Morgunblaðið - 28.05.1966, Blaðsíða 15
Laugardagur 28. maf
MORCU NBLAÐIÐ
15
19 daga skemmtiferð til Rínarlanda
Brottför:
Með Kronprins Olav þ. 20. júfní (mánud.).
Heildarverð: kr. 14.900,00.
Innifalið í verði:
Skipsferð með Kronprins Olav á II. farrými
í 4ra m. klefa, flugferð heim frá Gautaborg,
bílferð svo sem segir í ferðalýsingunni, allar
gistingar miðaðar við 2ja m. herbergi, í
Hamborg og Kaupmannahöfn aðeins morg-
unmatur, en annars einnig annaðhvort há-
degis- eða kvöldyerður, fararstjóm og sölu-
skattur.
Sérstakar greiðslur:
3ja m. klefi á Kronpr. Olav 1. farr. 900,00
2ja m. klefi á Kronpr. Olav 1. farr 1350,00
1 m. klefi á Kronpr. Olav 1. farr. 2050,00
1 m. herbergi á hótelum alla leið 900,00
Flugvallaskattur í Gautaborg SKR 15,00.
Ekki innifalið í verði:
Drykkjarvörur með mat eða önnur per-
sónuleg útgjöld.
Gististaðir:
Kassel: Hotel Atlantik.
Heidelberg: Hotel Perkeo.
Koblenz: Hotel Union.
Altenberg: Hotel Altenberger Hof.
Hamburg: Hotel Popp/Phönix.
Kaupmannahöfn: Hotel Absalon.
Gautaborg: Hotel Volrat Tham.
Fararstjóri: Katrín Árnadóttir.
Ferðin sem hér er lýst er eingöngu Rínarferð. 'Þetta er ferð um
Norðurlönd og Þýzkaland. A£ Norðurlöndum sjáum við Gautaborg,
suðurhluta Svíþjóðar, Kaupmannahöfn, eyjarnar Sjáland og Lá-
land auk viðkomunnar í Færeyjum. Þýzkalandi eru gerð góð skil,
en þar er farið um Rínarhéruðin og auk þess komið til margra
annarra merkra staða svo sem Heidelberg og t.d. Hamborgar. Rin
arferðir eru sem annað margvíslegar og mismunandi, en þessi
ferð er þannig úr garði gerð, að farið er nokkuð hægt yfir og þeir
staðir skoðaðir, sem um aldaraðir hafa verið rómaðir fyrir fegurð.
Auk þess er nægur tími í borgunum Hamborg og Kaupmanna-
höfn fyrir þá, sem njóta vilja stórborgarlífsins og verzla.
20. júní Siglt frá Reykjavík áleiðis til Færeyja.
21. júní: Á sjó.
23. júní: Viðkoma í Þórshöfn í Færeyjum. Tilvalið að skoða bæinn.
23. júní: Á sjó.
24. júní: Komið til Kaupmannahafnar. Bíllinn bíður við skips-
hiið reiðubúinn að hefja langferðina. Er haldið út úr Kaupmanna-
höfn sem leið liggur suður Sjáland. í Rödbyhavn er stigið um
borð í glæsilega ferju og siglt til Þýzkalands. Seint um daginn er
komið til Travemúnde, sem er þekktasti baðstaður Þjóðverja við
Eystrasalt. Þar er m.a. stórt spilavíti og margt annað skemmtilegt.
25. júní: Ekið frá Travemúnde til Lúbeck og síðar eftir „Auto-
bahn“ til Hamborgar og Kassel.
26. júní: Suður af Kassel verður landslagið fjölbreyttara. Dagleið
in er skemmri en áður og við gefum okkar tíma til að staldra við
og skoða þá staði, sem eftirsóttastir eru. Við förum um Marburg,
Frankfurt og Mannheim áður en komið er til Heidelberg.
27. júní: Dvalið um kyrrt í Heidelberg. Um daginn skoðum við
m.a. furstahöllina með hinum fræga vínkjallara, bæinn sjálfan, sem
er nafnkunnur háskólabær og um kvöldið er sjálfsagt að heimsækja
einnig krárnar, sem stúdentarnir hafa sótt um aldaraðir.
28. júní: Nú hefst hin eiginlega Rinarferð. Ekið er með ánni Neck
ar frá Heidelberg til Mannheim, en síðar með Rín sjálfri. Farið er
um fallegustu Rínarhéruðin og komið til m.a. Worms, Mainz og
Boppart. Áfangastaður er Koblenz.
29. júní: Þennan dag er aðeins haldið stutta dagleið, enda margt
að sjá. Um hádegi erum við stödd í höfuðborginni Bonn og skömmu
síðar í Köln. Gist er í litlum bæ, Altenberg utan Köinar.
20. júní Ekið til Hamborgar og komið þar seinni hluta dags.
1.-2. júlí: Tveir dagar um kyrrt í Hamborg.
3. júlí: Haldið frá Hamborg til Kaupmannahafnar.
4. -5. júlí: Tveir dagar um kyrrt í Kaupmannahöfn.
6. júlí: Frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar.
7. júlí: Dvalið í Gautaborg.
8. júlí: Flogið að morgni til íslands.
tölNID & LEIÐIR ff,r’
IMVTT SÍIVIANIJIVIER: 24313 (3 línur)