Morgunblaðið - 11.11.1966, Side 32

Morgunblaðið - 11.11.1966, Side 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 259. tbl. — Föstudagur 11. nóvember 1966 Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins Dóms Hæstaréttar að vænta í næstu viku IVfunnlegum málflutningi lauk i gær Kaupmannahöfn, 10. nóv. Frá Birni Jóhanssyni. HÆSTIRÉTTUR Danmerkur tók Handritamálið til dóms kl. 9.20 í morgun. Þá var lokið munnlegum málflutningi, sem hófst sl. mánudag. Ekki er vitað með vissu, hvenær dómur hæsta réttar fellur, en talið er að það Vl ði í síðari hluta næstu viku. Rétturinn var settur kl. 9 í morgun, og flutti þá Paul Schmith, ríkislögmaður, sem flytur málið fyrir danska menntamálaráðuneytið, síðari ræðu sína. Tók hún aðeins 20 mínútur. Að því búnu lýsti Aage Lorenzen, forseti réttarins yfir því, að málið yrði nú tekið til dóms. Hurfu þá allir úr saln- um, nema dómararnir 13. Um leið og dyrunum hafði verið læst, hófu þeir atkvæðagreiðslu um það, hvort lögin um afhend ingu handritanna séu brot gegn stjórnarskránni eða ekki. Paul Schmith hóf lokaræðu sína með því að svara ýmsum athugasemdum Gunnars Christ- rups frá deginum áður. Mót- mælti hann þeirri fullyrðingu Christrups, að stjérn Árnasafns hefði ekki verið veittar upplý's- ingar um málið, fyrr en það kom fram í þjóðþinginu. Þvert á móti hefði stjórn safnsins fylgzt með framvindu málsins í gegnum ritara sinn. Að vísu skipti þetta ekki máli, því að hér væri um að ræða lög frá 1965, en safnstjórnin hefði haft fulla vitneskju um málið í nokk ur ár, því að sams konar lög hefðu verið samþykkt árið 1961. Þá minntist Schmith á þá full yrðingu Christrups, að íslend- ingar litu ekki svo á að safninu væri skipt, heldur væri um að ræða flutning eignaréttarins til íslands. Kvaðst Schmith verða að ganga út frá því sem sjálf- sögðum hlut að á íslandi teldu menn það gilda, sem lögin segðu fyrir um og samningur ríkis- stjórnanna. Ríkislögmaðurinn Framhald á bls. 31 Nýtt stjómarfrv. á Alþingi: Togarar fái verðjöfnunar- gjald á olíu endurgreitt RIKISSTJORNIN hefur lagt I fram á Alþingi frumvarp sem Maður fannst lútinn LÝST var eftir manni í há , degisútvarpinu í gær. Var hann 52 ára gamall hafnar- verkamaður og hafði ekki spurzt til hans í einn sólar- hring. Maðurinn fannst um kl. 1 eftir hádegi í gær í gamla kirkjugarðinum við Suður- götu. Var hann þá iátinn. Bkki er unnt að kunngera nafn mannsins þar eð ekki hefur náðst til allra ættingjaí hans. / gerir ráð fyrir því að togur- um verði endurgreitt verð- jöfnunargjald af þeirri olíu, sem þeir kaupa. Er þetta lið- ur í viðleitni ríkisstjórnarinn- ar til þess að bæta hag togara útgerðarinnar í landinu og skapa henni rekstursgrund- völl. Verðjöfnun á olíum og benzíni hefur verið framkvæmd síðan 1953, samkvæm-t lögum nr. 34 18. febr. 1953. Þegar hún hófst, voru togarar gerðir út frá mörg- um stöðum í öllum landshlutum. Nú er aðstaðan hins vegar breytt. Togaraútgerð er nú nær ein- göngu starfrækt frá Reykjavík, Hafnarfirði og Akureyri. Afkoma togaranna er svo sem alkunnugt er mjög slæm. Þá hefur og orðið sú breyting, að neyzla þeirra olíutegunda (gasolí-u og fuelolía), sem togara-rnir nota, hefur auk- izt mjög hjá öðrum aðilum (t. d. síldarverksmiðjum), sem hafa betri afkomumöguleika. Verð- jöfnunargjald á fuelolíu er nú kr. 130.00 per tonn, en á gasolíu 16.5 aurar pr. ltr. ; í nótt komu Hannes Hafstein > og Víðir II inn til Raufar- ; hafnar ineð síld, og var í gær- • kvöidi allt tilbúið hjá sölt- : unarstöðvunum Óðni hf. og ■ Norðursíld hf. til að taka á ; móti síldinni. Þetta er í ■ fyrsta sinn, sem síld er sölt- : uð á Raufarhöfn í nóvem- « ber. Saltað verður inni, þar : scm byggt var yfir allar sölt- ■ unarstöðvarnar á Raufarhöfn : í sumar. Þá verður sildin ■ geymd í upphituðu húsi hjá : Óðni h.f., en útbúnaður til ■ þess var gerður á sl. hausti. : Vonast var eftir fleiri bát- ■ um með söltunarsíld til Rauf- : arhafnar í nótt. ; Myndin sýnir byggingar- : framkvæmdir hjá Óðni hf. í ■ september si. Sterkt Akureyraröl fyrir útlendinga Nýir gosdrykkir fyrir íslenoinga á markaðinn Tillaga tveggja þingmanna Sjálfstœðisflokksins: Athugun á loftpúöaskipum til samgðngubóta — Hugmynd um slíkt skip milli Vestmannaeyja og lands TVEIR þingmenn Sjálfstæðis flokksins, þeir Guðlaugur Gíslason og Sigurður Óli Ól- afsson, hafa lagt fram á Al- þingi þingsályktunartillögu um að rannsakað verði hvort Siglufjörður, 10. nóv. SÍLDARFLUTNINGASKIP S.R. Haförninn losaði 1100 tonn síld- ar af Austfjarðarmiðum í gær- kvöldi. Gekk yfirleitt vel að losa skipið þrátt fyrir mikið frost framan af. Skipið heldur héðan á miðnætti í nótt á sömu slóðir. Ágætis veður er á Siglufirði í dag og frostleysa. — Steingrímur. svonefnd loftpúðaskip henti íslenzkum aðstæðum. í greinargerð tillögunn-ar kem- ur fram, að Vestmannaeyingar hafa áð undanförnu athugað þetta mál, sem hugs-anlega sam- göngubót milli lands og eyja, en loftpúðaskip þurfa engin hafnar- mannvirki til þess að athafna sig við. Talið er að það skip, sem henta mundi Vestmannaeyingum, muni kosta um 110 þúsund sterl- ingspund og flytja 38 farþega eða tvær fólksbifreiðir af venju- legri stærð ásamt farþeg-um þeírra. f Bretl-andi hafa verið gerðar víðtækar tilraunir með loftpúða- skip og bafa þær borið svo góð- an árangur, að þau hafa þegar verið tekin í notkun, t. d. í Nor- egi, Danmörku, Skotlandi og vfð- ar og einnig eru þau í förum yfir Ermarsundið. Akureyri, 10. nóv. NÝJA ölið frá SANA kemur á markaðinn um næstu mánaðar- mót, eftir því sem Eystetnn Árnason framkvæmdastjóri verk smiðjunnar skýrði frá í dag. Lagt var í um miðjan septem- ber, en lögurinn þarf um tveggja mánaða geymslntímau Langt er komið að setja niður nauðsynlegar vélar og er stefnt að því, að öl til neyzlu innan- lands verði tilbúið til sölu um rnánaðarmóti nóv. — des. Það verður 2.22% að styrkleika, þ. e. telst óáfengt. Sterkt öl (4.6%) mun svo koma á makaðinn fyrir jól, en það verður eingöngu framleitt til útflutnings. Það á að verða jafngott beztu erlendu öltegund- um, t. d. Carlsberg Guldhals. Mikill áhugi er á kaupum á þessu öli hjá þeim íslenzku aðiljum, sem það mega kaupa, svo sem skipafélögum, flugfé- lögum og sendiráðum. Góðar horfur eru einnig á sölu á er- lendum markaði. Framhald á bls. 31 Fjórir tepptust SVO sem skýrt var frá í blað- inu í gær fóru fjórir menn af Skarðsströnd á bát út í Akurey í Gilsfirði að huga að kindum þar. Er þeir voru komnir að eynni varð vélarbilun í bátnum og þar eð engar árar voru í hon um urðu þeir að láta fyrirberast í auðu ibúðarhúsi á eynni nokkra stund en kveiktu áður bál á eynni, sem sást úr Króksfjarðar nesi. Reynt var að fara mönnunum til aðstoðar frá Hvallátri, en þar var háfjara og ekki hægt að koma bát á flot. Var þá haft sam band við Stykkishólm og voru mennirnir fjórir sóttir þaðan eftir nokkrar klukkustundir heil ir á húfi og hinir hressustu. Svíar keyptu ekki Íslandssíld af Rússum FRÁ því var skýrt í norska ekki affermda eina einustu blaðinu „Norges Handels- og tunnu. Sænsku niðursuðuverk Sjöfartstidende“ 9. nóvember smiðjurnar töldu gæði síldar- sl., að sænskar niðursuðu- innar ekki nógu mikil. verksmiðjur í Lysekil hafi Síldin var lögð allt of þétt ekki viljað kaupa Íslandssíld niður. f hverri tunnu voru 400 af Rússum sökum rangrar síldar, en eðlileg niðurlagning niðurlagningar síldarinnar. — eru 300 fyrir sjósaltaða vöru. Fréttaritari norska blaðsins í „Svetlyn" hélt því á fimmtu- Gautaborg skýrir frá þessum daginn áleiðis til Kúbu og tíðindum orðrétt þannig: mun losa síldina í Havana, til „Rússneska verksmiðjuskip- mikillar ánægju fyrir íslend- ið „Svetlyn", sem kom inn til inga, sem selja hingað nálega Lysekil til þess að losa 1820 alla þá Íslandssíld, sem Svíar tunnur af Íslandssíld fékk borða“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.