Morgunblaðið - 19.05.1966, Síða 30
ou
muituunoiiMUiv
Flmmtudagur 19. maí 1960
Lið Reykjavíkur
gegn Keflavík
í kvöld
í KVÖL.D fer fram bæjakeppni í knattspyrnu milli Reykjavíkur og
Keflavíkur. Leikurinn fer fram á Melavelli og hefst kl. 20.30.
Þetta er annað sinn sem fram fer bæjakeppni milli þessara
héraða, en 1962 sigraði Reykjavík með 4-1.
Lið Reykjavíkur í kvöld verður þannig skipað:
Guðmundur Pétursson (KR)
Jóhannes Atlason (F) Þorsteinn Friðþjófsson (V)
Anton Bjarnason (F)
Ómar Magnússon (Þ) Ólafur Ólafsson (F)
Ari og Hannes i hinni glæsilegu sundlaug.
Eyleifur Hafsteinsson (KR) Guðmundur Haraldsson (KR)
Reynir Jónsson (V) Ingvar Elísson (V) Axel Axelsson (Þ)
5íveinn Pétursson Jón Jóhannsson Einar Gunnarsson
Jón Ól. Jónsson Karl Hermannsson
Einar Magnússon Magnús Torfason
Sigurður Albertsson
Grétar Magnússon Magnús Haraldsson
Kjartan Sigtryggsson
Lið Keflavíkur.
Dómari verður Baldur Þórðarson.
Fram og Valur
skildu jöin 0-0
FRAM og Valur léku í
Reykjavíkurmótinu í fyrrákvöld
og skildu jöfn — hvorugu lið-
inu tókst að skora. Er þetta
þriðji leikur mótsins í röð sem
ekkert mark er skorað í. Hafa
öll liðin tekið upp þá leikaðferð
sem nefnist 4—24, þ.e. 4 fram,
2 tengimenn og 4 í vöm. Ekkert
liðanna hefur megnað að fram-
kvæma þessa leikaðferð sem
skildi og verður sóknarleikurinn
einkum útundan — og mörkin
koma ekki.
Leikurinn var heldur daufur
af þéssum sökum þó sjá mætti
sæmilega spretti hjá báðum lið
um.
Sýning í Laugolækjarskóla
Sýning á vinnu nemenda Lau
galækjarskólans er opin í dag
kl. 2—6. Sýndar eru teikningar
handavinna, vinnubækur og ýmis
konar sameiginleg verkefni ne
menda á aldrinum 7—15 ára.
Myndin er tekin í gær er ver
ið var að ljúka uppstillingu
muna. Ingibjörg B'jörnsdóttir
kennari og einn nemenda, Lára
Helgadóttir standa við borgarlí
kan sem 9 ára nemendur Ingi-
bjargar hafa unnið að. — Ljósm.
Sv. Þorm.
Gufubaðstofa með sundlaug opn-
uð almenningi hjá Loftleiðum
Glæsileg húsakynni og oðs/oðo öll
EINS og skýrt hefur verið frá
er glæsileg sundlaug í Loftleiða-
hótelinu nýja. Þar er og mjög
fullkomin aðstaða til annarra
baða og sjá þeir um rekstur bað-
stofanna þeir Ari Guðmundsson
hinn gamalkunni sundkappi og
Hannes Ingibergsson íþróttakenn
ari. Gáfu þeir blaðamönum kost
á að skoða og reyna hina full-
komnu baðaðstöðu í hótelkjall-
aranum og í skemmstu máli er
það að segja að aðstaðan er í
sérflokki hér á landi; fullkomin
böð, gufubaðstofa, nuddstofa,
ljós, auk sundlaugarinnar, sem
allir gestir baðstofunnar hafa
aðgang að ásamt hótelgestum, en
aðrir ekki.
Þeir Ari og Hannes setjast í
hinar stórglæsilegu vistarverur í
baðstofuhluta kjallarans, en fátt
virðist hafa verið til sparað að
gera þar allt sem bezt úr garði.
Út af fyrir sig er einstök hvíld
og afslöppun að koma í sund-
laugarsalinn. Ómfögur tónlist
hljómar þar daglangt, þægileg
lýsing, þægilegir litir, upphitun
og loftræsting — og er allt þetta
sjálfvirkt. Blómaskreyting og
önnur skreyting er og sérlega
skemmtileg. Laugin er 30 stiga
heit en til hliðax setlaug 40 stiga
heit.
Hótelgestir hafa aðgang að
gufubaði og lauginni frá 8—5 dag
hvern. En samtímis því og einnig
fram eftir til kl. 8 virka daga
nema laugardaga 8—5 og 9—12
á sunnudögum reka þeir Ari og
Hannes baðstofurnar fyrir allan
almenning.
Þarna eru aðskildar baðstofur
fyrir konur og karla og sér
Hjördís Baldursdóttir um kvenna
deildina. Er hún lærð nuddkona
frá Danmörku. Munu enn lausir
tímar hjá henni eftir hádegi
virka daga.
í Gufubaðstofunni í Loftleiða-
hótelinu köstar gufubað 45 kr. og
er sundlaugarférð innifalin. —
Nudd kostar 80 kr. og þarf að
panta það fyrirfram. Síminn er
sími hótelsins 22322. Sólböð
kosta 15 kr. og hvíldarlega 10 kr.
Til leigu eru handklæði og sund-
skýlur karla og sundbolir
kvenna í öllum stærðum.
Þeir Ari og Hannes eru vanir
nuddmenn og þó nuddstofa
þeirra veiti samskonar þjónustu
og aðrar stofur sömu tegundar
þá hefur sundlaugin, sem þeir
hafa fram yfir aðra, sína sérstöku
töfra.
Þeir Ari og Hannes lögðu
áherzlu á ágæti vatns-, gufu og
sólbaða auk nuddsins. Lögðu
þeir þó áherzlu á að gufubaÖ
væri allerfitt fyrir líkamann og
því ættu^menn ekki að flýta sér,
heldur taka sér góða hvild á
eftir 10—15 mín. stytzt, en þá
væru menn líka sem nýir menn.
Innagngur baðstofunnar er um
hótelanddyrið.
Dagfríður og Gyða við snyrtingu.
Isl. karlmenn feimn-
MELAVOLLUR
í kvöld (fimmtudag) kl. 20 30 fer fram
BÆJAKEPPIMIIM
REYKJAVÍK - KEFLAVÍK
Á MELAVELLINUM.
Mótanefnd K.R.R.
ir við snyrtistofur
í NÆSTU stofu við Gufubaðstof-
una í Loftleiðahótelinu er snyrti-
stofa sem Gyða Ólafsdóttir og
Dagfríður Halldórsdóttir reka.
Hún er og opin öllum almenningi
og jafnt körlum sem konum. Er
opið milli 9 og 6 virka daga en
9—12 laugardaga.
Þarna er fáanleg öll snyrti-
þjónusta, húðhreinsun, fót- og
handsnyrting og það sem þær
forstöðukonurnar kalla „parta-
nudd“.
Báðar eru þær Gyða og Dag-
fríður lærðar erlendis, önnur í
Kaupmannahöfn, hin í London.
Þarna hafa ýmis tæki m..a.
víbrabelti sem eftirsótt er sem
sérstök nuddaðferð. Þá er og
væntanlegt tæki sem eyðir
sprungnum háræðum, líkamshár-
um o. fl.
Þær sögðu að miMu meira
væri um það hérlendis að kven-
fólk notfærði sér þjónustu snyrti
stofa en erlendis væri þetta mjög
skipt. Þeir karlmenn sem not-
færa sér slíkt hér sækja yfirleitt
um fasta tíma. Og nú er svo
komið hjá þeim Gyðu og Dag-
fríði að ein-n daghluta hafa þær
fyiir karlmenn.