Morgunblaðið - 23.10.1966, Qupperneq 31
Sunnudagur 23. olct. 1966
MOKGUNBLADIB
31
FjöIskylduSaarffjöId
F.í. í fflldi I. nóv.
HINN 1. nóvember n.k. ganga í Aþenu árið 1964.
gildi sérstök f jölskyldufargjöld á Fjölskyldufargjöldin til Norð-
urlanda eru háð svipuðum regl-
flugleiðum milli íslands og
Norðurlanda og gilda þau til 31.
marz 1967.
Þetta er annar veturinn sem
þessi hagstæðu fargjöld eru í
gildi, en þeim var komið á fyrir
frumkvæði Flugfélags íslands og
fékk félagið þau samþykkt á ráð
stefnu Alþjóðasambands flugfé- hálft gjald.
um og þau fjölskyldufargjöld,
sem gilda á flugleiðum Flugfé-
lags fslands innan lands, en sam-
kvæmt þeim greiðir forsvarsmað
ur fjölskyldu fullt fargjald en
aðrir fjölskylduliðar, (maki og
börn uþp að 26 ára aldri) aðeins
félaga, IATA, serrr haldin var í
Þetta er vestasta húsið í stórbyggingarsamstæðu Öryrkjahcimili sins. En á henni eru trésmiðir nú
að byrja.
Hægt að tryggja sér forgangs-
rétt að íbúðum öryrkjaheimilisins
Samtal við Odd Ólafsson yfirlækni
af því að smíði heimiiisins
er hafin
FYRIR svo sem liðlega hálfum
mánuði tók félagsmálaráðherra
fyrstu skóflustunguna að fyrsta
áfanga að byggingu Öryrkja-
heimilis við Suðurlandsbraut.
Nú um miðja vikuna komu
fyrstu smiðirnir til starfa í
grunninum og hófst þá móta-
smíðin. Blaðamaður frá Morgun-
blaðinu brá sér í gær upp að
Reykjalundi og átti af þessu til-
efni samtal við Odd Ólafsson
yfirlækni, en hann er formaður
Öryrkjabandalagsins og hús-
byggingarstjórnar.
Þörfin fyrr slíkt heimili er
ékaflega brýn, sagði Oddur og
eru ástæðurnar margar. Margt
af fólki þessu er nú vistað í
sjúkrahúsum og hælum, en hjá
öðrum eru ástæðurnar einnig
erfiðar m.a. vegna þess hve erf-
itt er fyrir það að fá hentugar
íbúðir. Sá áfangi sem nú er
byrjað á verður 77 íbúða hús, —
hver íbúð 25 til 55 fermetrar,
fyrir utan tilheyrandi geymslur
í kjallara. Samkvæmt þeim áætl-
unum sem nú liggja fyrir, sagði
Oddur, er gert ráð fyrir að allar
íbúðirnar 77 muni kosta alls um
30 milljónir króna — fullsmíð-
aðar og frágengnar.
Heimilið verður byggt að
mestu fyrir lánsfé og er það
nú þegar nokkurn veginn
tryggt. — En lánin þurfa
auðvitað að endurgreiðast,
— og það verðum við að gera
jneð eigin tekjum heimilisins.
Ætlunin er að hver íbúðarhaíi
greiði sína húsaleigu og verður
hún ákveðin eftir hinum nýju
reglum þar að lútandi, sem
félagsmálaráðuneytið hefur stað
fest, varðandi leigu fyrir leigu-
húsnæði hins opinbera og hins
væntanlega Öryrkjaheimilis
okkar, sagði Oddur Ólafsson.
Stjórn heimilisins hefur ákveð
ið að gefa væntanlegum leigj-
endum sínum kost á að á að
tryggja sér forgangsrétt á íbúð-
um sínum. Er það hugsað þann-
ig, að því er Oddur yfirlæknir
upplýsti í fyrsta lagi: Viðkom-
andi kaupir skuldabréf fyrir
a.m.k. 100.000 krónur, en það fé
er tryggt með veði í sjálfri bygg
ingunni. Vextir og afborganir
af þessum lánum hefjast þegar
heimilið er tekið til starfa. í
öSru lagi gefst væntanlegum
leigjendum kostur á að leggja
fram 100.000 krónur eða meira.
Verður þá tekið tillit til þessa
framlags viðkomandi, er hann
flytur inn og byrjar að borga
sína húsaleigu. — því þetta
yrði nokkurskonar fyrirfram-
greiðsla á húsaleigunni.
Að sjálfsögðu getum við ekki
ráðstafað nema litlum hluta
íbúðanna á þennan hátt fyrir-
fram. í dag er ástandið þannig,
sagði Oddur Ólafsson að pantan-
ir liggja þegar fyrir um flestar
þær íbúðir sem ráðstafað verð-
ur á þennan hátt.
Það verða þá ekki neina~ al-
mennar fjársafnanir til heimilis-
ins?
Nei, svo verður ekki. — En
að sjálfsögðu tökum við á móti
hverskonar fjárhagslegum stuðn
i ingi. Vil ég nota tækifærið,
sagði Oddur og þakka þær
mörgu gjafir sem okkar hafa
þegar borizt. — Og hér skaut
hann inn í skemmtilegri hug-
, mynd sem í ráði er að fram-
; kvæma í Öryrkjaheimilinu.
Hann sagði eitthvað á þessa
leið um það: — Mér hefur löng-
um þótt nöfn þeirra er gefa til
einstaklinga og félaga margs-
konar líknar- og menningarmála
hér gleymast fljótt. Því er það
j nú ætlun okkar, að taka upp þá
nýbreytni í sambandi við gjafir
til heimilisins, að nafn hvers þess
er gefur til heimilsins 25000
krónur eða meir, skuli skráð á
sérstakan vegg, sem skreyttur
verður með tilliti til þess að
geyma þessi nöfn um aldur og
ævi, sagði Oddur. — í þessu
sambandi kom fram að síðasta
stórgjöfin til heimilisins barst
því fyrir nokkrum dögum frá
Lionsklúbbnum í Mosfellssveit
— Klúbbar þessir hafa sem kunn
ugt er stutt mjög dyggilega
hverskonar líknarstörf hér. —
Það væri vissulega táknrænt
fyrir þetta starf klúbbanna að
sjá öll nöfn þeirra skráð í röð
á veggnum sem geýma skal nöín
gefendanna.
Bygging öryrkjaheimilisins er
svo mikið nauðsynjamál að ég
vona að fjöldi einstaklinga og
fyrirtækja sjái sér fært að
styrkja okkur hver eftir sinni
getu. Sérstaklega vil ég taka það
fram að ef einhver kynni að
eiga skuldabréf sem hann mætti
án vera, þá væri slík gjöf vel
þegin. Gjafir til öryrkjaheimil-
isins eru að sjálfsögðu frádrátt-
arhæfar til skatts.
Þetta var annars sma útidúr.
Hvenær flytjið þið inn?
Það þekkja allir, að hér á
landi er ákaflega erfitt að gera
áætlanir um mannvirkjagerð og
svo er um þessa stórbyggingu.
— En það er byrjað. — Hálfnað
er verk þá hafið er. — Við von-
um að ekkert verði til þess að
tefja þá áætlun okkar að sleitu-
laust verði unnið við heimilið
unz hægt verður að flytja þar
inn. — Allt okkar starf er miðað
við þetta sagði Oddur yfirlæknir
að lokum.
Hnfnfirðingur
Þ E IR, sem fengið hafa senda
miða í Landshappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins, eru vinsamlega
beðnir að gera skil sem fyrst í
skrifstofu flokksins að Strand-
götu 29. Skrifstofan verður opin
kl. 1—3 á laugardögum og 11—12
á sunnudögum fyrst um sinn.
— Ferð Bjarna
Framhald af bls. 2
Kl. 11.00: Heimsókn í verk-
smiðjur fyrirtækisins Telefon AB
L.M. Ericsson.
Kl. 12.30: Hádegisverður í boði
Patricks, framkvæmdastjóra fyr
irtækisins.
Kl. 15.30: Fyrirlestur forsæt-
isráðherra á vegum Félags um
utanríkismál (Utrikespolitiska
föreningen) í Stokkhólmshá-
skóla.
Kl. 17.00: Blaðamannafundur
á Grand Hotel.
Kl. 20.00: Kvöldverðarboð for-
sætisráðherra, dr. Bjarna Bene-
diktssonar, á Grand Hotel.
Föstudagur 28. október.
Kl. 10.00: Lagt af stað frá
Bromma-flug velli.
Sérstök dagskrá fyrir konu for
sætisráðherrans, frú Sigríði
Björnsdóttur.
Mánudagur 24. október.
Kl. 10.00: Heimsókn í Listiðn-
skólann (Konstfackskolan).
Fimmtudagur 27. október.
Kl. 11.00: Sautjándu aldar
skipið „Vasa“ skoðað.
Kl. 12.00: Hádegisverður á
Hotel Foresta í Lidingö.
Kl. 13.30: Heimsókn í Milles-
gárden, safn listaverka mynd-
höggvarans Carls Milles.
— Dr. Johnson
Framhald af bls. 1
Hann var lagður í sjúkrahús
í fyrri viku, en þá hafði hann
orðið fyrir áfalli á heimili sínu.
Johnson gerði sér tíðfarið til
kommúnistalandanna, og varð
oft fyrir gagnrýni fyrir að halda
á lofti skoðunum ráðamanna þar.
1952 fór hann í heimsókn til
Kína, en að henni lokinni skýrði
hann frá því opinberlega, að S.þ.
notuðu þýzk vopn í Kóreustyrj-
öldinni. Síðar viðurkenndi bisk-
upinn, að sjálfur hefði hann
aldrei til Kóreu komið, heldur
hefði kínverskur vísindamaður
sagt sér, að S.þ. notuðu þýzk
vopn.
Nafnið „Rauði erkibiskupinn"
var frá honum sjálfum komið.
Blaðamaður einn ræddi eitt sinn
við hann, en átti erfitt með að
finna eitt orð, sem lýst gæti
stjórnmálaskoðunum hans. „Kall
ið mig „Rauða erkibiskupinn",
sagði Dr. Johnson þá.
Hópferðabilar
allar stærðlr
e.ÍN6in/iR
Símar 37400 og 34307.
LOGl GUÐBRANDSSON
héraðsdómslögmaður
Laugavegi 12 — Simi 23207.
Viðtalstími kl. 1—5 e.h.
Það skal tekið fram, enda þótt
Flugfélag íslands hefði frum-
kvæði um setningu þessara hag-
stæðu fjölskyldufargjalda milíi
íslands og Norðurlanda, þá njóta
farþegar annarra flugfélaga, sem
fljúga á sömu flugleiðum Loft-
leiðum og Pan American, sömu
kjara.
— Gjallhrunið
Framhald af bls. 1
til þorpsins Aberfan. Þá hélt
Filippus prins til þorpsins til að
votta ættingjum látinna samúð
sína. Með honum í förinni var
Snowdon, lávarður.
Óhugnanlegt er nú um að lit-
ast í Aberfan. Þar ganga um
grátandi mæður, en allir, sem
vettlingi geti valdið, hafi unnið
sleitulaust síðustu 24 stundirn-
ar við uppgröftinn. Hafi margir
þeirra, sem mest hafi að sér-
lagt, örmagnazt.
Miklar umræður hafa orðið
um það í Bretlandi, hvernig á
því standi, að gjallhaugur sá,
sem af stað rann, skuli ekki
fyrir löngu hafa verið fluttur á
brott.
HðFADYNUR
Bókin, sem beðið er eftir,
verður mánuði síðbúnari
en áætlað var.
Litbrá h.f.
Orðsending frá
Stjdrnuljósmyndum
Barna- og heimamyndatökur.
Á laugardögum: Brúðkaup og
veizlur.
Stofan opin allan daginn.
Pantið með fyrirvara.
Stjdrnuljósmyndir
Flókagötu 45. — Sími 23414.