Morgunblaðið - 01.09.1966, Side 7
/
Fimmtu3agur 1. sept. 1966
MORGUNBLAÐiD
ÞEKKIRÐl LAJXSDIÐ WTT?
Hlióða'klettar! Heyr hamranna mál,
hverfult og kvikt eins og slokknandi bál,
ímynd hins fjötraða, iðandi krafts
í algeimi rúms og tíðar.
— Ég elska þin flugtök í hlekkjum hafts,
himneska, dauðlega lífsins þrá,
í bergmálsins öldu við björgin há,
sem brotnar við þagnandi hlíðar.
(E. Ben.).
Hljóðaklettar standa við
Jökulsá á Fjöllum, skammt
frá Svínadal. í sumar hefir
þeirra oft verið getið, vegna
þess að þar hafa menn verið
að kvikmynda hina rauna-
legu ástarsögu Hagbarðs og
Signýar. Klettarnir eru marg-
ir og brýzt Jökulsá fram í
milli þeirra og er einn klett-
urinn austan ár. Hinir standa
vestan ár, svo að segja á ber-
svæði, en að baki þeirra og
til hliðar eru hálsar og skógi
vaxnar hlíðar. Klettarnir eru
aðallega úr móbergi með blá-
grýtisgöngum, og eru þeir
ýmislega sorfnir af vindum og
úrkomu. Víða hafa myndast í
þeim hellar og einn þejrra for-
kunnar fagur og líkist mest
kapellu. Vegna þessarar lög-
unar bergmálar mjög í klett-
unum, og af því draga þeir
nafn sitt. Ef menn syngja eða
hóa kasta klettarnir hljóðinu
á milli sín og eru eins og
römustu hljó'ðmagnarar. Að
því víkur skáldið í Ijóði sínu.
En annað skáld, Matthías
Jochumsson, furðaði sig enn
meira á risastærð klettanna
og kvað svo:
Teygjast trjón-ur grettar,
tröll hér standa þykkt;
hermið Hljóðaklettar
hver hefir þetta byggt.
Og hér er svo mynd af einu
tröllinu, syðsta kiettinum, sem
stendur einn sér á gljúfur-
barmi Jökulsár.
sá HÆST beztti
Prestur sem Hallgrimur l)ét og bóndi sem Bjarni hét voru sam-
íerða frá kirkju.
Prestur: „Þér voruð til altaris i dag Bjarni minn“.
I Bóndi: „Hún Þuríður er að þessu“.
Prestur: „Ég hefi heyrt að óvíða hér í grend sé lesið á föstunni
og sungnir Passíusálmarnir nema hjá ykkur“.
Bóndi: „Já hún Þuríður er að þessum andskota, en hann G-ísli á
Bakka, sem aldrei 1-es eða ér til altaris, hann fiskar allt af meira
en aðrir."
Presturinn þagði og hristi höfuðið.
TIL HAMINGJU
Þann 28 ágúst voru gefin sam- I frú Þórunn Hafstein og Harald
an í hjónaband í dómkirkjunni Snæhólm, flugstjórL (Ljósm. Jón
af séra Þorsteini Böjrnssyni ung I K. Sæmundsson).
60 ára er 1 dag Jenni Jóns,
dægurlagahöfundur, Álfheimum
44 Beykjavík. Hann er að heim-
an á afmælisdaginn.
VÍSUKORN
Fá)tt er mér nm flesta þá
fávita sem þéra.
i því vilja aðra smá
ofar þykjast vera.
Kristin Sigfúsdóttir
frá Syðri-Völlum,
CAMAIT og COn
Hvíldu þig, hvíld er góð.
Ungur bóndi nýkvæntur var
að slá í slægju sinnL >að var
vellandi hiti, og bóndinn var
beldur makráður að eðlisfari,
svo að hann var blóðlatur. JÞá
kemur til hans maður og segir:
„Hvíldu þig, hvíld er góð‘. Að
svo mælfu fer hann burt. Ekki
er þess getið, hvernig bóndanum
leiz.t á manninn, en ráð hans lét
hann sér að kenningu verða og
sló slöku við sláttinn, bað sem
eftir var sumars, enda átti hann
ekki nema einn hey-kumbalda
um haustið. Loksins sá maðurinn
að hann hafði ekki farið skynsam
lega að ráði sínu um sumarið,
og kenndi ókunna manninum um
allt saman. Einn góðan veðurdag
kemur sami maðurinn til hans og
segir glottandi „Latur, lítið hey“.
Svo hvarf hann. Manninum hug
hægðist ekkert við komu hans,
enda þóttist hann vita að hann
hefði farið eftir ráðum djöfuilsins
og einskis annars.
Eftir sögn Þorsteins Erlings-
sonar.
FRÉTTIR
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðna og fatla®ra efmx til
kaffisölu í barnaheimili félags-
ins í Beykjadal, Mosfellssveit,
sunnuda-ginn 4. sept. kl. 15. Sund
laug á staðnum. Ferðir frá um-
ferðarmiðstöðinni kl. 14.15 og
15.30 og frá Beykjadal kl. 18.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
fer í berja og skemmtiferð þriðju
daginn 6. sept. kl. 9 f.h. Farseðl-
ar afhentir að Njálsgötu 3, laug-
ardag 2 — 5. Upplýsingar í sím
um 12683, 34257, 19248 og 14617.
Hjálpræðisherinn. Gunnar Ádn
anes frá Noregi, sem er á leið
til Siglufjarðar til starfa fyrir
Guð, talar í kvöld á samkomu.
Tekið verður á móti gjöfum til
starfsins á Siglufirði.
Félagskonur er voru með í
Vestfjarðarferðinni í iúlí, eru
'beðnar að mæta í Slysavarna-
húsinu Grandagarði 1 kvöld
fimmtudag kl. 8.30. Myndir úr
ferðinni verða sýndar. Nefndin.
Kvenfélag Laugarnessóknar
minnir á saumafundinn, fimmtu-
daginn 1. sept. kl. 8,30. Munið
breyttan fundardag. Stjórnin.
Kvenfélag Neskirkju: Farið
verður í berjaferð n.k. mánudag
kl. 10 árdegis. Konur tilkynnið
þátttöku í sína í Félagsheimilinu,
fimmtudag og föstudag kl. 3 —
6 simi 16783.
Fíladelfía í Reykjavik: Al-
menn samkoma í kvöld kl. 8.30.
Ræðumenn Hallgrímur Guð-
mundsson og Benjamín Þórðar-
son. N.k. sunnudag er bænadag-
ur í Fíladelfíusöfniðinum. í guðs
þjónustunni um kvöldið verður
tekin fórn vegna kirkjubygging-
arinnar.
Fótaaðgerðir í kjallara Laugar
neskirkj-u byrja aftur 2. sept. og
verða framvegis á föstudögum
9—12. Tímapantanir á fimrntu-
dögum í síma 34544 og á föstu-
dögum í sima 34516. Kvenfélag
Laugarnessóknar.
Séra Jakob Jónsson verður
fjarverandi næstu vikur.
Sr. Jón Thorarensen verður
fjarverandi um tima.
Herbergi og fæði
óskast sem næst Verzlunar-
skólanum fyrir reglusaman
skóiapilt. Uppl í sima
36790.
Herbergi óskast
Einhleypur karlmaður ósk-
ar eftir herbergi sem næst
Miðbænum. Uppl. í síma
22150.
Tilboð óskast
í Chevrolet 1959. Til sýnis
og sölu eftir kL 1400 í dag
á Laugarnesvegi 44.
Stúlka óskast
í brauða- og mjólkurbúð
hálfan daginn.
Sveinabakaríið hf, Hamra-
hlíð 25 (gengið inn frá
Bogahlíð). Sími 33435.
Hringver Búðargerði 10
Skólavöirur í úrvali.
Hringver Búðargerði 10.
íslenzkt fornbréfasafn
til sölu. Frumútgáfa, compl.
eintak í kápum. Upplýsing-
ar í síma 23436.
FRAKKI
með lyklum í vasa var tek-
inn i misgripum í Silfur-
tunglinu sl. sunnudag. Vin-
samlegast skilist í Silfur-
tunglinu, gegn afhendingu
hins frakkans.
Barnagæzla
12—16 ára stúlka óskast
til að gæta drengs á öðru
ári. Helzt í Vesturbæ.
Vinnutími 9—12 og 3—6
eða styttra eftir samkomu-
lagi. Uppl. í síma 21638.
Kona með eitt barn
óskar eftir vinnu um næstu
mánaðamót. Margt kemur
til. greina, má vera úti á
landi. Tilboð sendist afgr.
Mbl., merkt: „Ýmislegt —
4877“.
Atvinna óskast
Kona vön skrifstofustörf-
um og símavörzlu óskar
eftir vinnu frá 1—5 e. h.
Hefi góða Lslenzkukunnáttu
Tilboð sendist Mbl. fyrir 6.
sept., merkt: „Fésnauður —
4113“.
Keflavík
1 herbergi með aðgang að
eldhúsi og þvottahúsi til
leigu. Uppl. í sima 2356,
Keflavik.
Chevrolet 1953
til sölu. Uppl. í síma 36297
eftir'kl. 7.
íbúð óskast
Stúlka með 1 barn óskar
eftir 2ja—3ja herbergja
íbúð nú þegar. Upplýsingar
í Vélsm. HéðnL síma 24260
og síma 10931 eftir kl. 5.
Talkennsla
Er til viðtals kl. 1—3 e.h.
að Hverfisgötu 37, 2. hæð.
Sími 30837.
Björn Guðmundsson.
Herbergi
óskast strax til leigu sem
næst Miðbænum fyrir
reglusama stúlku. UppL i
síma 15672 kl. 6—0.
Tveggja herbergja íbúð
til leigu í háhýsi við Aust-
urbrún. Ársfyrirframgr. —
Tilboð með nafni og
síma, skilist á afgr. Míbl„
merkt: „Útsýni — 4112“.
íbúðaskipti
Vil láta 4 herb. í sambýlis-
húsi Eskihl. Vantar minni
íbúð í Vestur- eða Miðbæn-
um. Kaup hugsanleg. Tilib.,
merkt „Miklatorg — 4099“
sendist afgr. fyrir 6/9.
íbúð óskast
Tvær stúlkur (kennari og
skrifstofustúlka) óska eftir
2ja—3ja herb. íbúð frá 1.
okt Vinsaml. hringið í s.
20076 eftir kl. 6 í dag og
næstu daga.
Vestmannaeyingar
athugið
Tek að mér pípulagnir og
vatnslagnir. Reynið við- [
skiptin.
Ingi Einarsson, Fjólugötu 1.
Sími 2299.
Til leigu strax
2ja herbergja íbúð I nýlegu
húsi í gamla bænum í 10-11
mán., fyrirframgr. Tilboð
með uppl. leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir hádegi
laugard 3/9, merkt: „10-11
nr. 4114“.
Bíngö í kvöld
Aðalvmningur: Vöruúttekt cftir vali
fyrir krónur 5.000,00.
Borðpantanir í síma 12339 frá kl. 4.
Sigtún