Morgunblaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 22
22 MORGU N BLAÐIÐ Föstudagur 11. nóv. 1966 ÓJi Kristinn Kallsson NÚ gerist skammt stórra högga á milli á götum höfuðborgarinn- ar. Vart líður sá dagur, að ekki berist sorgarfrétt af slysum og voða, sem valda hörmum og dauða. Það var þó nær ómögulegt að trúa því, að hann Óli væri dá- inn, þegar fregnin kom. Hann hafði kvatt okkur hress og glað- ur fyrir fimm mínútum. Og svo — nú var hann liðið lík, lemstr- aður eftir bifreið ógæfumanns- ins, sem ekið hafði á hann á götunni. Óli var okkur öllum svo kær, dagegur aufúsugestur, léttúr í við móti, prúðmannlegur og greið- vikinn hversdagslega, en við nánari kynni trúhneigður, góður Og göfugur hugsandi maður, sem alltaf kom fram til góðs og trúði á sigur hins góða. Hin síðustu ár hafði oft verið erfitt í baráttu við sjúkleika og raunir eiginkonu hans, sem raun ar hafði valdið því, að hann varð að kveðja sveitina sína, sem var honum svo undurkær, og dvelja hér í borginni oft einn og ein- mana. En hann kvartaði ekki og átt.i oftast létta gamansemi í orðum og framkomu til að eyða skugg- um og lyfta undir annarra byrð- ar. Hann var Breiðfirðingur, fædd ur í Fagradal á Skarðströnd 17. okt. 1910, einn þriggja sona hjónanna Jóhönnu Sturlaugsdótt ur og Halls Jónssonar, pósts, sem þekktur var þar um slóðir fyrir hreysti og dug í vetrarferðum. Hann fluttist með foreldrum sínum norður á Strandir en það an í Geiradalinn. Kvæntist 1933 eftirlifandi konu, Jóhönnu Hall- freðsdóttur frá Bakka í Geiradal og hófu þau búskap að Litlu- Brekku, og bjuggu þar í 26 ár, eða til þess að þau fluttu hingað Útför, — Kveðja suður 1939, þegar krafta þraut við einyrkjastörfin, sem kröfðust hvíldarlausra erfiðisdaga árið um kring. Hér £ Reykjavík starfaði Óli lengst sem hestahirðir hjá „Fáki“ og gegndi því starfi af frábærri árvekni og umhyggju. Hann unni hestum og skildi þá vel eins og vinur og bróðir. Þar þurfti eng- in orð til. Hann átti jafnan góða hesta sjálfur og kunni vel að meta kosti gæðinganna. Og þeir veittu honum líka ótal yndis- stundir. Óli var vinsæll maður og vel gerður að öllu. Hann átti eina dóttur Unni Guðbjörgu að nafni, sem gift er Daníel Arnfinnssyni frá Hlíð í Þorskafirðir Skal þeim mæðgum Jóhönnu og Unni vott- uð innileg samúð í þungri raun og sárri sorg. Það er eins og myrkrið hafi magnazt og skammdegið náð dýpri tökum við óvænta brott- för hans. Nú heyrum við aldrai framar glaðværa rödd hans og fótatak. Það er svo undarlega tómlegt. Við biðjum honum bless unar á Guðsvegum. Vertu sæll, við söknum þín. Guðrún Hansdóttir. Læfur til sín heyru n ný DITTA Bartok, ekkja Béla Bar- tóks, sem hætti algerlega að leika opinberlega er maður hennar lézt, er nú farin að láta til sín heyra til sín á ný og mun m. a. leika þriðja píanó- I konsert Bartóks fyrir belgíska útvarpið einhvern tíma á næst- i unni, undir stjórn landa síns,' Tibors Serlys. ARA GUÐMUNDSSONAR skósmiðs frá Höfn í Hornafirði, fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 12. nóv. og hefst athöfnin kl. 10,30 f.h. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Vandamenn. Jarðarför systur okkar, SIGRÍÐAR J. ÞÓRÐARDÓTTUR frá Neðri-Breiðadal, Önundarfirði, sem andaðist að heimili sínu Laugavegi 99, hinn 4. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. nóvember nk. kl. 3 síðdegis. Systkini hinnar látnu. Eiginmaður minn, PÁLL J. HELGASON tæknifræðingur, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði laugardaginn 12. nóvember kl. 14. Inger Ilelgason. Þakka sýnda samúð veena útfarar, BÖDVAIÍS TÓMASSONAR útgerðarmanns, Garði, Stokkseyri. Ingibjörg Jónsdóttir. Hugheilar þakkir fyrir samúð og vináttu vegna fráfalls STEFÁNS Ó. BJÖRNSSONAR frá Laufási. Kristín María Kristinsdóttir, Edda Svava Stefájosdóttir, John S. Magnússcn, Hafsteinn Þór Stefánsson, Halla Ólafsdóttir, Jón Baldvin Stefánsson, Sif Aðalsteinsdóttir, Aðalheiður Thorarensen, V'ilborg Oddný Björnsdóttir, Jón Sigurður’ Björnsson. Japanskur flugþjónn og flugfreyja bera fram kræsingar um borð í co þotu frá Japan Airlines Æ fieiri íslendingar fara til SL. ÞRIÐJUDAG kom hingað til lands Yasunobo Matumoto deildarstjóri Japan Airlines á Norðurlöndum. Dvaldist hann hér i tvo daga, ræddi við ferða- málafólk og kynnti starfsemi fyrirtækis síns. Deildarstjórinn hélt fund með fréttamönnum og ferðaskrifstofufólki á Hótel Sögu og sýndi m.a. mjög fallega mynd frá Japan. Japan Matumoto sagði að nokkrir íslendingar hefðu farið tii Jap- an á undanförnum árum og hefðu slíkar ferðir færst í auk- anna samfara mikilli viðskipta- aukningu landanna. í þessum mánuði hefur flugfélagið flug á Atlantshafsleiðinni og fljúga þá vélar þess á nær öllum flugleið- um heims. Flugfloti Japan Airlines er nú 35 vélar þar af Ur Hrunamannahreppi Hvítárholti, 6. nóv. VETUR hefur nú að þessu sinni gengið í garð. Enn sem komið er hefur hann þó lítt látið bera á sínu margrómaða veldi. Tíð hefur hér sem annarsstaðar í haust verið með afbrigðum stillt og þurrviðrasöm. Mátti því bú- ast við að vatnsleysi færi að gera vart við sig á bæjum. Vatnsieysið var mikið síðastlið- inn vetur, það gerðu hin óvenju legu og langvarandi frost. Nú hafa hér verið á mörgum bæj- um lagðar nýjar vatnsleiðslur, sumar um langan veg. Grasbrestur var víða hér á túnum, svo að heyfengur mun vera yfir allar sveitina mun minni en í fyrra. Hinsvegar var nýting heyja góð. Sauðfjárslátrun er nú hér lokið en nautgripaslátrun stend- ur enn yfir á Selfossi, en mun langt komið. Tölur um fjölda sláturfjár liggja enn ekki fyrir, en fallþungi dilka var mun minni en í fyrra, þetta 1—2 kg lægri á bæ þótt á stöku stað hafi hann ekki hrapað og hjá örfáum meiri. Hins vegar munu ær hafa verið með meira móti tvílembdar í vor. Kartöfluuppskera brást víða á bæjum því nær alveg og fóður- kál spratt misjafnlega. Laxveiði brást að heita mátti því nær alveg í þeim 3 ám, sem að sveitinni liggja. Sagt hefur verið frá því í blöðum, að veiði bæði í Þjórsá og Ölfusá hafi verið góð í sumar, heldur yfir meðallag. En svo undarlega hefur þó brugðið við, að það virðist sem göngurnar hafi ekki náð að komast lengra en upp fyrir Hestfjall. Hver orsökin muni vera, er ekki gott að segja. En laxinn er furðulegur og óútreiknanlegur í háttum sín um og líklega er það rétt sem maður einn sagði, að ekkert yrði gaman að veiða hann, ef viss veiði væri alltaf fyrir hendi. A1 varlegra mál er þó það. að fisk- ur hefur ekki komið hér í ár í haust, svo að engin klakveiði mun verða í þetta sinn. Teija menn, að orsökin sé V3tnsþurrð ánna, þótt eitthvað geti fleira valdið. En góð má tíðin verða til þess að veiði verði stunduð héðan af. — S. Sig Innilega þökkum við ykkur öllum, er hafið sýnt okkur hlyiiug í tilefni af hátíðisdegi okkar, þann 25. okt. sl. Fjölskyldan Saurbæ, Vatnsdal. Innilega þakka ég öllum vinum mínum, sem gáfu mér gjafir og sendu mér hlýjar árnaðaróskir á sjötugs- afmæli mínu, 3. nóvember. — Guð blessi ykkur öll. Guðný Þórarinsdóttir frá Rafnseyri. 30 þotur. Árið 1961 hófust á vegum Japan Airlines flugferðir til Evrópu yfir Norðurpólinn og eru nú flognar 5 slíkar ferðir viku- lega, en á flugleiðinni eru notað- ar þotur af gerðinni DC-8. Matumoto sagði að flugfélagið legði áherzlu á að gera flugferð- irnar sem heimilislegastar og eru flugfreyjurnar klæddar skv. japönskum venjum og framreidd ir eru japanskir og vestrænir réttir. Flugfar frá fslandi til Tokíó og til baka kostar nú um 60 þús ísl. kr. en umboðsmenn Japan Airlines á íslandi er Flugfélag Islands. BÍLAR 1967 Volkswagen 1600 Fast- back, nýr og óskráður. Út- borgun kr. 100 þús. 1966 Volvo Amazon 2ja dyra, ekinn 5 þ. km. Útborgun 100 þús. kr. 1966 Volkswagen 1300, kr. 130 þús. 1965 Saab, ekinn 27 þús. km. 1964 Opel Reckord, ekinn 27 þús. km. 1964 Mercedes Benz 190, ekinn 40 þús. km. nýinnfl. 1963 Renault R-8, hvítur. Má greiðast með víxlum. 1964 Rambler Clasic. Skipti möguleg. Verð kr. 170 þus. 1961 Opel Caravan, útborgun 50 þús. 1960 Moskvitch station, ný- klæddur innan. Uppgerð vél, útv., toppgr., snjód. — kr. 45 þús. Sendiferðabíll Ford ’56, með 2ja ára stöðvarplássi og mæli. Land Rover ’62 til ’66. Jeppar, gamlir og nýir. Vörubílar, sendibílar. Nú er hagstæðast að kaupa bil. Ingólfsstræti 11. Símar 19181 - 11325.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.