Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 25. okt. 1966 MÖKGU N BLAÐIO Kaupmáttur tímakaupsins eykzt úr 100 í 122 frá '63 RáðstöfimarteJijur verka- sjó- og iðnaðarmanna hafa aukizt meir en þjóðartekjur t TILEFNI af ummælum Geirs ■ burð á þróun hans og þróun Gunnarssonar, alþingismanns, 1 íjárlagaumræðum á Alþingi 18. þ.m., hefur á vegum forsætis- ráðuneytisins verið gerð athug- un á þróun kaupmáttar tima- kaups og ráðstöfunartekna verka manna og þróun þjóðartekna á undanförnum árum. Fylgir at- hugun þessi hér á eftir: ^ Kaupmáttur tímakaups og | ráðstöfunartekjur verkamanna. ) í ræðu Geirs Gunnarssonar, alþm. við fjárlagaumræðurnar segir svo um kaupmátt tíma- kaups verkamanna og saman- raunverulegra þjóðartekna: „Ef tekin er til samanburðar vísitala kaupmáttar tímakaups miðað við neyzluvöruvísitölu og 3. taxta Ðagsbrúnarkaups og vísitala kaupmáttarins sett 100 1959, kemur í ljós, að kaupmátt- urinn hefur verið lægri allt þetta tímabil og hefur hinn 1. október s.l. enn ekki náð kaupmættin- um 1959, á sama tímabili og þjóð artekjur á mann hafa hækkað um 32.2%. 1959 var kaupmáttur- inn 100, 1960 90.6, 1961 85, 1962 83.7, 1963 84, 1964 85.3, 1965 91 og 1.10. 1966 99.6. Nokkurn veg- breytzt á þessu tímabili, á tíma- bilinu frá 1959—1964 sem hér segir miðað við 100 1959, 1960 99.4, 1961 90.7, 1962 100.7, 1963 j 108.8 og 1964 112.7. En þótt ráð- stöfunartekjurnar hafi þannig vegna aukinnar eftir-, nætur- og helgidagavinnu komizt í það að verða 12.7% hærri 1964 en 1959, hafa ekki einu sinni ráðstöfun- artekjurnar aukizt til jafns við aukningu þjóðartekna á mann á þessu tímabili. Og ef borin er saman afstaða ráðstöfunartekna inn það sama kemur út, ef miðað! til þjóðartekna á mann og það er við tímakaup í fiskvinnu“. hlutfall sett 100 1959, er það hlut- Síðar segir um samanburð komið niður í 91.9 anð 1964. þessa kaupmáttar við þjóðar- Það eru því alrangar staðhæf- ingar, að verkafólk hafi fengið STAKSTEINáR tekjur: „Ef miðað er við 3. taxta Dags- brúnar og afstaða milli kaup- máttar tímakaups og þjóðartekna á mann sett 100 1959, er 1960 90.7, 1961 82.3, 1962 76, 1963 72.5, 1964 69.1 og 1965 68.8. Þ.e.a.s. þetta hlutfall hefur breytzt um 31.3% verkafólki í óhag á þessu tíma- bili.“ Þá segir í hæðunni um þróun ráðstöfunartekna: „Þessa skerðingu kaupmáttar tímakaups, sem verið hefur veru- leg um langt skeið, allt. þetta tímabil, hafa launþegar reynt að bæta sér upp með þrotlausri yfirvinnu. Þess vegna hafa ráð- stöfunartekjurnar, þ.e.a.s. héild- artekjur án tillits til vinnutíma sinn hlut af auknum þjóðar- tekjum undanfarinn ára, hvort sem litið er á kaupmátt tíma- kaups eða á heildartekjur án til- lits til vinnutíma, skortir mikið á, að verkafólk hafi haldið sín- um hlut. Samtímis því, sem kaup máttur tímakaups hefur lækkað, hafa þjóðartekjur á mann aukizt og ef athuguð er afstaða kaup- máttar tímakaups verkamanna til hreinna þjóðartekna á mann kemur í ljós, hve mjög hefur verið gengið á hlut verkafólks á stjórnartíma viðreisnarstjórnar- innar“. Efnahagsstofnunin hefur í ágústmánuði s.l. í skýrslu til Hagráðs birt tölur um þróun Framh á bls. 19. 20 drcu Skógræktarfélag Reykjavíkur SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja- víkur átti 20 ára afmæli í gær. Félagið var stofnað 24. október árið 1946 er skógræktarfélag Is- lands klofnaði i Skógræktarfé- iag Reykjavíkur og Skógræktar- félag Hafnarfjarðar. Meðlimir í félaginu eru nú 1500, við stofnun l>ess voru þeir 1200. Á fundi með fréttamönnum síðdegis í gær gat form. Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur, Guð- mundur Marteinsson, þess m. a. að tilgangurinn með félaginu væri jafnframt skógræktinni og þá einkum plöntuuppeldi, að auka áhúga almennings fyrir ekógrækt. Hafa fjölda margir fræðslufundir verið haldnir á vegum félagsins og fólki mörg- um sinnum verið boðið að skoða stöðina og þá í fylgd með ein- hverjum þeirra sem til skóg- ræktar þekkja. Einar Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, minntist þá á fram- leiðslu félagsins, en það hefur nú framleitt 3 millj. 755 þús. plöntur, um 400 þús. plöntur ár- lega. Var ársframleiðsla árið 1950 67 þús. 700 plöntur, svo sjá má að aukning hefur verið gífur- leg. Upphaflega var öll fram- leiðslan notuð til gróðursetning- ar í Heiðmörk, en á síðari árum hefur mikið af framleiðslunni farið í garða einstaklinga 25% af framleiðslunni og skrúðgarða. Það munu vera um 40 mismun- andi tegundir plantna, sém Skóg ræktarfélag Reykjavíkur fram- leiðir nú. Þá minntist Einar á starfsað- stæður. Upphaflega var Skóg- ræktinni léð 9 ha landi til um- ráða, en síðar var aukið við það landrými, svo nú er það 14 ha. Síðan talaði Einar um gróður- setningarstarfið í Heiðmörk. Árið sem Heiðmörk var vígð 1950 voru þar gróðursettar 900 plöntur. Gróðursetning þar hefur að mestu verið í höndum sjálf- boðaliða. Ýmsum félögum hafa þar verið úthlutaðað spíldun og gerð við þau samþykkt um að gróðursetja í landið. Hafa alls 55 félög tekið þátt í gróðursetn- ingunni. Þá hefur Vinnuskóli Reykjavíkur staðið fyrir gróður- setningu í Heiðmörk. Alls hafa uú verið gróðursettar í Heiðmörk 2 millj. 347 þús. plöntur, 218 þús. plöntum árlega síðan 1958. Heið- mörk nær nú yfir 2510 ha. Alþjóðahjdlp Á allra síðustu áruia hafa fs»- lendingar tekið mjög vaxandi hjálp vaxandi þátt í aðstoð við þróunarlöndin og komst sú starf semi fyrst á verulegan rekspöl með Herferð gegn hungri, en þar var safnað mVrlum fjár- •*' munum til ákveðins verkefnis með ágætri skipulagningu og mikilli vinnu ungs fólks. Um þessar mundir stendur yfir hér á landi fjársöfnun til aðstoðar tíbezku flóttafólki í Indlandi. F.n fæstir gera sér líklega grein fyrir því, að við fslendingar leggjum fram töluyert fjármagn til hinna ýmsu stofnana Samein uðu þjóðanna, sem hafa fjöl- breytilegu hlutverki að gegna i þróunarlöndunum svonefndu, og væri full ástæða til þess að ítarlegri grein væri gerð fyrir þeim fjárframlögum svo að all- ur almenningur geti áttað sig á hinni víðtæku þátttöku þjóðar- innar í starfi Sameinuðu þjóð- anna. Hér hefur vissulega verið stigið skref í rétta átt og ánægjn * legt er til þess að vita að æsku- lýðssamtök í landinu hafa haft forgöngu um að koma þessum málum á raunhæfara stig hér á landi en verið hefur, en svo sem kunnugt er hafa hinar Norður- landaþjóðirnar tekið mikinn og víðtækan þátt í margskonar al- þjóðahjálp. Ndnara samband við þróunarlöndin f tilefni af afmælinu verður í kvöld haldinn fræðslufundur í Tjarnarbúð. Mun form. félagsins, Guðmundur Marteinsson,. flytja ávarp. Þá verða sýndar litskugga myndir úr Heiðmörk og mun norskur búfræðidoktor Kristian Björ, sem staddur er hérlendis um þessar mundir flytja erindi um búfjárrækt í skóglendi. Að lokum verður stiginn dans. Myndin er af þeim, sem nú skipa stjórn Skógræktarfélags Re ykjavíkur. Frá vinstri Jón Helga- son gjaldkeri, Ingólfur Davíðsson ritari, Sveinbjörn Jónsson meðstj. Guðmundur Marteinsson formaður, Lárus Blöndal meðstj., Einar G. E. Sæmundsen framkvstj. 3 síðasttöldu hafa verið í stjórn félagsins frá upphafi. MJOLKIN LÆKKAR UM KR. 1,35 —aukfiar niðurgreiðsliir — liður í verðstöðvunarstefnu ríkisstjarnarinnar í GÆR lækkaði mjólkurverð um kr. 1.35 pr. lítra og kostar lítri af mjólk nú kr. 6.70. — Smjörverð og smjörlíkisverð svo og verð ýmissa annarra neyzluvara helzt óbreytt vegna aukinna niðurgreiðslna, sem ríkisstjórnin hefur ákveð ið. — Niðurgreiðslur þessar tóku gildi í gær, 24. ©kt. og eru þær liður í verðstöðvunar stefnu ríkisstjórnarinnar og í samræmi við yfirlýsingar for- sætisráðherra að undanförnu um nauðsyn verðstöðvunar. Ráðstafanir þessar miða að o- því að halda vísitölunni breyttri eins og hún var hinn 1. ágúst sl. Fréttatilkynning ríkisstjórn arinnar fer hér á eftir: Ríkisstjórnin hefur ákveðið að auka niðurgreiðslur til þess að vega upp á móti ýmsum verð- hækkunum, sem orJðið hafa á síð- astliðnum þremur mánuðum eða verðlagsnefnd hefur nú þegar samþykkt. Þessar niðurgreiðslur munu taka gildi 24. október nk. Rjúpnaskyttur villtust ALLTÍTT er að menn fari á rjúpnaveiðar, án þess að hafa með sér nauðsynlegan öryggis búnað, og villist. Síðari hluta dags í gær kom ein rjúpna- skytta til ábúandans í Miðdal, og bað hann að hafa samband við lögregluna, þar sem tveir félagar hans, sem voru á veið- um með honum, voru ekki komnir fram. Um kl. 8 í gær- kvöldi, þegar það átti að fara að kalla leitarflokka út, skil- uðu mennirnir sér heilu og höldnu, en þeir höfðu þá villzt á heiðinni fyrir ofan Miðdal. Voru þeir án áttavita og landa bréfs. IMámskeið fyrir rjúpnaskyttur HJÁLPARSVEIT skáta i Reykjavík heldur í þessari viku námskeið fyrir almenning í með ferð áttavita og landabréfa. Eru þessi námskeið fyrst og fremst ætluð fyrir rjúpnaskyttur, enda hefur það komið fyrir hvað eft- ir annað að rjúpnaskyttur hafi vilizt, þar sem þeir hafa verið án kompás eða landabréfa. Námskeiðin munu standa mið vikudags- og föstudagskvöld í Iðnskólanum. Eru væntanlegir þátttakendur beðnir að láta skrá sig í Skátabúðinni, sími 12045, á miðvikudag. Þar sem þátttak- endafjöldinn er takmarkaður, eru þeir sem hafa áhuga á að sækja námskeiðið beðnir að láta skrá sig sem fyrst á mið- vikudag. En aðstoð okkar við þróunar- löndin á ekki fyrst og fremst að byggjast á fjársöfnunum hér á landi til ákveðinna takmarkaðra verkefna. Við höfum yfir að búa tæknikunnáttu á ákveðnum sviðum, sem vafalaust getur komið mörgum þróunarlandanna að góðu gagni og raunar hafa íslenzkir sérfræðingar þegar ver ið fengnir til ýmissa starfa á vegum stofnana Sameinuðu þjóð anna í þessum löndum. Það mundi hins vegar verða okkur sjálfum til lærdóms og gagns, ef íslenzkir sérfræðingar og ungt fólk hér á landi hefði tækifæri til þess að fara til þróunarland- anna, vinna þar nokkra hríð að málum fólksins í þeim löndum og öðlast þar með mikilvæga þekkingu og reynslu á málefnum þessa fólks, sem örugglega mun hafa þörf á mikilli og vaxandi aðstoð velmegunarþjóðanna á komandi áratugum. Meðan millj ónir manna búa við sárustu neyð í öðrum heimshlutum, geta vel- megunarþjóðirnar á norðurhveli jarðar ekki unað sælar við sitt og það er vissulega tími til kom- inn, að íslendingar taki aukin og vaxandi þátt í aðstoð við þessar þjóðir, ekki aðeins þeirra vegna heldur okkar sjálfra líka. Erfið verkefni Hinar nýfrjálsu þjóðir Afríku, Asíu og Rómönsku Ameríku eiga við að etja gífurleg vandamál, sem Evrópubúar eiga erfitt með að gera sér grein fyrir. Þau vandamál verða ekki leyst á stuttum tíma, sem verður ljóst af þvi, að þær eiga ógert margt af því, sem Evrópuþjóðir hafa byggt upp á öldum. Vandamál þessara ríkja verða heldur ekki leyst með því að leggja þeim til mikla fjármuni. Vandamál þeirra byggjast fyrst og fremst á þekkingarleysi fólksins, ólæsi, fordómum af trúarlegum ástæð- um o.s.frv. Stórátak á þessu sviði er grundvöllur allra fram- fara í þróunarlöndunum. Þau eiga líka við að etja ótryggt stjórnarfar, þar sem leitast er við að sameina undir einni stjórn þúsundir mismunandi þjóðarbrota, sem eiga ekkert sameiginlegt nema nafnið. Hin- ar tiðu stjórnarbyltingar í þess- um löndum bera þessu glöggt vitni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.