Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 5
Þriðjuda!sur 18. okt. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 5 Barnavermdarnefnd á fundi með blaðamönnum Strangara vist barna eftirlit meö úti- á kvöldin Sigurlaug Bjarnadóttir minntist á það að málið væri enn á byrjunarstgi, og því væri nú ekkijætt um útivistir eldri barna en 14 ára. En að sjálfsögðu munu seinna verða gerðar athugasemdir við útivistir barna á aldrinum 14-16 ára. Þegar búið er að venja yngri aldursflokkanna við að vera ekki á rölti úti langt fr-am eftir kvöldi, kem- ur það frekar af sjálfu sér að eldri aldurflokkar hliti sett- um reglum hvað útivist snertir. NÚ eru skólarnir byrjaðir og er þá ekki nema rétt að geta þess hvenær útivistar- tíma barna lýkur. Þann 1. október sl. breyttist útivistar- tími barna og unglinga og mega börn yngri en 12 ára ekki vera á almannafæri seinna en kl. 20 og börn 12-14 ára ekki seinna en kl. 22, samkv. 19. gr. lögreglusam- þykktar Reykjavíkur. Formaður barnaverndar- nefndar, Ólafur Jónsson, og varaformaður nefndarinnar próf. Þórir Kr. Þórðarson héldu fund síðdegis í gær með fréttamönnum ásamt framkvæmdanefnd barna- verndarnefndar, sem skipuð er þrem konum, þeim Sigur- Myndin er tekin á fundi hjá Barnarverndarnefnd síðdegis í gær. Talið frá vinstri: Margrét Margeirsdóttir, Sigurlaug Bj irnadóttir, Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn, Sigrún Sehneid- er, Ólafur Jónsson, form. Barnaverndar Reykjavíkur, próf. Þórir Kr. Þórðarson, varaform- aður Barnaverndar. Konurnar þrjár skipa framkvæmdanefnd Barnaverndarnefndar. Próf. Þórir Kr. Þórðarson gat þess m.a. að tilgangurinn væri ennfremur sá, að rann- saka afstöðu almennings til útivistar barna. Þar eð það virðist vera allalgengt að börn séu úti á kvöldin sagði hann þarf nú verulegt átak til að koma útivist unglinga í lag, og mun því Barna- verndarnefnd nú með aðstoð lögreglunnar verulega beita sér fyrir því að útivistar- reglunum sé fylgt. i'atinig lítur spjaldið út, sem Barnaverndarnefnd hefur lát- ið koma upp víðs vegar um bæinn, i strætisvögnum, skól- um, og víðar á almannafæri. Á því slendur: Börn munið regluna heim klukkan 8. vagna, skóla og víðar á al- mannafæri. Á vegum um- ferðarlögi'eglunnar verður dreift merkjum í mjólkurbúð- ir borgarinnar, sem einmg undirstrika reglurnar varð- andi útivist barna og ungl- inga. laugu Bjarnadóttur, Sigrúnu Schneider og Margréti Mar- geirsdóttur. Ennfremur sat fundinn Bjarki Elíasson yfir- lögregluþjónn. Á fundi þess- um komu ofangreindar upp- lýsingar fram. Þá gat Ólafur Jónsson þess að Barnavernd- arnefnd Reykjavíkur hefði í hyggju að beita sér fyrir því, í samvinnu við lögreglu, að þessum reglum yrði framfylgt betur en hingað til. Sérstak- lega verður lögð áherzla á að koma í veg fyrir útivist barna innan 12 ára aldurs. Hefur verið leitað aðstoðar lögregl- unnar, og hefur hún heitið því að taka að sér fram- kvæmd eftirlitsins í vetur. Einnig hafa skólastjórar heit- ið samvinnu í þessu máli. Þá sagði Ólafur að eftirlit- inu yrði þannig háttað, að borginni yrði skipt í hverfi jafnmörg barnaskólunum. Munu eftirlitsmenn hafa bækistöð í skóla viðkomandi hverfis. Prentaðir hafa verið bæklingar, sem innihalda bréf til foreldra, þar sem ósk- að er eftir samvinnu við þá. Mun þeim verða dreift í skól- ana og er ætlast til þess að börnin færi þá foreldrum sínum. Um leið og bækling- unum verður dreift munu kennarar ræða útvistarreglurn ar og benda þeim á hættu- legar afleiðingar hennar. Hef ur auglýsingaspjöldum verið dreift um borgina , í strætis- Asgrímssýning é Kaupmannahöfn Einkaskeyti til Mbl. Kaupmannahöfn 15. október. SI laugardag var opnuð í Kaup mannahöfn fyrsta stóra sýningin á verkum íslenzka málarans, Ás- gríms Jónssonar á erlendri grund Á sýningunni sem er í Kunst- foreningen í Kaupmannahöfn Á sýningunni sem haldin er i Kun Btforeningen i Kaupmannahöfn, eru 85 málverk teikningar og vatnslitamyndir. Formaður Kunstforeningen, Paul Tillge flutti ræðu við opnun sýningarínnar og lýsti yfir .að- dáun á íslenzku þjóðinni, „sem hefur fóstrað mikla persónu- leika bæði á sviði bókmennta og málaralistar. Hann sagði að það væri Kunst- foreningen mikið gleðiefni að hafa tækifæri til að sýna það fremsta í íslenzkri list með þess aii sýningu og þrem öðrum sem haldnar hafa verið á vegum | hennar: samsýningu á verkum þeirra Guðmundar Thorsteins- sonar, Jóhannesar Kjarvals og Jóns Stefánssonar, einkasýningu á verkum Júlíönnu Sveinsdóttur ; og Svavars Guðnasonar. I Tillge lauk miklu lofsorði á undirbúningsstarf frú Bjarnveig ■ ar Bjarnadóttur. Meðal gesta við opnun sýningarinnar voru Paul Reumert, formaður dansk-ísl- enzka félagsins próf, Meulen- gracht Erik Sönderholm fyrrúm lektor, próf. Jón Helgason og 1 Gunnar Thoroddsen sendiherra j íslands í Danmörku, sem opnaði sýninguna. Frú Bjarnveig Bjarnadóttir sagði við opnunina, að það þrennt sem gerði sýninguna að ' sérstöku gleðiefni. Það var í Kaupmannahöfn sem Asgrímur fékk sína fyrstu menntun sem listmálari, Ríkislistasafnið í Kaup i mannahöfn hefur annazt Um- ! fangsmikið og mikilvægt starf við að hreinsa og gera við mál- • verk, sem fundust í kjallara Ás- grímshúss eftir lát hans og að lokum hefði Kaupmannahöfn haft mikil áhrif á listamanninn. | Hún þakkaði Paul Lunoee og samstarfsmönnum hans, sem séð hafa um viðgerð á málverkum, og þakkaði einnig stjórn Kunst- foreningen fyrir þann heiður og velvild, sem hún sýndi listamann inum. Að lokum minntist hún á Asgrímssafn og sagði. 1 „Það er mér sérstakt gleði- , efni sem náins ættingja lista- mannsins að fá að taka þátt I þessari fyrstu sýningu á verkum hans á erlendri grund eftir lát hans. Kaupmannahöfn hafði I mikil áhrif á Ásgrím sjálfan og ' listaverk hans“. I Gunnar Thoroddsen sendiherra | opnaði sýninguna og sagði í ræðu j sinni frá ýmsum atvikum úr lífi | listamannsins, m.a. hvernig hann I fékk styrkinn frá Alþingi. „Sýn ing var haldin á verkum hans, | en enginn þigmanna sýndi henni verulega áhuga. Þar var fyrst er þeir uppgötvuðu að hestur Gunn i ars frá Hlíðarenda var beizlis- laus að áhugi þeirra vaknaði. I Emn af vinum Asgríms sagði að þetta væri skýring listamanns- ms a því, hvers vegna Gunnar sneri aftur eftir að hestur hans hafði hnotið. Hann komst ekki lengra án beizlis. Ásgrímur fékk styrkinn. Sendiherrann lauk máli sínu með því að segja „Það var vitur leg ókvörðun - ef einhver íslend ingur hefur ávaxtað vel sitt pund þá er það Ásgrímur. Fyrir hönd ríkisstjórnar íslands og íslenzku þjóðarinnar flyt ég öllum þeim er hlut hafa átt að þessari sýn ingu hjartanlegar þakkir“. Rytgaard. Telpa slasast Það slys varð laust eftir kl. 7 í gærkvöldi á Digranesvegi í Kópavogi að 12 ára telpa Sigrún Ögmundsdóttir, Hraunteigi 91 varð fyrir lítilli fólksbifreið og slasaðist illa. Mun hún bæði hafa handleggs- og fótbrotnað. Hún lenti framan á bifreiðinni sem ók vestur Digranesveginn, síðan upp á vélarhlíf hennar og að siðustu féll hún í götuna. Bifreiðin skildi eftir sig löng bremsuför. Guðjén Styrkársson hæstaréttarlögmaður Austurstræti 6. — Simi 18354. HRINGVER NÝKOMIÐ Mjög mikið úrval af allskonar ungbarnafatnaði HRINGVER Búðagerði v/Breiðagerði Sími 30933. VANDERVELL ^ Vélalegur^y Ford, ameriskur Dodge Chevrolet, flestar tegundir Bedford Disel Ford, enskur Ford Taunus GMC Plymoth Bedford. diesel Thames Trader BMC — Austin Gipsy De Soto Chrysler Buick Mercedes Benz, flestar teg. Gaz '59 Pobeda Opel, flestar gerðir Volkswagen Skoda 1100—1200 Renault Dauphine Þ. Jímsson & C». BrautarhoRi 6. Sími 15362 og 19215. LAUGAVEGI 59. slmi 1847»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.