Morgunblaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.11.1966, Blaðsíða 25
Föstudagur ll.Aáv. 1966 MORGUNBLADIÐ 25 Framhald af bls. 17. hefjist innan sanngjarns tíma eða hann verði látinn laus þar til rannsókn hefst.“ Mannréttindadómstóll Evrópu fjallar einnig um þessar mundir um mál gegn ríkisstjórn Belgíu vegna löggjafar um tungumál í skólum þar í landi. Einn íslenzkur dómari á sæti í mannréttindadómstóli Evrópu. Er það Einar Arnalds hæstarétt- ardómari. Frétt frá upplýsingadeild Evrópuráðs 29.10. 1966 , Þ. V. James Bond Bí IAN FLEMIN6 DRAWINS BY JOHN McLUSKY „Tiffany, hvert eru að fara?“ hrópaði ég á eftir henni. „Ég fékk ágæta hugmynd“, svaraði hún. BRANJCH TJ-IERBS LJN uP TUECE JAMES BUT CAlJT SWIFT TUE POlKJTS' I WE COULP OND/ SET TUE CAIL OFF THE MAIM TgAC k TWB CAMMONBALL M©W1 4 MISS US/ „Það er hliðarspor hérna, James, en ég get ekki skipt um teinana. En ef við gæt- um aðeins komið sporvagninum af aðal- sporinu, gæti íarið svo að hraðlestin færi framhjá okkur. Ný aðferö til að þurr- ka innviði tréskipa Vörri gegn bráðafúa SAMÁBYRGÐ ÍSLANDS á fiski skipum sem hefir síðan 1953 haft mð höndum skyldutvygg- ingu tréfiskiskipa gegn bráföafúa hefur nýlega keypt til landsins rakaeyðingartæki til þurrkunar á innviðum tréskipa. Hafa starfs menn Samábyrgðarinnar og Skipaskoðunar ríkisins að und- anförnu gert tilraunir með tæk ið um borð í mb. Reyni n NTC 47 og mb. Hauk RE 64, með þeim árangri að út úr innviðum mb. Reynis II voru dregnir 176 lítrar af vatni á 178 klst. og úr innviðum mb. Hauks um 180 lítr ar á 180 klukkustundum. Aðferðin var þannig, að fiski lest bátanna var hituð upp þar Framhald af bls. 10 andi tók virkan þátt í fram- kvæmdum, lofaði m.a. 100 dagsverkum við hleðsluna. Lá þá fólkið, sem vann að hleðslunni úti í tjöldum og vann myrkranna á milli við að hlaða fyrir ána. >á var ég 14 ára gamall og var kúskur á hestvagni við verkið. Að lokum skal geta þess, að Sigurður á Steinmóðarbæ hef ur verið þar bóndi síðan 1923. Hann er kvæntur Helgu Ein- arsdóttur, ættaðri úr Fljóts- hlíð, og eiga þau hjónin sex uppkomin börn, sem öll eru á lífi. Á Steinmóðarbæ er stórt býli og þar er gott að koma. — Kvikmyndir Framhald af bls. 17. tæki drengjanna eru mjög kát- leg, einkum ef áhorfendum tekst að stilla sig sæmilega inn í hugarheim krakkanna. Það er líklega svipað og með stillingu á sjónvörpum. Sagt er, að þeir sem koma fram í sjónvarpi eigi það til að missa tennur og ýmsa aðra líkamsprýði með syipleg- Um hætti, ef illa tekst til með stillinguna. — Og takist mönn- um ekki að stilla hug sinn rétti- lega inn á senur þessarar mynd ar, gefa barnslegum kenndum sínum lausan tauminn um stund, þá má vera, að þeir sjái ekki annað fyrir sér en lítt skiljan- leg ærsl og ókúltíverað orð- bragð 117 drengja. En hvað s"em þeir, sem full- vaxnir eru kunna að segja um þessa mynd, þá er greinilegt, að hún hefur þegar náð miklum vinsældum meðal æskulýðsins. Hann lifir sig auðveldar inn í tiltektir og hugsanir drengj- anna, því að þrátt fyrr allt eru þetta allt beztu strákar, sem þarna koma fram og fremja aldrei ódrengilegt athæfi. — Bellibrögð og baktjaldamakk, ódrengskapur og aðrir klassisk- ir mannlegir brestir er hins veg ar nokkuð, sem menn skilja bet- ur með árum og þroska. Hersteinn Pálsson, fyrrver- andi ritstjóri, hefur gert íslenzk an texta við myndina. til lofthitinn var 25* C, tækið síðan látið niður í lestina, sem er vandlega lokuð og tækið sett í gang. Rakaeyðingin fer þannig fram, að tækið dregur loftið í gegnum sig á þann hátt að á leiðinni fer það í gegnum kæii- vafninga, sem gerir það að verk um að rakinn úr loftinu drýpur niður í þar til gert ílát, en loft- inu er blásið þurru út aftur. Þurra loftið leikur síðan um inn viðina og dregur til sín rakann úr þeim, sogast rakt inn í tæk- ið og þar endurtekur rakaeyð- ingin sig. Fulltrúar Samábyrgðarinnar og Skipaskoðunarinnar kynnt- ust þessari þurrkunaraðferð I Noregi sl. sumar, fyrir atbeina norsks vísindamanns, hr. R. O. Ullevaalseter, sem unnið hefur undanfarin ár á vegum norska ríkisins að rannsóknum fúa- varna í norskum tréfiskibátum. Aðilar þeir, sem standa að þessum tilraunum gera séra góð ar vonir um að ná árangri í bar áttunni gegn bráðafúa í tréskip um, en hann orsakast af svepp- um, sem hafa útbreiðsluskilyrði í timbri, sem inniheldur yfir 20% raka, og segja má að undan tekning sé, ef innviðir íslenzkra tréfiskiskipa hafi ekki það inni- hald. (Frá Samáhyrgð íslands). ATHUGIÐ! Þegar miðað er við útbreiðslu. er langtum ódýrara aff auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöð”m. SJÓNVARPIÐ Föstudag ur 11. 1. 20,00 Á öndverffum meiði: Kappræðuþáttur í umsjá Gunnars (3. Schram. Færð verða rök með og móti því að leyfa auknar togara- veiðar í landhelgi. 20,30 Þöglu myndirnar: í þessum þætti segir frá bandaríska gamanleikar- anum Will Rogers og sýnd- ir kaflar úr ýmsum kvik- myndum hans. Þýðinguna gerði Óskar Ingimarsson en þulur er Andrés Ind- riðason. 21.00 Þaff gerffist hér suffur meff s.ió: Skemmtiþáttur Sav- anna tríósins. í þessum þætti er fjallað um ástina. Auk Savanna tríósins koma fram Valgeður Dan, leikkona, og Harald G. Haraldsson. Stjórnandi er Andrés Indriðason. 21,30 Yfiráðin á hafinu: Kvikmynd um þróun sjó- hernaðar allt frá fyrri heimsstyrjöld til vorra tíma. 22,00 Dýrlingurinn: Þessi þáttur nefnist „Róm- antík í Buenos Aries“: ís- lenzkan texta gerði Stein- unn S. Briem. 22,50 Dagskrálok. Þulur er Ása Finnsdóttir. Skrifstofur okkar eru loknður eftir húdegi í dag vegna jarðarfarar. KVELDÚLFUR H.F. Gullbrúðkaup í dag: Jónína Kristjánsdóttir og Gísli Guðbjartsson GULLBRUÐK AUPSAFMÆ LI eiga í dag hjónin Jónína A. Kristjánsdóttir og Gísli Guð- bjartsson, að Sunnuvegi 15, Reykjavík. Voru þau gefin sam- an í hjónaband í Stóru-Laugar- dalskirkju 11. nóvember 1916. bæði nú orðin hálf áttræð. Þegar sá sem þessar línur ritar í tilefni þessa mikla heiðursdags þessara ágætu hjóna, hefir verið einn úr hópi samferðafólksins öll þessi 50 ár og einnig æsku- árin til viðbótar, ætti ég að geta sagt eitthvað úr lífsbaráttu gullbrúðkaupshjónanna, en það verður ekki gert hér. Aldamótafólkið, sem nú er kallað, það er fólk sem er 65 og þar yfir, veit hvað lífsbarátt- an var hörð á stundum hjá all- flestum og lífsmöguleikarnir fá- brotnir, voru því möguleikar hjá nýgiftum hjónum ekki alltaf átakalausir, ef vel átti að fara til uppbyggingar sjálfstæðs heimilis fyrir 50 árum ef við tækjum samanburð á möguleikunum hjá nýgiftu hjónunum í dag til að mynda sér sjálfstætt heimili eða var fyrir ofangreindum tíma. Það má heita óleysanleg spurn- ing, en því er hægt að svara að þar hafa orðið gífurlegar breyt- ingar til hins betra, fyrir hin ungu hjón. Með guð í hjarta og guð I stafni byrjuðu þau fátæk að hyggja upp sitt eigið heimili, Jónína Kristjánsdóttir og Gísli Guðbjartsson, með frábæru samtaki og órofa trausti hvoru tii annars hefir þeim tekizt það, þó lífsbaráttan á stundum hafi ver- ið hörð og börn sín ólu þau upp með fyrirmynd. Þau gullbrúð- kauþshjónin hafa ekki safnað gulli í kassa, kistur eða banka, en þau hafa eignast lífsham- ingju og sjóði sem verður þeim heilladrýgri í ellinni, á ég þar við börn þeirra sem eru Krist- ján verðlagsstjóri og Þórey, sem þau búa með og manni hennar, að Sunnuvegi 15 hér í borg. Sá sem þessar línur ritar, á svo margar ljúfar og ógleyman- legar minningar allt frá æsku- árum til þessa dags, að þær gleymast ei og þakka þeim órofa tryggð við mig og mína. Að endingu þessarar hugleiðingar minnar bið ég guð að gefa ykk- ur bjart og fagurt ævikvöld. Stefnan var tekin rétt með guð í hjarta og guð í stafni gefur alltaf fararheill. Jón Guffmundsson. JÖMBÖ Teiknari: J. M O R A — Viff þurfum á góffum vagni að halda, segir Júmbó, — viff ætlum aff halda áfram ferff okkar og . . . Chien Fu grípur fram í fyrir honum og segir: — Vagn. Ég á allar tegundir af vögnum. — Þessi tegund hérna er mjög haldgóff . . . Þetta er allra nýjasta gerff. — Vagninn lítur mjög vel út, segir Júmbó, — en hvar er mótorinn? — Þaff er nú einmitt sem er það góða JAMES BOND við þennan vagn og ástæðan fyrir því, aff hann selst svo ódýrt, að í honum á enginn mótor aff vera. Maffur notar bara hend- urnar og ýtir honum áfram og þá rúllar hann. Eftii IAN FLEMING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.