Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 1
32 síður 53. árgangur 238. tbl. — Þriðjudagur 18. október 1966 Prentsmiðja Morgunblaðslm Deilur innan Saigonstjdrnar Tveir ráðherrar óska að segja af sér, fleiri bjóðast til þess Leonid Brezhnev, ritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, sézt hér í ræðustól á „pólsk-sovézk nm vináttufundi" í Kreml á laugardaginn, en þar réðist hann harkarlegar að Kínverjum en dæmi eru til um áður. Brezhnev ræðst harð- lega að Kínverjum Kommúnistaleiðtogar viða að samankomnir i Moskvu til að þinga um sambúðina við Kina Moskva 17. okt. NTB AP LEONID Brezhnev, aðalrit- ari Kommúnistaflokks Sovét ríkjanna, flutti sl. laugardag ræðu á pólsk-sovézkum „vin áttufundi“ í Kreml og réðist þar harðar að leiðtogum kín- verskra kommúnista en nokk ur dæmi eru til áður. Gerðizt þetta nær samtímis því, að kommúnistaleiðtogar A- Evrópulandanna tóku að tín ast til Moskvu, en þar er mik il ráðstefna fyrir dyrum næstu daga þar sem fjallað verður um samkomulagið við Kína og ástandið í Vietnam. Á fyrrgreindum „vináttufundi“ í Moskvu á laugardag sakaði Lenoid Brezhnev leiðtoga Kín- verja um að hjálpa hinum banda rísku árásaraðilum í reynd í Vietnam, eins og hann or'ðaði það. Kvað Brezhnev Kinverja gera þetta með því að neita öllu samstarfi við sósíalísku löndin. Ennfremur sagði Brezhnev að Kínverjar ógnuðu kommúnism- anum öllum með hinni svonefndu Von d öðru bnrni Aþenu. 17. október — AP: KONST VNTÍN Grikk jakon- ^ ungur tilkynnti á laugardag r að Anna Maria drottning, ætti I von á öðru barni þeira hjóna. | „Mér er ánægja að því að gera kunnugt, að drottningin og ég 1 eigum von á öðru barni okkar l í byrjun næsta sumars, eða mailok“, sagði konungur við, i fréttamenn í höll sinni. As’uför Bandaríkja- forseta er hafin Washington og Honolulu, 17. okt. — NTB — AP. KL. 13.26 að ísl. tíma lagði John- son Bandaríkjaforseti upp i Asíu för sína, þeirra erinda að sitja ráðstefnu um Vietnam i Manila á Filippseyjum og heimsækja sex lönd. Áður en forsetinn hélt frá Washington í dag flutti hann stutt ávarp og hét því að gera nýjar tilraunir í þá átt að finna friðsamlega lausn á Vietnam- málinu. Jafnframt þakkaði for- setinn bandarisku þjóðinni sam- heldni hennar á erfiðum tímum. Forsetinn kemur aftur til Was hington 2. nóvember n.k. Ekki er vitað hvort forsetinn mun hafa viðkomu í S-Vietnam á ferð sinni, en þjóðhöfðingi S-Viet- nam, Nguyen Van Thieu, hers- höfðingi, sagði í dag, að forset- anum yrði boðið að heimsækja S-Vietnam. Fari Johnson þangað, er við því búizt að ekki verði til- kynnt um það fyrr en á síðustu stundu. Framhald á bls. 31 menningarbyltingu sinni. Viadislav Gomulka, leiðtogi pólskra kommúnista, tók í sama streng og Brezhnev á fundi þess um, en réðst að auki að V-Þýzka landi. Á fundinum sagði Brezhnev einnig, að harma bæri að leið- togar Kínverja hefðu tekið af- Framhald á bls. 31 Saigon 17. okt. — NTB. Ljóst varð í dag að verulegur ágreiningur er innin stjórnar S- Vietnam er fjármála- og efna- hagsmálaráðherra landsins, Au Truong Thanh, óskaði eftir að sér yrði veitt lausn frá embætti ef ákveðin ágreiningsmál yrðu ekki til lykta leidd áður en til Manila-ráðstefnunnar kemur síð ar í þessum mánuði. Thanh er meðlimur sendinefnd ar þeirrar, sem Saigons-stjórnin sendir til þess að taka þátt í viðræðum í Manilla. Þá er hermt að annar ráð- herra hafi þegar sagt af sér og sex aðrir séu reiðubúnir að gera slíkt hið sama. í bréfi, sem Thanh skrifaði Ky forsætisráðherra, .‘iagði hann að deilurnar yrði að leysa þannig að sendinefndin gæti komið fram fyrir hönd samhentar ríkisstjórn ar í viðurvist annarra þjóða, sem þátt tækju í ráðstefnunni, og raunar fyrir augum heimsins alis. Kreppan í stjórninni í Saigon hófst er Nguyen Ba Kha, félags- málaráðherra, sagði af sér í mót mælaskyni við að helzti aðstoð- armaður hans var handtekinn. Fyrir fimm dögum buðust fimm aðrir ráðherrar til þess að láta af störfum til stuðnings við Kha. Ky, forsætisráðherra, hefur neitað að fr/last á nokkra af þess um lausnarbeiðnum fyrir Manila ráðstefnuna. Wieland Wagner látinn Munchen, 17. okt. — NTB: WIELAND Wagner, sonarsonur tónskáldsins Richard Wagners, lézt í nótt í sjúkrahúsi í Munch- en. Hann var 49 ára gamall. — Wieland Wagner var ásamt bróð- ur sínum Wolfgang forstjóri Bayreuther leikhússins, en óper ur Wagners voru settar þar á svið. Addis Abeba - NTB A n t o m i n Novotny, forseti Tékkóslóvakíu, mun fara í fjög- urra daga opinbera heimsókn til Etíópíu í nóvember. ■ Kennedy j aftur til S-Afríku j Washington, 17. okt. AP: ■ ROBERT F. Kennedy, öldunga • deildarþingmaður, sagði í dag ■ að hann ráðgerði að fara aft I ur í heimsókn til S-Afríku á ■ sumri komanda. Sagði Kenne \ dy við fréttamenn, að hann j hefði í hyggju að heimsækja ■ háskóla og ræða við stúdenta, ; líkt og hann gerði nú í sum- \ ar. Sú heitnsókn hans var ■ harðlega gagnrýnd af yfirvöld ■ um í S-Afríku. ■ FLOKKSRAD SJÁIFSTÆDIS- ROKKSINS ÁLYKTAR: Fylgjum slefnu frjólsræðis og aukningar hngsældnr - gegn þeirri leið, sem liggur lil huftu og kyrrstöðu Á lokafundi flokksráðs Sjálf stæðisflokksins síðastliðinn laugardag var einróma sam- þykkt ályktun þar sem fagn- að var árangri þeim, sem náðst hefur á síðustu tveim kjörtímabilum og áherzla lögð á áframhald þeirrar stefnu frjálsræðis, sem fylgt hefur verið, gegn þeirri leið, sem liggur á ný til haftakerf- is og kyrrstöðu. Þá er lögð áherzla á nauðsyn þess að stöðva hverskonar verðhækk anir. Á fundi flokksráðsins voru mættir fulltrúar víðsvegar aí landinu, og tóku margir til máls. Mikill einhugur ríkti á fund- um flokksráðsins og í fundarlok var eftirfarandi tillaga, sem Geir Hallgrímsson, borgarstjóri flutti, samþykkt einróma: „Á síðustu tveim kjörtímabil- um hefur raunveruleg verð- mætaaukning þjóðarinnar orðið meiri en nokkru sinni fyrr í fram leiðslutækjum atvinnuvega og bættum hag almennings. Jafn- framt hefur tekizt að safna traustum gjaldeyrissjóðum og styrkja efnahagskerfi þjóðarinn ar, svo að fært reyndist að afla fjármagns, bæði innanlands og erlendis, til þess að tryggja nýja atvinnuþróun og hagnýta auðlind ir landsins. Af þessum ástæðum er þjóðin þess megnug að mæta erfiðleik- um, sem nú steðja að vegna verð falls útflutningsafurða. Forsenda þess að það takizt, er að víðtækt samstarf náizt með samtökum verkalýðs- og launþega almennt, atvinnurekenda og rikisstjórnar og Alþingis um að stöðva hvers- konar verðhækkanir og hindra þannig vöxt verðbólgunnar. Flokksráðið telur, að sú stefna frjálsræðis, sem fylgt hefur ver- ið, leiði til áframhaldandi fram- leiðsluaukningar, gjaldeyrisöfl- unar og meiri framleiðni og heit ir á landsmenn að fylkja sér um þá stefnu og gegn þeirri leið, sem liggur á ný til haftakerfis og kyrrstöðu".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.