Morgunblaðið - 13.09.1966, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.09.1966, Qupperneq 31
Þriðjudagur 13. sepT. T966 MORGU N BLAÐIÐ 31 Leysiar samveldisráð- sfteinan Ródesíumálið? Þessa mynd tók Adolf Hansen af vitaskipina Ár- vaki, þegar það Iét úr Reykja vikurhöfn í gærmorgun kl. 08.10. Hið óvanalega við brott för skipsins var, að það hafði i eftirdragi 40 lesta þungan olíutank, en olíutank inn hafði skipið dregið fra Flateyri. Olíufélagið h.f. er eigandi tanksins, og er að flytja hann til Vestmanna- eyja. Frá Flateyri fékk skip- ið gott veður og var gang- hraðinn að meðaltali um 6 hnútar, en tankurinn var að mestu ofansjávar, risti ekki nema um 1 metra. Siglingin til Eyja var áætluð um 20 klukkustundir, en skipstjóri í þessari ferð er Ásgrímur Björnsson í fjarveru Guðna Thorlacíus. - EFTA Framhald af bls. 1 verzlunarsvæðisins frá því í októ ber s.l. um viðræður milli þess- ara tveggja markaðsbandalaga. í skýrslu sinni fer Gauthier miklum viðurkenningarorðum um þróunina innan EFTA og seg- ir, að hlutlaus athugandi hljóti að undrast hversu miklum ár- angri Efta hafi náð- og allar fyrri hrakspár um framtíðar- möguleika bandalagsins hafi að engu orðið. Hann bendir hins- vegar á, að viðskipti á sviði land- búnaðarframleiðslu séu aðeins 10% af viðskiptum EFTA ríkj- anna en vísar á bug staðhæfing- um um, að ekkert hafi verið gért til þess að auka þessi viðskipti. í fyrri skýrslunni segir, að takist — eins og ætlunin sé að afnema tolla innan Frívrzlunar- svæðisins á fullunnum vörum, áður en þetta ár sé á enda, þá sé það heilu ári fyrr en áætlað var árið 1960, þegar fram- kvæmdaáætlunin var gerð í Stokkhólmi. Hinsvegar segir, að Portúgalir muni viðhalda ein- hverjum tollum og kvótum eftir næstu áramót og hafi gert sér- staka samninga við hin aðildar- ríkin, Bretland, Austurríki, Dan- mörk, Svíþjóð, Sviss og Noreg um að afnema tollana nokkru hægar en þau. Finnland, sem hef ur samband við EFTA dregur einnig úr tollum — verða þeir væntanlega um næstu áramot að eins orðnir 10% af því, sem þeir voru 1960. í skýrslunni segir, að , starf EFTA hafi gefið mjög góða raun. Viðskiptin milli ríkjanna hafi fjórfaldast frá því 1959 og viðskipti Norðurlandanna fjög- urra aukizt um 150%. Á það er jafnframt bent, að lækkun tolla og breytingar á kvótum sé aðeins eitt atriði af mörgum, sem varða viðskipti bandalagsins og muni í nánustu framtíð lögð öll áherzla á að leysa önnur vandamál, er haml- að geti auknum viðskiptum og samstarfi aðildarríkjanna. Syndih 200 m Vegur yfir Kjarrdalsheiði Höfn, Hornafirði, 12. sept. HAFSTEINN Jónsson, vegaverk- stjóri í Hornafirði, bauð í gær fréttamönnum að skoða nýjan fjallveg, sem hann hefur unmð að. Vegur þessi liggur inn að Skaftafellsfjöllum og er hann 12 km að lengd. Það tók 8<daga að leggja veg- inn, en hann byrjar í svonefnd- um Ásum, sem er fjalllendi norð an við Eskifell og liggur upp Kjarrdalsheiði, en hæð hennar er 711 m. Síðan liggur vegurinn inn alla heiðina og endar niður við Illakamb, sem liggur gegnt gangnakofa í Kollmúla. Mörgum ferðamönnum er í mun að sjá landslag þarna inn fra, sem er mjög sérkennilegt og stórbrotið. í gær voru þarna fimm jeppar á ferðinni, fólk að skoða þetta nýja mannvirki, sem S YIM DIÐ 200metrana verða mun til mikils hagræðis fyrir ferðamenn. — Gunnar. Vinningar i skyndi- happdrætfi Mat- vælaiðnaðarins DREGIÐ var í skyndihappdrætti matvælaiðnaðarins á Iðnsýning- unni 1966 sl. föstudagskvöld. — Eftirtalin númer hlutu vinninga og skal vinninganna vitjað í Sýningarhöllina í Laugardal þriðjudag 13. sept. og miðviku- dag 14. sept. kl. 14 til 18: 2346 1148 1219 1257 2261 2259 2681 1451 1114 4653 4652 181 1348 914 3248 42 43 3226 2502 2728 797 796 4515 4430 500 1410 1903 910 758 2584 4143 1213 4277 1195 938 778 27 4076 463 2565 940 1997 979 980 1271 490 2930 3043 4531 4532 1713 4714 2354 1859 3224 2557 1183 18 4194 1468 3301 3300 4658 4658 1389 1390 1902 4304 4225 4303Í (Birt án ábyrgð ar). — Mikill ósigur Framhald af bls. 1 „Við höfum nú átt við slíkt og þvílíkt að búa í sjö ár og það er ekki hlaupið að því að hræða okkur núna“. Eins og áður sagði verða ekki kunn úrslit kosninganna að fullu fyrr en að nokkrum dögum liðn- um, en kosið var um 117 þing- sæti og voru frambjóðendur hátt á sjötta hundrað. HiS nýkjörna þing mun koma saman í 'fyrsta sinni 26. september n.k. og er ætlað það hlutverk eitt að semja landinu nýja stjórnarskrá. Til þess verks fær þingið sex mán- uði og að því loknu verða enn haldnar kosningar til allra þeirra embætta sem hin nýja stjórnar- skrá gerir ráð fyrir. Almennt er búizt við því að í stjórnarskránni verði gert ráð fyrir all-valda- miklum forseta með þing sér til mótvægis. Undirtektir úti um heim. í Bandaríkjunum eru menn sagðir harla ánægðir með hinar nýafstöðnu kosningar í S-Viet- nam og Johnson forseti er sagð- ur líta bjartari augum á vanda- málin austur þar eftir en áður. Engin opinber yfirlýsing hefur þó enn verið gefin út um kosn- ingarnar, og talsmaður forsetans, Bill Moyers, neitaði að ræða þær frekar, en sagði að forsetinn hefði rætt kosningarnar við Dean Rusk, sem heimsótti Johnson í morgun, nýstaðinn upp úr inflúenzu. Walt Rostow, sérleg- ur ráðunautur forsetans, sagði í gærkvöldi er hann kom fram í sjónvarpi að úrslit kosninganna í S-Vietnam hefðu verið Banda- ríkjamönnum undrunar- og gleði efni. Rostow minnti á að kjör- sókn í Bandaríkjunum er að meðaltali um 50% við forseta- kosningar og sagði að það væru þeim mun meiri tíðindi hve mikil hún hefði verið í S-Vietnam nú og væri til marks um það að hótanir Vietcong hefðu lítt megn að að aftra mönnum frá því að kjósa. í London var það haft eftir opinberum aðilum að hin mikla kjörsókn væri tvímælalaust ósig ur Vietcong og full ástæða væri til þess að lofa stjórn S-Vietnam og embættismenn hennar úti um landsbyggðina fyrir skipulagn ingu kosninganna við svo erfiðar aðstæður að fæstir hefðu trúað því að svo vel gæti tekizt til um þær. Viðrbögð Vietcong. Hin leynilega útvarpsstöð Viet cong sagði í dag að stjórnarskrár þingið sem kosið var til á sunnu dag væri ekki annað en verk færi í höndum heimsvaldasinna og kvað skæruliða hafa með höndum nöfn allra þeirra sem kosningu hefðu náð, þótt S-Viet namstjórn myndi ekki birta þau fyrr en síðar í vikunni. „Við þurfum ekki að bíða eftir neinni tilkynningu um kosninga úrslitin", sagði í fréttasendingu útvarpsstöðvarinnar, „við vitum hverjir kosnir hafa verið, það var fastmælum bundið með Bandaríkjamönnum og handbend um þeirra í S-Vietnam fyrir tveimur mánuðum". Útvarpsstöð Vietcong hæddist mjög að S-Vietnamstjórn fyrir rangar tölur um fjölda kjósenda og annað ámóta, og kvað það mestu firru að yfir fimm millj. manna hefðu verið á kjörskrá við kosningarnar á sunnudag. „Herlið Saigon-stjórnarinnar ræður ekki yfir nema um það bil fjórum milljónum manna á kosningaaldri" sagði útvarpið, „og það aðeins um stundarsakir". Ekki er vitað með réttu hversu margir íbúar eru í S-Vietnam, en útreikningar hin síðari ár sýna að sú tala er eitthvað í kringum 16 milljónir. London, 12. sept. — NTB-AP W I L S O N, forsætisráðherra Breta, Iagði í dag fram á sam- veldisráðstefnunni tillögur brezku stjórnarinnar til sátta Ródesíu-málinu þar sem geng- ið mun töluvert til móts við kröfur samveldislandanna í Afríku og Asíu. Fulltrúar á ráðstefnunni hafa þingað fyrir luktum dyrum í dag en í óstaðfestum fregnum af því sem þar fór fram segir að Wilson hafi lagt til að skipuð yrði nefnd samveldislanda sem kyrrþey kannaði afstöðu Ródesíumanna yfirleitt til varan legrar lausnar á Ródesíumálinu. Wilson er sagður hafa lýst því yfir að hann gæti ekki að fullu látið undan kröfunum um að Bretland tilkynnti að það neit- aði að viðurkenna sjálfstæði Ródesíu og fullveldi fyrr en komið hefði verið á meirihluta stjórn í landinu, en á hinn bóg- inn eru tillögur hans sagðar miðá mjög í samkomulagsátt og að því að tryggja áframhaldandi viðræður Breta og Ródesíustjórn ar um málið. Utanríkisráðherra Zambíu, Simon Kapwepwe, hélt flugleið- is heim til Lusaka í dag að ræða við Kenneth Kaunda, forsætis- ráðherra um Ródesíumálið en skildi eftir aðra ráðherra úr sendinefndinni sem sitja munu ráðstefnuna áfram allt til loka hennar. Viðskiptnsamnmgur við Tékkóslóvokíu — i frjálsum gjaldmidli i fyrsfa sinn (Frá utanríkisrá'ðuneyt- HINN 12. september 1966 var undirritaður í Brno nýr við- skiptasamningur milli íslands og Tékkóslóvakíu. Samningurinn gildir frá 1. október nk. til 30. september 1970. Frá stríðslokum hafa við- skiptin milli landanna byggzt á jafnkeypisgrundvelli, en sam- kvæmt hinum nýja samningi verða viðskiptin framvegis í frjálsum gjaldmiðli. í samningn- um eru þó ákveðnir kvótar fyrir íslenzkar vörur og eru þeir svip- aðir og kvótar þeir, sem gilt hafa undanfarin ár. Endurskoða- má þessa kvóta árlega. Samninginn undirritaði dr. Oddur Guðjónsson, viðskipta ráðunautur og Frantizek Ham ouz, ráðherra utanríkisvið- — KúlnagÖt Framh. af bls. 1 að brjótast gegnum 2,5 m. hátt gaddavírsnet á mörkun- um sjálfum. Við það gróf farar tækið sig niður hátt á annan metra, áður en loks tókst að rjúfa netið. Meðan á þessu stóð dundi yfir kúlnahríðin. — Við stýrið sat annar karlmannanna, en hinir hnipruðu sig saman við fætur hans til þess að forðast kúlurnar, sem sumar hverjar gengu gegnum fyrirtækið. Þeg ar þau voru komin gegnum gaddavírinn, námu þau staðar við trérunna og leituðu þar skjóls. Hér var, sem fyrr segir, um að ræða tvenn hjón, — önnur þeirra 25 og 27 ára að aldri höfðu með sér þriggja ára son sinn — hin 18 og 27 ára, barn laus — en konan barnshaf- andi. öll voru flutt í sjúkra- hús og þegar gert hafði verið að sárum þeirra, er rúeiddust, ræddu þau stundarkorn við blaðamenn, skýrðu frá flóttan um og sögðust m.a. hafa hellt í sig brennivíni til þess að hleypa í sig kjarki. skipta. inu). — Gólfteppi Framhald af bls. 2. íslenzka ullin hentaði betur til gerðar áklæða og gluggatjalda en hliðstæð ull erlend, þar sem hún væri annars eðlis og fjað- urmagnaðri. Þessu næst ræddu þeir nokk- uð um erfiðleikana í sambandi við þennan iðnað. Ásbjörn Sig- urjónsson, forstjóri Álafoss hf. gat þess t.d. að nýja spunaverk- smiðjan á Álafossi væri nú ekki nema í hálfum gangi, en hún hefði verið byggð með það fyr- ir augum að flytja a.m.k. helm- ing framleiðslunnar út. Hann hefði á síðustu 1 mánuðum flutt út 150 tonn af bandi til Dan- merkur, en vegna síhækkanöi tilkostnaðar hefði orðið að hætta því. Ásbjörn kvaðst enn- fremur vera nýkominn frá Dan- mörku með þær upplýsingar að bandið væri að lækka á heims- markaðnum, meðan launin hefðu hækkað hérlendis og all- ur tilkostnaður við framleiðsl- una, þannig að um samkeppni vaari vart að ræða. Ásbjörrt sagði að endingu, að möguleikar væru á því að nýta verksmiðj- una meira í framleiðslu á gólf- teppum, þar sem þar hefði kom- ið í Ijós að íslenzku teppin væru hin beztu, þegar klætt væri horn í horn á gólfin. Forráðamenn þessara fyrir- tækja sögðu að lokum, að allir væru sammála um það að það hlyti að vera góð forsenda fyrir því að ullariðnaður yrði áfram í landinu, þar sem hér væri fyr- ir svo gott hráefni. Vientiane, Laos, 12. sept. NTB—AP. • Stjórn Laos hefur tilkynnt, að fundizt hafi 34 lík manna, er farizt hafa í flóðum síðustu tvær vikurnar. Garðahreppur Börn óskast til að bera út Morgunblaðið í Garðahreppi. Upplýsingar í síma 51247.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.