Morgunblaðið - 13.09.1966, Page 30

Morgunblaðið - 13.09.1966, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. sept. 1966 Sigrar Keflavík eða þarf aukaleik? KefBvíkingar unnu KR 2-0 KEFLVÍKINGAR sigruðu KR með tveim mörkum gegn engu á sunnudaginn. Með þeim sigri hafa Keflvíkingar tryggt að íslands- meistaratitill gengur þeim ekki úr greipum fyrr en eftir „auka-úr- slitaleik“ Og sá aukaúrslitaleikur — ef til hans kemur — verður við Val, en Valsmenn geta náð sama stigafjölda og Keflvíkingar með því að sigra Þrótt á núðvikudagskvöldið. Keflvíkingar hafa nú 14 stig af 20 mögulegum — og Valsmenn geta einnig náð þeirri tölu, ef Belgíu- og Parísardvölin situr ekki enn um of í beinum þeirra. Barátta í 30 mínútur Leikur Keflvíkinga og KR var lélegur og heldur tíðindalít ill ef frá eru taldar fyrstu 30 mínúturnar. Þá var allvel iTarizt á báða bóga: Fyrst höfðu KR- ingar undirtökin í þeirri bar- áttu án þess þó nokkru sinni að skapa sér verulega hættuleg færi. En smám saman náðu Keflvík- ingar tökum á leiknum og jukust yfirburðir þeirra fljótt. Náðu þeir algerum yfirráðum á vallar- miðjunni og þar var byggð upp hver sóknarlotan af annarri. Á 8. mínútu kafla um miðbik fyrri hálfleiks skoruðu Keflvíkingar tvívegis og virtust eftir það ekki hafa mikinn áhuga á að skora meira. heldur að halda yfn burðum sínum og tryggja þannig sigurinn. Það tókst á svo full- kominn hátt, að KR-ingar áttu ekki eitt einasta almennilegt skot á mark Kéflavíkur allan leikinn út í gegn. Fyrra mark Keflvíkinga kom á 19. mín. Hófst sóknin a miðju og leikið var út til vinstri. Rúnar „bítill“ Júlíusson lék lag- lega á Kristin bakvörð og gaf mjög vel til Jóns Jóhannssonar sem skoraði af stuttu færi. Síðara markið kom á 27. mín. Hár knöttur var sendur að Staðan Staðan í 1. deild er, þegar einum leik er ólokið, þannig: Keflavík 10 6 2 2 23-12 14 Valur 9 5 2 2 18-12 12 Akureyri 10 4 4 2 20-17 12 K.R. 10 4 2 4 19-13 10 Akranes 10 2 3 5 13-21 7 Þróttur 9 0 3 6 7-26 3 Enskn knatíspyrnan 7. UMFERB ensku deildarkeppn jnnar fór fram s.l. laugardag og marki KR. Þar varð mikil þvaga. oft skotið en jafnoft varið, þar til Grétar Magnússon innherji krækti í knöttinn og fékk skorað af þröngu færi. Sókn KR var í algerum moi- um. Keflavíkur-vörnin kæfði í fæðingu allar samleikstilraumr sóknarmanna og einasta ógnunin frá KR-ingum var einstaklings- tilraunir, sem allar misheppnuð- ust. Eyleifur hitti sjaldan maric, flestar sendingar og skot Harðar lentu aftur fyrir mark og af boga sendingum Baldvins stafaði aldrei hætta. Eyleifur átti bezta færið í síðari hálfleik — en skaut framhjá. Leikurinn var í heild heldur slakur og daufur á að horfa. í flestum eða öllum stöðum voru Keflvíkingar betri. Vörn ÍBÍ var svo sterk að KR fékk engu áorkað. Miðjuna áttu Keflvíking ar og það sem sást af góðum sóknarleik var Keflvíkinga. Oft hafa þó Keflvíkingar sýnt betri leik og hefðu ef til vill getað betur nú, ef á hefði þurft að halda — svo virtist að minnsta kosti. — A. St. urðu úrslit ieikja þessi: 1. deild Blackpool ~ - Aston Villa 0—2 Chelsea — Sunderland 1—1 Leeds — N Forrest 1—1 Leicester — - Sout’nampton 1—1 Liverpool - - Sheífield W. 1—1 Manchester City — Arsenal 1—1 Newcastle - - Burnley 1—1 Sheffield U . — Everton 0—0 Stok — ’.Vest Harr 1—1 Tottenham — Manchester U.2—1 W.B.A. — Fulham 2—1 2. deild. Birmingham — Bury 1—3 Blackburn - — Cardiff 4—1 Bolton — Huddersfield 1—0 Bristol City — Ipwich 1—1 Carlisle — Wolverhampton 1—3 Framh. á bls. 12 19,64 m á Akureyri BANDARÍSKI kúluvarparinn Neal Steinhauer tók þátt í móti á Akureyri á sunnudaginn. Hann varpaði kúlunni 19,64 m. í keppn inni — og slíkur árangur hefur aldrei náðst hér á landi áður. Utan keppni sýndi Steinhauer kúluvarp og varpaði 17 sinnum. í 14 varpanna lenti kúlan hand- an við 19 m. strikið. Steinhauer tók einnig þátt í kringlukasti og kastaði 51,18 m. Árangur Steinhauers smitaði einhvern veginn út frá sér. Lárus Lárusson setti í keppninni Kópa- vogsmet 14,05 m. ög Ingi Árna- son setti Akureyrarmet 13,88 m. Síðara mark ÍBK. Grétar (4. i'rá hægri) skorar af stuttu færi en erfiðri stöðu. Clay sigraði í Leikurinn stöðvaður er IHilden- berger gat ekki varizt sökum blóörennslis lotu CASSIUS CLAY er áfram heims meistari í þungavigt hnefaleika. í fjórða sinn á þessu ári varði hann titil sinn á laugardaginn fyrir Evrópumeistaranum Karl Mildenberger í Frankfurt. Leik- urinn var stöðvaður er 1 mín og 30 sek voru liðnar af 12. lotu, en þá var Mildenberger ófær um að verja sig vegna blóðrennsl- is úr skurðum við bæði augu og úr nefi. Ekki sá á Cassiusi Clay en mörg þung högg fékk hann frá Mildenberger, sem veitti heims- meistaranum meiri mótspyrnu en búizt hafði verið við. Sótti Mildenberger fast á framan af, en fékk ekki sínu framgengt vegna fimlegrar varnar Clays, sem vék sér undan flestum högg um á sinn snaggaralega máta með frábærri fótavinnu og lið- legheitum. • Þrisvar í gólfið Þrívegis lá Karl Milden- berger í gólfinu — í 5., 8. og 10. lotu. í 5. lotu varð eld- snöggt hægri handar högg honum að falli rétt áður en bjallan hringdi lotulok. f 8. lotu sótti Mildenberger fast og skoraði mörg stig. Var sýnilegt að heimsmeistar IHcGregor setti heimsmet SKOTINN Bobby McGregor — sem íslendingum er að góðu kunn ur frá þátttöku í sundmóti hér — setti heimsmet í 100 m. skrið sundi í Blackpool á laugardaginn. Synti hann á 53,5 sek. i anum þótti höggin er hann fékk þung. Mildenberger sótti ef til vill af meira kappi en forsjá og Clay tókst að víkja sér undan svo höggin urðu að vindhöggum og upp úr því kom Clay fyrst 4 Jétt- um vinstri handar höggum á Mildenberger og síðan vinstri handar höggi undir höku og Mildenberger féll — stóð eld snöggt upp, en dómarinn taldi upp að átta samkv. nýj- ustu reglum. I 10. lotu sótti Mildenberg- er einnig framan af og kom þungum höggum á meistar- ann. Sókn hans var þung gegn Clay en honum tókst ekki að skapa möguleika á að koma góðu höggi á meistar- ann. f ákafa sóknarinnar varðist hann ekki eldsnöggu hægri handar höggi og féll á rassinn á gólfið. Var það rétt i samam mund og hringt var til lotuslita. # Jafnara en búizt var við í held var baráttan miklu jafn ari en búizt var við. Clay vann að vísu 9 lotur af ellefu. Níunda lokan var dæmd jöfn og Miluen berger vann 4. lotu leiksins. Það var fyrst og fremst snerpa Clay sem skapaði sigur hans. Hann átti einkum í 3. og 4. lotu í erfiðleikum með hinn örvhenta Mildenberger. En vörn Clays Framhaid á bls. 23 linglingamótiriu lýkur á morgun Á unglingameistaramóti íslands 1966, sem fram fór á Laugar- vatni í sumar, var ekki hægt að láta keppni fara fram í 110 m. grindahlaupi og 400 m. grinda- hlaupi, þar sem ekki eru til grindur að Laugarvatni. Ákveðið hefur verið að láta keppni fara fram í þessum tveim grindahlaupum unglingameistara mótsins n.k. miðvikudag á Meia vellinum og hefst keppnin kl. 18. Auk þess fer fram keppni í þrem aukagreinum, sleggjukasti, stang- arstökki og kúluvarpi. Þátttökutilkynningar sendist til FRÍ á skrifstofu ÍSÍ, íþróttamið- stöðinni, fyrir hádegi n.k. míð- vikudag. Hverjir eiga að skipa landslið? GETRAUNIN um það, hvernig landsliðsnefndin stillir upp lands- Jiði sínu, hefur fengið sæinilegar undirtektir og þátttöku. í dag kI. 3.15 verður blaðamannatundur hjá KSÍ og þar verður liðið til- kynnt. Við tökum því enn við getraunaseðlum — eða þar til kl. x í dag — svo og þeím, sem póstlagðir hafa verið fyrir þann tima. Seðillinn fylgir hér: Steinhauer á Laug- ardalsvelli í kvöld v. útherji miðh erji h. útnerji v. innherji h. mnherji v. framvörður miðv örður h. framvóiuur 1 KVÖLD efnir FRÍ til frjáls- iþróttamóts í tilefni af heimsókn bandaríska kúluvarparans Neal Steinhauer, sem undanfarna daga hefur leiðbeint kösturum hér í Reykjavík og norður á Akureyri. Steinhauer mun taka þátt í bæði kúluvarpi og kringlukasti. Hann ásem kunnugt er annan bezta árangur í kúluvarpi í heiminum í ár, 20,44 metra og kastar hann kringlunni bezt um 58 metra. Auk kúluvarpsins og kringlu- kasts verður einnig keppt í lang- stökki og hástökki, 100 metra hlaupi sveina, drengja og stúlkna og karla, 400 metra hlaupi A og B flokki, 1000 metra hlaupi auk 4x100 metra boðhlaups karla. Keppnin fer fram á Laugardals vellinum og hefst kl. 18,30. v. bakvórður h. bakvóröur maikv örður Sendandi: I Heimilisfang:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.