Morgunblaðið - 28.05.1966, Blaðsíða 3
Laugardagur 28. maí 1966
MORGUNBLAOIV
Sr. Jón Auðuns dómpróf:
„Kom yfir um og hjálpa oss",
bað fulltrúi Evrópu, sem vitrað-
ist Páli nóttina í Tróas. Hver
kemur nú og hjálpar?
Hér þarf nýja menn, sem mæla
á nýju máli við nýja kynsló'ð og
syngja Drottni nýjan söng en
ekki það gamla söngl, sem ný
kynslóð hvorki hlustar á né
skilur.
Hér þarf menn, sem þekkja
kraft andans og þora að láta
leiðast af honum inn á nýja
vegi að nýjum og stórum mark-
miðum.
Nú er hvítasunna. Gefi Guð
þann þyt í lofti, þann „aðdynj-
anda sterkviðris“ og andans
storm og kraft, sem endurfæði
oss frá kaldri efnishyggju og
kælandi heimslund, — til Krists.
o
stríð
//
/
44
þefta er indœlt \
frumsýnt 2. júní
m
[Heimsfrægur franskur látbrag&sleikari
væntanlegur i byrjun júni
SÖNGLEIKURINN „Ó þetta
er indælt stríð“ verður frum
sýndur í Þjóðleikhúsinu 2.
júní n.k. Leikstjóri er Kevin
Palmer seim sett hefur söng-
leik þennan á svið í Englandi,
Kan.ada og víðar. Þýðinguna
gerði Indriði G. Þorsteinsson,
rithöfundur.
Son gleikurinn fjallar úm
athurði, sem áttu sér stað í
heimsstyrjöldinni fyxri og lýs-
ir, oftlega af nöpru háði,
þessu blóðugasta tímabili sög
unnar, sem í leikskránni er
kaliað „fáránlegt slys“.
Höfundar leíksins eru þau
Joan Littlewood og Gharles
Chilton og byggja þau söng-
leikinn á heimildum í opin-
berum skýrslum, persónuleg-
um endurmininingum og skýr-
ingarrituim. Söngleikurinn
varð fyrst til á sviði Theatre
Royal í Stratford árið 1962 og
vann þá Kevin Palmer að upp
setningu hains með höfundin-
um Joan Littlewood. Eins og
fyrr er getið setii Palmer leik
inn á svið í Kanada og hlaut
þá þrenn verðlaun fyrir upp-
setninguna. Leikurinn hlaut
einnig 1. verðlaun á sinum
tíma á leiklistarhátíð í París.
Una Collins hefur teiknað
búninga og leiktjöld fyrir sýn
inguna en hún gerði einnig
leikmyndir fyrir fyrstú sýn-
inguna í Stratford. Hlutverk
í leiknum eru 17 og með þau
helztu fara Gísli Alfreðsson,
Gunnar Eyjólfsson, Jón Sigur
bjömsson, Ómar Ragnarsson,
Róbert Arnfinnsson, Rúrik
Haraldsson, Helga Valtýsdótt-
ir, Margrét Guðmundsdóttir
og Þóra Friðriksdóttir. Hljóm
sveitarstjári er Magnús Blön-
dal Jóhannssan.
Þá er þess að geta, að I byrj
un júní er von á franska lát-
bragðsleikaranum heimsfræga
Marcel Marceau og mun hann
sýna í Þjóðleikhúsinu dagana
6. og 7. júní. Venjulegir frum
sýningargestir hafa ekki for-
gangsrétt að þessum sýning-
um.
Á hvítasunnu
PÁLL postuli er á trúbo'ðsferð
um Litlu-Asíu. Óvænt atvik hafa
hvað eftir annað orðið á vegi
hans og knúið hann inn á leið-
ir, sem hann hefði ekki valið
sjálfur. En reynslan sýnir æv-
inlega eftir á, að þetta var veg-
urinn, sem hann átti að ganga.
Honum kemur ekki sú fjar-
stæða í hug, að tilviljanir hafi
veri'ð hér að verki. Hér þekkti
hann handleiðslu andans.
Andinn hefir leitt Pál og sam-
ferðamenn hans til Tróas, þar
sem mjótt sund aðskilur Asíu
og Evrópu. Um nóttina vitrast
honum Makedoníumaður, sem
biður: „Kom yfir til Make-
doniu og hjálpa oss“!
Hinum megin sjávar blánar af
strönd Évrópu. Það er Evrópa,
sem kallar á hjálp. Páll skilur
óðara þann boðskap, sem nætur-
sýnin ber honum: Kristur vill að
hann fari méð fagriaðarerindið til
Evrópu. Páll hikar ekki. Hann
leggur þegar af stað.
Þannig berst kristindómurinn
til Evrópu, sem veriður megin-
heimkynni hans um aldaraðir,
eftir að Asía hefir hafnað honum
að mestu. í Asíu hafði vagga
hans staðið. Framtíðin beið hans
í Evrópu. Fulltrúi Evrópu hafði
að næturlagi, í draumi eða vöku,
Marcel Marceau.
Bridgemótið:
Norðmenn
unnu i
karía-
flokki, Svíar í kvennafl.
ísl. sveitimar í 3. sæti
Norðurlandamótinu í bridge
lauk í gær og báru Norðmenn
sxgur úr býtum í opna flokkn-
um, en Svíar sigruðu í kvenna-
flokkL
Lokastaðan í opna flokknum
varð þessi:
1. Noregur 67 stig
2. Svíþjóð 60 —
3. ísland 52 —
4. Danmörk 35 —
6. Finnland 26 —
Lokastaðan í kvennaflokki
larð þessi:
1. Svíþjóð 23 stig
2. Finnland 15 —
3. Noregur 13 —
4. tsland 9 —
5. Danmörk 0 —
6. umferð:
Urslit 1 2 síðustu umferðim-
um i opna flokknum urðu þessi:
Noregur II — Finnl. II 98:93 4-2
ísl. II — Danmörk H 135:58 6-0
Svíþjóð II — Finnl. I 119:55 6-0
Svíþjóð I — Danm. I 99:46 6-0
ísland I — Noregur I 93:24 6-0
7. umferð:
Danm. II — Finnl. II 113:97 5-1
Noregur H — Finnl. I 75:29 6-0
Danm. I — ísland II 121:101 5-1
Svíþ. II — Noregur I 110:67 6-0
Svíþjóð I — ísland I 92:74 5-1
Úrslit í 5. umferð í kvenna-
flokki urðu þessi:
Noregur — Danmörk 187:150 6-0
Svíþjóð — Finnland 175:97 6-0
Norðurlandameistarar Noregs
eru Þessir: Erik Höie, Louis
Anore Ström, Hans Bie, Svein
Hj. Andreasen, Henning Riise,
Leif Salteröd. Tore Jensen.
Willy Varnás, Gunnar Johansen
og Andreas Schröder Nielsen.
Fyrirliði sveitanna er Björn
Larsen.
Norðurlandámeistarar Svíþjóð
ar í kvennaflokki eru:
Anna-Lisa von Barth, Britt
Blom, Karin Eriksson. Eva M&rt
ensseon, Gunnborg Silborn og
Karin Warmark. Fyrirliði er
Lotty Saaby-Christiansen.
Islenzku sveitirnar náðu þriðja
sætinu í opna flokknum og er
það árangur sem allir mega vel
við una. Er þetta bezti árang-
ur sem íslenzkir spilarar hafa
náð á Norðurlandaroóti.
íslenzka kvennasveitin vann
einn leik, gerði jafntefli í öðr-
um, er tapaði tveimur. Er þetta
allgóður árangur.
Mótið fór mjög vel fram og
rómuðu allir keppendur aðbún-
aðinn sem var Bridgesambandi
íslands til mikils sóma. Fram-
kvæmdastjóri mótsins var Þórð
ur H. Jónsson, en keppnisstjóri
var Norðmaðurinn Per Elind.
Við mótið starfaði um 80 manns
og var allt skipulagt og fram-
kvæmd eins og bezt verður kos
ið.
I gærkvöldi voru mótsslit og
verðlaunaafhending í hófi er
Bridgesamiband Islands hélt
keppendum og starfsmönnum að
Hótel Sögu. Fararstjórar er-
lendu sveitanna þökkuðu Bridge
sambandi íslands fyrir ágætar
móttökur og Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra, ávarp
aði erlendu gestina.
K
jilL-lL. m + OnOuOOOQ ♦ B3K
mmmmu 000000^001:
iOO OOOO ÖOE3D
Lionn + so + 000011
lillOOÖ A OOOOEfjO
IOOOO * 000000
lOOO + OO 00000
p 0000 onon
birzt Páli í gervi makedónsks
manns. Og Makedonía verður
fyrsta landi'ð í Evrópu, sem
kristindómurinn festir verulegar
rætur L
Á bak við þetta sá Páll post-
uli handleiðslu andans. Hátíð
andans heldur kristnin í dag.
En brjóst eru köld, því að í
stað lifahdi reynslu fyrir krafti,
handleiðslu og furðuverkum
andans, hafa menn fengið guð-
íræðikenningar um heilagan
anda, sem nútímamönnum eru
óskiljanlegar og fjarlægar og
fæstir gefa gaum.
19 aldir fullar eru liðnar síð-
an Makedoníumaðurinn vitra’ð-
ist Páli og bað um hjálp. Og
enn hrópar gamla Evrópa og
biður um sömu hjálp.
Tróas er týnd. Þar vakir nú
enginn Páll postuli og heyrir
neyðarópið að vestan. Milljónir
manna syngja í dag -um heilag-
an anda. En heilagur andi hefir
nú engan yfirburðamann á sínu
valdi til að boða Evrópu Krist
í þeim búningL að nútíðin heyri
og skiljL
„Kom yfir um og hjálpa oss“,
bað næturgesturinn, fulltrúi Ev-
rópu fyrir 19 öldum. Svo er nú
komið fyrir gömlu Evrópu, áð
þannig má hún biðja enn, hún
og allur kristinn heimur.
Kom, og hjálpa oss, hver sem
þú ert, ef þú getur gert Krist
að lifandi veruleika í lífi manna
að nýju.
Ég held að ekkert voðalegra
geti komið fyrir mannssálina en
að verða viðskila Kristi og loka
leiðunum milli hans og sín. Ég
held að engin velgengni, engin
önnur auðlegð, andleg eða efna-
leg, geti komið í staðinn fyrir
þann auð, sem Kristur hefir veitt
vestrænni menningu, vestrænum
heimi, og virðist einn geta gefið
honum.
Mér er ofraun að hugsa til
enda þá hugsun, að kynslóðir
framtíðar eigi að lifa án Krists,
viðskila hugsjónum hans, án
samfélags við hann.
Framundan eru tímar stór-
kostlegri tæknimenningar en
vfð sjáum enn. Sú framtíð er
lokkandL og óhugnanlega mörg-
um sýnist hún hið eina eftir-
sóknarverða. Án Krists er slík
framtíð ískyggileg. Ekki aðeins
vegna þess, að tæknimenning á
atómöld getur orðfð voðaleg í
höndum manna, sem hafa hana
eina að markmiði. Ekki aðeins
vegna þess, að hún getur leitt
ómælanlega ógæfu yfir mann-
kynið, ef hún er í höndum
manna, sem ekki þekkja og virða
heilög réttindi einstaklingsins og
ekki þá ábyrgö, sem maðurinn
•ber skilyrðislaust á verkum sín-
um og nær óralangt út yfir gröf
og dauða.
En ég á ekki við þetta eitt.
Ég á við það, að án Krists og
kristilegs mats á einstaklingnum
og eilífu gildi hans, týnist, glat-
ast maðurinn á þeirri öld vél-
væðingar og óhemjulegrar tækrii
menningar, sem nú er að hefj-
ast og enginn sér fyrir endann
á. —