Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 25. olct. 1966
MORGUNBLADIÐ
31
Þátttakendur í Manillaráðstefnunni. Efri röð frá vinstri: E. B. Johnson, Bandaríkin, F. E. Marcos, Fiiippseyjar, Chung Hee
Park, Kórea og Harold Holt, Ástralía. Neðri röð: Nguyen Van Xhieu og Ky, S-Vietnam, Keith Holyoake Nýja Sjalandi og
Thanom Kittikachorn, Xhaila nd.
— Manila
Framh. af bls. 1
granna sína, munu vinir þessara
nágranna vera til staðar og veita
þeim hjálp“. Forsetinn sagðist
hafa fundið einlæga samstöðu
<um nauðsyn þess að hrekja árás-
aröflin burt frá Víetnam.
Johnson tók síðastur fundar-
Jnanna til máls og sagði í ræðu
Binni að hann væri þess fullviss
eð samstaða og staðfesta Banda-
manna í Víetnam myndi að lok-
um lefða til friðar, annaðhvort
með samningum eða að kommún-
istar myndu ákveða að hætta
árásaraðgerðum. Hann lét í ljós
hryggð yfir að einn styrjaldar-
eðila skyldi ekki vera viðstadd-
ur og átti hann þar bersýnilega
við N-Víetnam.
Marcos forseti sagði í setning-
erræðu sinni, að ráðstefnan væri
ekki aðeins komin til að ræða um
írfð í Víetnam, heldur einnig til
að fjalla um aldagömul vanda-
mál Asíu: hungur, fáfræði og
Kjúkdóma. „Leiðtogar 7 þjóða
hafa komið hingað til að leggja
grundvöll að lausn vandamála
Asíuþjóða".
Ky forsætisráðherra sagði: „Á-
standið í Víetnam í dag gefur til
kynna æ meiri nauðsyn einingar
og samstarfs til þess að vernda
frelsi og stöðva sókn kommún-
ista. Þar til sá dagur rennur upp,
eð kommúnistar hætta árásarað-
gerðum verður áð halda vörn
áfram og styrkja hana“.
Hee, forseti S-Kóreu, sagði:
j,Ég vil gera það ljóst, að við get-
um ekki setzt að samningaborði
með fulltrúum hinnar ólöglegu
hermdarverkahreyfingu, svoköll-
uðu Þjóðfrelsishreyfingu". Sagði
hann að leysa yrði upp „pólitísk-
en“ arm Víet Cong og stjórnin í
N-Víetnam yrði að láta af stuðn-
jngi við hreyfinguna.
Tóku hinir leiðtogarnir mjög í
sama streng í ræðum sínum.
Allhörð átök urðu í Manila, er
stúdentar fóru um götur höfuð-
borgarinnar í mótmælagöngu.
Höfðu stúdentarnir búizt við að
6000 manns tækju þátt í göng-
unni, en þeir urðu aðeins 2000.
Átökin áttu sér stað fyrir framan
hótelið sem Johnson forseti býr
Kópavogur
FULLXRÚARÁÐSFUNDUR
Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
verður haldinn í kvöld í Sjálf-
stæðishúsinu í Kópavogi kl. 8.30.
Frummælandi um bæjarmálin
verður Axel Jónsson, alþingis
maður.
í og höfðu stúdentamir uppi mót-
mælaspjöld gegn stefnu Banda-
ríkjamanna í Víetnam.
Johnson forseti lét þessar að-
gerðir lítið á sig fá og sagði að
þeir sem vildu mótmæla stríðinu
Víetnam hefðu ekki komið á
réttan stað, þeir ættu að fara til
Hanoi.
— Njósnari
Framhald af bls. 1
Kóreu, er N-Kóreumenn her-
tóku borgina árið 1950. Hann
var síðar sendur til V-Berlínar,
þar sem hann gerðist gagnnjósn-
ari í aðalstöðvum brezka hers-
s í borginni og sá sovézku
leyniþjónustunni fyrir upplýsing
um. Réttarhöldin yfir Blake
urðu tíl þess að gera varð mikl-
ar breytingar á leyniþjónustu
Breta og svo mikilvæg voru rétt
arhöldin talin fyrir öryggi lands
ins, að þau voru haldin fyrir
luktum dyrum. Blake viður-
kenndi sök sína.
Flótti Blakes hefur vakið
mikinn styrr í Bretlandi og kraí
izt hefur verið að ríkisstjórnin
gefi skýringu á málinu. Duncan
Sandys, þingmaður íhaldsflokks
ins, krafðist rannsóknar á öryg'g
isreglum í brezkum fangelsum
og sagði um brezka innanríkis-
ráðherrann Roy Jenkins, að
hann ætti að leggja minni
áherzlu á sálfræðilega meðferð
fanganna en reyna heldur að
halda þeim innan fangelsisveggj
anna.
Meðan umræður um málið
fóru fram í Neðri málstofunni,
tókst þrem föngum að sleppa úr
öðru Lundúnafangelsi og kom-
ust þeir allir undan lögreglunni.
Miklar umræður urðu um
brezk fangelsi, er tveim af höfuð
paurum póstránsins mikla, tókst
að flýja úr fangelsi. Lýsti brezka
stjórnin því yfir í dag, að skip-
uð yrði nefnd til að gera til
lögur um aukið öryggi í brezk
um fangelsum.
— Banaslys
Framhald af bls. 32
Ber frásögn ökumanns vörubif
reiðarinnar saman við frásögn
konu, sem kom akandi um 50 m
á eftir Volkswagenbifreiðinni og
rannsóknarlögreglan náði tali af
í gær. Hún telur Volkswagen-
bifreiðina hafa ekið á um 30 km
hraða og alveg eðlilega, þar til
hún veitir því skyndilega at-
hygli að bifreiðin beygir hægt
inn á hægri akrein, og skall á
Volkswagenbifreiðin beygði, hafi
verið að ökumaður hennar hafi
fengið aðsvif við stýrið.
Strax eftir áreksturinn hljóp
ökumaður vörubifreiðarinnar inn
í slökkvistöðina og gerði aðvart.
Kom sjúkrabifreið mjög brátt á
vettvang, og flutti hina slösuðu
í Slysavarðstofuna. En eins og
áður segir var Þóra látin er
þangað kom og Jóhann lézt
skömmu síðar. Barnabörn þeirra
sluppu hins vegar lítt meidd.
— Skipting
Frámhald af bls. 8
vopn á milli þeirra ríkja At-
lantshafsbandalagsins, sem réðu
yfir kjarnorkuvopnum og hinna
meðlimaríkjanna, sem hefðu
ekki slík vopn.
Sendiherrann var m.a. enn-
fremur spurður að þvi hvort
samningur, sem Bandaríkin og
Sovétríkin kynnu að gera sín
á milli um að láta ekki öðrum
ríkjum í té kjarnorkuvopn,
myndi hafa nokkur gagnger áhrif
á Atlantshafsbandalagið. Cleve-
land sagðist ekki vera þeirrar
skoðunar, en slíkur samningur
myndi án efa skapa miklu betra
andrúmsloft á milli austurs og
vesturs.
— Ryskingar
Framhald af bls. 32.
tíu daga útivist.
í gærkvöldi var haldinn hér
dansleikur, eins og jafnan er,
þegar mörg skip eru í höfn. Fjöl
menntu þýzku togaramennirnir
á dansleikinn, og eins enskir
sjómenn á enskum togurum,
sem hér liggja inni. Er leið á
dansleikinn dró til tíðinda, og
um tíma ríkti algjört hernað-
arástand í danshúsinu, þar sem
Englendingarnir og Þjóðverjarn
ir slógust sem í orustu væru, og
lágu margir óvígir, er bardaga
lauk, en lögreglunni tókst að
síðustu að skakka leikinn og
koma á friði. Engir voru stór-
slasaðir eftir slagsmálin.
Lögreglan hér á Norðfirði er
alltof fámenn, og á í vök að
verjast þegar svona stendur á.
Þyrftu að vera hér a.m.k. sex
lögregluþjónar, en nú er hér
aðeins einn fastur lögregluþjónn.
— Ásgeir.
Síríus náðist út
EINS og skýrt var frá í Mbl.
slitnaði togarinn Síríus, sem leg-
ið hefur um nokkurt skeið á
Sundunum, upp á laugardaginn,
og rak upp í fjöru við skammt
frá Vatnagörðum. Hafnsögu-
menn fóru á vettvang með lóðs-
báta sína, og tókst þeim mjög
fljótlega að ná honum út aft-
ur. Ekki virtust milar skemmd-
ir vera á honum eftir strandið,
en farið var með hann inn í
Reykjavíkurhöfn, þar sem
skemmdir verða kannaðar nán-
ar.
Á hinn bóginn hefur komið
í ljós, að unnin hafa verið mikil
skemmdarverk á skipinu, þar
sem það hefur legið, og hefur
ýmis dýr útbúnaður verið
skemmdur.
— Gibraltar
Framhald af bls. 1
brezku flugvélarnar hafi 15 sinn
um brotið lofthelgi Spánar frá
því í júlí s.l., og fara Spánverjar
því fram á að flugvélunum verði
meinuð afnot af flugvellinum í
Gíbraltar.
Bretar neituðu þessum tilmæl-
um, og báru á móti því að loft-
helgi Spánar hafi verið rofin.
Segja þeir að á umræddu tíma-
bili sé aðeins vitað um eina
brezka flugvél, sem flogið hafi
inn í lofthelgi Spánar, en hugs-
anlegt sé að það hafi gerzt með
tvær aðrar vélar. Hinsvegar hafi
þetta verið óviljaverk, sem Bret-
ar vilji biðjast afsökunar á.
Lokun akbrautanna milli Spán-
ar og Gíbraltar heiur sérstaka
erfiðleika í for með sér fyrir þá
sjö þúsund Spánverja, sem
starfa í Gíbraltar. Verða þeir nú
að ganga tveggja kílómetra leið
yfir eiðið til vinnu sinnar frá
bænum La Linea. Einriig kem-
ur þetta hart niður á ferða-
mönnum ,því margir þeirra hafa
komið sjóleiðis til Gíbraltar með
bifreiðir sínar, og farið akandi
þaðan norður á bóginn. íbúar
Gíbraltar, sem eru m 25 þúsund,
þar af 2.500 brezkir hermenn,
eru einnig vanir að bregða sér
norður eftir til Spánnar í frí-
stundum, en fá það nú ekki
lengur.
Varðandi vistaflutning til Gí-
braltar ættu þessar nýju aðgerð-
ir ekki að hafa mikil áhrif, því
Bretar hafa dergið mjög úr
verzlun sinni við Spán, og
flytja í sí-auknum mæli vörur
til Gíbraltar frá öðrum löndum,
aðallega Portúgal Hollandi og
Marokkó. Sem dæmi má neína
að í sumar voru fluttar inn 41
milljón lestir af drykkjarvatni
frá Hollandi. f haust hefur hins-
vegar verið mikið um úrkomu
og því nægar vatnsbirgðir fyrir
hendi.
EKIÐ var á rauðjarpskjóttan
hest á Reykjanesbraut um helg-
ina um 1 km fyrir norðan Voga-
afleggjarann. Bi'ður lögreglan eig
anda hestsins að gefa sig fram,
en bitið er annað brugðið fram-
an hægra eða bitið framan hægra.
Hesturinn var í fylgd með öðr-
um hesti steingráum að lit.
— Ræddu
Framhald af bls. 1
herrarnir að m ili i stjórnarráð-
inu í Stokkhólmi og ræddu eink-
um málefni Norðurlanda. Bertil
prins, elzti sonum Gústafs kon-
ungs Adolfs og staðgengill föður
síns í fjarveru hans, bauð til há-
degisverðar og síðan heimsótti
forsætisráðherra Gunnar Lange,
viðskiptamálaráðherra. Á mánu-
aagskvöld hélt sænska ríkis-
stjórnin forsætisráðherrahjónun-
um veizlu í utanríkisráðuneytinu
og var Erlander forsætisráðherra
gestgjafi, en gestir nokkuð á
annað 'hundrað.
Manilla, 24. okt. NTB.
27 MANNS biðu bana er tvö
skip rákúst á skammt fyrir utan
Manila. Var annað lítið skip sem
annast ferðir milli eyja á Filipps
vörubifreiðinni. Telja menn senni I eyjum, hitt stórt bandarískt flutn
legast, að ástæðan fyrir því að ingaskip.
Getum bætt við okkur
smíði á eldhúsinnréttingum. Sími 51155.
Veitingastofa
eða húsnæði fyrir veitingastofu óskast. Tilboð send-
ist afgreiðslu Morgunblaðsins, merkt: „Fjárráð —
9913“ sem fyrst.
Innilega þakka ég vinum og vandamönnum, fjær og
nær, sem glöddu mig á 75 ára afmæli mínu 20. þ.m. með.
blómum, heillaskeytum og gjöfum. Og skáldunum fyrir
kvæðin, þeim Angantý Jónssyni, Grindavík og Braga
Jónssyni frá Hoftúnum og öllum hinum, sem gerðu mér
daginn ógleymanlegan. Ég bið góðan guð að blessa öll
ykkar ófarin æviár. — Lifið heil.
Jón Bjarnason,
Vesturgötu 105, Akranesi.