Morgunblaðið - 11.11.1966, Síða 20
r
20
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 11. nóv. 1966
Gólfteppi
Frá A. F. Stoddard & Co. Ltd.:
Elderslie, Skotlandi:
Wilton Ambassador úr Acrilan,
10 litir með fallegri áferð,
standast hreinsun og sólarljós,
yfirborð bælast ekki við umgang,
breiddir frá 70 til 455 em.
Frá Glenvale Carpets Ltd.:
dótturfyrirtæki Stoddard:
Springfield Evlan/Nylon
með filti álímdu (Dunlop svampur),
12 lita samsetningar,
verð m/sölusk. 465,00 ferm.
Frá Wm. Goodacre & Sons Ltd.,
London:
Axminster í bezta gæðaflokki,
100% ull, ný gerð í 5 litum,
breiddir 70, 90, 275 og 365 cm.
Frá Teppich- fabrik Karl Eybl,
Vínarborg:
Teppi með persneskum vefnaði.
Renningar úr hári, sisal og kókós,
mikið úrval gerða og lita.
Afgreiðsla flestra tegundanna af Iager úti
(næstu skipsferð). Sýnishorn í Húsgagna-
verzlun Austurbæjar, einnig kl. 5—7 e.h.
á skrifstofu.
G.M.Guömundsson
Austurstræti 17. — 5. hæð.
Sími 1-16-76.
Elínborg Lárusdóttir
Jonas Þorbergsson
Þrjár nýjar bæk-
ur frá Skuggsjá
Höfundar: Elínborg Lárusdóttir, Jónas
Þorbergsson og Ingólfur Jónson
frá Prestsbakka
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá í
Hafnarfirði hefur sent frá sér
þrjár nýjar bækur, eftir inn-
lenda höfunda, Elínborgu Lárus
dóttur, Jónas Þorbergsson og
Ingólf Jónsson frá Prestsbakka.
Bók Elinborgar nefnist „Dul-
rænar sagnir“, og hefur að
geyma sögur af draumum, dul-
sýnum, svipum, vitrunum, dul-
heyrn og ýmiss konar dulræn-
um fyrirbærum og álagablett-
um. Eru hér frásagnir þrjátíu
karla og kvenna víðsvegar að
af landinu. Allar eru þær nýjar
nema sögnin um Miklubæjar-
Sólveigu og viðureign hennar
við séra Hannes Bjarnason á
Ríp. „Sagnirnar eru vitanlega
VIÐARGOLF
Fátt gefur heimilinu fegurri og hlýlegri blæ en fallegt og vel lagt við-
argólf. — Við höfum ávallt fyrirliggjandi úrvals efni í viðargólf frá
neðangreindum höfuð-framleiðendum í Evrópu:
^ffl
Dönsk úrvalsvara frá A/S Junckers Sawærk, Köge, stærstu parket-
verksmiðju í Evrópu.
yMHl - GOIV • DOWAR
Framleitt af I/S Dansk BW-Parket, Herlev, með
einkaleyfi Bauwerk A/G í Sviss.
Sænsk gæðavara framleidd af
A/B Gustaf Káhr, Nybro.
viðarþiljur í Oregon Pine, Eik og Teak.
Nánari upplýsingar og sýnishorn á skrifstofu okkar.
ill Árnason
Slippfélagshúsinu v/Mýrargötu. — Símar: 1-43-10 og 2-02-75.
misjafnar að gæðum,“ segir höf-
undur í formála. „Flestar munu
þær þykja athyglisverðar að ein
hverju leyti og því betur geymd
ar en gleymdar. Bókin er 208
bls. að stærð.
,Bréf til sonar míns“ nefnist
bók Jónasar Þorbergssonar, fyrr
verandi útvarpsstjóra, og er hún
Steinnr Hólm
Fæddur 27. nóvember 1947.
Dáinn 25. júní 1966.
Nístir nú sálina sorgin
á sumardegi.
f heimi hér er nú kvaddur
hugljúfur drengur.
Gleðina rækti og góðvild,
geislaði af þrótti.
Viljinn á vorsins brautum
vígður til starfa.
Góður er nú genginn.
Gleðin er fjarri.
Lokaðist leiðin í skyndi.
Ljósið er dáið.
Myndfögur minningin lifir
móður og vinum.
Guð, sem að gefur og tekur
græðir helsárin.
Við fylgdum honum til grafar
einn fagran vordag, í litla sjáv-
arþorpinu þar sem hann lifði
ai'la sína stuttu en björtu ævi.
Það verður sennilega h'ljótt
um minningu Steinars Hólm,
eins og flestra, sem deyja ungir
— á'ður en lífsstarfið hefst.
Og við ætlum heldur ekki að
segja ævisögu, heldur aðeins
leggja lítinn minningarsveig á
gröf hans í þakklætisskyni af
því hann auðgaði líf okkar um
margar ógleymanlegar yndis-
stundir.
Við þessi síðustu vegamót hér
á jörðinni göngum við á vit þess-
ara minninga um leið og við
fylgjum honum í huganum, frá
björtum ævidegi, til annars bjart
ari.
Og við göngum frá gröf hans,
hljóð í bragði, en með þakklát-
um huga fullum af björtum
minningum um góðan dreng.
Móður hans og systur, sem svo
mikið hafa misst, sendum við
innilegar samú'ðarkveðjur
þeirra þungu raun.
Orð eru lítils megnug við
tækifæri eins og þetta; og því
skulu þau ekki höfð fleiri. Enda
hefði sízt verið að hans skapi,
sem við nú kveðjum, að hafa
uppi harmatölur. Þessvegna skul
um við ekki horfa í gröfina, held-
ur á gróðurinn á leiðinu.
Ef til vill er sá ekki eins dá-
inn, eins og okkur virðist í
fljótu bragði, sem er órjúfanlega
ofinn í æviþátt lifandi vina.
Skólasystkini i Leikskóla
Ævars Kvarans.
tileinkuð syni hans, Jónasi. Er
þetta fyrra bindi æviminninga
Jónasar Þorbergssonar. Skiptist
það í átta kafla og saman stend-
ur af 25 bréfum. Eru í þessu
bindi bernskuminningar höf-
undar frá æskuslóðum í Þing-
eyjarsýslu, sagt frá sumarvist á
Svalbarðseyri, námi við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri, för til
Ameríku, sex ára dvöl þar og
loks heimförinni með Goðafossi
hinum elzta, sem var mjög
ævintýrarik. — Bókin er 240
bls. að stærð.
Bók Ingólfs Jónssonar frá
Prestsbakka nefnist „Láttu loga,
drengur", og er fyrsta skáld-
saga höfundar, en áður hefur
hann sent frá sér þrjár ljóða-
bækur og smásagnasafn. Undir-
titill sögunnar er „Dagur fjár-
málamannsins", og segir á kápu-
síðu, að mönnum muni vart
dyljast, hver fyrirmynd höfund-
ar er að aðalpersónu sögunnar.
Þá segir það ennfremur: „Þetta
er örlagasaga manns, sem aldréi
vildi sýnast betri en hann var
og gleymdi sjálfum sér í geisla-
flóði gullsins, eins mesta böl-
valds mannanna. Gleði og sorg,
ást og hatur féllu í hlut hans
og hann hló storkandi að sjálf-
um sér og samtíð sinni, sem
vildi beygja hann og brjóta. En
þrátt fyrir allt, þrátt fyrir
beiskju, hörku og kulda, var
hann innst inni gljúpur og við-
kvæmur og vinur vina sinna,
þótt fáir væru“. — Bókin er
160 bls. að stærð.
Múlaþing
- fyrsta hefti af tíma-
riti Sögufélags
Austurlands
komið út
SÖGUFÉLAG Austurlands hefur
hafið útgáfu á tímariti, sem
nefnist Múlaþing. Félagið er að-
eins rúmlega ársgamalt, og er
það ætlun forgöngumanna „að
halda til haga ýmsu af sögusviði
landshlutans og úr samtíð, það
sem þeim finnst verðskulda
geymd í rituðu máli og prent-
uðu, jafnvel stuðla að varð-
veizlu ytri menja.“
Efni þessa fyrsta heftis er
m. a. : Gamla brúin á Lagar-
fljóti, eftir Indriða Gíslason frá
Skógargerði, Krossavík í Vopna-
firði, eftir Benedikt Gíslason,
Skemmtiferð í skammdegi, eftir
Jón Björnssón frá Hnefilsdal,
Fyrsta ökuferð til Loðmundar-
fjarðar, eftir Helga Gíslason,
Jarðir Skriðuklausturs og efna-
hagur, eftir sr. Heimi Steinsson,
Fransmenn á Fáskrúðsfirði, eftir
Benedikt Björnsson, Runninn frá
árum og orfi (viðtal við Helga
Sigurðss.) eftir Kristján Ingólfs-
son, Útigöngunaut Vopnfirðinga,
eftir JónBjörnsson frá Hnefilsdal
Fríkirkjuhreyfing í Dvergasteins
prestakalli, eftir Halldór Stefáns-
son, Leyndarmál hjartans, smá-
saga eftir Eirík Sigurðsson, Und-
ir þungum árum, eftir Ragnar A.
Þorsteinsson, Bæjanöfn, sem týn-
ast, eftir Eirík Sigurðsson, Bú-
fræðinám í Eiðaskóla 1908—1909,
eftir Bjarna Halldórsson, Seyðis-
fjörður til siðaskiptanna 1550),
eftir Sigurð Vilhjálmsson, Með
hesta og kver, eftir Ármann
Halldórsson og Bókaskraf, eftir
Sigurð Ó. Pálsson og Ármann
Halldórsson — Þá eru kvæði eftir
Jón Sigfússon, Þorstein Valdi-
marsson, Kristján frá Djúpalæk,
Guðfinnu Þorsteinsdóttur, Sigurð
Ó. Pálsson og Benedikt Gíslason,
og ennfremur stuttar frásagnir,
þjóðsögur o. fl.
Ritið er 184 bls. að stærð, og
er ætlunin að það verði ársrit.