Morgunblaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 31
Föstudagur 11. nðv. 1968 MORGUNBLAÐIÐ 31 Háskóla- fyrir'estur I»ÓRHAI>L,UR Vilmundarson pró fessor mun næstu sunnudaga flytja fyrirlestra í hátíðasal Há skólans. Fyrsti fyrirlesturinn verður fluttur sunnud. 13. nóv. kl. 2,30 e.h. og nefnist „Kennd er við Hálfdán hurðin rauð“. — Öllum er h«imill aðgangur. (Frétt frá Háskóla íslands). — Dómur Dretjið 22. nóvember EINS og skýrt hefur verið frá, hefur drætti í Landshappdrætti S :álfstæðisflokksins verið frest- að um nokkra daga, eða til 22. n./vember n.k. Þann dag verður dregið um bílana þrjá, sem samtals eru að verðmæti liðlega ein millj. króna Bílarnir eru af gerðunum Dodge Dart, Plymouth Valiant og Rambler American, allt árgsrð 1957. Bandshappdrættið vill jafn- framt því, sem það þakkar hin- um fjölmörgu sem þegar hafa skjót og góð skil, minna þá, sem enn hafa ekki gert það, að láta nú verða af skilum. Skrifstofa happdrættisins er opin daglega í Sjálfstæðishúsinu, sími 17100. Myndin hér að ofan sýnir Dodge Dart, einn vinningsbíl- anna. — Þýzkaland Framhald af bls. 1 aði hann til stríðsloka í útvarps- og áróðursdeila, og eftir því, sem hann segir sjálfur, þá hafi hann starfað að nokkru leyti í samráði við önnur ráðuneyti. f yfirlýsingu, sem Kiesinger lét frá sér fara sl. miðvikudag, segir hann, að hann hafi aldrei verið boðberi milli Josef Göbb- els, árcðursmálaráðherrans, og Ribbentrops. Hann hafi aldrei starfað við hlið Hitlers eða ann- arra háttsettra nazista. Eftir að Kiesinger tók fyrir alvöru að skipta sér af stjórn- rnálum, að styrjöldinni lokinni, vegnaði honum vel, og gegndi m.a. formennsku í utanríkismála nefnd sambandsþingsins. Aden- auer hafði eitt sinn í huga að gera hann að utanríkisráðherra. 1958 hélt Kiesinger frá Bonn, og tók við embætti forsætisráð- herra í Baden-Wúrtemberg, en aðsetur hafði hann í Stuttgart. Dy egið í háskóla- happdrætti FIMMTUDAGINN 10. nóv. var dregið í 11. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 2500 vinningar að fjárhæð kr. 7.500.000,00. Hæsti vinningurinn, 500.000 kr. kom á hálfmiða nr. 9271. Voru allir hálfmiðarnir seldir í um- boði Jóns St. Arnórssonar, Banka stræti 11. 100.000 krónur komu á heil- miða nr. 33625. Annar heilmið- inn var seldur í umboðinu á Keflavíkurflugvelli en hinn í Óiafsvík. Kr. 10.000,00 hlutu: 269 658 1181 1315 1708 1969 2104 3812 4545 5045 5222 5231 5374 5413 5537 5778 6449 7835 8807 9270 9272 10839 11011 11488 12249 12387 14029 14117 18581 19111 19460 20110 20762 22644 24286 24443 26442 26687 28011 286/9 28954 29320 29976 30306 30151 31111 31329 32903 33346 34666 85546 35784 35860 37704 38523 39465 41447 42145 42768 43389 43582 43915 44053 45307 47159 49086 49878 50326 50645 50711 61188 51287 53444 54059 55965 55983 56975 57208 58445 59479 59748 59775 (Birt án ábyrðar). Þar hefur honum vegnað vel, en einkum er hann þar kunnur fyr ir umbætur á skólakerfinu. Kiesinger er giftur maður, og tveggja barna faðir. Viðbrögð vestan hafs. í fréttum frá Washington í dag segir Endre Marton, fréttaritari AP-fréttastofunnar, að opinber- ir talsmenn í höfuðborginni hafi ekki viljað láta uppi álit sitt á þeirri meirihlutaákvörðun Kristi legra Demokrata að velja Kies- inger til þess að taka við af Er- hard — takist honum að mynda meirihlutastjórn. Segir Marton, að þögn manna í Washington megi váfalítið rekja til þess, að Kiesinger starf- aði í ráðuneyti Ribbentrops á styrjaldarárunum. Þá muni margir sérfræðingar í Þýzka landsmálum telja óvíst, að Kies- inger geti — fortíðar sinnar vegna — gerzt raunhæíur leið- togi V-Þýzkalands. Vestan hafs er 'hann þó vel metinn fyrir störf þau, er hann hefur innt af hendi frá styrjaldarlokum. — Kanzlaraefnið nýja hefur nokkr um sinnum heimsótt Bandarík- in. í frétt sinni segir Marton enn fremur, að ýmsir stjórn- málamenn, sem þekkja Kies inger, segi, að hann hafi til að bera sama veikleika og Erhard, þ.e. hann skorti á- kveðni, þegar taka þurfi skyndilega mikilvægar á kvarðanir. Það hefur vakið menn til nokkurrar umhugsunar í Wash ington, að Paul Lúcke, innan- ríkisráðherra V-Þýzkalands, hef ur viljað skella nokkurri skuld á bandamenn V-Þjóðverja, fyrir það, hve Þjóðernisflokknum tókst að afla margra atkvæða í nýafstöðnum kosningum í Hess- en. Lúcke hefur látið þessa skoð un i ljós í einkayiðræðum. Hafa ummæli hans, að sögn Martons endurvakið minningar um fyrri tilraunir þýzkra stjórnmála- manna til þess að skella skuld- inni á aðra, heima eða erlendis. þegar illa gengur á heimavíg- stöðvunum. Leita síldar i Kolluál Akranesi, 10. nóv. SÍLDARSKIPIN Höfrungur m. og Ólafur Sigurðsson lönduðu hér í nótt síld af Austf jarðamið um Höfrungur 2.230 tunnum og Ólafur 2.275 tunnum. Síldin fer öll til vinnslu í salt og frystingu hjá frystihúsunum H.B. & Co., Heimaskaga h.f. og Sigurði Hall- björnssyni h.f. Síldarskipin munu ef til vill leita síldar í Kolluál undan Snæ- fellsjökli, þegar þeir leggja aft- ur út á miðin, en þar hefur orð ið vart lóðningar. Línubátarnir Rán, Haförn og Keilir komu úr róðri í dag með afla frá 4—6,5 smálestir. — H.J.Þ. - ö/ Framhald af bls. 32 ræddi því næst um sex leiðir, sem Hæstiréttur gæti valið urn í málinu, eins og það hefði ver- ið lagt fyrir, og um skoðun T-áðu neytisins á afleiðingum hverrar fyrir sig. Paul Schmith sagði: „1) Hæsti réttur getur lagt til grundvallar, að handritin séu ríkiseign. í þvi tilfelli er ljóst að skjólstæðing- ar „kollega" míns geta ekki far- ið fram á neinar bætur. 2) Rétturinn getur eins og Eystri-Landsrpttur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé um að ræða eignarrétt, sem falli undir 73. gr. stjórnarskrárinnar. í því tilfelli er einnig ljóst, að ekki verður um bætur að ræða því að einasta heimildin til skaðabótakröfu felst í 73. gr. 3) Þriðja leiðin er að Hæsti- réttur, á sama hátt og Alf Ross prófessor, komist að þeirri nið- urstöðu að ekki sé um að ræða tilflutning á eignarrétti, heldur aðeins um skiptingu á safi inu. Þá verður einnig ljóst að málið fellur ekki undir 73. gr. 4) Hugsanlegt er að dómstól- arnir komist að þeirri niður- stöðu að um sé að ræða réttindi, sem falli undir 73. gr., en lögin skuli ekki ógild með tilliti til þess að almannaheill krefjist þeirra. 5) Fimmta leiðin er að hæsti- réttur slái því föstu að lögin skuli felld úr gildi þar sem þau samræmist ekki almanna þörf. Þá verði að draga þá ályktun að ekki sé unnt að beita lögun- um gegn Árnasafni, eða sem sagt, að viðurkennt, sé að lögin séu ógild. 6) Loks er sú leið, að réttur- inn komist að þeirri niðurstöðu, að almannaheill krefjist lag- anna í sjálfu sér, en að greiða skuli bætur. Þá er spurningin um, hvaða réttarfarslegar afleið ingar það hefði. Eru lögin þá numin úr gildi eða eru þau gild með bótagreiðslu? Þarna er kom ið inn á það, að hvað miklu leyti það er hugsanlegt, að þjóðþlng- ið hefði samþykkt lögin, ef vit- að hefði verið að þau bökuðu ríkisstjórninni skaðabótaskyldu. Sé aðeins um að ræða bætur fyr ir skiptingu á peningasjóðnum , verður dómurinn að telja lögin gild gegn bótum, en ef hinir há- við það miðaður, en hann er að mestu leyti sjálfvirkur svo að mannshöndin kemur þar yfir- leitt hvergi nærri. — Sv. P. — Nautilus Framhald af bls. 1 Framhald af bls. 1. lands. Báðir voru bátarnir í kafi, er óhappið vildi til. Þeim tókst þó báðum að kom- ast upp á yfirborðið, og eng- inn hafði slasazt, utan einn maður, sem handleggsbrotn- aði. Talsverðar skemmdir urðu á báðum kafbátunum, en bráð hætta er ekki á ferðum. Froskmenn athuga . nú skemmdir. — Knattspyrna Framhald af bls. 30 til að íþróttanefnd bæjarins auðnist að lagfæra svo húsa- kostinn við knattspyrnuvöil- inn á Hvaleyrarholt., að hægt verði að stunda þessa kennslu þar á vetlinum, og að drengirnir geti notið hlýrra og góðra búnings- og baðklefa. Þeir munu margir, sem fylgjast með starfi þessu, óska því giftu og farsældar, jafnframt þvi sem þeir skora á þá forráðamenn skólamála á íslandi, sem við svipaðar aðstæður eiga að stríða og þeir í Hafnarfirði, reyni að leysa úr vandanum með líku og svipuðu móti og skóla- mennirnir í Hafnarfirði hafa gert. — Ræður Framhald af bls. 32. Nafn og vörumerki á hinu nýja öli hafa verið ákveðin, en verða ekki látin uppi að svo stöddu. Verksmiðjan er gerð fyrir 10.000 hektólítra framleiðslu af öli og gosdrykkja að auki, en framleiðsla þeirra mun verða stóraukin jafnframt. Þá verða framleiddar efnagerðarvörur ýmsar eins og verið hefur, ávaxtadrykkir, saft o. fl. Teknar verða í notkun allar beztu og fullkomnustu vélar, sem nú eru fáanlegar til ölgerð- ar. Danska firmað Alfred Jörg- ensen verður tæknilegur ráð- gjafi og hefur séð um val og uppsetningu vélanna, en það fyrirtæki fylgist með fram- leiðsluvörum margra þekktustu æruverðugu dómarar eru þeirr- ölgerða í heiminum. Lagt verður I ar skoðunar, að ríkissjóður sé allt kapp á, að varan verði sam- ekki aðeins skaðabótaskyldur bærileg við beztu gæðaflokka vegna peningana, heldur einnig erlends öls og allur vélakostur j vegna handritanna, þá verði svarið: Nei. Þá hefði þjóðþingið ekki samþykkt lögin og þá verð ur dómurinn að hljóða á þá leið að ekki sé unnt að beita lögun- um gegn Árnasafni. Ég tel mig hafa sýnt fram á að útilokað sé, að ríkið sætti sig við dóm, sem hafi það í för með sér að skjólstæðingar „koTega'* míns geti komið og krafist pen- inga vegna afhendingar hand- ritanna." Framhald af bls. 1 sterkt orð, en hér vírðist það eiga við“. Wilson, forsætisráðherra, á, venju samkvæmt, af og til að ræða við leiðtoga stjórnarand- stöðunnar um málefni, sem efst eru á baugi. Hins vegar telja nú flestir, sem til þekkja, að fyrirlitning sitji í fyrirrúmi hjá bæði Wilson og Heath, og verði því lítið úr raunhæfum viðræðum fram- vegis. Til dæmis um, hvernig orða skipti hafa verið milli leiðtog- anna á þriðjudag í fyrri viku. Þá sagði Heath: „Þér getið reynt að kúga blöðin, kúga þingheim hér, en hversu mik- ið sem þér kunnið að leggja að yður til þess að koma í veg fyrir, að við höldum þvi fram, sem við teljum rétt, þá mun yður ekki takast það“. Þessu svaraði forsætisráð- herrann þannig: „Enginn heið arlegur þingmaður hér í mál- stofunni myndi leggjast svo lágt að reyna áð kúga yður“. í umræðum um hugsanlega aðild Bretá að Efnáhagsbanda lagi Evrópu, degi síðar, sagði Heath: „Gerið þér (Wilson) yður grein fyrir þvi, hvernig léttúð yðar er tekið af Evr- ópumönnum — en enginn þeirra leggur trúnað á eitt einasta orð, sem þér segið?“ Um þetta hafði „Daly Tele- graph“ að segja, að slíkar um- ræður væru hryggilegar. Blað ið fylgir íhaldsmönnum að málum. „The Times“ sagði, að deil- ur Wilsons og Heaths minntu á ballett, þar sem dansað væri á vinstri fætinum eingöngu. Blaðið bætti við: „Neðri mál- stofan veit nú, að Wilson mun alltaf hafa betur; að lokinni hverri orðasennu mun Heath falla enn frekar í áliti. Þing- heimur getur brátt farið að velta því fyrir sér, hvaða hæfileikar eru leiðtogum þýð- ingarmestir“. Leiðréttin" RANGHERMT var í frétt frá ísafirði á 5. síðu bl. í gær, að leyfður dagskammtur rækju- veiðibáta við Djúp væri 40 kíló. Hann er 700 kíló. — Dansarar Framhald af bls. 1 ur fyrir barðinu á ráðamönnum. Sérhver einstaklingur er í beinni hættu, vegna þeirra ráð- stafana, sem stjórnarvöldin grípa til, og þjóna eiga sósíalist- isku siðferði.“ Yfirlýsingunni lýkur þanrig: „Okkur er ekki lengur mögulegt að leggja stund á list okkar í slíku andrúmslofti ógnana og óvissu". —Siníóniutónleikar Framhald af bls. 3. halda uppi „alvarlegri" hljóm- sveitartónleikum, sem skiljanlega ná til færra fólks. Forráðamenn Sinfóníuhljómsveitar íslands vænta þess, að fólk muni þiggja með þökkum og áhuga þessa aukningu á starfssviði hljómsveit arinnar og þyrpast á næstu sunnu dagstónleika í Háskólabíói. Sala aðgöngumiða er í bóka búðum Lárusar Blöndal, Skóla- vörðustíg og Vesturveri og í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar. Aðgöngumiðar verða einn ig seldir í Háskólabíói á sunnu- dag. \ Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Laugarnesveg. I Bogahlíð Faxaskjól F oss vogsblettur Hluti af Blesugróf Háahlíð Langahlíð Fálkagata Austurbrún Lambastaðahverfi Skerjaf. - sunnan fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.