Morgunblaðið - 19.05.1966, Qupperneq 31
flmmtudagur 19. maí 1966
MORGUNBLAÐID
31
ÞEIR sjálfboðaliðar, sem ætla að vinna fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á kjördag, tilkynni þátttöku sína sem fyrst í símum
21409 og 17100 eða í Hafnarstræti 19, HI. hæð (hús HEMCO).
Þyrlan við folksflutninga
a snjoþyngstu svæðum
eystra
MBL hefur fregnað, að sakir
tnikilla snjóþyngsla á leiðinni
milli Egilsstaða og Seyðisfjarð-
ar, þannig að það hefur tekið
snjóbíl fleiri tíma að komast
leiðar sinnar, hafi, fyrir tilstilli
Jónasar Féturssonar alþingis-
manns á Egilsstöðum, og Féturs
Blöndals á Seyðisfirði, þyrla
Landhelgisgæzlunnar verið
fengin þangað til þess að annast
fólksflutninga.
Til þess að fá frekari fregnir
af þessu, sneri Mbl. sér til Pét-
urs Sigurðssonar, forstjóra Land
helgisgæzlunnar. Hann kvað
þyrluna hafa farið frá Reykja-
vík í fyrradag til Akureyrar,
þar sem hún var yfir nóttina.
Þaðan flaug hún svo í gaermorg-
un til Egilsstaða og hóf þegar
— Allir fengu lán
Framhald af bls. 31
sem i gildi eru hjá stofnuninni,
þ.e. 100 þús. kr., 150 þús. kr., 200
þús. kr., svo og fyrri eða síðari
hiuti hámarkslánsins fyrir árið
1965, sem er 200 þús. kr. Rann
meginhluti fjárveitingarinnar til
þeirra, sem áttu rétt til 260 þús.
kr. láns, en það er sem kunnugt
er, veitt í tveim jafnstórum hlut-
urn. Þá var nú einnig í fyrsta
sinn veitt viðbótarlán það, er fé-
lagsmenn verkalýðsfélaga eiga
forgangsrétt til. Er það lán að
upphæð 75 þús. kr. og var ýmist
borgað út í einu eða tvennu lagi.
Fá þeir umsækjendur það við-
bótarlán greitt í einu lagi, er
áttu nú rétt á síðari hluta nú-
.gildandi hámarksláns. Hinir
fengu fyrri hluta þess greiddan
tneð fyrri hluta hámarkslánsins.
Loks má geta þess, að áður en
lánveiting hófst tók Húsnæðis-
málastjórn ákvörðun um það, að
veita þeim lífeyrissjóðsþegum,
er fullgildar umsóknir áttu hjá
Stofnuninni, lán til viðbótar láni
frá lífeyrissjóði viðkomandi um-
sækjanda, þó þannig, að heildar-
lánsfjárhæðin færi eigi upp fyr-
ir 480 þús. kr.
Umsækjendur, er hyggjast nú
sækja um lán til viðbótar því,
er þeim hefur nú verið veitt, ber
að senda stofnuninni umsókn um
það fyrir 15. sept. nk. Umsækj-
endur, er eiga völ á föstu láni til
fbúðarbyggingar úr lífeyrissjóði
eðá annarri sambærilegri lána-
stofnun, ber þá að skýra frá því
á umsóknareyðiblaðinu.
Reykjavík, 18. maí 1966.
fólksflutninga, milli Egilsstaða
og Seyðisfjarðar. Þyrlan getur
tekið þrjá farþega, og er hún
ekki nema 10—12 míntúur að
fara þessa leið.
Pétur sagði ennfremur, að
Landhelgisgæzlan hefði sent í
dag áklæði til þess að verja
þyrluna, en fyrir austan er ekk-
ert flugskýli fyrir hana. >á voru
og sendar um ieið sjúkrabörur,
og benzín á þyrluna er á leið
austur með varðskipi. Hann
kvað það vera ætlunina að
þyrlan yrði þarna fyrir austan
í nokkra daga, til þess að sjá
hvernig hún reyndist í þessum
flutningum.
— Páll Lindal
Framhald af bls. 23
ina að fá tækifæri daglega til að
umgangast fólk úr öllum átt-
um. Sérstaklega tel ég það þó
lærdómsríkt, að ‘hafa kynnzt
þeim ágætu mönnum, sem setið
hafa í borgarstjórn frá því að
ég hóf störf hjá borginni,
bæði sem ritari borgarráðs og
borgarstjórnar um langt skeið.
Samskiptin við alla borgarfull-
trúana hafa undantekningarlaust
verið mjög ánægjuleg. Ég sé
því ekki eftir því, að ég tók þá
ákvörðun 1949 skömimu eftir
embættispróf að taka við starfi
sem fulltrúi þáverandi borgar-
stjóra, Gunnars Thoroddsen,
þótt 4g hafi hins vegar kunnað
ágætlega við það starf, sem ég
gegndi í stjórnarráðinu áður“.
Safn IVfarkúsar
*
Ivarssonar
SÝNINGIN á safni Markúsar
Ivarssonar í Listasafni ríkisins
verður opin á uppstigningardag
milíi kl. 2—10. Þarna eru 57
málverk eftir 22 okkar þekkt-
ustu málara, og eru myndirnar
frá árunum 1915—1943. Góð að-
sókn hefur verið að sýningunni
fram að þessu.
Verkfallið í Bretlandi
— Útflutningsbann sett á kjöt — Mat-
vælaverð hækkar
Sjálístæðismenn skiiÍQ
FRÁ
London, 18. maí — AP-NTB
BREZKA stjórnin hefur sett
útflutningsbann á kjöt og bú-
pening til að koma í veg fyrir
hugsanlegan matvælaskort í
landinu, ef verkfall farmanna
verður langvinnt. Bann þetta
mun ganga í gildi laugardag-
inn' 21. maí. Mestur hluti kjöt-
útflutnings Breta, en hann er
um 4.500 tonn á mánuði fer
til meginlandsins. Verð á
kjöti, grænmeti og ávöxtum
hækkar með hverjum degi og
verkfallsskipum fjölgar stöð-
ugt í brezkum höfnum. — A
miðvikudag var áætlað að
um 360 skip væru lögzt að
hafnarbökkum víðsvegar um
landið, allt frá smáum strand
ferðaskipum til hafskipsins
„Queen Elizabeth“, sem er 83
þúsund tonn að stærð.
Farmannasamtökin, sem telja
65 þúsund manns, krefjast 17%
launahækkunar, en í dag hafa
sjómennirnir um 1800 kr. á
viku. Harold Wilson hefur farið
fram á við farmennina, að þeir
taki við 3% hækkun þegar í stað
Þyrlunum gekk
vel til Grænlands
DÖNSKU þyrlurnar, sem komu
til Keflavíkur sl. mánudag,
lögðu aftur á stað til Grænlands,
en þangað er förinni heitið, laust
fyrir kl. 9.30 í gær. Með þyrlun-
um I förinni var danskur kata-
línaflugbátur, sem hafði orðið
samferða hingað frá Danmörku.
Þyrlurnar flugu sjónflug til
til Kulusukk, og voru þær komn-
ar þangað nokkru fyrir hádegi.
Þar stöldruðu þær síðan stutt
við, héldu förinni áfram því
næst til Nassarsuaq, og flugu
meðfram ströndinni. Voru þær
komnar þangað um miðjan dag
í gær.
1 Narssarsuaq mun flugbátur-
inn snúa aftur við til Danmerk-
ur, en þyrlurnar munu verða í
æfingaflugi á Grænlandi í u.þ.b.
hálfan mánuð, en fara þá sömu
leið til baka. Er erindi þyrlanna
til Grænlands, að kanna hvern-
ig þær reynist í aðstæðum, eins
og þar eru.
AFRÆM
og að tafarlaust muni fara fram
ítarleg rannsókn á kjaramálum
þeirra. Sjómennirnir höfnuðu
þessari tillögu og fóru í verkfall.
Mikil hætta er sögð vera á því
að hafnarverkamenn geri samúð-
arverkfall. Eftir því sem verk-
fallsskiþum fjölgar í brezkum
höfnum, verður erfiðara að veita
erlendum skipum þjónustu. —
Hafnaryfirvöldin eru því sögð
vonast til að stjórnin biðji sjó-
herinn að aðstoða við að flytja
til þáu skip, sem tefja fyrir af-
greiðslu á erlendum skipum.
Jack Dash, óopinber leiðtogi hafn
arverkamanna í London, hefur
lýst því yfir, að verði sjóherinn
kallaður út verði hart látið mæta
hörðu og hin erlendu skip verði
ekki afgreidd.
William Hogarth, framkvæmda
stjóri farmannasamtakanna, hef-
ur tilkynnt atvinnumálaráðuneyt
inu, að ef stjórnin kalli sjóher-
inn út, muni það einungis leiða
til víðtækra samúðarverkfalla,
sem muni hafa mjög alvarlegar
afleiðingar. Hogart kvað hafnar-
verkamenn og starfsmenn járn-
brautanna hafa heitið farmönn-
um fullum stuðningi ef á þurfi
að halda.
— Skip ferst
Framhald af bls. 1
30 mínútum. Með skipinu
voru 262 farþegar og sam-
kvæmt seinustu fréttum er
um 140 manns enn saknað.
Hvirfilvindurinn „Irma“
skall á Filippseyjum með 144
km vindhraða á mánudag og
fórust 13 manns í landi.
Samkvæmt upplýsingum frá
skipafélaginu komust 136 þeirra
sem voru á strandferðaskipinu
upp á smáeyjuna Bantayan.
Leitarflugvélar, sem flugu yfir
staðinn þar sem „Pioneer Cebu“
sökk, sáu björgunarbáta á floti
og fjölda manns hangandi á
þeim, en vegna veðurofsans gátu
þyrlur ekki athafnað sig.
Samkvæmt frásögnum skip-
brotsmanna, hafði skipið tekið
niðri á skeri og sokkið 30 mín-
útum eftir að neyðarskeyti
hafði verið sent út. Lýsingar
þeirra sem af komust voru ó-
hugnanlegar. Mikil ringulreið
rikti um borð, háar öldur gengu
yfir skipið og brutu flesta
björgunarbátana þegar í stað.
Farþegar og skipverjar sópuð-
ust útbyrðis, en þar tóku hákarl
ar á móti þeim. 136 manns kom-
ust við illan leik í land á smá-
eyju, en ennþá er ekkert vitað
um afdrif 140 farþega og skip-
verja.
3 BÚR-togarar á síld
— með sildarvörpu, sem nær dýpra
en nætur
EINS og áður hefur verið skýrt
frá, hefur verið gerð ráðstöfun
til þess að afla tækja fyrir þrjá
togara BÚR, sem síðan verði
gerðir út til síldveiða með síld-
arvörpu nú á komandi síldar-
vertíð.
Mbl. hefur nú aflað sér upp-
lýsinga um það, að aflanum
muni verða landað hér í Reykja-
vík til vinnslu, þ.e. til frysting-
ar og söltunar. Gert er ráð fyrir
að togararnir hefji ekki veiðar
fyrr en nokkru á eftir síldveiði-
bátunum.
bátanna
Ástæðan fyrir því er sú, að í
fyrstu er síldin oft mjög stygg,
en reynslan hefur síðan sýnt á
undanförnum árum, að hún verð
ur spakari þegar líða tekur á
sumarið.
Safnast síldin þá í þéttar
torfur á nokkru dýpi, og eru þá
góðar aðstæður fyrir togara að
ná síldinni í síldarvörpuna, sem
er sérstaklega gerð fyrir þessar
veiðar, enda þótt bátarnir geti
það á hinn bóginn ekki, þar sem
nætur þeirra eru ekki nógu
djúpar.
AÐ SMÆKKA SJÁLFAN
SIG. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur verið' í samstarfi við Al-
þýðuflokkinn um stjórn bæjar-
mála Hafnarfjarðar um þriggja
ára skeið. Þrátt fyrir áratuga
harða baráttu milli þessara
flokka tókst málefnalegt sam-
starf. Það samstarf var af heil-
hug gert af hálfu Sjálfstæðis-
manna, enda hafa þeir ekki vak
ið ádeilur á samstarfsflokkinn
eða einstaka flokksmenn hans.
Hinsvegar hefur ekkert verið
hikað við af hálfu Sjálfstæðis-
manna, að láta það koma fram
að samstarfsflokkarnir hafi
staðið fast saman í hinum miklu
framfaramálum, sem unnið hef-
ur verið að.
Við útkomu Alþýðublaðs
Hafnarfjarðar sést bezt að við
annan tón kveður af hálfu AI-
þýðuflokksmanna. Þeim finnst
sér sæmandi að veitast að ein-
stökum Sjálfstæðismönnum, og
þá einkum borið á bæjarstjóra,
sem unnið hefur ómetanlegt
starf fyrir Hafnarfjörð í lausn
hinna stóru mála, að hann sýni
vanrækslu í starfi.
Það er jafnvel svo lágt lagzt
að láta Gísla rafveitustjóra gefa
Kristni Gunnarssyni vottorð
um að hann standi vel í skilum
fyrir Bæjarútgerðina við Raf-
veituna nú í vertíðarlok. Jafn-
framt er kastað hnútum að bæj-
arstjóra fyrir að hann standi
ekki eins vel í skilum fyrir
bæjarsjóð.
Á það er ekki minnzt, að
skuldasúpuqa, sem Bæjarútgerð
in var á sínum tíma komin í
greiddi bæjarsjóður, hvað þá
að á það sé minnst, sem bæjar-
fulltrúar Alþýðuflokksins vita
að nú nýiega varð bæjarsjóður
að greiða um tvær milljónir
króna í afborganir og vexti af
lánum vegna Bæjarútgerðarinn-
ar og siðast en ekki sízt er það
ekki látið koma fram, að Bæj-
arútgerðin hefur innheimt út-
svör af starfsfólki, en ekki skil-
að þeim til bæjarsjóðs
og skuldar þannig um 1,1
milljón króna, eða margfalda
þá upphæð, sem bæjarsjóður
skuldar Rafveitunni.
Þá hefði e.t.v. ekki gert tH að
sá sannleikur hefði komið fram,
að ekki eru margar vikur sið-
an varð að beita rafveitustjóra
hörðu til að loka ekki fyrir raf-
magnið hjá Bæjarútgerðinni.
Leikurinn er því auðskilinn. AI-
þýðuflokkurinn lætur Kristin
Gunnarsson draga það að skila
útsvörum, fá svo rafveitustjóra
til að gefa honum siðferðisvott-
orð en kasta hnútum að bæjar-
stjóra. Vel má vera að Alþýðu-
flokksntönnum þyki þetta snið-
ugt en þeir hafa aðeins smækk-
að sjálfa sig því slíkt ódreng-
lyndi hentar ekki Hafnfirðing-
um.
Sjálfstæðismenn slíðruðu
sverðin í núverandi samstarfi
®n Alþýðuflokksmenn stungu
aðeins rýtingnum upp í ermina.
Sýnir þetta dæmi nú ekki bet-
ur en flest annað, hve nauð-
synlegt er, að Sjálfstæðisflokk-
urinn fái hreinan meirihluta?
Allir eitt fyrir Hafnarfjörð. X D.
Haf nf irðingar !
Vörum okkur á
sundrungaröflum.
Stöndum fast um
D-listann. X-D
1 Kjósum Geir 1 tal Igi ímsson 1 borgs irstj óra 'AFRMM