Morgunblaðið - 23.10.1966, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.10.1966, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 23. okt. 1966 Afslóttur 1966 Höfum nokkra Opel Record sendibíla, station og fólksbíla af árgerð 1966 til söiu á niðursettu verði. SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA VÉLADEILD ÁRMULA 3 SÍMI 38900 BIKARKEPPNIN MELAVÖLLUK: ÚRSLIT. í tlag, sunnudaginn 23. okt., kl. 2 e.h. leika KR - VALUR Dómari: Magnús Pétursson. Komið og sjáið síðasta leik ársins. Mótanefnd. SAAB Saab, árgerð 1963 til sölu. Vel með farinn. Til sýnis að Sæviðarsundi 27 í dag kl. 2—5 e.h. Nauðungarupphoð Eftir kröfu Jóns N. Sigurðssonar, hrl., Hauks Jóns- sonar hrl. og Iðnaðarbanka íslands h.f. verður hús og lóðarréttindi fiskverkunarstöðvar við Víkurbraut 1 (Varir) í Grindavík, talin eign fvars Þórhallssonar selt á nauðungaruppboði, sm háð verður á eign- inni sjálfri þriðjudaginn 25. október 1966, kl. 3 e.h. Uppboð þtta var auglýst í 71., 72. og 73. tbl. Lög- birtingablaðsins 1965. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. — Himneskt Framhald af bls. 8 orðum. Sein* a frétti ég, að inn- vörður hefdi sagt við hann: „Hvað er að sjá þetta. Það er vínlykt af yður, maður“. Svarar þá hinn nýi félagi og þótti hinn spyrja nokkuð fávíslega: „Held- ur þú, að nokkur gangi ófullur inn í góðtemplararegluna, góð- urinn minn?“ En þetta var mál- tæki hans. Orð þessi sagði hann stundarhátt, svo að allir þeir, sem voru utarlega í salnum, hlutu að hafa heyrt þetta. Þegar svo Björn fór að finna að því við hann, er þeir hittust nokkrum dögum síðar, hvers vegna hann hefði ekki komið inn aftur, og einnig, af hvaða ástæðu hann hefði farið að hrópa þessa ósvífni að dyraverð inum, svaraði hann: „Mér varð dálítið bylt við, þegar hann fór að minnast á vínlyktina af mér. Ég ætlaði nefnilega að bæta svolítið á mig frammi, því að ég hafði svolitla lögg með mér, ef mér skyldi leiðast. En þegar vörðurinn sneri sér svo fávís- lega í þessu, ákvað ég að fara heim og ætla ekki að koma aft- ur. Annars hefði ég líklega ílengst þarna“. Það fór nokkuð likt með flesta hinna, að þeir hurfu einn eftir annan úr reglunni. Mig minnir, að Björn héldi í þetta sinn út í 3 mánuði og nokkrir með honum, en þá sagði hann sig úr stúkunni. Það fór einnig þannig með mig, að ég sá mér ekki fært samvizkunnar vegna að vera í reglunni, vegna þess að yfir- menn mínir sendu mig oft eftir víni og áfengum bjór, og því sagði ég mig úr stúkunni Hlín, að mig minnir í ársbyrjun 1903. ÍJtvff rpstruf lanir vestra ísafirði , 22. okt. Við vorum að hlusta hér í kvöld á útvarpsstjórann blessað an flytja yfirlit yfir væntanlega vetrardagskrá og kenndi þar margra og góðra grasa. Hitt er svo undir hælinn lagt hversu mikið við fáum að heyra af henni, því það hafa að undan- förnu verið talsverðar truflanir frá loranstöðinni, þegar skyggja tekur. Engar truflanir hafa orðið á sjónvarpssendingum hér vestra og verða trúlega ekki næstu 7 árin, ef áætlunin um uppbygg ingu sjónvarpsins í þesum lands hluta sterízt. H.T. ATH UGIÐ Þegar miðað er við útbreiðslu. er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. SÝNIHG á norsku EINBÝUSHÚSI Norsku „JOKEB“ einbýlishúsin eru ný gerð af verksmiðjuframleiddura húsum, sem reisa má tilbúin til notkunar á einni til tveímur vikum. í dag og næstu daga sýnum við norskt verksmiðju- framleitt einbýlishús, sem við höfum flutt inn og reist við Bjarkarholt í Mosfellssveit (skammt vestan við Hlégarð). Sýningin verður opin laugardag kl. 15—20 og sunnudag frá kl. 10—20. Áframhaldandi sýningartími verður auglýstur síðar. f. Pálmason hf. Austurstræti 12, sími: 22235.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.