Morgunblaðið - 25.10.1966, Blaðsíða 30
Þriðjudagur 25. okt. 1966
ÖU
Bikarínn aftur hjá KR
Uinrau Valsmenn i úrsliium 1-0
BIKARINN er aftur í höndum KR inga — eftir eins árs fjarveru
KR-ingar, bikarhafar í 5 fyrstu árin sem bikarkeppnin fór fram,
endurheimtu nú hin kæru verðlaun. Og sigurinn var fyllilega verð-
skuldaður. KR-ingar sýndu það í knattspyrnu sem sýnt var í þess-
um leik. Uppskeran var eftir því — sigur í annari mestu knatt-
spyrnukeppni hérlendis.
KR lék undan vindi í fyrri hálf
leik. Sóknin var öll á Valsmark-
ið en, vörn Vals og markvörður-
inn Sigurður Dagsson sáu um
að halda markinu hreinu — ut-
an þess er Arssell Kjartansson
bakvörður ætlaði að gefa fyrir
mark Vals en mistókst sitt aetl-
unarverk. En þess í stað færði
vindurinn knöttinn að marki með
auknum hraða og þegar mis-
skilningur varð milli Valsvarnar
og Sigurðar Dagssonar varð
markið ekki umflúið.
Þetta reyndist eina mark leiks
ins, en KR-ingar voru allan tím-
ann betri aðilinn, og verðskuld-
uðu sigur í leiknum.
Leikur liðanna einkenndist eins
og oft vill verða, af mikilvægi
úrslitanna. . . . Á þeim vett-
vangi — sem reyndar öðrum
varðandi þennan leik — sigruðu
KR-ingar. Þeir voru betri á öll-
um sviðum knattspyrnunnar, og
uppskáru eftir því. Sigurmarkið
er þó skyldara heppni en góðri
knattspyrnu, eins og fyrr segir.
Valsmenn náðu aldrei saman
í þessum leik. Hlutverk þeirra
að undanförnu hefur verið erf-
itt. íslandsbikarinn var ekki
sóttur án erfiðis til Keflvíkinga.
Og nú tókst liðinu ekki að sýna
þann leik er það getur og verð-
ugt er íslandsmeisturum. Eng-
inn leikmaður liðsins sýndi getu
á við það sem vitað er að hann
getur sýnt — nema ef undan er
skilinn Árni Njálsson Sem barð-
ist af hörku og gaf félögum sýn-
um gott fordæmi.
KR-liðið kom vel frá leikn-
um. Liðsmenn sýndu baráttuvilja
frá byrjun til loka og ævinlega
tilraunir til góðrar knattspyrnu.
f heild séð var lið KR svo
framar Valsliðinu í þessum leik,
að annað en sigur hefði verið
lítil laun.
Sigurður Dagsson gómar knöttinn, en Hörður Markan sækir að
sigruðu fyrsta leikkvöldið
Ekkert hátalarakerfi í nýju íþróttahöllinni
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í hand-
knattleik hófst í íþróttahöllinni
á sunnudagskvöldiö'. Sjá mátti á
leik allra liðanna að æfing fylgdi
ekki að baki. Svo fóru leikar að
á fyrsta leikkvöldinu vann Ár-
mann Þrótt með 13-10, Fram
vann lR með 23-13 og KR vann
Val með 16-13 og kom síðast-
nefndi sigurinn mest á óvart.
Jón Magnússon, formaður
Handknattleiksráðsins, hafði til-
búna ræðu að setja mótið. En á
daginn kom að íþróttahöllin átti
stendur, að hægt verði að leika
hér í fleiri flokkum en munu
KR — bikarmeistarar 1966
Gott starf Glímusambandsins
Ársþing Glímusambands ís-
lands var haldið í Reykjavík 23.
október s.l. og sett af formanni
sam bandsins, Kjartani Berg-
mann GuðjónssynL
í upphafi fundarins minntist
formaður þriggja kunnra glímu-
manna, þeirra Helga Hjörvars,
Eggerts Kristjánssonar og Er-
lings Pálssonar.
Þingforsetar voru kjörnir Guð-
jón Einarsson, varaforseti íþrótta
sambands íslands, og Sigurður
Ingason, en ritarar Sigurður Sig
urjónsson og Valdimar Óskars-
son.
Formaður gaf skýrslu um starf
semi sambandsins á s.l. starfs-
ári, en hún var mjög fjölþætt og
mörg mál í athugun til eflingar
glímuíþróttinni í landinu.
Ýmis mál voru tekin til um-
ræðu og afgreidd á glímuþing-
inu. Meðal annars var samþykkt
var tillaga um að skora á héraða
samböndin, að þau beiti sér fyrir
því að koma á sveitaglímu í sínu
héraði eða milli héraða.
Samþykkt var tillaga um að
stjórn Glímusambandsins vinni
að aukinni glímukennslu í skól-
um, og þá sérstaklega með til-
liti til héraðsskóla.
Kosin var milliþinganefnd til
að endurskoða glímuiögin. Nefnd
in er skipuð þessum mönnum:
Þorsteinn Einarsson, formaður,
Hafsteinn Þorvaldsson, Ólafur
H. Óskarsson, Sigtryggur Sig-
urðsson, Sigurður Sigurjónsson.
í glímudómstól voru þessir
menn kjörnir: Sigurður Ingason,
Ólafur H. Óskarsson, Sigurður
Sigurjónsson.
Stjórn Glímusambandsins var
öll endurkjörin, en hana skipa
þessir menn: Kjartan Bergmann
Guðjónsson, Vatnsleysu, Biskups
tungum, Sigtryggur Sigurðsson,
Reykjavík ,Ólafur H. Óskarsson,
Reykjavík, Sigurður Geirdal,
Kópavogi. Til vara: Sigurður
Ingason, Reykjavík, Valdimar
Óskarsson, Reykjavík, Elías Árna
son, Reykjavík.
leika hér í Reykjavíkurmótinu
ekki hátalarkerfi til notkunar.
Ræða Jóns fer hér á eftir lítið
stytt:
Góðir handknattleiksmenn og
handknattleiksunnendur.
í kvöld hefst hér í íþróttahöll-
inni í Laugardal 21. meistaramót
Reykjavíkur í handknattleik. Eru
þetta merk tímamót í sögu hand-
knattleiks á íslandi, því að þetta
er fyrsta 'handknattleiksmótið,
sem fram fer í íþróttahöllinni.
Þess má einnig geta, að á þessu
nýhafna starfsári veröur HKRR
25 ára og HSÍ 10 ára.
Það mun hafa verið von hand-
knattleiksunnenda að með til-
komu íþróttahallarinnar mundi
verða hægt að flytja handknatt-
leiksmót flestra flokka í þetta
glæsilega hús.
En í Reykjavíkurmótinu munu
aðeins leika hér meistaraflokkar
karla og kvenna og 2. flokkur
karla og 3. flokkur karla að
hluta. Aðrir flokkar munu leika
á Hálogalandi, sem áður.
Útlit er ekki fyrir það, sem
og jafnvel vafasamt að hægt
verði að láta alla þessa flokka
leika hér í íslandsmótinu.
Ástæða þessa er sú, að lág-
marksleiga fyrir hvert keppnis-
kvöld er svo há, áð ekki er útlit
fyrir annað en mótin verði rekin
með tapi, ef ekki fæst úr þessu
bætt.
MOLAR
BELGÍA vann Sviss, 1:0, í
landsleik í knattspyrnu í
Brugge sl. laugardag.
Franski sundmaðurinn Nos-
coni setti nýtt heimsmet í 400
metra skriðsundi á sunnudag.
Hann synti á 4.10,5 mín., en
eldra metið átti Austur-Þjóð-
verjinn Frank Wiegand, 4.11,1.
Irland og Spánn skildu
jöfn, 0:0, í fyrri leik landanna
í Evrópukeppni landsliða. —
Leikurinn fór fram í Dublin
og horfðu 38 þús. manns á.
ATHUGIÐ!
Þegar miðað er við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Það hefur sýnt sig að þá daga
. og kvöld, sem yngri flokkarnir
leika er fátt áhorfenda, og ef svo
verður áfram, getur farið svo að
ekki verði hægt að láta þá leika
hér vegna þessa mikla kostnaðar,
sem ^f því leiðir.
Ef ekki verður hægt að láta
yngri flokkana leika hér, er ég
hræddur um að tilkoma íþrótta-
hallarinnar verði ekki sú lyfti-
stöng fyrir islenzkan handknatt-
leik, sem búizt var við.
Þróttur—Ármann, 10-13
Þróttarar veittu Ármenningum
harðari keppni en búast mátti
við. Hvorugt líðið sýndi góðan
leik, en Þróttarar komu þó á
óvart. Enginn hafði spáð því að
staðan í leikhlé væri 4-3 fyrir
Þrótt, en sú var samt naunin.
En er á leið lærðu Ármenn-
ingar á nýja húsið og tryggðu
verðskuldaðan sigur án erfið-
'leika, en án aills glæsibrags.
ÍR—Fram, 13-23
ÍR-ingar komu álíka á óvart í
foyrjun sem Þróttarar í fyrsta
leiknum. Þrjú fyrstu mönkin skor
uðu ÍR-ingar eftir fallegan leik
og sú er spá mín að þetta ÍR-lið
geti náð langt, ef áherzla er lögð
á vörnina og persónudýrkun
sleppt. Myndi ég segja, að ÍR-
liði'ð væri líklegast til mikils
frama í íþróttahöllinni, af þeim
liðum er fram komu fyrsta kvöld
ið. —
KR—Valur, 16-13
Þriðji leikurinn þetta kvöici
endaði með markatölunni 13. Nú
var það hið óvænta sem skeði —■
KR vann. Náðu KR-ingar for-
ystu í upphafi fyrir sakir ákveðn
ari samleiks og gætti þar í rík-
um mæli samstarfs Karls Jóh.
og Hiilmars Bjarnasonar. í hJéi
stóð 8-5 fyrir KR og þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir Valsmanna,
með alla, sína landsliðsmenn,
tókst ekki að rétta hlutinn. Sæ-
mundur í marki KR kom einnig
á óvart og varði hin óliklegustu
skot — og sigur KR varð ekki
sízt hans vegna verðskulda'ður.
Þrír dómarar komuá fram f
fþróttahöllinni þetta fyrsta leik-
kvöld íslenzkra liða. Af bar
Hannes Þ. Sigurðsson. Dómar
hans voru á alþjóðamælikvarða,
ef svo má segja. Hann var sam-
kvæmur sjálfum sér, ákveðinn og
alltaf á verði. Aðrir mættu mikið
af Hannesi læra.
— A. St.
Frá leik Fram og 1R: Arnar reynir langskot að marki ÍR.
KR, Fram og Armann