Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 25. okt. 1968 M0RCUN2LADID 13 . Juckie Coogan leik- ur á Broadway a Margir muna eflaust eftir Jackie Coogan, sem fyrst skaut upp kollinum í kvikmyndaheim inum lítill strákur, sex ára gam eU, í myndinni „The Kid“, sem Charlie Chaplin gerði 1921 og ■varð feikna vinsæl. Margar myndir aðrar — oftast af svip- uðum toga — sigldu í kjölfar „The Kid“ og Jackie Coogan varð eftirlæti kvikmyndahúss- gesta bæði yngri og eldri, fyrsta „barnastjarna“ Bandaríkjanna. En það fór fyrir honum eins og svo mörgum öðrum „barna- Stjörnum" að hann átti nokkuð erfitt uppdráttar eftir að hann komst á fuUorðinsár og sjaldan hefur farið miklum sögum af honum síðan þótt ekki hafi hann legið á liði sinu. Sjálfum telst honum svo til að hann hafi leikið í 35 þöglum kvik- myndum um dagana og 100 myndum sfðar, en auk þess kom ið fram í sjónvarpi 850 sinn- um, nú síðast í þættinum „The Addams Family". En þar með er engan veginn allt talið, því Coogan hefur fengizt við flest það sem nöfn- um tjáir að nefna innan skemmtanaiðnaðarins. Hann lék fyrst á leiksyiði 1937 og hef ur síðan farið viða um Banda- ríkin með ýmsum leikflokkum en aldrei leikið á Broadway ifyrri þótt honum stæði það til boða og borið vfð of lágu kaupi. Einnig hefur hann leikið í fjöl- Qeikahúsum, komið fram á skemmtistö'óum og haldið sjálf- stæðar skemmtanir. „í>að hefur gengið á ýmsu“ segir hann sjálf ur, „en einhvern veginn er það svo að ég hlakka alltaf til þess dag hvern að fara í vinnuna“. Og það er vinna Coogans nú að æfa aðalhlutverkið í nýju leikriti eftir Harry Essex, sem frumsýna á um jólaleytið á Broadway. Leikritið heitir „Fatty“ og fjallar um æfi Roscoe Arbuckle, sem fékk auk nefni sitt af holdafarinu eins og nærri má geta, og var fræg ur gamanleikari er var upp á sitt bezta einmitt um svipa'ð leyti og Jackie Coogan heillaði landa sína í „The Kid“. Jackie Coogan minnist horfinna ára. „Fatty“ Arbuckle lézt 1933 og átti illa ævi siðustu árin, farinn að fé og vinsældum eftir eitt hinna mörgu hneykslismála sem upp komu í Hollywood á þessum árum, dauða ungrar leikkonu sem bar að í lok mik- illar drykkjuveizlu í San Fran- cisco. Arbuckle var leiddur fyr ir rétt og gefið að sök að vera valdur að dauða stúlkunnar en var sýknaður af ákærunni eftir mikil málaferli og enn meiri blaðaskrif um þau. Sýknunin hrökk þó skammt því enginn vildi framar við honum líta sem gamanleikara. Jackie Coog an man vel eftir Arbuckle og kveðst vona að leikritið verði til þess að hreinsa mannorð hans, hann hafi ekki átt skilið útreið þá sem hann fékk forð- um daga. Q — Thoma_ Framhald af bls. 12 hafði lika þýtt. Fyrir nokkru kom út bók eftir John C. Thirlwell, „In another lang- uage“ þar sem segir frá konu þessari og samskiptum hénnar við Thomas Mann, sem alla tíð lét afleitlega að mæla á enska tungu óg var framan af tæp- ast dómbær á ágætr þýðinga frúarinnar. Frú Lowe-Porter var bandarískrar ættar, lengi búsett í Þýzkalandi og fluttist síðan með manni sínum til Ox- ford og þar þýddi hún „Buddeö brooks" Manns 1921 og „Töfra- fjallið“ fimm árum síðar og síðan fleiri bækur Manns. Hún var mikill aðdáandi Manns og áttu þau enda margt sameigin- legt. Þau áttu nokkur bréfa- skipti vegna þýðinganna og Mann þakkar fyrir sig af stakri kurteisi, segir þær unnar mjög trúverðuglega og í alla staði hinar ágætustu. Er Thomas Mann fór til Princeton-háskólæ í Bandaríkjunum ellefu árum eftir Nóbelsver’ðlaunaveiting- una til fyrirlestrahalds var frú Lowe-Porter til fengin að vera honum til aðstoðar og reyna að betrumbæta framburð hans á enskunni, „sem var svo af- leitur að ég átti fullt í fangi með að skilja hann sjáir‘, sagði frúin, „og þekkti ég þó hvort- tvéggju túngumálin og efnið sem um var fjallað“. Er komið var fram undir 1949 • var Thomas Mann tekið að lengja heim til ættlands síns og var hann um stund á báðum áttum um það hvort ‘hann ætti að' fara aftúr helm til Þýzka- lands. En er 'hann gerði sér ljóst að Þýzkaland var ékki léngur samt land og áður, a’ð Hitler og. hörmungar heimsstyrjaldarinn- ar, höfðu gjörbreytt landinu sem hann hafðF fóstrað barn- vmgan, hvarf hann frá þeirri fyrirætlan. Útgeiðormenn og sjómenn Höfum til sölu 40 tonna bát með 240 hesta vél, línu- spil, trollspil, dragnótaspil, dýptarmælir, radar. — Bátur, vél og taeki allt í fyrsta flokks standi.' Báturinn er til afhendingar strax ef óskað er. Austurstræti 12. Sími 14120, heimasími 35259 Ms. Blikur fer vestur um land í hring- ferð 1. nóv. Vörumóttaka á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag til Patreksfjarðar, Sveinseyrar, Bíldudals, Þing- eyrar, Flateyrar, Suðureyrar, Bolungarvíkur, ísafjarðar, — Norðurfjarðar, Djúþavíkur, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, — Akureyrar, Húsavíkur, Kópa- skers, Raufarhafnar og Aust- fjarðahafna. Ms. Baldur fer til Snæfellsness og Breiða fjarðarhafna á fimmtudag. Vörumóttaka á þriðjudag, mið vikudag og fimmtudag. M.s. Herjólíur fer til Vestmannaeyja, — Hornafjarðar og Djúpavogs á miðvikudag. Vörumóttaka á þriðjudag. BÍLAR Taunus 17M, stat. árg. 1963 Moskwitch — 1966 Jaguar — 1961 Trabant — 1966 Peugeot station — 1964 Singer Vogue — 1963 Daf _ 1964 Taunus 17M, stat. — 1963 Saab — 1963 Volvo Amazon — 1963 Commer sendibíll — 1965 Sveinn Egilssnn bf. 60 ára reynsla! GEYSILEG FJÖLGUN SKODABIFREIÐA SANNAR TRAUSTLEIKA ÞEIRRA OG VINSÆLDIR. HAGKVÆMUSTU KAUPIN ERU TVÍ- MziíLALAUST SKODA. ÞRJÁR GERÐIR TIL AFGREIÐSLU MEÐ GREIÐSLUSKILMÁLUM: GLÆSILEG FÓLK SBIFREIÐ 1000MB OG TVÆR STATIONBIFREIÐIR. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ H.F. Vonarstræti 12, sími 21981. SKODA-IOOOMB, 5-manna fólksbifreið, aðeins kr. 147.800,—. SKODA-COMBI: 5-manna station, 146.600,—. SKODA-1202‘ 6-mann station, 155.000,—. Langódýrustu stationbifreiðir á ísl. markaði. Töknm nýiegn og vel með fnrnn Skodnbíln upp í konpin 1966 1906

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.