Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 25
Þriðjudagur 18. okt. 1988 MORCUNBLAÐIÐ 25 Kristín Guðmunds- dóttir — Minning FRÚ Kristín Guðmundsdóttir frá Stórólfshvoli andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði 12 þ.m., á 94. ald- ursári. Kristín var fædd að Miðhúsum f Hvolhreppi 11. marz 1873. Ung- að aldri fluttist hún með for- eldrum sínum að Stórólfshvoli og var þar, þangað til hún flutt- íst til Reykjavíkur. Hún giftist Guðna Helgasyni, skipasmið 14. október 1903. Stofnuðu þau heim lli í Reykjavík og bjuggu lengi á Brunnstíg 7, en síðar á Marar- götu 3. Guðni Helgason var dugandi og ágætis maður. Lifðu þau hjón- in í farsælu hjónabandi. Guðni andaðist árið 1961. Þau eignuðust eina dóttur Kristínu Ágústu, og var hún augasteinn foreldra sinna, enda mikil myndar- og ógætis kona. Kristín Ágústa giftist frænda BÍnum Brynjólfi Stefánssyni, tryggingarfræðingi. Eignuðust þau tvo syni, sem báðir eru á lífi, Guðna og Stefán. Það var mikill harmur í fjöl- skyldunni þegar Kristín Ágústa andaðist 1939, aðeins 34 ára gömul frá tveimur sonum sí- um ungum. Reyndi þá á skapstillingu og dugnað gömlu hjónanna, sem misstu einkadótt- ur sína. Það mun hafa verið mik- il bót harmi gegn að tvær fóstur- dætur voru á heimilinu, sem voru jafn handgengnar fóstur- foreldrum sínum eins og þær væru dætur þeirra. Guðrún Eiríksdóttir systurdótt- lr Kristínar Guðmundsdóttur var tekin 1 fóstur á unga aldri. Sömuleiðis Þórunn Einarsdóttir frænka Kristínar rúmlega tveggja óra gömul. Uppeldið hafa báðar fósturdæturnar launað með því að gegna dótturskyldum við fósturforeldrana meðan tækifæri gafst. Eftir dótturmissinn gegndi Kristín móður- og ömmuhlut- verki við dóttursynina. Fengu þeir því þá umönnun og uppeldi «em venjulega er veitt af beztu móður. óhætt er að segja að heimili Kristínar og Guðna hafi verið til fyrirmyndar í alla staði. Það var gott að koma til Reykjavíkur fyrr á árum og heimsækja móð- Ursystur á Brunnstíg 7 og í Efri- Brekku. En svo heppin var ég «em þessar linur rita að eiga tvær móðursystur búsettar í vest urbænum, sem ég og systkini mín vorum ávallt velkomin til, þegar við vorum á ferð í Reykja- vík. Það er kannski þess vegna sem að ég hef alltaf síðan kunn- að vel við mig í vesturbænum í Reykjavík. Vissulega geta minn- ingar frá bernsku- og unglings- órunum haft áhrif á það. Kristin Guðmundsdóttir átti •jö systkini. Systur hennar voru Anna, Ingibjörg, Guðbjörg og Guðríður. Bræðurnir voru Guð- mundur, Sigurður og Einar. Öll eru þessi systkini nú dáin, eftir að hafa lokið ágætu dagsverki hvert fyrir sig. öll náðu þau nokkuð löngum starfsaldri nema Einar, sem drukknaði í Markar- fljóti um tvítugs aldur. Foreldr- ar þessara systkina voru Krist- ín Þorvaldsdóttir og Guðmundur Einarsson frá Gunnarsholti á Rangárvöllum. Eins og áður segir bjuggu þau fyrst að Miðhúsum en síðan á Stórólfshvoli. Systkini þessi höfðu mikla tryggð til átt- haganna. Móðir mín talaði oft um mikla fegurð sem blasti við augum þegar komið var upp á Kvolsfjall. Það er vissulega rétt að þá blasir við tignarleg sjón. Víðfeðmur fjallahringur í austri ©g Vestmannaeyjar i suðri, Vest- ttrfjöllin í blámóðu og mikilli fjarlægð en Hekla í norðri, sem gnæfir hátt yfir þá miklu víð- óttu, sem við blasir. En það er •kki útsýnið og fjallahringurinn aðeins sem skapar þó fegurð, ■em festist í minningu þeirra aem á þessum stað hafa dvalið, heldur einnig og ekki síður hin- kjörin heiðursfélagi þess. Kristín Guðmundsdóttir var tryggðatröll, ágætis húsmóðir, fyrirmyndar móðir, góð kona. Hún var alltaf talin vera falleg kona, ung, miðaldra og á elliár- um. Svipur hennar var hreinn og lýsti mannkostum hennar og gjörfileika. Frændfólk Kristínar og vinir sakna ágætrar konu, en unna henni góðrar hvíldar eftir langan starfsdag. Dóttursynir hennar og fóstur- dætur hugsa sérstaklega til henn- ar með þakklæti fyrir allt sem hún veitti þeim. Minningin um góða konu og ágæta frænku er þeim, sem þekktu hana bezt mikilsvirði og mun aldrei gleym- ast. f.J. ar blómlegu byggðir, bændabýlin og grösugar sveitir, sem gefa fyr- irheit um mikla möguleika og batnandi lífsskilyrði fyrir alla þá, sem möguleika hafa til að not- færa sér þau gæði ,sem fyrir hendi eru. Kristín átti fallega mynd frá Stórólfshvoli. Hún lét stækka hana og hafði hana ávallt í stof- unni á heimilinu. Eftir að hún varð veik og fluttist á Sólvang, hafði hún myndina með sér og var hún hengd yfir rúm hennar þar. Myndin frá Stórólfshvoli var henni tákn frá bernsku- og uppvaxtarárunum. Þessi mynd hefur ef til vill einnig hjálpað henni, sérstaklega seinni árin til þess að rifja upp hvernig stað- hættir voru þar í sveit. Vist er það, að þótt fyrir Kristínu ætti að liggja að dvelja mestan hluta ævinnar í Reykjavík, þá slitnaði aldrei sá strengur sem tengdi hana við átthagana og hennar ættarbyggð. Hún hafði nokkuð oft tækifæri til að ferðast austur og rifjaði þá upp gamlar minn- ingar. Kristín hafði áhuga á líknar- málum og lét sig þau miklu skipta. Hún starfaði vel og lengi í Thorvaldsensfélaginu og var - íþróttir Framhald af bls. 31 hissa í leiknum (að sjá) að allt í einu var enginn frammi fyrir honum til að verjast — nema markvörður. Gangur leiksins var annars sá að ísl. liðið byrjaði mjög vel. Hraði þess og breytilegur leik- ur kom Dönunum á óvart í byrjun. En eftir að Danir fengu séð við „hringekjunni" og það tók stundarfjórðung, átti ísl. liðið í erfiðleikum. Því tókst aldrei að koma með neitt ÁNNAÐ sem Danirnir ekki gætu varið sig á. Forskotið ísl. liðsins í byrjun var því auðvelt. En það tókst ekki að auka er á hálfleikinn leið — og það tapaðist gersamlega á fyrstu mínútum síð. hálfleiks. Með hraðari og hraðari varnar leik — að vísu með hjálp mjög lélegs dómara — tókst Dönum að draga máttinn úr ísl. liðinu. Ekki aðeins að stöðva skorun, heldur að jafna og taka foryst- una. Eftir að liðin höfðu hvert um sig skorað mark í upph. síð. hálfleiks skoraði Klaus Kaae 7 mörk í röð. Þrjú voru skoruð úr hraðupphlaupum, 1 úr víti en 3 í gegnum „vörn“ — við setjum gæsalappir lun orðið vörn, því hún var ekki fyrir framan hann, þó hann kastaði af löngu færi. Sigur Árhus KFUM var verð- skuldaður í þessum leik sem hin um tveimur. Hinu er ekki að leyna að Daninir högnuðust á einum lélegasta dómi sem hér hefur sézt síðan að fránski farar- stjórinn dæmdi landsleikinn — og þar á undan í mörg ár. Þeir ,kunnu“ að brjóta sér til hagræð is, enda brostu þeir í laumi. Það er að sjálfsögðu ekki heldur hægt að krefjast af dómurum frekar en liðsmönnum að þeir séu í æfingu. En ef um saman- burð var að ræða var dómarinn í lélegri æfingu en liðsmennirnir. Hann lét dönsku liðsmennina meira að segja sýna sér móðgun, sem ekki væri brottrekstrar sök í 2 mín — heldur til leiksloka. — A.St. Hræddir Framhald af bls. 30 hræddir um að loftþynningin hafi einhver áhrif á getu fólksins í keppni, en tvennir reynsluleikir hafi sannað að svo sé ekki. Telja þeir að yfir- vinna þurfi hræðslu fólksins í þessum efnum og að fá það af því að skella allri skuld af eitthvað lakari árangri dag og dag á hið þynnra Ioft. Læknarnir eru orðnir sam- mála um — að þeirra sögn að einasta vandamálið sé að íþróttafólkið aðlagist loftinu. Aðlögunartíminn megi ekki vera of langur, ekki lengri en 2 vikur. En þeir segja og að aðlögunartíminn sé mikið vandamál, því meðan á hon um standi kenni íþróttafólkið og leiðtogarnir hinu þynnra lofti um alla krankleika og vanlíðan, sem í Mexikó stafi aðallega af taugaspennu og taugaóstyrkleik fyrir mikla keppni alveg eins og alls staðar annars staðar. — Bændasamfökin Framhald af bls. 10. og spurðum hann helztu tíðinda um búskapinn á Austurlandi. — Heyskapurinn var almennt í meðallagi, sagði Jónas, en varð þó að lokum minni en útlit hafði verið fyrir fyrst í sumar. Tíðar- far fram til 20. júli var með ágæt um, og heyskaparútlit með bezta móti. Upp frá þvi fór mjög að syrta í álinn, tíðarfar erfitt og þreytandi, og lítið hægt að vinna við heyskap. En það bætti úr að í síðari hluta september gerði einmuna tíð, sem gerði útkom- una miklu betri en útlit hafði verið fyrir, skömmu áður. — Kornrækt var með minna móti, en nýlokið er við að skera upp í Fljótsdal, og fékkst þar sæmilega gott korn. Þar ætla bændur að geyma kornið í plast pokum eftir uppskeruna, og draga þannig úr kostnaðinum, ef það gefur sæmilega góða raun. — í sumar hafa verið talsverð ar brúarbyggingar á Austurlandi og má þar r.efna að lokið er smíði brúar yfir Vesturdalsá undir Ytri-Hlið, og brú yfir Fögruhlíð ará í Jökulsárhlíð á HellisheiðL Þá er verið að byggja mikla-brú á Rangá hjá Skógargerði, og ákveðið að Ijúka þeirri smíði 1 haust. Loks má nefna að í sumar var lokið við fyrri hluta verks við hina miklu brú á Jökulsá á Breiðamerkursandi. En ef við víkjum að vegagerð, þá má geta þess að unnið var að lagningu Vattarnesvegar í sumar fyrir rúm ar tvær milljónir króna, og sömu leiðis náðist góður áfangi á Möðrudalsfjallgarði, en þar var lagður vegur yfit Geitarsand og yfir austari fjallgarðinn. Bráð- nauðsyn er að lokið verði sem fyrst við gerð vegar yfir Jökuls- dalsheiði frá eystri fjallgarðinum til Egilsár. Leiðrétting í GREIN Halldórs Stefánsson ar um dýrtíðina varð villa, sem hér skal leiðrétt: í þriðja málslið, aftan frá tal- ið, er prentað: Hin hraða velta dýrtíðarhjólsins er órækur vott“ ur þess hvað lýðveldið er . . . en skrifað stóð í handriti: hvað lýðvaldið er . . . Birghton, 7. október — AP—NTB. UOKIÐ er nú í Brighton flokksþingi brezka Verka- mannaflokksins. Þrátt fyrir andspyrnu vinstrisinnaðra manna í flokknum við Wil- son, forsætisráðherra, hefur hann hlotið fylgi meirihluta þingmanna við flestar hug- myndir sínar, þ.á.m. þær þýð- ingarmestu, þ.e. launabind- ingu og afstöðu til alþjóða- vandamála. J'ÚMBÖ /44-26 Teiknari: MOR A Gamli maðurinn er í öngum sínum. Hann segir: — Nú er úti um mig. f mörg ár hefur mér tekist að hræða ferðamenn í burt frá þessum dal sem mér þykir svo vænt um með því að leika smá leik með risaskepnurnar — Eg gat verið hér í ró og næði. — Nú mun menningin ráðast hingað inn, hér munu bílar aka og hvergi verð- ur hægt að þverfóta fyrir fólkL Og Júmbó segir honum nú að safnið hans sé eyðilagt. Það slys hafi viljað tif að hvelfingin hrundi saman. — HVAÐ ertu að segja, hrópar gamli maðurinn upp yfir sig, ertu að reyna að gera mig vit- lausan. JAMES BOND James Bond IY IAI FIEMING DRAWING IY JOHN McLUSKY Xr— —Æ X- -X Eítii IAN FLEMING Leiaur minn með glæpaflokknum hafði fært mig alla leið tii Las Vegas, borg spilavitanua. Þar vann Tiffany Case fyrir flokkinn, og þar beið min sérstakur leigubilstjóri. — Láttu fara vel um þig hr. Bond. Felix Leiter sagði mér að hafa auga með þér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.