Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins Hörmulegt slys um hefgina: Eldri hjón biðu bana í HÖRMCLEGT bifreiðaslys varð á Reykjanesbraut skammt neðan við slökkvistöðina nýju, um kl. 18,30 s.l. sunnudag, en þar létust eldri hjón í bifreiðaárekstri. Var konan látin áður en komið var í Slysavarðstofuna en maðurinn lézt skömmu síðar í Landsspítal- anum. Hjónin hétu Jóhann Fr. Guðmundsson, 67 ára að aldri, og Þóra A. Jónsdóttir 71 árs að aldri, til heimilis að Eski- hlíð 10 A. Slysið varð þannig, að Volks- waegn-bifreiðin R-17440, sem hjónin voru í, ásamt dóttursyni og sonardóttur sinni, var á leið bílslysi suður Reykjanesbraut, en á móti kemur vörubifreiðin R-411. Samkvæmt frásögn ökumanns vörubifreiðarinnar, ekur hann með um 45 km. hraða, og telur hann sig vera vel út á vinstri j vegabrún. En er hann sér Volkswagenbifreiðina koma á ! á móti sér, veitir hann því strax athygli að hún er óeðlilega mik- ið út á hægri vegarbrún. Hemlar hann þá þegar, og telur sig vera stöðvaðan eða alveg um það bil að stöðvast, er Volkswagen-bif- reið/n skellur á sig. Framhald á bls. 31 Myndin er tekin skömmu eftir áreksturinn. Stfómarfrv. um áfengismál: WMÍMMM Þóra A. Jónsdóttir og Jóhann Fr. Guðmundsson. Veitingahúsin skiptist á um vínveitingaiaus laugardagskvöid FRAM er komið á Alþingi stjórn arfrumvarp um breytingu á áfengislögunum og er m.a. gert ráð fyrir því, að þau veitinga- hús, sem vínveitingaieyfi hafa, skuli halda uppi fullkominni þjónustu án vinveitinga a.m.k. eitt laugardagskvöld af hverjum fjórum eftir kl. 8 síðdegis. Þá eru ýmis sektarákvæði áfengis- laganna hækkuð og í greinar- Um 2000 manns skoðuðu Skarðsbók á sunnudaginn SÍÐASTA skinnbók, sem fs- lendingar áttu, Skarðsbók, liggur nú frammi almenningi til sýnis í fordyri Þjóðminja- safnsins. Bókin, sem er eitt fegursta handrit, sem skráð er á íslenzka tungu er geymd í glerkassa og hjá henni er rakamælir, svo unnt sé að fylgjast með rakastiginu í kassanum. Samkvæmt upplýs- ingum, sem gefnar eru við kassann hafa 48 kálfskinn farið í bókina. Við safngest- inum blasa síður 40 og 41, með fagurlega dregnum upp- hafsstaf og glæsilegri rithönd. Er fréttamaður Mbl. kom í Þjóðminjasafnið í gær var þar staddur prófessor Einar Ólaf- ur Sveinsson, sem las máls- grein úr bókinni fyrir áhuga- sömum safngestum, úr sögu tveggja postula Jóns og Ja- kobs. Prófessorinn tjáði fréttamanni blaðsins, að um 2000 manns hafi komið til að sjá bókina frá því á hádegi á sunnudag og fram til lok- unartíma safnsins kl. 9.30. Prófessorinn áleit, að bókin yrði til sýnis fram á laugar- dagskvöld, en þá verður hún flutt á Landsbókasafnið og þaðan væntanlega á Handrita stofnunina. Nokkrir safngcstir skoða Skarðsbók. gerð þingmannanefndarinnar, sem samdi frumvarpið eru ýmsar Féll niður i gryfju f GÆRDAG varð slys i Kassa- gerðinni. Þar var verið að vinna við affermingu á pappírsrúllum á bifreið. Stóðu mennirnir, sem að þessu unnu, upp á sérstökum vinnupalli, en fyrir ne'ðan þá var gryfja um 1.20 m að dýpt. Fékk þá einn mannanna, sem að af- fermingu vann, aðsvif, og féll niður í gryfjuna. Var hann flutt- ur í Slysavarðstofuna, en ekki tókst Mbl. að afla sér upplýsinga um meiðsli hans. ábendingar til úrbóta, sem ekki eru löggjafaratriði. Frv. þetta er samið af þing- mannanefnd, sem kjörin var af Alþingi skv. þingsályktunartil* lögu, sem samþykkt var 1964. Þá lá fyrir Alþingi stjórnarfrv. um breytingu á áfengislögunum, sem ekki varð útrætt og m.a. vegna þess, að ekki varð samstaða um afgreiðslu þess var nefnd þess kosin. Frv. fylgir greinargerð og fjölmörg fylgiskjöl og álitsgerð- ýmissa aðila um áfengismálin. Ábendingar nefndarinnar eru 1 8 liðum: Efnt verði til víðtækra vísindalegra áfengismálarann- sókna hér á landi, bæði félags- Framhald á bls. 31 Þýzkir og brezkir sjc- menn í rykskingum Neskaupstað, 24. okt. UNDANFARNA daga hafa verið hér óvenjulega mörg flutninga- skip, ýmist að lesta síldarfarm eða losa vörur. Hafa þau stund- um komið sex saman á dag. Hefur því verið þröngt á þingi hér í höfninni, því að auki hafa legið hér um 40 síldarbátar vegna brælunnar á miðunum. 1 gær komu hingað þrír þýzkir verksmiðjutogarar til þess að fá vatn. Þessir togarar hafa verið á síldveiðum út af Austfjörðum, og veiða þeir með síldartrolli. ! Veit ég að einn þeirra var með 80 tonn af síldarflökum eftir Framhald á bls. 31 53195 kr. á Akra- nesi FLÓTTAMANNASÖFNUNIN Akranesi gekk mjög vel. — Alls söfnuðust 53,195 kr. Það voru nemendur Gagnfræða- skólans á Akranesi sem önn- úðust söfnunina undir stjórn skáta. Alvarlegt slys í Þorlákshöfn ALVARLEGT slys varð í Þor- lákshöfn sl. laugardag. Þar var verið að vinna að því að skipa steypujárni úr skipi, og voru þau flutt upp fyrir höfnina á stórum vögnum, og tekið af með stórum krana. Vildi þá það óhapp til að kran- inn missti eitt búntið af steypu- járninu, en það er um eitt tonn á þyngd, og féll það niður á einn verkamanninn, Ný-Sjálending. Var hann fluttur í Slysavarðstof- una og síðan í Dandsspítalann, og er talið að hann sé mjaðmagrindr arbrotinn og kinnbeinsbrotimv.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.