Morgunblaðið - 13.09.1966, Page 1
32 síður
53. árgangur
208 tbl. — Þriðjudagur 13. september 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
38 kúlna-
göt á farar-
tækinu...
— en sluppu yfir
til V-Berlínar
Berlín, 12. sept. NTB-AP
• Fimm Austur-Þjóðverjar
flýðu í brynvörðum beltisbíl
yfir til V-Berlínar á sunnu-
dag. Var hér um að ræða
tvenn ung hjón og þriggja ára
son annara þeirra. Tvö meidd
ust lítillega — en mesta mildi
þótti að þau skyldu sleppa lif-
andi, því að stöðug kúlnahríð
austur-þýzkra landamæra-
varða dundi á farartæki
þeirra, meðan þau fóru yfir
borgarmörkin. Fundust á því
38 kúlnagöt er yfir var komið.
Það var kl. 10,30 á sunnu-
dagsmorgun, að þau létu til
skarar skríða eftir ýtarlegan 4
undirbúning. Höfðu þau sett,
stálplötur framan á beltisbíl
eða einskonar dráttarvél.
Fyrst urðu þau að fara gegn-
um gaddavírsnet um 45 metra
frá borgarmörkunum og síðan
Framhald á bls. 31.
Virðuleg útför Ver-
woerds á laugardag
Vorster liklegastur eftirmaður hans
Pretóríu og Jóhannesarborg
12. september, AP, NTB.
ÞAÐ er nú almennt hald manna í
S.-Afríku að Baltasar Johannes
Vorster dómsmálaráðherra verði
kjörinn eftirmaður Hendriks
Verwoerds, hins myrta forsætis-
ráðherra landsins, á sérlegum
þingfundi á morgun, þriðjudag.
Flestir þeir sem áður voru til-
nefndir sem hugsanlegir keppi-
nautar Vorsters um embættið eru
nú fallnir frá allri keppni utan
einn, Ben Schoeman, samgöngu-
málaráðherra, en líklegt er talið
að hann dragi sig einnig í hlé svo
samstaða náist um Vorster.
Utför Verwoerds var gerð í
heimaborg hans, Pretóríu, á laug
ardag og fór fram frá aðalskrif-
istofum stjórnarinnar í „Union
Building“ en síðan var kistan
borin til „Hetjuvalla" (Heroes
Acre) þar sem grafnir eru þjóð-
Ekkja forsætisráðherrans, frú Betsy Verwoerd, kemur til útfar- arleiðtogar S.-Afríku. Margt
arinnar í fylgd með ráðherrum og heldur á blómvendi. manna var við athöfn þá sem
fram fór á útisviðinu við „Union
Building" í glampandi sólskini og
milljónir manna fylgdust með
henni í sjónvarpi, en aðeins fjöl-
skylda forsætisráðherrans ráð-
herrar úr stjórn hans og nánustu
vinir voru viðstaddir er kista
hans seig ofan í gröfina á Hetju-
völlum en S.Afríska lögreglan
kvaddi með lúðrablæstri. Nokk-
uð var af blökkumönnum við
útförina og sátu allir saman
skammt þar frá er sat fjölskylda
forsætisráðherrans. Meðal gesta
við útförina var Ian Smith og
kom aðeins einkaerinda að sögn
fulltrúaskrifstofu lands hans í
S-Afríku en ekki sem forsætis-
ráðherra Ródesíu.
Stunginn
hnífi
Kosningarnar í S-Vietnam:
ósigur fyrir kommúnista
Kjörsókn meiri en menn höfðu gert sér vonir um
Saigon, 12. sept. — NTB,AjP.
KOSNINGAR fóru fram í S-
Víetnam á sunnudag og var
kjörsókn mjög mikil og miklu
meiri en almennt hafði verið
við búizt. Á kjörskrá voru
5.2 milljónir manna og at-
kvæði greiddu rúmar fjórar
milljónir manna eða um það
bil þrír kjósendur af hverj-
um fjórum sem á kjörskrá
voru.
Urslit kosninganna verða
ekki kunn fyrr en á morgun,
þriðjudag, í fyrsta lagi, og
endanleg úrslit ekki fyrr en
nokkrum dögum síðar, en
stjórn S-Víetnam telur sér
þegar mikinn sigur og óvænt-
an í hinni miklu kjörsókn,
sem náði allt að 90% í norð-
urhéruðum landsins. í Saigon
var kjörsókn um 70 af hundr-
aði og í Da Nang rúm 81%
en nærri 86% i Hué. Undruð-
ust það margir, því Búdda-
trúarmenn voru taldir mjög
öflugir í borgunum þrem og
einnig var það hald manna
að kommúnistar ættu þar
töluverð ítök og áskoranir
stjórnarinnar myndu því falla
í lítt frjóan jarðveg þar sem
var manngrúi borganna, þótt
önnur yrði reyndin á.
Ky forsætisráðherra flutti
þjóð sinni útvarpsávarp í dag og
lék á als oddi. Kvað hann þessa
EFTA náð furðu-
miklum árangri
— segir franskur þingmaður.
Tollalækkanir ári á undan áætlun
Genf, 12. september NTB.
★ f ársskýrslu Fríverzlunar-
svæðisins — EFTA — sem lögð
var fram í Genf í gær, sunnu-
dag, segir, að þeir tollar, sem enn
séu á fullunnum vörum aðildar-
ríkjanna í milli, muni afnumdir
þegar á þessu ári. Jafnframt sé
óðfluga verið að ryðja úr vegi
þeim hindrunum, sem hamlað
hafi frekari samstarfi aðildar-
ríkjanna.
★ í annarri skýrslu, sem franski
þingmaðurinn, Andre Gauthier,
hefur samið og lögð verður fram
á fundi Evrópuráðsins síðast í
september segir, að harma beri
að Efnahagsbandalag Evrópu hafi
ekki ennþá svarað tilboði Frí-
Framhald á bls. 31
miklu kjörsókn stórsigur yfir
Vietcong og hefðu skæruliðar
aldrei beðið slíkan ósigur. „Þetta
er upphafið að endalokum
þeirra", sagði Ky. Öðru sinni er
forsætisráðherrann lét til sín
heyra í útvarp í dag sagði hann
að 79% landsmanna að meðal-
tali hefðu neytt atkvæðisréttar
síns, en er síðast fréttist var
talan orðin 80,8%.
Skæruliðar Vietcong höfðu
haft mjög í hótunum um að
spilla sem mest þeir mættu fyrir
kjörsókn og höfðu sig töluvert
í frammi, en kjósendur virtust
lítt kippa sér upp við það. Lög-
regluvörður eða hervörður var
líka settur um alla kjörstaði og
taldi nær 700 þúsund manna lið
er mest var. Víðast beittu skæru
liðar handsprengjum og vörpuðu
að kjósendum, sem biðu fyrir
dyrum úti á kjörstöðum, en stund
um var skotið á kjósendur úr
launsátri og stundum ráðist til
atlögu á kjörstöðunum sjálfum
innandyra og enn höfðu skæru-
liðar ýmsan annan hátt á. Alls
féllu yfir 60 menn af þeirra völd
um kosningadaginn en 120 særð-
ust. Mörgum þótti mikið, en einn
frambjóðenda sagði um Vietcong:
Framhald á bls. 31
London, 12. sept. — NTB-AP
STARFSMAÐUR sendiráðs S-
Afríku, Johannes van der Poel,
55 ára gamall, var í dag stung-
inn hnífi á skrifstofu sinni í
sendiráðinu og illa særður. Hann
var þegar í stað fluttur í sjúkra
hús og var sagður úr allri
hættu í kvöld. Tilræðismaður-
inn, sem ekki er vitað hverrar
þjóðar var, komst undan. Scot-
land Yard' hefur fengið málið
til rannsóknar.
Sendimoður Púfu
í Júgóslavíu
Páfagarði, Róm, 12. sept. AP
• Páll páfi VI. hefur skipað
fulltrúa Páfagarðs í Júgóslavíu
— hinn fyrsta í fjórtán ár — að
því er frá var skýrt í Páfagarði
í dag. Fyrir valinu varð Mario
Gagna, erkibiskup, sem verið
hefur sendimaður Páfa í Japan
að undanförnu.
Velheppnað stefnumót yfir Hawaii:
Þriggja daga geimferð
Gemini 11. hafin
Geimfarið tengt Agena-eldflaug
á fyrstu hringferð um jörðu
Kennedyhöfða, 12. sept.
— AP — NTB —
EFTIR þriggja daga tafir og
erfiðleika tókst loks í dag að
skjóta á loft bæði Agena- eld-
flauginni og geimfarinu Gem-
ini 11. sem ætlað var að elta
hana uppi og tengja geimfar-
mu. Allt fór eins og bezt varð
á kosið og náðu geimfararnir nema tæPan helming tilætlaðs
rannsóknareldsneytis síns til
Pete Conrad og Richard Gor-
don að tengja Agena-eldflaug
ina geimfari sínu þegar á
fyrstu hringferð þess um-
hverfis jörðu. Þá var klukk-
an 16.06 að íslenzkum tíma.
Agena-eldflaugin var send á-
leiðis kl. 12.49 að ísl. tíma og
Gemini 11. skotið á loft k.,
14.52.
Tilraun þessi tókst frábærlega
vel og notuðu geimíararnir eiski
hennar og þóttu mikil undur.
Þykir nú fullvíst að ekki verði
eins erfitt og áður var talið að
koma til bjargar nauðstöddum
geimförum, t.d. strandaglópum á
heimleið úr tunglferð — eins og
áður var talið. Tenging geimfar-: -
ins og eldflaugarinnar tók 15
mínútur og að 40 minútum lokn-
um losuðu geimfararnir eldflaug
ina aftur eins og fyrirskipað
hafði verið.
Gemini 11. er ætlað að verða
á lofti í þrjá sólarhringa og auk
tilraunarinnar sem áður gat og
svo vel tókst til um eiga þeir
Conrad og Gordon að stýra geim
fari sínu upp í 1384 km hæð frá
jörðu en það er mesta jarðfirrð
geimfars til þessa. Einnig á Ric-
hard Gordon að bregða sér .
gönguferð um geiminn tvisvar
sinnum þessa daga og gera ýms-
ar tilraunir, m.a. reyna ýmis á-
höld og verkfæri utan geim-
farsins.