Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 18. okt. 1988 MOHGU N BLAÐIÐ 23 — Öskar samstarfs Framh. af bls. 1 ömurleg saga kyrrstöðu, spora afturábaik og nokkurrar fram- BÓknar. Tímabil lífskjarabreytinga. OEn á síðustu 5 árum segja ör- Mggar skýrslur, að lífskjör ís- lendinga, þjóðarheildar og ein- staklinga, hafi batnað sem svar ar þriðjungi eða öllu heldur tveimur fimmtu, 33%—40%. IMenn gera sér oft ekki grein fyrir þessum miklu breytingum, öruggustu samfelldu lífskjara- breytingu, sem yfir íslenzku þjóð iina hefur gengið. En þessu taka menn ekki alltaf eftir, því að með bættum hag aukast kröf- llirnar. En lítum á okkar eigin um- hverfi. Við getum litið á vega- gerð, opinberar byggingar, bíla- annfíutning. Á síðustu árum hef- ur 10. hver fslendingur haft efni á því að 'fara til útlanda. Það eru aðeins örfáar þjóðir, sem hafa treyst sér til þess að veita sínu fólki meiri munað. Ég hafði líka gaman af því að hitta í sumar erlendan ferðalang, sem ihafði tekið eftir því í erlendum íhagskýrslum, að íslendingar sköruðu fram úr á ýmsum svið- um lífsins gæða. Þetta væri auð vita’ð til varnaðar, ef hægt væri að segja að við hefðum lifað um fram efni, en því fer fjarri. Lít- um til þess, þegar vinstri stjóm in gafst upp 1958. Frá þeim tíma Ihafa íslenzkir atvinnuvegir eign ast skuldlaust 50% meira af at- vinnutækjum en þeir áttu í upp ■hafi tímaibilsins. Og þetta er reiknað í raunhæfum verðmæt- um. Og það er líka athyglisvert, að þessi fjármunamyndun hefur orðið án þess, að skuldir við út- Sönd hafi aukizt svo teljandi sé, ef á móti er talið það handbært fé, sem er í erlendum verðmæt- um. Samfara stórkostlegri lífs- kjarabreytingu, einstæðri í okk- ar sögu, hefur orðfð ör uppbygg- ing atvinnuveganna, örari en mokkru sinni áður. Hún hefur orðið svo ör, að menm hafa ekki áttað sig á henni til hlýtar. Sá ótti, að þetta sé byggt á veikum grunni, væri réttmætur, ef vanrækt hefði verið að byggja upp atvinnuvegina á þessu tíma biii. En það hefur heppnast, hvort tveggja í senn að skapa etvinnuvegunum öruggan grund völl og láta almenning njóta hinmar naiklu tekjuaukningar þjóðfélagsins. Þetta hefur verið tímabil góðæris, aflaára og hag- Btæðrar verðlagsþróunar og þann &g hefur verið á málum haldfð, eð borgararnir hafa verið sjálf- ráðir um að afla sér þeirra gæða, eem náttúran hefur veitt þeim tækifæri til. Án frjálslegra stjórn erhátta hefði ekki tekizt eins vel og raun ber vitni um. En er þá éstæða til að óttast framtíðipa? M Vandamál togarana. Eins og ég sagði í upphafi Bkiptast ætíð á skin og skúrir. Þetta miikla ffam fara tímabil hef «r sínar skuggahliðar. Lang drýgst til tekjuaukningar hefur eíldveiðin verið. En þær veiðar hafa orðið svo miklar vegna Iþess, a'ð lagt hefur verið fram Btórfé til kaupa á skipum og tækjum og til uppbyggingar mýrra verksmiðja. En einmitt velgengni þessa atvinnuvegar hefur skapað öðrum atvinnu- Igreinum örðugleika. Hún hefur t. d. bakað togurunum erfið- leika. Magnað erfiðleika þeirra, með því að gera þeim enn erfið era að ná í duglega veiðimenn En erfiðleikar togaranna voru að ððru leyti á'ður fyrir hendi. Þeg »r landhelgin var færð út 1958 hélt ég ræðu vestur á fjörðum og sag'ði þá, að ég teldi að þær íeglur, sem settar höfðu verið um dtilokun togaranna frá þeim mið wm, mundu ekki standast til lengdar. Með aukinni útfærslu 11981 vom togararnir enn svipt- h- veiðisvæðum. Togaraútgerðin á nú við það að etja, að hún má •kki veiða, þar sem fengsælast var á'ður. Þrátt fyrir minni afla •g minna erfiði verða togararnir •ð hafa fleiri menn um borð en •ambærileg skip hjá öðrum þjóð- um. Togararnir borga verðjofn- unargjald af olíu, sem m. a. kem ur til góða síldarverksmiðjunum á Austfjörðum. Einnig borga þeir 10% toll af fiski í erl. höfnum. Slík aðstaða hlýtur að skapa erfiðleika. Þeim mun meiri sem vonlaust er fyrir togarana að halda mönnum, nema þeir geti boðið sambærileg kjör við það, sem algengt er orðið á síldveiðunum. Þessar orsakir hafa leitt til þess, að togaraútgerðin er komin að þrotum. Sumir segja: Við get- um verið án togaraútgerðar. Eng- in framsýnn maður getur mælt því í gegn, að óhyggilegt er að láta togaraútgerðina leggjast í rúst. Það hefur heyrzt, áð vandi togaranna væri leystur, ef ráðið væri við verðbólguna. En þetta er miklu flóknara vandamál en svo og það þarf margar samfelld- ar aðgerðir til lausnar því. Ég tel óumflýjanlegt að veita togurun- um aukna veiðiheimild innan landhelgi eftir tillögum okkar vísindamanna, sem þegar hafa sýnt að þeir vita fullvel um hvað þeir tala. Vel má vera, að slíkar aðgerðir skapi okkur erfiðleika út á við. Og Tíminn er þegar farinn að smíða vopnin fyrir okkar and- stæðinga og segja, að við spillum fyrir frekari útfærslu. En hver getur tekið slíkt gilt í alvöru. Áður fiskuðu erlend skip svo hundruðum skiptir hér alveg upp í landsteinum, en nú er um það að ræða að veita 20—30 togurum heimild til veiða. Hverjum dettur í hug að veiði þeirra geti ráðið úrslitum um framtíð fiskstofn- anna? Fróðir menn segja, að þessi stóru net, sem veitt hefur verið ógrynni með á síðustu árin séu fiskstofninum hættulegri en botnvarpan og þar að auki sé fiskurinn úr þeim lélegri. En við verðum líka að ætlast til þess, í framhaldi af slíkum að- gerðum, að sjómennirnir okkar skilji nauðsyn á skjótum og rót- tækum aðgerðum og að þeir fall- ist á, að ekki þurfi fleiri menn að vera á íslenzku skipi en er- lendu. Þessar gömlu reglur eru einnig orðnar úreltar eins og sjá má af því, að þær gilda einungis um togara en ekki stóru síld- veiðiskipin, sem eru nærri því jafnstór og togararnir. Við verð- um að fylgjast með tímanum og láta ekki gamlar reglur verða okkur fjötur um fót. Minnl bátamir Að mörgu leyfi er hið sama að segja um minni bátana. Bát- um að 40 tn stærð vegnar vel en það eru bátar frá 40-120 tn., sem eiga í erfiðleikum. Fyrst og fremst vegna þess, að þeir standa sig ekki i samkeppninni við stóru síldarbátana. Það hefur verið viðurkennt i framkvæmd, að þessum bátum verður ekki bjargað, nema með auknum veiðiheimildum. Vestm.- eyingar hafa tekið lögin í sínar hendur í þessum efnum og það hefur verið horft í gegnum fing ur með það. Pað hefði skapað heilu byggðarlagi mikla erfið- leika, ef svo hefði ekki verið gert, en það tjáir ekki að gera það til lengdar. Togveiðarnar eru þessum flota lífsnauðsynlegar. En þessar ráðstafanír verður að gera í sam ráði við færustu visindamenn og á þann veg, að það verði fisk- stofninum ekki til tjóns. Frystihúsin. Fiskleysið á sinn þátt í erfið- leikum frystihúsanna. Skv, skýrslum, sem ég hef fengið í hendur fengu frystihúsin í Reykjavik fyrri hluta ársins fjórðung minni afla en á sama tíma næstu ár á undan. Og lík legt er, að útkoman sé enn lak ari yfir sumarmánuðin.a Slíkur efnivöruskortur hlýtur að tor velda mjög rekstur þessara húsa og þegar aðrir erfiðleikar bætast ofan á þetta er ekki óeðlilegt þótt menn dragi saman seglin. Þessi mál eru öll sanv tegnd og þau verður að leysa í sameiningu. Fleira þarf til að koma en það sem ég hef nefnt er forsenda þess, að við málin verði ráðið. Til viðbótar kemur svo verðfall á erlendum mörkuðum. Það bitnar mest á síldinni og hefði skapað alvar- leg vandræði, ef ekki hefði kom ið á móti mikill afli. Meiri vandi kemur upp, ef verðfallið hjá frystihúsunum verður varanlegt. Um það verður ekki sagt á þessu stigi. En greinilegt er, að minnk un efnivöru og lækkun verðlags hlýtur að skapa erfiðleika, ein- kanlega ef innlendur kostnaður vex til viðbótar. Um það verður ekki deilt að innl. kostnaður hef ur vaxið verulega frá áramótum. Og þá komum við að verðbólg- Verðbólgan Þær miklu tekjur, sem síld- veiðarnar hafa haft í för með sér, hafa leitt til þess, að aðrar stéttar krefjast ámóta tekjuaukn ingar sér til handar. Allir viður kenna, að síldarsjómennirnir eigi að hafa meira en aðrir vegna síns erfiðis, en aðrir stéttar ætl- ast til þess að verða ekki útund an til frambúðar. Allt þetta hef ur valdið því, að verðbólgan hef ur magnast meira en annars staðar. Andstæðingarnir segja, að or- sökin fyrir því, sé stórgróði verzlunarauðvaldsins. Þetta er hin gamla kenning Einars Ol- geirssonar, sem hann éndurnýj- aði á Albingi sl. fimmtudag og þetta er einnig kjarninn í boð- skap Tímans og Framsóknar- manna. Ég spurði Einar og Ey- stein um það í þinginu, ef það væri svo að verzlunarstéttin hefði hagnazt óhóflega, hvort KRON og SÍS het'ðu hagnazt svo stór- lega síðustu árin, en SÍS er stærsti innflytjandi landsins. Hvorugur fékkst til þess að svara þessu. Þeir vita báðir, að þessi fyrirtæki hafa ekki haft eins mikinn gróða og þau hefðu átt að haía, ef þeirra skýring á verð bólgunni væri rétt. Lærdórosn'kt er að athuga ítar lega rannsókn, sem gerð hefur verið á orsökum verðhækkana tímabilið 1. maí 1964 til 1. maí 1966. Sú rannsókn sýnir, að 44% hækkunarinnar á þessum tíma er vegna búvöruverðs, 12% vegna hækkunar > mis konar opin berrar þjónustu, 8% vegna hækk unar fiskverðs og 27% vegna ýmissar þjónustu. Hvernig sem þetta er skoðað eru það launin og jöfnun teknanna milli þjóðfé lagsþegnanna, sem veldur verð hækkunum. Með þessu er ég ekki að halla á íslenzkan landbúnað, en rek aðeins staðreyndir. Hin síc'BW' árin hefur tekizt að láta hina verst stæðu fá fyllilega sinn hlut og vaxandi hlut í vel megun þjóðarinnar. Á árunum 1960—1965 hafa þjóðartekjurnar vaxið um 32%. Þessar fjölmennu stéttir fengu á sama tíma í sinn hlut 33—44%. Þessar tölu sýna óumdeilanlega, að hinir verst stæðu hafa fengið betri hlut en áður eins og fram kemur af því, að kaupmáttur launa lægstlaun- uðu Dagsbrunarmanna hefur auk izt um 15- 20% á sl. tveimur árum. En af því að almenningur hef ur fyllilega fengið sinn hlut af stórauknum þjóðartekjum er ó- hjákvæmilegt, þegar á móti blæs, að almenningur verður að taka tillit til bess í sinni kröfugerð. Fróðir menn hafa sagt við mig að frystihúsin hafi staðið sig sæmilega að lokum vorvertíðar 1966. En með verðfalli og minnk andi efnivöru er þessi atvinnu- grein komin í erfiðleika og þá verðum við að bregðast við. Það fyrsta er að stöðva verðhækk- anir. Ríkisstjórnin er stundum ásökuð um, að hafa verið of undanlátssöm við verkalýðshreyf inguna. Sannleikurinn er auð- vitað sá að stjórnin ræður þeim málum ekki ein. Atvinnurekend- ur hafa samið af frjálsum vilja og bera ábyrgð á sínum ákvörð unum. En það er fásinna að vera að óþörfu í baráttu við verka- lýðinn. Vitanlega á ríkisstjórnin að beita sér fyrir því að al- menningur njóti gagns og gæða af landinu. Hingað til hefur þjóð in haft efni á að veita sér stór- bætt lífskjör. Samfara þeirri lífs kjarabyltingu hefur orðið mikil uppbygging í atvinnuvegunum. Gjaldeyrissjóðum hefur verið safnað og verzlunarjöfnuðurinn yfirleitt hagstæður. En ef við höldum áfram að eyða miklu þegar erfiðleikar steðja að er fljótt að fara, það sem aflað hefur verið. Við skulum vona að menn þurfi ekki að draga saman seglin. Ég sé engin tákn þess nú. En við þurfum að kunna fótum okkar forráð. Tími hinnar öru framsóknar kann að vera liðinn í bili. Við skulum fara varlega og verðum að stöðva tekjuaukningu til handa hverjum og einum. Hin 19 ára gamla finnska fegurðardrottning Satu östr- ing var á sunnudag kjörin feg urðardrottning Norðurlanda, og sézt hún á myndinni, lengst til hægri. — Myndin var tek- in sl. laugardag er þáttakend- ur í fegurðarsamkeppninni heimsóttu Lauri Aho, borgar- stjóra í Helsinki. Stúlkurnar eru (frá vinstri): Guðfinna Jóhannsdóttir, Islandi, Kol- brún Einarsdóttir, tslandi, Gun Sundberg, Svíþjóð, Irene Poller Hansen, Danmörku og Satu Östring, Finnlandi. — Annað og þriðja sæti í keppn- inni hrepptu Gun Sundberg, Svíþjóð og Birgit Andersen, Noregi. (AP). í þeirri vitund óskar ríkis- stjórnin eftir því við allar stéttir að þær fallist á verðstöðvun helzt um eins árs skeið frá L ág. sl. til 1. ág. næsta ár. Ríkis- sjóður er þess megnugur að greiða niður þær verðhækkanir sem orðið hafa síðan 1. ág. sL En þetta krefst þess að hver og | einn segi ekki við sinn nágranna ! Þú skalt verða við þessum ósk . um heldur að hver og einn segi I við sjálfan sig: Það er mér fyrir i beztu, að ég fallist á þessar j óskir, að ég kunni hóf mínum | kröfum þennan tíma. Og það er i þjóðinni í heild fyrir beztu og henni til farsældar. Að lokinni ræðu forsætisráð- herra tóku til máls, Sigurður Magnússon, Baldur Guðmunds- I son, Sigurjón Bjarnason, Kristján I G. Gíslasson og Guðmundur H. . Garðarson. Fundarstjóri var Sveinn Guðmundsson og fundar- ritari Þorvarður J. Júlíusson. Fjárh agsáœtlun S,Þ. gagnrýnd Rússar telja stjórn samtakanna of fjdr- freka„ Danir taka í sama streng New York 17. okt. — NTB. Sovétríkin vísuðu í dag á bug fjárhagsáætlun Sameinuðu Þjóð- anna fyrir árið 1967, á þeim for- sendum að af henni mætti glögg lega ráða óþarfa eyðslusemi og tvíverknað. Sovézki fulltrúinn í fjárhags- nefnd samtakanna Nikolai Kule- bjakin, hélt því fram að mikinn hluta fjárhagsvandræða samtak- anna mætti rekja til útgjaldanna vegna stjórnar þeirrar, en við hana störfuðu um 7,000 manns. Þrátt fyrir vinnusemi flestra sendinefnda samtakanna væri ó- gjörningur að komast í gegnum skjalahauginn, sem stjórn sam- takanna framleiddi. Kulebjalcin hvatti til hagræð- ingar í stjórn samtakanna og fækkunar starfsliðs, að lagðar yrðu niður ýmsar séráætlanir en höfuðáherzla yrði lögð á að vinna að nauðsynlegustu málum á sviði félags- og efnahagsmála innan SÞ. Benti hann á að fjárhags- áætlunin hefði hækkað um 250 % á sl. 10 árum og að 75% af fé samtakanna rynni til stjórílar þeirra. Þetta væri langtum of mikið og Sovétríkin gætu því ekki samþykkt tillöguna um | hina nýju fjárhagsáætlun, sem fyrir lægi. Fulltrúi Dana í nefndinni bar fram þakkir til U Thant fyrir undirbúning fjárhagsáætlunar- innar en kvaðst vera sammála skoðunum sovézka fulltrúans að því .er tæki til kostnaðar við stjórn samtakanna. Benti full- trúinn, B. Kronmann á hina ó- teljandi fundi, sem haldnir væru og skjalafjöldann. Kvað hann á- stæðu til þess að varast að starfsemi sú, sem SÞ. hefði með höndum, yrði svo umfangsmikil að óviðráðanlegt væri. Þrír biðu bana og 29 særðus er lögreglan í Jammu hóf skot hríð á hóp stúdenta, sem voru mótmælagöngu á mánudag. Hugi ust stúdentarnir með göngu sinn lýsa stuðningi við félaga sína sem eru í hungurverkfalli í há skóla staðarins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.