Morgunblaðið - 16.08.1966, Page 26

Morgunblaðið - 16.08.1966, Page 26
26 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjuf>agur 16. agúst 1966 3:3 urðu úrslit landsleiks ins. I\likill baráttuleikur, harka og örlagarík klaufamörk ÞAÐ var hörkubarátta á Laugardalsvellinum í gærkvöld er Islendingar og Walesbúar háðu landsleik í knattspyrnu. Nóg var um spennandi augnablik, nóg um marktækifæri, nóg um hörkuna í návígjum, og nóg um klaufamörkin. En a£ góðri knattspyrnu sást heldur minna og þegar ofan á bættist afar léleg dómgæzla danska dómarans, hverfur þessi 42. landsleikur íslands í söguna sem hálfgerður skrípaleikur. Baráttuviljinn var fyrir hendi hjá báðum liðum í ríkum mæli, þó oft tækist ekki það sem gera átti, því nákvæmistilfinningin var ekki alltaf 100%. — Úrslitin urðu jafntefli 3 mörk gegn 3, og kom jöfnunarmark Islands nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Lengi þar á undan höfðu Walesmenn gert allt sem þeir gátu til að tefja leikinn og það á hinn frumstæðasta hátt. Það fór ekki á milli mála að hér voru áhugamenn á ferð. JAFNAÐ 4 SÍÐUSXU 3IÍNÚTU Jöfnunarmarkið var næsta kærkomið. Welskur sigur hefði verið heldur óréttlátur eftir gangi leiksins, en öll mörk welska liðsins voru heldur ódýr og vafasamt að Hér er fast sótt að marki. Spennandi augnabiikin voru mörg. Hvað skeður upp úr svona þvögu veit enginn fyrr en blutirnir hafa gerzt. Tilviljunin ræð ur mestu. nokkurt þcirra hefði séð dagsins Ijós ef reyndur mark vörður hefði staðið í isi. markinu. ic Mörkin Fyrsta mark Wales kom á 11. mín. Hafði byriun leiksins ver- ið hröð og skemmtileg og ísl. iiðið meira í sókn og því kom markið eins og þruma úr heið- skýru lofti. Það var einnig næsta tilvi'nanakennt, því Rag- an miðherji skaut í Ársæl bak- vörð og af honum skoppaði knötturinn hægt og rólega í net ið, án þess að Einar markvörð- ur gerði tilraun til að stöðva hann. Á 17. mír.. jafnar Jón Jó- hannsson með fallegasta marki leiksins. Hann lék upp frá miðju, „fann“ engan samherja óvaldað- an og skaut því sjálfur utan vítateigs, en skotið var fast og í slæmri hæð fvrii markvörð- inn og fór rakleitt í netið. En Adam var ekki lengi í Paradis. Á 22 mín. sækja þeir welsku n;:r vinstra megin, senda fyrir og Hagan miðherji skallar að marki — bá hættulítil boga- sending, en Einar misreiknaði og í netinu lá boltinn. Þannig var staðan í hálfleik og gaf ranga œynd af gangi leiksins. í upptiafi siðari hálfleiks, á 2. mín. er Mngnúsi Torfasyni hrint illilega inn í vítateig Walesmann. Ekki vai um annað að ræða en dæma vítaspyrnu, sem þó er alltaf strangur dómur. Ellert skoraði örugglega og staðan var aftur jöfn. Harðnaði nú baráttan og var fyrri hluti siðari hálfleiks bezti kafli gestanna og áttu þeir opn- ari tækifæri og voru enda fljót- ari til að ná forystunni. Aftasta vörn ísl. liðsins var reikul i rásinni og skapaði Anton miðv. tvívegis marktæki- færi fyrir Wales með klaufaleg- um leik. Bjargaði Einar mark- vörður mjög naumlega í annað skiptið með blátánni. if Baráttan harðnar Á 17. nun. ná Walesmenn for- ystunni enn einu sinni. Ragan miðherii skoraði sitt þriðja mark Davies innherji átti skot frá vítateig íslendinga, Einar varði en missti knöttinn mjög klaufalega Ragan var ekki seinn á sér og tðkst að senda knöttinn í netið eftir baráttu við Einar og tvo varnarmenn sem komu til hjálpar. Nú tóku Walesmenn að tefja og harkan í leiknum jókst. Dóm- arinn réði alls ekki við hlut- verk sitt í þessum fiaimstæða baráttuleik. Jsl. liðið náði æ sterkari tökum á leiknum og hættan varð öll við welska mark ið. Markvörðurinn hafði nóg að gera stóð sig vel, en var auk þess heppinn er hann t. d. bægði frá með fingurgómunum ágætu skoti Magnúsar Torfasonar og aftúr er Ellert í góðu færi skaut beint á hann og hitti svo ekki Fyrsta mark íslands, Jón Jóhannesson (sézt út við vítateigslí nu) skorar með föstu skoti i mátulegri hæð. Burrows markvörður ræður ekki við skotið. — Myndir tók Sveinn Þorm. er knötturinn barst aftur til hans frá markverðinum. Mimturnar liðu og leit út fyrir welskan sigur þrátt fyr ir sókn íslendinga. Siðasta minútan var komin er Ellert fékk knöfiinn á miðjunni, gaf út til Hcrmanns sem lék upp kantinn og alla varnarmenn af sér og skaut snöggu og óvæntu skot frá markteigs- horni. Þetta var sannarlega kærkoinið jöfnunarmark. Welska liðið bjó yfir leik- hraða sem skapaði hættur fyrir ísl. liðið. Liðsmenn eru fastir fyrir og ótrúlega miklir hörku- karlar á stundum. Þeir hrópuðu og kölluðu hver öðrum meir, svo slíkur ópkór hefur aldrei heyrzt í landsleik fyrr. Þeir reyndu að tefia fyrir fram- kvæmd aukaspyrna á sjálfa sig á einkar íeiðinlegan hátt, höfðu í frammi mótmæli í látbragði sem fáir dómarar með gott vald yfir leiknum hefðu þolað — enda var dómarinn stundum í Hkamlegum átökum við þá og gaf ómiiininger * Þeir splundruðu oft ísl. vörn- inni enda var hún aldrei sterk heild, né átti sterkan einstaklings leik. Beztu menn liðsins voru markvörðurinn og miðjutríóið, en miðherjinn sýndi jafnframt leiðinlegustu framkomuna. Magnús Torfason, Ellert Schram og Sigurður Albertsson báru af í ísl. liðinu. Þeir réðu mestu á vallarmiðjunni og byggðu vel upp, fyrst EUert og siðan tók Magnús • við af hon- um og var bezti leikmaður á vell inurn. Aftasta vörnin var sem fyrr segir reikul i rásinni. Eiriar varði nokkrum sinnum mjög vel en var afar klaufskur á milli — og reynshdevsi hans var veiga- mesti þátt.urinn í að ísl. liðið ekki uppskar sigur í þessum leik. Framherjarnir náðu held- ur ekki nógu samstilltum leik. Jón Jóhannsson og Gunnar Feiixsson bcrðust alltaf upp á eigin spýtur, Hermann „hvarf“ að veru’egu levli allan fvrri hólfleikinn og lék allt of uíar- lega. Stöðuskiptingar í fram- línunni voru tíðar en ekki vel skipulagðar og rugluðu íslenzka Iið:ð meira en inótherjana. Dómarinn Tagp Sórensen hafði vægast sagt lítið vald á leikn- um.og brotin sem hann sleppti skiptu sjálfsagt tugum —- og sum þó ljót. J.ínuverðirnir Magnús Pétursson og Carl Bergmann stóðu vel í sinu hlutverki. — A. St.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.