Morgunblaðið - 16.08.1966, Side 27

Morgunblaðið - 16.08.1966, Side 27
Þriðjudagur 18. Sgfist 1966 MORCUNBLAÐIÐ 27 Enn reyndust FH-ingar sterkari — unnu Fram 14-10 íslandsmeistarar í 11. sinn i rö5 tlBSLITALEIKURINN í fslands- mótinu í handknattleik utanhúss fór fram á Ármannsvellinum á sunnudag sl. í fögru veSri, og hagstæðu til handknattleiks. Þar áttust við erfðafjendurnir fornu, FH og Fram, og sigruðu þeir fyrrnefndu með 14:10. Leikurinn var alljafn og vel leikinn í fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik misstu Framarar öll tök á leikn- um, og urðu lokatölur 14:10 eins og fyrr segir. Það var Birgir Bjömsson sem skoraði fyrsta markið fyrir FH, og litlu síðar bætti Jón Gestur öðru við. Frömmurum tókst að jafna, en FH-ingar bættu öðru við, 3:1, og hélzt sá markamun- ur að mestu út hálfleikinn, en honum lauk 7:6 fyrir FH. í síðari hálfleik sýndu FH- ingar frábæra vörn, og þegar leikurinn var rúmlega hálfnaður höfðu Framarar aðeins skorað eitt mark, en FH-ingar fjögur. Þeim fyrrnefndu tókst þó aðeins að minnka muninn með tveimur fallegum mörkuxn, sem skoruð voru af línu. Síðustu tíu mínúturnar var leikurinn þófkenndur, og mikið um ónákvæmar sendingar. Fram- arar tóku upp á því undir leiks- lok að leika maður á mann, sem kostaði það að FH-ingum tókst að skóra 3 mörk, en Framurum aðeins eitt, þannig að leiknum lauk 14:10. Þar með var FH orð- ið íslandsmeistari í 11. sinn í röð. Styrkleiki FH í þessum leik lá fyrst og fremst í fjórum leik- mönnum. Það voru þeir Birgir og Geir, sem héldu uppi hröðum og árangursríkum sóknarleik, og Einar Sigurðsson og Kristleifur markvörður, sem voru máttar- stoðirnar í vörninni. Framarar hafa yfir fleiri góð- um tinstaklingum að ráða en FH, en á hinn bóginn er eins og liðinu takist ákaflega illa að nýta þessa krafta. Liðinu tókst oft og tíðum að ná upp ágætum sam- leiksköflum, en gekk illa að opna hina traustu vörn FH. Vörnin var ákaflega laus í reipunum. Á undan þessum leik fór fram úrslitaleikurinn í meistaraflokki kvenna Fram og Vals, og sigruðu þær síðarnefndu með nokkrum yfirburðum. Frakkar 16 af 24 verðlaunum á heimsmóti skíðamanna FRAKKAR fóru með pálmann í höndunum frá heimsmóti skiða- manna í Alpagreinum í Chile, fyrsta stórmótinu sem haldið er á suðurhveli jarðar. Frakkar unnu 6 gullverðlaun af 8 og jöfn uðu þar með met sem Austur- ríkismenn settu I þeim efnum á heimsmeistaramótinu 1962. En Frakkar unnu 16 verðlaunapen- inga í allt — af 24 sem um var keppt — en það er einum meira en Austurríkismenn fengu 1962. Það þótti tíðindum sæta að Frakkar virtust koma vel undir- búnir til mótsins, æfðu sama og ekkert í brekkunum meðan aðr- ir puðuðu mikið. Austurríkis- menn/rnir virtust taugaóstyrkir og í ofþjálfun — og við fyrsta ósigurinn virtist keppnisskap þeirra gersamlega þrotið. Lokagrein mótsins var svig karla. ítalinn Senoner sigraði mjög óvænt og hefur ítali ekki unnið gullpening á heimsmeist- aramóti síðan 1952. Það vakti athygli að eftir fyrri umferð var Svíinn Granh í forystu og hafði næstum 2 sek fo'rskot á Perillat en Svíánum mistókst gersamlega í síðari um ferð. Senoner fékk tímann 1:41.56, 3. Perillat Frakkl. 1:42.25, 3. Jauffert Frakkl. 1:42.25, 4. Bogr er V-Þýzkal. 1:43.06, 5. Leitnei V-Þýzkal. 1:43.47, 6. Heugs Bandar. 1:43.96. Frakkar unnu 6 gullverðlaun, 7 silfur og 3 bronz. Austurríki 1 gull, 1 silfur og 2 bronz, Ítalía 1 gull. Þýzkaland 2 bronzverð- laun og Bandaríkin 1 bronzverð laun. NORHMENN og Finnar háðu knattspyrnulandsleiki um helgina. í A-flokki varð jafn- tefli 1-1. Þóttu Norðmenn eiga mun meira í leiknum. Leikurinn var í Kotka. Ung lingaleikinn unnu Finnar í 6. sinn í röð 2-1. A-ÞJÓÐVERJINN Wolfgang Nojdwig bætti Evrópumetið í stangarstökki tvívegis móti í Varsjá um helgina. Fyrst stökk hann 5.17 og töldu margir að hærra fæii hann ekki. En hann lét það ekki nægja og tókst að fara yfir 5.29. FINAR senda 14 karlmenn og 2 stúlkur til keppni á EM i frjálsum í Búdapest. KR varð bikarmeistari 1966 í frjálsum íþróttum Velheppnuð Bikarkeppni FRÍ BIKARKEPPNI FRÍ fór fram á Laugardalsvellinum á laugardag og sunnudag, og varð það KR, sem hlaut bikarinn í þetta sinn, sem keppni um hann fer fram. Mótið fór mjög vel fram í alla staði, og verður ekki að efa að þetta mót á i framtíðinni eftir að njóta mikilla vinsælda hér- lendis í þessari íþróttagrein, enda hefur það ótrúlcga mikið að segja, að margir keppendur séu í hverri grein, og alltaf nóg um að vera alls staðar á vellin- um. Góður árangur Ekkert íslandsmet var sett í keppninni, en ágætur árangur náðist í allmörgum greinum, t.d. voru 18 héraðsmet sett, og sýnir það Ijóslega, hve mikið atriði það er fyrir utanbæjar- keppendurna að fá að koma til Heykjavíkur til þess að taka þátt í móti þessu — á velli sem bíður upp á beztu aöstæður sem hugsast getur. Það má því segja að ósk FRÍ, sem kom fram í setningarræðu, sem Örn Eiðsson, yfirdómari keppninnar flutti ,hafi rætzt nú þegar, en hann sagði m.a.: Á árunum eftir síðari heims- styrjöldina var hér geysilegur áhugi fyrir frjálsum íþróttum, sérstaklega í Reykjavík. íslend- ingar áttu ágæta afreksmenn, sem stóðu sig vel á alþjóðamót- um og í landskeppni við aðrar þjóðir bárum við oftast sigur úr býtum. Þegar frjálsíþróttamót voru háð sóttu þau þúsundir áhorfenda. Þetta blómaskeið stóð í nokk- ur ár, en síðan kom kyrrstaða og jafnvel afturför, áhorfendum fækkaði og nú koma tæplega eins mörg hundruð og þúsundirn ar áður fyrr. Stjórnendur þessarar ágætu íþróttagreinar hafa margt reynt til þess að efla á ný áhuga fyrir frjálsum íþróttum en það hefur gengið erfiðlega. Komið hefur verið á landskeppni næstum ár lega, en árangur verið slakur, við höfum oftast tapað með mikl um mun. Áhorfendum hefur ekki fjölgað. Keppni sú, sem hér hefst í dag er enn ein tilraún FRÍ til að efla gengi frjálsíþrótta í land inu. Það er von okkar, að vel takist um keppni þessa. í dag eru samankomnir flestir beztu frjálsíþróttamenn og konur landsins til keppni um titilinn „Bikarmeistari FRií“. Hér er um stigakeppni að ræða. Þar sem tvö beztu félögin í Reykjavík og fjögur beztu héraðssamböndin tefla fram sínu bezta liði. Lokastaðan í bikarkeppninni varð þessi: KR hlaut 137 stig og varð því Bikarmeistari 1966, HSÞ hlaut 108 stig, ÍR hlaut 99 stig, HSK hlaut 94 stig, HSH hlaut 85 stig og UMSE 37 stig, en þess ber að gæta, að það mætti óvenju liðfátt til keppni. Vegna rúmleysis nú verður að bíða með að segja frá keppn- inni þar til síðar. Myndin er tekin fyrir nokkru þá er Pennel hinn bandaríski setti nýtt heimsmet í stangarstökki. Hann stökk 5,34 m. og bætti sitt eigið met. England vann 33 gull, 24 sillur og 23 brons Keino vann míluhlaupiÖ á 3:55.3 samveldisleikunum brezku lauk um helgina i Kings- ton á Jamaica. Ensku blöðin lofa mest Keníumanrúnn Kip- choge Keino sem sigraði glæsi- lega í míluhlaupi á lokadegi mótsins — og þótti það frábært eftir hinn frækilega sigur yfir Clarke í 3 mílna hlaupi. Keino hljóp á 3:55.3 mín og setti Samveldisleikjamet en það eldra var síðan 1964 sett af Bannister er fyrstur hljóp undir 10,000 morku nppbót til þeirra þýzku STJÓRN þýzka knattspyrnusam bandsins hefur ákveðlð að verð launa þá 22 leikmenn er skipuðu lið Þýzkaiands á HM í knatt- spyrnu með 10 þús. marka verð- launum hvern — að frádregnum 25 % skatti. Lögð er áherzla á að verð- launin séu ekki veitt í þakklæt- isskyni fyrir silfurverðlaunin í keppninni er leikmennirnir unnu, heldur til að bæta þeim upp fyrir missi sumarleyfis síns hjá félögum sínum, en æfingar HM liðsins hófust þegar er deild arkeppninni lauk. HELZTU afrek á meistara- móti Finna í frjálsum íþrótt- um voru 84.10 í spjóti hjá Jorma Kinnunen og 7.95 í langstökki hjá Stenius. _ 4 mínútum. Englendingar báru stærstan hlut frá borði í keppniiini sem spannaði 9 greinar íþrótta. Unnu Englendingar 33 gullverðlaun, 24 silfurverðlaun og 23 bronz- verðlaun. Ástralía varð 2. sæii með 23 gull, 28 silfur og 22 bronz. Keníumennirnir Keino og Temu sem unnu 1, 3 og 6 milna hlaupin eru stærstu „stjörnur“ frjálsíþróttakeppninnar. 70 óro hefð breytt f FYRSTA sinn í 70 ára sögu ensku knattspyrnunnar verður nú leyft að varamenn komi í leikinn í stað slasaðra manna. Var tillaga þess efnis samþykkt á þingi enska knattspyrnusam- bandsins á dögunum. Tillagan var komin frá stjórn ensku deilda keppninnar. DANIR hafa tekið til við deildarknattspyrnuna aftur. Leiknir voru leikir er frestað var í vor: Esbjerg vann KB 1-0, Köge vann AGF 4-2 og B-1913 vann B 1903 7-2. TATJANA Tsjelkanova stökk 6.96 m í langstökki kvenna í Moskvu á sunnudag. Það er 20 sm Iengra en heimsmct Mary Rand. Of mikill með- vindur var svo afrekið fæst ekki staðfest.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.