Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 10
!0 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 25. okt^ 1966 HÁSKÚLAHÁTÍÐIN 1966 HASKÓLAHÁTÍÐIN fór fram sl. laugardag. Á hátíðinni flutti rektor, Ármann Snævarr að vanda ræðu og- ræddi um starf- semi Háskólans á liðnum vetri, svo og ráðgerðar breytingar í vetur. Að ræðu rektors lokinni lék strengjahljómsveit undir stjórn Björns ólafssonar, en að svo búnu var prófessar Sigurður Nordal sæmdur nafnbótinni dokt or litterarum islandicarum. Rektor get m.a. þess í ræðu sinni, að stofnað hefði verið sendikennarastarf í rússnesku við Háskólann og hafi fyrsti maður- inn, sem gegndi því embætti kom ið til landsins fyrir skömmu. Er það Vladimir Alexandrovich Milovidov og mun hann hefja rússneskunámskeið við Háskól- ann einhvern næstu daga. Rektor sagði, að það væri mikill styrk- ur fyrir Háskólann, að geta boðið upp á kennslu í þessu tungumáli, en rússneska sagði hann, að væri þýðingarmikið tungumál fyrir vísindamenn, ekki sízt í raun- vísindum. Rektor gat þess, að mikil nauð syn væri nú á, að stofnuð verði raunvísindadeild við Háskólann, og í því sambandi ætti einnig að gefa gaum að, hvort ekki væri tímabært að stofna til kennslu í landbúnaðarvísindum. Visinda- deildin mundi þá væntanlega ná yfir núverandi verkfræðideild, sem rætt hefur verið að undan- förnu að stækka að starfssviði. Síðan sagði rektor: nHver há- skólí nú á dögum hlýtur að telja það meginmarkmið sitt að efla kennslu og rannsóknir í raunvís- indum og er vonandi að stofnun vísindadeildar hér við Háskól- ann sé skammt undan“. Kvaðst hann og vona, að næsta haust geti hafizt kennsla í náttúruvís indum. Fyrir tilstuðlan Háskólaráðs hefur Erfðafræðinefnd Háskól- sms fengið fastan grundvöll. Verk efni nefndarinnar er að veita forstöðu rannsóknum í mann- erfðafræði. Hér er um merkilegt rannsóknarefni að ræða, énda er rannsóknaraðstaða í þessari grein um margt einstæð hér á landi. Bandaríska kjarnorku- nefndin hefur veitt styrk til þess ara rannsókna og hefur nú heitið viðbótarstyrk til þess að efla þessar rannsóknir. Hefur Há- skólaráð sett reglur fyrir þessa nefnd, sem rektor kvaðst vona, að yrði upphaf að háskólastofn- un. Formaður nefndarinnar er prófessor ólafur Bjarnason. f>akk aði rektor Hagstofu íslands veitta aðstoð, en hagstofustjóri er einn nefndarmanna í Erfða- fræðinefndinni. Rektor gat þess að í september s.l. hefði verið skipuð nefnd til að semja áætlun að eflingu há- skólans næstu 20 ár. Formaður nefndarinnar er Jónas Haralz, forstjóri Efnahagsstofnunarinnar. Mikið verkefni bíður þessarar nefndar, en hlutverk nefndar- innar er að semja tillögur og álitsgerðir um starfssvið Háskól ans og byggingaframkvæmdir og gera grein fyrir því fé, sem til Háskólans þarf næstu áratugina miðað við þá stórkostlegu eflingu Háskólans sem í vændum hlýtur að vera. Kvað hann hér vera um að ræða áætlanagerð til aka- demiskrar starfsemi, eins og tíðkast hefði víða erlendis. Mikils virði væri að veitt yrði fjármagn til starfsemi nefndarinnar svo að unnt yrði að ráða nefndinni starfsmann. Náðst hefur samstarf við fimm norræna tannlæknaháskóla um að Háskóli íslands sendi tann læknanema, sem lokið hefðu fyrri hluta prófi við tannlækna- deildina, til framhaldsnáms. Eru háskólarnir Kaupmannahafnarhá skóli, Árósarháskóli, Uneáhá skóli, Stokkhólmsháskóli og Oslóarháskóli veita einum stúd- ént á ári námsvist við skólana. Kvaðst rektor þakklátur forráða mönnum þessara skóla fyrir góð an skilning á vandamálum Há- skóla íslands. Hefur þessi lausn skapað Háskólanum aðstöðu til að veita 20 nýjum stúdentum við töku frá stúdentaárgöngunum 1965 og ’66. Jafnframt sagði rektor, að unnið yrði að lausn vandamála tannlæknadeildarinn- ar til frambúðar. Rektor kvað því miður ekki hafa verið unnt að hefja bygg- ingaframkvæmdir við Handrita- stofnunina svo sem vonir stóðu til að gert yrði á'þessu ári. Lagt verður hins vegar kapp á að >ær geti hafizt n.k. vor um leið og gerlegt er vegna veðráttu. Kvað hann byggingarnefnd hafa unnið mikið starf undir forystu Jóhannesar Nordals bankastjóra. Ármann Snævarr, rektor gat Dess, að á þessu hausti yrði lið- inn aldarfjörðungur frá því er kennsla hófst í viðskiptafræðum við Háskólann. Undanfari þeirr- ar kennslu við Viðskiptaháskóli íslands, sem stofnaður var 1938 og starfaði í þrjú ár .Rektor kvað viðskiptafræðikennsluna við Háskólann hafa gegnt miklu hlutverki. Takmark kennslunnar hefði einkum verið að veita mönnum, sem búast til starfa í þágu viðskiptalífs og athafnalífs haldgóðan undirbúning. Kennsl- an í deildinni hefur bæði horft til hinnar . praktísku eða raun- hæfu þátta viðskiptafræðinnar, en einnig að ýmsum hreinfræði- legum viðfangsefnum. Síðan sagði rektor: „Ég hygg að það sé samdóma álit manna, sem til þekkja, að deildinni hafi tekizt vel að tengja samán þessa tvo þætti. Vissulega hafa kandídatar deildarinnar verið eftirsóttir til starfa og komizt vel áfram. Hef ur deildin nú brautskráð alls 197 kandidata". í haust eru liðin 90’ ár frá því er Læknaskólinn, undanfari læknadeildar tók til starfa. Stóð að skólanum Jón Hjaltalín, land- læknir lengstum af einn, en síðar með aðstoðarmönnum. Eru nú brátt liðin 100 ár síðan Jón Hjaltalín brautskráði fyrsta nem anda sinn, en hann kenndi mönn Armann Snævarr. um læknisfræði fyrir stofnun skólans. Sagði rektor, að starf Jóns væri akademiskt stórvirki, sem ekki mætti gleymast. Rektor gat þess að alls hefðu 15 fyrirlesarar frá 9 þjóðlönd- um haldið fyrirlestra á vegum Háskólans á s.l. starfsári. Eru þá ekki meðtaldir fjöldi fyrirlesara, sem haldið hafa fyrirlestra á ráð stefnum, sem haldnar hafa verið I Háskólanum. AS undanförnum áu:um hefur verið veitt af ríkisfé fjármagni til heimboða ýmissa fyrirlesara. Rektor kveðst geta þess í þessu sambandi með þökk, að Evrópuráðið hefur nú í fyrsta skipti styrkt Háskólann til þess að bjóða erlendum fræðimönn- um til fyrirlestrahalds. Rektor sagði að nýskráðir stúdentar væru 342 og skiptast þeir svo í deildir: í guðfræði- 2, í læknisfræði 68, í tannteekn- ingum 11, í lyfjafræði lyfsala 5, í lögfræði 43, í viðskiptafræði 31, í heimskepideild 145, þar af 90 í BA-námi, 29 í forspjallsvísind um eingöngu og 16 í íslenzku fyrir erlenda stúdenta, í verk- fræði 30, og í BA-námi í verk- fræðideild 7. Síðan sagði rektor: „Á háskólahátíðum undanfar- in ár hef ég leyft mér marg- sinnis að víkja að áhugamálum um eflingu Háskólans, bæði um þær greinir, sem nú er fengizt við og svo aukið starfssvið Há- skólans. Ég hefi reynt að sýna fram á, að öll háskólakennsla hlýtur að hafa rannsóknarað- stöðu að bakhjarii — ef ekki tengjast saman kennsla og rann- sóknir er ekki fullnægt kröfum og þörfum akademísks starfs. Rannsóknaraðstaða skapast ekki, fyrr en fullnægjandi vísindaleg- um bókakosti er til að dreifa, tækjum og húsnæði til rann- sóknar, ásamt starfsliði til að- stoðar, eftir atvikum. Vér vitum öll, að í þessum efnum er mörgu ábótavant hér við Háskólann og vér Háskól- ans menn hljótum að segja þjóð vorri eins og er, að hér vantar fjölmargt til þess að aðstaða til rannsókna megi teljast viðslít' andi. íslendingar eiga því láni að fagna að eiga fjölda vel mennt- aðra sérfræðinga á flestum þeim sviðum, sem til greina kemur að fást við hér í Háskólanum. Ég held ekki, að neinn geti með sanngirni haldið því fram, að skortur sé á hugmyndum og til- lögum frá hendi Háskólans manna um eflingu Háskólans. Islendingar skulu vera hæsti- réttur í sínum þjóölegu fræöum — sagði Sigurður Nordal við doktorskjörið sl. laugardag Á HÁSKÓLAHÁTÍÐINNI á laugardaginn var prófessor Sigurður Nordal gerður að heiðursdoktor' með titlinum doktor litterarum islandicar- um, en sá titill er einungis veittur í sérstökum tilvikum og er ekki unnt að afla hans með doktorsprófi. Titillinn er einungis veittur fyrir frábær afrek á sviði íslenzkra fræða. Dr. Haildór Halldórsson próf- essor, deildarforseti heim- spekideildar afhenti dr. Sig- urði Nordal tftilinn og þakk- aði Sigurður með nokkrum orðum. Dr. Halldór lét þess getið, að deildin rökstyddi ekki þessar gerðir sínar, þar eð hún teldi slíkt óþarft, öll- um væri ljóst hvílíkur afreks maður Sigurður væri á sviöi íslenzkra fræða. Þakkarorð dr. Sigurðar Nordals voru svohljóðandi: „Herra forseti íslands, virðulega samkoma, herra rektor, herra deildarforseti. Mér er bæði skylt og ljúft að tjá Háskóla íslands þakk- læti mitt fyrir þann sóma, sem mér hefur nú verið sýnd ur og forseta heimskepideild- ar fyrir ummæli hans í minn garð. En ég vil líka, hvað sem mínum eigin verðleikum ‘kann að líða, láta í ljós ánægju mína yfir því, að þessi nafnbót hefur nú aftur verið veitt eftir 28 ára hlé. Til hennar var upphaflega stofnað, eins og deildarforseti tók fram, í sérstöku heiðurs- skini við Björn Magnússon Ólsen, og ég tel það ræktar- semi við minningu hans að láta hana ekki falla I gleymsku. Sjálfur á ég Birni Ólsen ekki einungis margt og mikið upp að ynna sem kenn- ara og fræðimánni, heldur líka þá virðingu, sem mér hefur hlotnazt mest um dag- ana, þegar hann réð því um leið og hann sjálfur lét af embætti, að mér var án um- sóknar af minni hálfu boðið að verða eftirmaður hans a kennarastóli. Þá get ég ekki látið hjá líða við þetta tækifæri að nefna einn mann meðal allra Það er hins vegar fjárskorturinn, sem hefur orðið ærinn fjötur um fót, sérstaklega um byggingar- framkvæmdir og öflun bóka- kosts. Margt hefur áunnizt á síð- ustu árum, einkum um mikla fjölgun starfsmanna og eflingu bókasafns, og vil ég þakka ríkis- stjórn og Alþingi góðan stuðning við skólann. Fjárframlög til Há- skólans á fjárlagafrumvarpinu nýja hafa hækkað um það bil 50% frá fyrra ári, og tel ég öruggt, að slík hækkun sé eins- dæmi í sögu Háskólans. Er þetta stórum þakkarvert. Á næstunni verða samdar víð- tækar framkvæmdaáætlanir fyr- ir Háskólann til alllangs tíma, eftir rækilega könnun á þeim stefnumörkum, sem setja á Há- skólanum í framtíðarstarfi. Þeg- ar þær áætlanir hafa verið samd ar, mun það ásannazt, sem for- ráðamenn Háskólans hafa sagt íslenzkri þjóð árum saman, að happdrættisfé — svo gott sem það er, — verður aðeins hluti af því fjármagni, sem Háskólinn þarf á að halda næstu ár og ára- tugi til byggingarstarfsemi sinn- ar. Skilningur á þörfum Háskól- ans og gildi rannsókna hefur aldrei verið jafn mikil sem nú hjá stjórnarvöldum, löggjafar- þingi og almenningi. Sá skilning- ur er mikilvægur og örvandi og veitir okkur Háskólans mönnum tilefni til að horfa fram á veg- inn af nokkurri bjartsýni. Kennslutilhögun í háskólum i Evrópu, ekki sízt á Norðurlönd- um og Þýzkalandi, er reist á þeirri hugsun, að háskólanám sé að verulegustu leyti sjálfsnám og að þroskavænlegast sé fyrir stúdenta að njóta mikils frjáls- ræðis í námi sínu. A síðustu áratugum hefur að vísu verið vik ið frá þessu, þ.á.m. með því að setja því hömlur, hve löngum tíma menn geti varið til að skila einstökum hlutum námsins. Ann að auðkenni á háskólanámi síð- ustu áratuga er það, að kennslu- tilhögun hefur verið að miklu leyti með sama hætti fyrir alla þá, sem stundað hafa nám I Framhalds á bls. 14 þeirra nafna, sem í hugann leita, jafnaldra minna og sam kennara um mörg ár og holl- vin alla tíð, Pál Eggert Óla- son. Mér hefur lengi fundizt, að þessari nafnbót hefði ver- ið það vegsauki, að hann hefði borið hana eins og vafa laust hefði orðið, ef hann hefði náð nógu hárri elli. Páll Eggert Ólason var sá afreksmaður að hverju sem hann gekk, að fáir fæðast slík ir og íslenzk fræði munu njóta handtaka hans um lang an aldur. Við doktorskjör Björns M. Ólsens 17. júní 1918 mælti þáverandi forseti heimspeki- deildar, Guðmundur Finn- bogason m.a. á þessa leið: „Vér eigum að kosta kapps um, að Háskóli íslands verði hvervetna talinn æðstur dóm- stóll í íslenzkum fræðum og viðurkennur hans hæstur Framhald á bls 25 Frá vinstri: Háskólarektor, próf.' Halldór Halldórsson, deildarforseU og Dr. Sigurður Nordal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.