Morgunblaðið - 13.09.1966, Qupperneq 7
Þriðjudagur 13. sept. 1968
MORCU NBLAÐID
¥
Hún lítur ekki út eins og hún á að sér að vera, brosandi og
fögur. Hún situr og virðist vilja segja — ég nenni ekki meiru.
Myndin er tekin af Sofíu Loren í hléi við kvikmyndaupptök-
ur á Suður-Ítalíu, þar sem verið er að taka myndina „Cera
una volta“ — „Það var einu sinni“ — þar sem hún leikur
fátæka bóndakonu, sem lendir í fögru ævintýri. Mótleikari
hennar í myndinni er egypzki kvikmyndaleikarinn Omar
Sharif.
SOFFÍA LOREIM
só NÆST bezti
Hann bað hana um koss. Hún hnyklaði brýrnar.
— Koss, maelti hún, táknar tilfinningu. Koss á nöndina táknar
virðingu koss á enni merkir vináttu. Koss á varirnar táknar nvort-
tveggja, — og dálítið meira. Nú gef ég yður leyfi til að kyssa mig.
Hann þagði. í gegnum virðingu og vináttu skapast ástin. Hann
leit á nana til að lesa hugsanir hennar. . . Þarna stóð hún með húf-
una dregna niður að augum og hendurnar grafnar í kápuvösunum.
Hann skildi.
Uppeldi
lcvenna
Látið stúlkubörn njóta góðr
ar skólamenntunar, en kennið
þeim jafnframt að þvo, gera
við sokka, sauma í fötin sín
og búa til mat. Sýnið þeim
fram á að sé hyggilega far-
ið að við matartilbúning spar
ast mikið fé. Og látið þeim
skiljast að í hverri krónu eru
100 aurar, og að sá einn verð-
ur efnalega sjálfstæður, sem
eyðir minnu, en hann vinnur
Bér inn, en sá sem daglega
eyðir meiru en hann vinnur
fyrir, verður fyrr eða síðar
öreigi. Kennið þeim að meta
bómullarkjólinn, sem er borg-
aður, en silkikjólinn, sem er
tekinn í skuld. Gerið þeim
skiljanlegt að hraustlegt og
rjótt andlit af vinnu, er fall-
egra en föl og blóðlaus and-
lit, þótt fríð séu.
Kennið þeim að húsmóðirin
á sjálf að kaupa til heimilis-
ins og sjá um að reikningar
þeir séu réttir. Kennið þeim
iðni og sjálfstraust og látið
þeim skiljast að hjarta góður,
skynsamur og duglegur mað-
ur í vinnufötum, er meira
virði en heil tylft af fínt
klæddum letingjum, sem eyða
tíma og efnum til einskis.
Gerið þeim það ljóst að ham
ingja hjónabandsins er ékki
komin undir fríðleik og fé,
heldur þeim sjóði,‘sem hjartað
geymir. Ef þér hafið kennt
dætrum yðar allt þetta, þurf-
ið þér ekki að kvíða íyrir
framtið þeicra.
FRÉTTIR
Árbæjarsafn lokað. Hópferðir
tilkynnist í síma 18000 fyrst um
sinn.
Verzlunarskóli íslands verður
settur í hátíðasal skólans fimmtu
daginn 15. sept. kl. 2, e.h.
Reykjalundur sendir bifreiða-
étjórum Hreyfils innilega kveðju
®g hjartans þakkir fyrir dásam-
legan dag og yndislega ferð á
vegum þeirra 7. þ.m., svo og
öðrum, er að þessu stóðu með
þeim. Lifið heil!
Spilakvöld Templara, Hafnar-
firði hefjast að nýju miðviku-
daginn 14. sept. Spiluð verður
félagsvist með líku sniði og und
anfarið. Allir velkomnir.
Vinahjálp. Bridge-klúbburinn
tekur til starfa í Hótel Sögu 1
Átthagasal, fimmtudaginn 15.
september kl. 2,30.
Kristniboðssambandið. Á sam-
komunni í kvöld kl. 8.30, í kristni
boðshúsinu Betaníu, talar Bene-
dikt Arnkellsson, cand. treol.
Allir eru velkomnir.
Kvenfélagið Esja. Aðalfundur
þriðjudaginn 13. kl. 9 síðdegis.
Stjórnin.
Minningarspjöld
Ekknasjóður lækna.
Minningarspjöldin fást á eftir-
töldum stöðum: Skrifstofu lækna-
félaganna í Domus Medica, í
skrifstofu borgarlæknis, í Reykja
víkur Apóteki, í Kópavogi hjá
sjúkrasamlagi Kópavogs, í Hafn-
arfirði hjá Hafnarfjarðar Apó-
teki.
Minningarkort Krabbameins-
félags lslands fást á eftirtöldum
stöðum: I Öllum póstafgreiðsl-
um landsins, öllum apótekum í
íteykjavík nema Iðunnar Apóteki
Kópavogi, Hafnarfirði og Kefla-
vík. Afgr. Tímans í Bankastræti
7 og skrifstofu krabbameinsfé-
laganna, Suðurgötu 22.
75 ára er í dag frú Ástríður
Björnsdóttir, Laugavegi 46b,
Reykjavík. Hún dvelst í dag á
heimili dóttur sinhar, og tengda-
sonar að Skipholti 60 hér í bæ.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Jónína M. Péturs-
dóttir, Þinghólsbraut 15, kópa-
vogi, og Reynir Guðmundsson,
bifvélavirki, sama stað.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Haldóra Hálfdánsdóttir,
fóstra frá Bolungarvík og Þor-
steinn Einarsson, stýrimaður
Barmahlíð 37.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Móeiður Sigurðar-
dóttir, Birtingaholti, Árness. og
Þorleifur Eiríksson, Tómsarhaga
41, Rvík.
Sunnudaginn 4. þ.m. opinber-
uðu trúlofun sína, ungfrú
Hanna Gísladóttir, Stórabúrfelli
VÍSUKORIVi
Til vinar míns Jóns Kaldals,
þökk.
Sjálfur drottinn sendir þér
sól frá kærleiks vori!
— fylgi þér allt sem fegurst er
fram að hinsta spori.
Hjálmar frá Hofi.
X- Gengið >f
Reykjavík 5. september 1966
1 Sterlingspund Kaup 119,74 Sala 120,04
1 Bandar. dollar 42,95 43,06
1 Kanadadollar 39,92 40,03
100 Danskar krónur 620,40 622,00
100 Norskar krónur 600,64 602,18
100 Sænskar krónur 830,15 832,30
100 Finsk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 876,18 878,42
100 Belg. frankar 86,22 86,44
100 Svissn. .frankar 99,00 995,55
100 Gyllini 1.188,30 1.191,36
100 Tékkn. kr. 596,40 598,00
100 v-þýzk mörk 1.076,44 1.079,20
100 Austurr. sch. 106,16 106,60
og Jón Már Smith, Eldjárns-
stöðum, Austur-Húnavatnssýslu.
Þann 31. Ágúst voru gefin
saman í Laugarneskirkju af
séra Garðari Svavarssyni ung-
frú Alis Larsen frá Kaupmanna-
höfn og John Harmoud Grant
frá Californiu.
Spil: Ef þú ert að spila á spil,
þá er það fyrir skjótlegri gift-
ingu. Ef þú hefur mest af tígli,
þá verður makinn ílla lyntur. Ef
mest er af hjarta, þó mun hjóna
bandið verða mjög hamingju-
samt. Ef mest er af laufi, þá
færðu mikla peninga með gift-
ingunni. Ef mest er af spaða, þá
verður þú óhamingjusamur og
börn þín einnig. — Spil út af
fyrir sig er ekki gott að dreyma,
oftast fyrir vonbrigðum.
Klæðum og gerum við
húsgögn, seljum ný bólstr-
uð húsgögn á framleiðslu-
verði. Bólstrunin, Lang-
holtsveg 82. Sími 37550. —
(Karl og Sigsteinn).
Heimasaumur
Óskum eftir sambandi við
konur, sem eiga Overlock
saumavélar og vilja taka í
heimasaum. Tilboð merkt
„Heimasaumur“ skilist á
afgr. blaðsins.
Húseigendur
Reglusaman námspilt vant-
ar herbergi í nágrenni
KennaraskólanS. Uppl. í
síma 24576.
ATHUGIÐ
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Stór 4 herbergja íbúð
í Háaleitishverfi til leigu
strax. Tilboð sendist Mbl.
merkt „4064“.
Kona eða stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í
bakarí hálfan daginn. Uppl.
í síma 30958 milli kl. 7—8.
Kvenúr tapaðist
fimmtud. 8/9 frá Gullteig
í Lækjargötu í Góðtempl-
arahúsið. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 41349.
Sem nýtt sjónvarp
(Normandie) 23 tommu
með útvarpi og plötuspil-
ara til sölu. Uppl. í síma
38355 frá kl. 9—5.
Til sölu
þurrkari, hjónarúm, eld-
húsborð og fleira. Uppl. í
síma 16847.
Volkswagen
(rúgbrauð) ’55—’60 árg. í
góðu standi óskast til
kaups. Æskilegt er að sæti
fylgi. Uppl. í síma 15122.
Einhleypur, miðaldra
maður óskar eftir eins eða
2ja herb. íbúð til leigu sem
fyrst. Forstofuherb. kemur
einnig til greina. Reglusemi
lofað. Tilboð merkt „4253“
leggist inn á afgr. Mbl. f.
laugardag.
Karlmannsveski fundið
Ppplýsingar í síma 34741
ATHUGIÐ!
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Klæðum og gerum við
bólstruð húsgögn. 1. flokks
vinna. Sækjum og sendum.
Valhúsgögn
Skólavörðustíg 23.
Sími 23375.
Ráðskona óskast
á gott sveitaheimili, einn
maður í heimili. Má hafa
barn. Upplýsingar í síma
51031.
Hestar
Tveir góðir hestar til sölu.
Upplýsingar í Laugardæla-
búinu.
Hjón utan af landi
vantar þrjú herbergja íbúð
í Reykjavík sem fyrst. Vin-
samlegast hringið í síma
22518.
íbúð óskast til leigu
Menntaskólakennara með
maka og tvö börn vantar
2ja—3ja herb. íbúð f. 1. okt
Róleg og algerlega reglu-^
samt fólk . Ársfyrirframgr.
Uppl. í síma 20853.
íbúð óskast
Kennaraskólanemi ó s k a r
eftir einu herb. og eldhúsi.
Barnagæzla eða kennsla
upp í leigu, ef óskað er.
Uppl. í síma 1011 Akran.
frá 9—5, og 1130 eftir kl.
5.30.
Tækifæriskaup
Vetrarkápur með skinnum,
svartar og brúnar, á kr.
2200,-. Svartir kvöldkjólar
á kr. 700,-. Prjónakjólar,
margir litir, á kr. 8.00,-.
Laufið, Laugaveg 2.
Til leigu
er 4 herbergja íbúð frá 15.
okt. Ársfyrirframgr. Tilboð
merkt: „Heimavinná 4052“
leggist inn á afgr. MbL
fyrir föstudag.
Reglusaman
fullorðinn mann vantar
gott herbergi í Kópavogi,
helzt með aðgangi að síma.
Uppl. í síma 40557.
Volkswagen
árgerð 1963 til sölu. Uppl.
í síma 35269, eftir kl. 6.
Miðstöðvarketill óskast
Stærð 4 ferm. Upplýsingar
í síma 12764.
Áreiðanleg og dugleg
stúlka óskar eftir vel laun-
uðu starfi. AUs konar um-
sjónarstörf, símavarzla og
fl. Góð meðmæli. Tilboð
merkt „Áreiðanleg 4249“.
Óskum eftir 2 herb. íbúð
strax eða við fyrstu hentug
leika. Reglusemi og góðri
umgengni heitið. Vinsam-
lega hafið samband við
Guðbrand í síma 2 24 80
frá kl. 1—8 dag hvern.
Tenor eða bariton
SAXAFÓIMN
óskast keyptur. — Upplýsin»ar um verð
o. fl. sendist afgr. Mbl., merkt: „Saxafónn
— 4248“.