað
í byggingarnefnd, sem vafasamt
er. Þeir vitna í fordæmi. Við
þessu er aðeins eitt svar, sem
flestir sætta sig við, þ.e. að segja,
að þótt mistök hafi e.t.v. verið
gerð, hljóti menn að hafa rétt til
að læra af reynslunni og því
verði að breyta frá því, sem áð-
ur var gert. Flestir géta auð-
veldlega skilið þetta og sætta sig
við það, þó þeir hefðu að sjálf-
sögðu kosið önnur málalok. Með
því að hlusta á röksemdir komu-
manna og benda þeim á rök
borgaryfirvalda tel ég, að svo til
öll mál fáist leyst þannig að báð-
ir aðilar geti eftir atvikum við
unað. Þetta tekur að vísu tínva,
en hér er um að ræða tvímæla-
lausan rétt þeirra, sem til okkar
koma.
í starfi mínu hef ég kynnzt
miklum fjölda fólks úr öllum
stéttum og tel margt af því fólki
í hópi góðra vina eftir okkar
viðskipti. Það er mjög lærdóms-
ríkt fyrir okkúr innisetumenn-
Framhald á bls. 31.