Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 3
■Pnojuaagiu iö okc. iooo
tifi w u U ^ U k xnw ■ »
Dr. Árni Friðriksson.
Vaka hlaut 49T® atkvæða
SL. IjAUGARDAG fóru
fram kosningar til Stúdenta-
félags Háskóla íslands. Xveir
listar voru í kjöri, annar
þeirra var borinn fram af
Vöku, félagi lýðræðissinnaðra
stúdenta. Að hinum listanum
stóðu samkv. frétt Þjóðviljans
á laugardaginn „. . . öll vinstri
félögin innan HÍ þ.e. Félag
róttækra stúdenta, Félag
frjálslyndra stúdenta og
Stúdentafélag jafnaðarmanna
og auk þess nokkur hluti
Vöku.“
Kosningarnar fóru þannig,
að A-listi Vöku hlaut 345 at-
kvæði og þrjá menn kjörna
þ.e. 48,7% gildra atkvæða.
B-listi vinstri manna o.fl.
hlaut 364 atkv. og 4 menn.
Mikið var um að vera í
herbúðum vinstri aflanna í
Háskólanum fyrir þessar kosn
ingar, sem voru fyrstu lista-
kosningar í Háskólanum síð-
an 1959. Vinstri mönnum tókst
að bræða saman lista á grund
velli þeim, sem Þjóðviljinn
lýsti svo sl. laugardag: „Segja
má, að þessi samtök allra
vinstri sinnaðra afla innan HÍ
hafi myndazt upp úr samstöðu
þeirri er skapaðist meðal
stúdenta í fyrravetur um sjón
varpsmálið en eins og kunn-
ugt er varð hin skelegga ræða
Sigurðar Líndal hæstaréttar-
ritara 1. desember í fyrra til
þess að allmargir stúdentar
tóku sig saman og söfnuðu
undirskriftum 600 stúdenta
við HÍ undir mótmæli gegn
hermannasjónvarpinu.
Á grundvelli þessarar sam-
stöðu í sjónvarpsmálinu hafa
sömu aðilar nú sameinast um
framboð í Stúdentatélag-
inu . . .“
Vinstri menn gerðu sér
miklar vonir um stórsigur í
þessum fyrstu listakosningum
á meðal stúdenta síðan 1959.
Þær vonir urðu hins vegar
að engu er aðeins' 19 atkvæði
skildu á milli listanna, og
sannar það hversu traust og
mikið fylgi Vöku er, þegar
hún á í höggi við alla and-
stæðinga sína sameinaða.
Síðan 1935, er Vaka var
stofnuð hefur hún ávallt bor-
ið fram sinn lista sér við lista
kosningar innan Háskólans
gegn listum andstæðinganna,
sem ýmist hafa borið tram
lista sameiginlega eða sund-
raðir. Aðeins einu sinni áður
hefur Vaka náð betri árangri
í listakosningu innan Háskól-
ans, en það var árið 1956, er
félagið sigraði sameiginlegan
lista vinstri manna og hlaut
53,8% atk.
Nánar er skýrt frá kosniug-
unum í leiðara blaðsins í dag.
1
Dregið 8. nóv.
— gerið skil
NÚ styttist óðum tíminn þar til
dregið verður í hinu glæsilega
Landshappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins. Þann 8. nóvember n.k.
verður dregið um þrjár banda-
rískar fólksbifreiðar, allar af
árgerð 1967. Samanlagt verð-
mæti bifreiðanna er liðlega ein
milljón króna.
Miðar hafa verið sendir til
stuðningsmanna og velunnara
Sjálfstæðisflokksins um land
allt. Auk þess eru miðar
seldir úr vinningsbílunum í
Miðbænum í Reykjavík, svo og
í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í Sjálfstæðishúsinu við Austur-
völl, sími 1 71 00.
Miðar í þessu viðámesta bíla-
happdrætti ársins kosta hins-
vegar aðeins hundrað krónur,
þannig að óhætt er að segja að
möguleikar gefist á miklu fyrir
lítið.
Þar sem óðum tekur nú að líða
að því, að dregið verði í happ-
drættinu, er þeim vinsamlegu
tilmælum beint til fólks, að gera
skil hið allra fyrsta.
Vinningsbifreiðir happdrættis-
ins eru af gerðunum Dodge Dart,
Plymouth Valiant og Rambler
American. Myndin hér að ofan
sýnir Plymouth Valiant ’67.
Göngin um Breiðadalsheiði
verða allt ai 600 m. löng
UNNIÐ er nú að undirbúningi
byggingar nýrra jarðganga í
vegakerfi landsins, en það er á
Breiðadalsheiði, milli Skutuls-
fjarðar (ísafjarðarkaupstaðar)
og Önundarfjarðar.
í fyrrasumar, og -nú í sumar,
hefir farið fram endurbygging á
veginum sunnan heiðarinnar
þ.e. upp frá vegamótunum í
Önundarfirði og upp Breiðadal-
inn. Er vegargerðinnd lokið upp
að væntanlegu opi jarðganganna,
en þau eiga að vera í gegnum
efsta hrygg Breiðadalsskarðs.
Er gert ráð fyrir að þau verði
allt, að 600 m. löng. Með göng-
um þessum á að sleppa við snjó-
þyngsta kafla heiðarinnar, en
þarhefir vegurinn gjarna teppzt
sumar eftir sumar í ágústmán-
uði.
í sumar hefir verið unnið að
því að ýta frá væntanlegum
munnum á jarðgöngunum og
kanna jarðlög þar og hafa jarð-
fræðingar stjórnað þeirri könn-
un. Borun hefir einnig farið fram
á heiðinni til að kanna jarðlögin
og stendur það verk enn yfir.
Hefir verið borað allt niður í 90
m. dýpi, en fjallvegurinn lækkar
um 90 m. er göngin hafa verið
gerð. Skutulsfjarðarmegin við
heiðina hefir verið .mælt fyrir
nýjum vegi, en framkvæmdir við
hann eru ekki enn hafnar.
Með hinum nýja vegi í Breiða-
dal eru vegfarendur nú lausir við
hinar illræmdu Skógarbrekkur.
Jón Viðis verkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins hefir annazt
skipulagningu þessa verks og
fékk blaðið fyrrgreindar upplýs-
ingar hjá honum.
Dr. Árni Friðriks-
son lcátinn
Síðastliðinn sunnudag andaðist
í Kaupmannahöfn dr. Árni Frið-
riksson fiskifræðingur, sem
undanfarin ár hefur verið for-
stjóri Alþjóða hafrannsóknarráðs
ins, en aðalstöðvar þess eru í
Danmörku.
Árni Guðmundur Friðriksson
var fæddur 22. desember 1898
að Króki í Ketildalahreppi í
Vestur - Bárðarstrandarsýslu.
Foreldrar hans voru Friðrik
Sveinsson bóndi þar og kona
hans Sigríður María Árnadóttir.
Árni varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1923 og
mag.scient. (dýrafr.) frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1929. Að
loknu prófi erlendis stundaði'
hann störf þar í eitt ár en réðst
síðan til Fiskifélags íslands og
var ráðunautur þess til 1937.
Hann stjórnaði Fiskideild At-
vinnudeildar Háskóla fslands frá
1937 til 1953, en framkvæmdar-
stjóri Alþjóða hafrannsóknarráðs
ins var hann frá 1. jan. 1954.
Dr. Árni Friðriksson var for-
maður og stjórnarnefndarmaður
í fjölda félaga bæði á sviði vís-
inda og almennra félagsmála og
hann átti sæti í mörgum ráðum
og nefndum er fjölluðu mn vís-
indaleg efni á sviði náttúrufræði
og þá einkum er varðaði sjávar
rannsóknir.
Þá var dr. Árni mikilsvirt.ur
rithöfundur um náttúrufræðileg
efni. Hlaut hann margvislegan
heiður og var sæmdur heiðurs-
merkjum bæði hér og erlendis.
Dr. Árni var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Ebba Kristiane
Bagge, er hann kvæntist 1929
Hann kvæntist öðru sinni 1958
Helene Rose Nathalia Jóhanris-
dóttur Jónssonar skipherra.
Róm - NTB
Adam Malik, utanríkisráðherra
Indónesíu, hélt á mánudag frá
Róm áleiðis til Moskvu, en þar
mun hann dvelja í viku. Búizt
er við, að Malik muni fara þess
á leit að Sovétríkin auki aðstoð
sína við Indónesíu, og semja um
greiðslur á lánum. Malik mun
síðar heimsækja Pólland og
Tékkóslóvakíu.
Berlín - NTB
Ludwig Erhard, kanzlari V-
Þýzkalands, kom í opinbera
heimsókn til V-Berlínar á mánu-
dag. Erhard verður í Berlín í
tvo daga, og mun m. a. eiga við-
ræður við Willy Brandt, borgar-
stjórn um samtal hins síðar-
nefnda við sendiherra Sovét-
ríkjanna i A-Berlín, Pjotr Abras-
imov.
Rjúpnaskytta villist
inn á Sléttuheiði
í FYRRADAG fór rjúpna-
skytta vill vegar skammt frá
Kópaskeri. Var það 17 ára pilt-
ur frá Húsavík, Valgeir Guð-
mundsson að nafni.
Hann mun hafa tapað áttum
síðari hluta dags á sunnudag.
Þegar á sunnudagskvöld var haf
in leit frá Kópaskeri og var leit-
að alla nóttina og jafnframt
fengnar flugvélar bæði frá
Tryggva Helgasyni á Akureyri
og frá Reykjavík, en síðari flug-
vélin var ekki komin norður
fyrr en í þann mun er maðurinn
var fundinn.
Samkvæmt frétt frá fréttarit-
ara blaðsins á Kópaskeri fannst
maðurinn á Blikalónsdal síðdeg-
is í gær og hafði hann tekið öf-
uga stefnu við þá er leiða hefði
átt hann til byggða. Hélt hann
í A-NA í stað S-SV, -sem var
leiðin niður í sveit.
Valgeir hafði farið mjög langa
leið er hann fannst. Hafði hann
þó sezt að í fyrrinótt, rekist á
hellisskúta og lagst þar fyrir um
stund.
Veður var slæmt á meðan
Valgeir var á ferðinni, gekk á
með krapahryðjum. Slóðir hans
voru raktar í snjóföli og leiddi
það til þess að hann fannst. Sást
að Valgeir hafði leitað norður
yfir varnargirðingu, sem er vest
an Sléttuheiðar, en talið ólík-
legt að hann hefði farið yfir, þar
sem hanu hefði átt að átta sig
á því að þá var hann á rangri
leið. Er séð var, að hann hefði
farið norður fyrir girðinguna var
sýnilegt að leita þyrfti alla
Sléttuheiði.
Er Valgeir fannst í gær var
hann við góða heilsu og hress í
bragði, en lítið mun hann hafa
fengið af rjúpu.
IVEikil síld slæm
veðurspá
Síldveiðiskipin fengu enga síld
um lielgina þar sem bræla var á
miðunum. Ægir fann hinsvegar
mikið sildarmagn 150—200 mílur
NA af Langanesi og er sú síld
á hraðri ferð suður á bóginn.
Þar var þá NA-átt og 6 vind-
stig og mikill sjór.
Veðuspá var slæm í gær.
snunim
„Sjálfstæð stefna á
alþ j óðavettvangi"
Einkennileg er sú afstaða Austr*
að íslendingar geti ekki á annan
/eg markað „sjálfstæða stefnu a
alþjóðavettvangi“ en þann að
fylgja í blindni breytilegri stefnu
hinna Norðurlandanna eða sjónar
miðum „frjálslyndra borgara“
hér og þar. 1 þessu kemur fram
hin gamalgróna vantrú Islend-
stætt mat á heimsviðburði og
markað afstöðu sína í samræmi
við það. íslendingar og íslenzkir
j ráðamenn hafa fyllilega jafn
góða afstöðu til þess að mynda
sér skoðun um atburðina í Víet
nam og t.a.m. forustumenn hinna
Norðurlandaþjóðanna. Sé mat
i Islendinga annað en frændþjóða
! okkar á Norðurlöndunum hljót-
um við að standa við þá afstöðu
í og hvorki Austri né aðrir eru
þess umkomnir að halda því
fram að stefna hinna Norðurlþ.
anna sé endilega hin eina rétta.
Sú skoðun, að okkur beri að
fylgja andlegri leiðsögn hinna
Norðurlandaþjóðanna í þessum
efnum er miklu fremur í ætt
við þá „hundstryggð“ og auð-
mjúku undirgefni, sem lýsti sér
í því fyrr á öldum að taka sem
hinn eina sannleik það sem frá
kóngsins Kaupinhafn kom.
>
„Sjónarmið hinna
frjálslyndu borgara"
Hugmyndir Austra um „sjálf-
stæða stefnu íslands á alþjóða-
vettvangi" eru sumsé þær, að
i taka hrátt og ómelt það sem frá
' Osló, Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn og Helsinki kemur og kalla
það íslenzka utanríkispólitík.
Verður fróðlegt að sjá, hvort ■
hann er reiðubúinn til þess að
fylgja þeirri afstöðu út í æsar
En ógeðfelldari er þó sú væmni,
sem fram kemur í skrifum hans
um hina „frjálslyndu borgara og
þau borgarblöð, sem mest eru
metin“ í Evrópu, og væri fróð-
Iegt að vita við.hvaða „borgara-
blöð“ Austri á. En hér gildir
raunar sama máli og áður, að
íslendingar hljóta að marka
eigin afstöðu til heimsmála,
hvort sem hún er í samræmi
við skoðanir manna út í heimi
eða ekki. Austri telur, að utan-
ríkisráðherra fslands hefði getað
* tyrkt stöðu bandarískra stjórn
málamanna eins og J. W. Full-
brights, Roberts Kennedys,
Arthurs Schlesingers, Georg
Kennans og fleiri“, ef hann *
liefði markað aðra afstöðu i
ræðu sinni á Allsherjarþingi
SÞ til Víetnam en þá að það
væri almenn ósk, að stríðinu í
Víetnam linnti. Hafi Austri slíka
tröllatrú á stefnu þessara */l-
nefndu bandarísku stjórnmála-
manna er það væntanlega einnig
hans skoðun að við eigum að
fylffja stefnu Fullbrights I kyn-
þáttamálum en eins og kunnugt
er, fylgir hann afturhaldsstefnu
í kynþáttamálum. Þá hlýtur
Austri einnig með þessum orð
um að leggja blessun sína yfir
afstöðu Reberts Kennedys tU
Kúbudeilnanna tveggja, Berlínar
múrsins og raunar einnig þá
skoðun hans, að Bandaríkin eigiT
að aðstoða Suður-Víetnam eins
og hann hefur marglýst yfir í
orði og verki, sem einn helzti
valdamaður í Bandaríkjunum,
þegar aðstoð þeirra við Suður-
I Vietnam var aukin að marki.
| Eða hvað? Ber okkur ekki að
fylgja hinum „frjálslyndu borg-
urum“ í einu og öllu eða e.t.v,
aðeins, þegar það hentar komm
únistum?