Morgunblaðið - 13.09.1966, Blaðsíða 23
Þriðjuðagtrr 13 sepl. 1966
MORC U NB LAÐIÐ
'ZJ
Norsku forsætisráðherrahjónin með hjónunum á Grund í Eyjafirði. Frá vinstri: Aðalsteina
Magnúsdóttir húsfreyja, Per Borten, Gisli Björnsson, bóndi á Grund og frú Magnhild Borten.
1 Dimmuborgum. Jóhann Skaftason, sýslumaður vísar norska
forsætisráðherranum veginn.
— Norðurland
Framhald af bls. 17.
stjórnar stóð að Hótel KEA um
kvöldið.
I Evjafirði
Eins og kunnugt er, er Per
Borten fyrrverandi bóndi og
búnaðarfrömuður, og beinist því
áhugi hans einna helzt að jarð-
yrkju, kvikfjárrækt og búskap
yfirleitt. Hann er líka býsna
kunnugur íslenzkum búskap af
afspurn. Hann fræddi samferða-
menn sína t. d. um það, sem
sennilega er á fárra íslendinga
vitorði, að í Eyjafirði er meiri
mjólkurframleiðsla á hvern
bónda að meðaltali en í nokkru
öðru héraði á öllum Norður-
löndum. Hann hefir heldur ekki
á ferðalagi sínu setið sig úr færi
að kynnast af eigm raun og sjá
með eigin augum vinnubrögð ís-
lenzkra bænda og búskaparháttu
á íslandi. Sá áhugi er einlægur
og lifandi. Hann hefir unun af
því að ræða við íslenzka bænd-
ur, spyr margs og vill skoða
sem allra flest þvi að sjón er
sögu ríkari.
Klukkan 10 á sunnudags-
morgun var þess vegna haldið
í stutta kynn'sferC um hið blóm-
lega og búsældarlega hérað,
Eyjafjörð, svo að norsku ráð-
herrahjónunum gætist kostur á
að litast þar um. Ekið var sem
leið liggur austur yfir hólma
Eyjafjarðarár og fram Kaup-
angssveit. Brátt var komið að ný-
býlinu Höskuldsstöðum, sem ris-
ið er með miklum myndarskap
fyrir fáum árum. Algjörlega
utan dagskrár lætur Per Borten
stöðva þar bíimn og gengur
heim að bænum ásamt Magnúsi
Jónssyni fjármálaráðherra og
Árna Jónssyni tilraunastjóra,
sem slegizt hafði i för með ráð-
herrunum um morguninn. Á
hlaðinu mættu þeir Sigurði Snæ-
björnssyni bónda, sem var ný-
kominn frá morgunverkum í
fjósinu. Toku þeir tal saman og
ræddust við góða stund, aðallega
um nautgriparækt. Norðan við
fjósið var stór hópur alikálfa,
sem nú fengu mörg hlutverk og
mikil í íslandskvikmynd ráð-
herrans.
Eftir þessa óvæntu skyndi-
heimsókn að Höskuldsstöðum
var ekið frain hjá ninum mynd-
arlegu stórbýlum á Staðarbyggð,
húsmæðraskólanum á Lauga-
landi, Munkaþverá og öðrum
merkum stöðum, unz staðnæmzt
var á hinu snyrtilegu stórbýli
Stóra-Hamri. Þai er tvíbýli, og
heita bændurnir Eiríkur Skafta-
son og Þórhailur Jónasson.
Leitun mun vera a öðrum eins
þrifnaði og snyrtimennsku á
bændabýlum hérlendis og jafn-
an er á Stóra-Hamri. Hvenær
sem þar sr fram hjá farið, kem-
ur aldrei fyrir, að þar sjáist
nokkur hlutur í óreiðu, hvergi
spýta eða tómur poki, allt fágað
og fagurt. Öll hús eru hvítmáluð
með rauðum þökum, malarborn-
ir stígir milli húsa, sem eru
mörg reisuleg, fjós hvítlökkuð
að innan. Þar er staður fyrir
hvern hlut og hver hlutur á sín-
um stað.
Hér tók á móti hópnum Eirík-
ur Skaftason bóndi og gekk með
gestunum um garða. Per Borten
skoðaði allt var.dlega, fjárhús,
fjós, hlöður, heyblásara, véla-
geymslur og verkstæði, og lauk
á allt hinu mesta lofsorði. Hann
— Clay
Framhald af bls. 30.
brást ekki. Hans létta fótavinna
og fimleiki að sveigja frá högg-
um andstæðingsins annars veg-
ar og hins vegar hans eldsnöggu
högg upp úr erfiðri vörn voru
enn einu sinni þau vopn er
dugðu honum til yfirburðasig-
urs.
Mildenberger var allt til loka
tilbúinn til sóknar þrátt fyrir
áðurnefnda yfirburði Clays.
í 5. lotu olli högg Clays skurði
á augabrún Mildenbergers og
tók að blæða mjög. Skurðurinn
opnaðist aftur í 7. lotu og í 9.
lotu fékk Mildenberger ákafar
blóðnasir. í 12. lotu fékk hann
skurð á heila augað og blæddi
svo mjög að hann var ófær um
að verja sig.
spurði Eirík bónda um afkomu
búsins, vinnubrögð og fleira og
gaf honum að skilnaði áritaða
myndabók frá Noregi.
Næsti viðkomustaður var
Saurbær, þar seir hin aldna torf
kirkja var skoðuð. en síðan var
ekið heim að höfuðbólinu Grund.
Þar stóðu á .tröppum úti hjónin
Aðalsteina Magnúsdóttir og Gísli
Björnsson og fögnuðu gestum.
Er ekki að orðlengja, að öllum
hópnum var boðið í bæinn til
að þiggja hressingu. Móttökur
allar voru höfðinglegar og stór-
myndarlegar. Gestunum var
tekið með mikilli alúð og eðli-
legum hjartanleik eins og þar
væru komnir gamlir vinir og
kunningjar, enda var auðfund-
ið, að þeir voru bæði velkomnir
og kærkomnir. Húsráðendur töl-
uðu margt við gestina og sýndu
þeim margt fróðlegt, sem þarna
var að finna.
Gísli bóndi sýndi Per Borten
Þetta er 26. leikur Clays sem
atvinnumaður — og 26. sigur í
röð.
Mildenberger hefur nú keppt
55 leiki, hefur unnið 49, 3 orðið
jafnt og tapað 4 — þar af „að-
eins“ verið rotaður tvisvar.
— Per Borten
Framhald af bls. 3.
göng Snorra í Reykholti. Borten
sagði á blaðamannafundinum, að
er fréttamaður NTB stakk upp á
þessu, hefði hann sagt „því ekki
það“. Ekki svo að skilja að hann
teldi ekki að íslendingar væru
fullfærir um að gera þetta sjálf-
ir. í hugir.yndinni fælist það, að
íslendingar og Norömenn hefðu
þarna sameiginlsgum skyldum
að gegna. Og Norðmenn mundu
gjarna vilja að þeir leystu þær
Borten kveður Eirík Skaftason á Stórhamri, sem þakkar honum
og Magnúsi Jónssyni, ráðherra, fyrir komuna.
af hendi sameiginiega, ef unnt
væri. Kvað ráðherrann það hafa
verið mjög fróðlegt að koma til
Reykholts og sjá Snorralaug og
umhverfi þess rithöfundar, sem
Norðmenn eiga svo mikið upp
að unna.
Björgunarmönnum þakkað.
1 lok blaðamannafundarins
bað Per Borten ráðherra blöðin
fyrir sérstakt þakklæti til þeirra
manna, sem hefðu veitt ómetan-
lega aðstoð við björgun á skip-
brotsmönnum af norskum báti
6. september. En það hefðu ver-
ið frá Björgunarsveit Neskaup-
staðar þeir Sveinn Guðmunds-
son, Hilmar Bjarnason, Stefán
Þorleifsson, Jóhann Zoéga, Ro-
bert Jörgensen og Halldór
Bjarnason. V.S. Goðinn flutti
mennina að Stuðium. Einnig 5
menn af varðskipinu Þór undir
forustu Bjarna Helgasonar stýri
manns og tveir menn frá Nes-
kaupstað, Jón Bjarnason og Hálf
dán Bjarnason er sóttu menn
og farangur á strandstað. Vildi
ráðherrann þakka þessum mönn
um öllum.
Leiðrétting
MISSÖGN varð í frétt Mbl. sl.
laugardag um sérstaka „bók“
sem er til sýnis í stúku Slát-
urfélags Suðurlands á Iðnsýn-
ingunni.
Framleiðslu bókarinnar annast
Grétar Bergmann, en hann er
hins vegar ekki framkvæmda-
stjóri fyriitækisins G. Bergmann
hf. sem mun annast dreifingu
þessarar boKar og er Grétari
Bergmann að öðru leyti óvið-
komandi.
og Magnúsi Jónssyni uppdrátt
að Grundarbænum frá árinu
1880, sem hékk á vegg í stof-
unni, og spjölluðu þeir jafn-
framt um húsaskipan almennt á
gömlum norskum og íslenzkum
bæjum, sameiginleg nöfn í tung
um beggja þjóðanna á húsum
og ýmsum búshlutum. Við frú
Aðalsteinu ræddu Borten-hjónin
um verkun á hangikjöti og
ýmsum öðrum íslenzkum mat, og
hún sýndi þeim m. a. gamlan
útskorinn prjónaslokk, sem
langamma Gísla hafði átt.
Skemmtilegt þótt Norðmönnun-
um að sjá safnrit norskra höfuð-
skálda meðal bóka heimilisins.
Við stálpaðan son þeirra Grund-
arhjóna vav talað um hesta og
hestamennsku, og varð þess ekki
vart, að hann léti neitt standa
á greiðum svörum.
Eftir að ailir höfðu skrifað í
gestabók heimihsins, var gengið
út í kirkjuna, sem er ein feg-
ursta sveitakirkja á landinu, en
síðan kvaðzt. með miklum virkt-
um. Var auðiundið á forsætisráð
herrahjónunum, að þeim þótti
afar vænt um ao koma á þetta
myndarlega sveitaheimili og
tala við íólkið, sem þar býr.
Nokkru fróðari en áður um
íslenzka bændur, búskap og
bændamennmgu héldu Per
Borten og frú hans ásamt föru-
neyti til Akureyrar og snæddu
þar hádegi.sverð. Um kl. 15.30
var svo flogið til Reykjavíkur,
og lauk þai með hinni opinberu
norsku ráðherraheimsókn til
Norðurlands.
— Sv. P,
Borten brá sér á hestbak í - Mý vatnssveitinni.
son, oddviti á Grænavatni heldur í tauminn.
Sigurður Þóris-