Morgunblaðið - 28.05.1966, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.05.1966, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLADIÐ Laugardagur 28. mai 1966 Opið á hvítasunnudag frá kl. 11 f Ji. tU kl. 23,30 e.h. HÁTÍÐA MATUR HÁTÍÐA KAFFI HÁTÍÐA KAFFIBRAUÐ Um helgina horðar öll fjölskyldan á MATSTOFU AUSTURBÆJAR Annar í hvítasunnu oplð eins og venjulega frá kl. 9 f.h. Alla virka daga opið eins og undanfarin ár frá kl. 7,30—11,30. HRAÐI — GÆÐI — ÞÆGINDI MATSTOFA AUSTURBÆJAR Laugavegi 116. Sími 10312, Laugavegi 116. Husnæðí óskast Tvær íbúðir (þurfa ekki að vera í sama húsi), eða hús með 6—7 herbergjum óskast til leigu hið fyrsta. Skilvís greiðsla og góð umgengni. Tilboð merkt: „Sendiráð 9852“ sendist afgr. MbL fyrir 31. þ. m. Auglýsing um lógtök Samkvæmt beiðni Ríkisútvarpsins dags. 26. maí 1966, úrskurðast hér með, að lögtök fyrir ógreidd- um afnotagjöldum útvarps fara fram að átta dög- um liðnum frá birtingu úrskurðar þessa. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 27. maí 1966. Kr. Kristjánsson. 10 landa sýn Sérstök skemmtiferð í sól á sögustaði að sumri. — Ferð fyrir unga sem aldna. 25 daga ferð fyrir aðeins kr. 15.900 Frá íslandi til Færeyja, Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Þýzkalands, Hollands, Belgíu og Frakklands. — FARIÐ FRÁ REYKJA- VÍK 11. JÚNÍ OG KOMIÐ HEIM 6. JÚLÍ. — Dvalið í viku í Kaupmannahöfn og 6 daga í París. Allt innifalið í verðinu. Nokkur sæti laus. — Símið strax. — Allar nánari upplýsingar gefur: Ferðaskrifstofa Sigfúsar Johnsen Vestmannaeyjum, sími 1202 og 1959 eftir skrifstofutíma. Pósthtólf 111. — Vestmannaeyjum. Bjarni R. Gestsson Minningororð MÉR brá við þegar ég fyrir nokkru kom á heimili þeirra systkina Ingu og Bjarna R. Gestssonar, og frétti að hann hefði þá fyrir fáum dögum orð- ið snögglega sjúkur og verið fluttur í sjúkrahús, og tvísýnt væri um bata, og þannig fór að þaðan átti hann ekki aftur Helgasyni og konu hans Jakob- ínu Ásgeirsdóttur og má segja, að það hafi verið hans annað heimili, en hér hélt hann saman heimili með Ingu systur sinni, eftir að móðir þeirra lézt. Bjarni mun ekki hafa verið heill heilsu um nokkurt skeið, en hann var dulur í skapi og kvartaði ekki, þótt eitthvað am- aði að. Hann var traustur félagi, og vinafastur, heldur hlécLrægur og skipti sjaldan skapi, en glað- ur og skemmtilegur í vina hóp, hin góðlátlega kýmni hans gerði hann eftirsóttan félaga. Prúð- mennska hans og hógværð í allri framkomu, var hans aðalsmerki. I>að var ekki langt á milli æskuheimila okkar vestur á Þingeyri, þar sem við og systkini okkar lékum okkar saman, en hópnum hefur smá fækkað, og nú er enn einn horfinn af sjónar- sviðinu, en eftir eru Ijúfar minningar um góðan æskuvin og ánægjulegar samverustundir. Ég þakka honum fyrir samferð- ina og bið honum allrar blessun- ar á þeirri leið, sem hann hefur nú lagt út á. Bjarni R. Jónsson. heimkvæmt. Hann andaðist þann 13. þ.m. eftir fárra daga legu. Bjarni Rútur var fæddur 2. septemíber 1903 að Litlu-Eyri við Bíldudal og voru foreldrar hans þau hjónin Gestur Jónsson, bófcbindari frá Þverfelli í Dala- sýslu og Jónfríður Helgadóttir frá Hofi í Dýrafirði. Var hann elztur 5 systkina, en hin eru öil á lífi. Þegar hann var 4 ára gamall fluttust foreldrar hans til Þing- eyrar í Dýrafirði og ólst hann þar upp. Þar stundaði hann algenga vinnu, eins og títt var um unga menn í þá daga, og var oftast í kaupavinnu á sumrin eftir að hann komst til fullorð- ins ára. Hann lærði bókband hjá föð- ur sínum, og var ennfremur 1 ár við nám í þeirri iðngrein hjá Arinbimi Sveinbjamarsyni, bókbindara hér í Reykjavik, og hlaut meistararéttindi árið 1944. Hann stofnaði og varð rneðeig- andi bókbandsvinnustofunnar Arnarfell h/f. árið 1945, og var þar verkstjóri fyrstu árin, en lét af því starfi vegna vanheilsu, sem hann átti þá við að stríða, og rak upp frá þvi sina eigin bókbandsvinnustofu. Bjami var ágætur verkmaður í sinni iðn, og bar hinn vandaði frágangur hans og snyrtilegt handbragð þess ljóst vitni. v.. Á sínum yngri árum vestur á Þingeyri lagði Bjarni stund á íþróttir. Mikil gróska var á þeim árum í öllu félagslífi á Þingeyri. íþróttafélagið Höfrungur starf- aði þá með mikhim blóma, og voru fimleikaæfingar á vetrum eitt af aðalverkefnum félagsins, og tók hann þátt í þeim um margra ára skeið og varð ágætur fimleikamaður. Ennfremur tók hann þar þátt í námskeiði fyrir fimleikakennara. Eftir að Bjami kom hingað suður fékk hann mikinn áhuga fyrir stangaveiði, eins og margir góðir menn, sem komast í snert- ingu við þá ágætu íþrótt. Munu þau sumur fá, sem hann lagði ékki leið sína vestur í Dali og dvaldi þar nokkra daga við lax- veiðar, enda var hann mjög slyngur veiðimaður. Nokkrar frá sagnir af veiðiferðum hafa birzt eftir hann í Veiðimanninum. Árið 1923 varð fjölskyldan fyrir því mikla mótlæti, að heimilisfaðirinn varð að flytja hingað suður til ævidvalar á sjúkrahúsi, þar sem hann and- aðist árið 1932, en skömmu eftir brottferð hans að heiman, flutti Jónfríður hingað til bæjarins ásamt Ingu dóttur sinni, en Bjarni dvaldi fyrir vestan til ársins 1930, og var þá til heim- ilis að Söndum í DvrAfirði hjá móðurbróður sínum GMhnundi Opnum kl. 7 f.h Vegna beiðni fjölmargra viðskiptavina mim Mjólkurbarinn að Laugavegi 162 opna kl. 7 árdegis frá og með 1. júní nk. Margar tegundir af nýbökuðum kökum og brauði. — Dagb'öð fást keypt á staðnum. Mjólkurbarinn Laugavegi 162. IMÝTT FRÁ olivetti Ódýr bókhaldsvél með rafeindareikni Olivetfi Mercator 5100 VERKEFNI M.Á.: y Launaútreikningur Bónusútreikningur ■i jr Reikningaútskrift • Viðskiptamannabókhald með vöxtum ** Sparisjóðsbókun og ótal fleira. G. Helgason & Melsteð Rauðarárstíg 1. — Sími 11644.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.