Morgunblaðið - 13.09.1966, Síða 32

Morgunblaðið - 13.09.1966, Síða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins Eltingarleikur end- aði með veltu Lögreglan í Reykjavík og á Selfossi í eltingarleik við ölvaðan ökumann 1 FYRRAKVÖLD bað lögreglan á Selfossi Reykjavíkurlögregluna im að koma til móts við sig og bíl, sem hún var að elta, þar eð grunur lék á að ökumaður og farþegar væru ölvaðir. Selfosslögreglan hafði fengið fréttir af því að gömlum herbíl úr Reykjavík af gerðinni Dodge- Weapon væri ekið um í Ölfusi og væri hjólbarði sprunginn á bif- reiðinni. Háttarlag bifreiðarinn- ar þótti heldur grunsamlegt og var henni veitt eftirför og jafn- framt beðið um aðstoð lögregl- unnar í Reykjavík. Er lögreglan í Reykjavík var komin upp í Svínahraun rétt fyrir vestan nýja Þrengslaveg- inn, mætti hún hinum eftirlýsta bíl. Voru þá öll hjól heil undir bílnum, en mennirnir, sem voru þrír og allir við skál, veittu mót- þróa. Urðu lögreglumennirnir að handjárna farþegana, en ökumað urinn slapp út í myrkrið og fannst ekki þrátt fyrir leit. Voru sökudólgarnir tveir því settir inn í lögreglubílinn, en lögreglúþjónn tók að sér að aka farartæki þeirra til Reykjavíkur. Segir síðan ekki af ferðum bifreiðanna fyrr en komið er nið ur að Lækjarbotnum. Þá vill það óhapp til að lögregluþjónninn, sem ók bifreið piltanna missir vald á henni og valt hún út af veginum ofan af háu barði og skemmdist yfirbygging hennar töluvert. Bifreiðin var ekki alls kostar í ökufæru ásigkomulagi, hemlar í ólagi o.s.frv. Slapp lög- regluþjónninn með smáskrámur. Ökumaðurinn er hvarf í myrkrið gaf sig fram við lögregluna í gær. Málið er í rannsókn. // Per Borten: Landið og fólkið hafa brosað við okkur44 Bjarni Benediktsson: „Eilíf vinátta milli norsku og íslenzku þjóðarinnar 66 FORSÆXISRÁÐHERRA Norð- manna, Per Borten, og frú hans 29 hjólbarðar á 11 bílum eyðilagðir og hleypt lofti úr dekkjum á tugum bifreiða AÐFARANÓTT sunnudagsins voru unnin geysileg skemmdar- verk á bifreiðum hér í Reykja- vík. Voru þá skornir sundur hvorki meira né minna en 29 hjólbarðar á 11 bifreiðum, auk þess sem hleypt var lofti úr tug- um hjólbarða. Rannsóknarlög- reglan telur að hér hafi verið sami aðili (eða aðilar) að verKÍ í öll skiptin. sem hleypt var úr dekkjum 15 bifreiða. Hjólbarðar voru eyði- lagðir á fleiri götum í Austur- bænum, og einnig hleypt úr dekkjum á fjölmörgum bífreið- um. Eins og nærri má geta hafa því þessa einu nótt veri'ð unnin spjöll á bifreiðum fyrir tugþús- undir króna. héldu í gær kveðjuveizlu að Hótel Sögu. í ræðu, sem Per Bort en flutti þá komst hann m.a. að orði á þessa leið: — Við höfum lært mikið af ferðinni hingað. Við höfum ferð- azt um Island og séð hvermg fólkið lifir hér. Landið og fólkið hefur brosað við okkur. Eg hefði viljað geta hitt hér í kvöld allt það fólk, sem hefur sýnt okkur gestrisni. En þess hefur ekki ver- ið kostur. — Þróunin hefur verið hröð á íslandi. Við tökum með okkur það sem við höfum heyrt og séð. Það er einlæg ósk okkar að ís- lenzka þjóðin megi halda áfram að bæta hag sinn og vaxa að manndómi og þróska. Per Borten þakkaði Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra, ríkisstjórninni og þjóðinni allri fyrir frábærar móttökur. Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra, þakkaði Per Borten, konu hans og fylgdarliði fyrir komuna til íslands. Hann kvað íslenzku þjóðinni verða þessi heimsókn minnisstæð. Okkur Is- lendingum væri sómi að því að Þessi fallega mynd er tekin í góða veðrinu í gær ofan úr kolakrananum við Reykja- víkurhöfn. 1 höfninni var í gær mikill fjöldi skipa m.a, „Kronprins 01af“ og sést hann til vinstri á myndinni. þetta væri fyrsta opinbera heim- sókn Bortens til annars lands eft- ir að hann tók við stjórnartaum- um í Noregi. — Það er einlæg von okkar, sagði Bjarni Benediktsson *ff tengslin milli Noregs og íslands vari aff eilífu og að eilíf vinátta megi ríkja milli norsku og is- lenzku þjóðarinnar. Reykjanesbraut malbikuð Slökkviliðid flyzt vegna malbikunar- innar niður að Tjörn SLÓKKVILIÐ Reykjavíkurborg- ar var í gær í tæplega tvær klukkustundir í hinum gömlu húsakynnum sínum við Tjörn- ina. Ástæðan var sú að ætlun- in var að malbika Reykjanes- braut frá gatnamótum Litluhlíð ar og Reykjanesbrautar að Miklatorgi. Horfið var þó frá þessum mal bikunarfrámkvæmdum, af tækni legum ástæðum og var þeim frestað til dagsins í dag. Verður slökkviliðið því aftur á hrakhól um í dag. Þó bjóst lögreglan ekki við því, að unnt yrði að hefja framkvæmdir við malbik- unina í dag, en skortur var á nægilega mörgum skiltum til leiðbeiningar umferðinni, sem er gífurleg um þessa aðalæð til Kópavogs og Hafnarfjarðar. Mestu spjöllin voru unnin fyr- ir framan heildverzlunina Heklu á Laugarvegi, en þar voru skorin í sundur sjö dekk undir þremur Volkswagenbifreiðum, auk þess Fundur um sjonvarpsmúlið MBL. HEFUR fregnað að Fé- lag sjónvarpsáhugamanna hafi boðað til fundar n.k. miðviku- dagskvöld kl. 20.30 í Sigtúni. Mun ástæða fundarboðsins vera ákvörðun yfirvaldanna um að láta takmarka útsendingu banda ríska sjónvarpsins. Innbrot BROTIZT var inn í kaffi- brennslu Johnson og Kaaber um helgina. Fór þjófurinn inn i geymslu, sem húsvörður hefur i kjallara hússins. Þar fór hann . ískistu og stal nokkru magni af matvælum. Býst við reytingi áfram, en auk- inni síldveiði, seinna í mánuðinum - segir Jakob Jakobsson í viðtali við Mbl. í VIÐTALI, er Mbl. átti viff Jakob Jakobsson, fiskifræðing á Ægi, þar sem hann var staddur út af Austf jörðum um miðjan dag í gær, sagffi Jakob: — Síldveiðin hefur gengið heldur vel síðustu daga. Síldin er í millibilsástandi. Hún er hætt að vera í svokölluðúm sumartorfum og hefur enn ekki safnazt í vetrartorfur. Talsverð síld er um 50 mílur út af Austfjörðum, en köst bátanna hafa verið heldur smá og heldur síldin sig við botn á daginn. Hér út af Austfjörð- um eru norsk og færeysk rek- netaskip og hafa þau fengið sæmilega veiði, og virðist þar töluvert magn af síld, en það er eins með hana, hún á eftir að safnast saman. Mun síldin safnast saman seint í septem- ber ef að líkum lætur. Milli Jan Mayen og íslands hefur orðið vart við dálítið magn síldar, sem verið hefur mjög dreifð. Er hún á suður- leið. Skipin hafa þurft að kasta mjög oft vegna þess, hve síldin er dreifð og ekki komin í vetrarástand. Síldar- magnið á eftir að aukast, þegar hún safnast saman. Milli Bjarnareyja og Norð- ur-Noregs er rússneski flotinn nú að reknetaveiðum. Síldin þar er að stofni til hin sama og hér út af Áustfjörðum. Vanalegt er< að rússneski flot- inn sé kominn hingað til lands á þessum tíma, en hann er enn á miðunum við Norður- Noreg. Á meðan svo er, er miklu betri aðstaða fyrir okk- ur hér, því að flotinn er stór. Við erum blessunarlega lausir við hann enn sem komið er. Síldin hér er aðallega af 7 ára stofni, en innan um er þó síld allt upp í 16 ára gömul. Við áttum von á 6 ára síld, en hún hefur ekki gengið neitt að ráði enn, en það má búast við henni þegar lengra líður á haustið. Ég býst við áframhald andi reytingi nú um hríð, en hef trú á að horfur batni þegar líður á mánuðinn, sagði Jakob að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.