Morgunblaðið - 11.11.1966, Side 30
ou
**» K w i. >4 i> I tJ
Föstudagur 1.1. nóv. 1966
Landsleikur viö
Þjööverja hér?
— í sfað þess að leika vSð
IMorðmenn í Osló
EINS og getið hefur verið um
var ákveðinn iandsleikur við
Norðmenn í handknattleik 4.
desember n.k. og skyidi leikur-
jnn fara fram í Oslo. Nú hafa
“malin hins vegar snúist svo að
ekkert verður úr fyrirhuguðum
leik en í staðinn er von á lands-
liði V-Þjóðverja hingað í lok
þessa mánaðar en endanlegt svar
Þjóðverja mun ekki gefið fyrr en
á morgun, föstudag.
Samningarnir við Norðmenn
slitnuðu vegna þess að norska
liðið taldi sig ekki geta komið
hingað til lands að ári — til end
urgjalds fyrir landsleikinn í
Oslo — vegna fjárhagsvandræða
HSÍ vildi því ekki ákveða leik-
inn í Osló í næsta mánuði, því
hann hefði — án hingaðkomu
Norðmanna að ári — ekki þýtt
annað en útgjöld fyrir HSÍ.
V-Þýzka landsliðið er hins
vegar í ferðahugleiðingum og
mun það leika við Norðmenn í
Osló 4. des. — daginn sem leik-
ur íslendinga og Normanna
Enska
knaltspyrnan
15. UMFERÐ ensku deildar-
keppninnar fór fram sl. laugar-
dag og urðu úrslit leikja þessi:
1. deild:
Arsenal — Leeds 0-1
Aston Villa — W.B.A. 3-2
Blackpool — Tottenham 2-2
Chelsea — Manchester U. 1-3
Leicester — Burnely 5-1
Liverpool — N. Forest 4-0
Manchester C. — Newcastle 1-1
Sheffield W.
Southampton
hafði verið ráðgerður.
HSÍ stendur nú í samningum
við Þjóðverjana að koma hing-
að fyrst og leika hér einn eða
tvo landsleiki. Hvað úr verður
. verður ekki ákveðið fyrr en í
I dag, föstudag.
| Ef Þjóðverjar fást hingað verð
, ur sannarlega um miklu meiri
j handknattleiksviðburð að ræða
en ef leikið hefði verið við
Norðmenn. Þjóðverjar hafa lengi
verið ein af beztu handknatt-
leiksþjóðum heims og ævinlega
hin síðustu ár verið meðal 4-5
beztu þjóða heims.
2:0. Standandi frá vinstri, (sigurvegararnir): Björn Árnason, Erlingur Kristensen, Þórður
Magnússon, Gunnar Geirsson, Frosti Sæmundsson, Hörður Sigmarsson, Páll Pálsson, Magn
ús Albertsson, Þorgrímur Einarsson, Gísli Gunnlaugsson og Þórhallur ívarsson. — Neðri röð
frá vinstri: Ólafur Danívalsson, Viðar Halldórsson, fyrirliði, og Magnús Brynjólfsson.
Everton
Stoke
Sunderland — Sheffield U. 4-1
West Ham — Fulham 6-1
2. deild:
Blackburn — Portsmouth 2-2
Bolton — Birmingham 3-1
Bristol City — Plymouth 1-0
Carlisle — Hull 2-0
Charlton — Norwich 0-0
Crystal Palace — Bury 3-1
Derby — Coventry 1-2
Huddersfield — Preston 1-0
Ipswich — Northampton 6-1
Wolverhampton — Milwall 2-0
Cardiff — Rotherham ??
f Skotlandi urðu úrslit m.a.
þessi:
Aberdeen — Hearts 3-1
Celtic — St. Mirren 1-1
Dundee — St. Johnstone 4-0
Airdrie — Dundee U. 2-2
Rangers — Motherwell 5-1
Staðan er þá þessi:
1. dejld:
1. CHELSEA 21 —
2. ST'OKE 20 —
3. EVERTON 20 —
4. MANCHESTER U. 19 —
2. deild:
1. IPS.WICH 22 —
2. WOLVERH. 21 —
3. BOLTON 20 —
Íslaníísmótiíf r 1
hafiílknattleik
UNDIRBÚNINGUR íslands-
mótsins í handknattleik er nú í
fulium gangi. HKRR, sem sér
um mótið biður þess getið að
frestur til að tiikynna þátttöku
renni út á laugardaginn.
Knattspyrna æfi í barna-
skólum HafnarfjarÓar
Bekkjakeppni nýlokið, en keppt var um bihara, sem Albert
Cuðmundsson, knattspyrnukappi gat
FYRIR nokkru fréttum við
af því að byrjað væri að
kenna knattspyrnu í barna-
skólunum í Hafnarfirði,
þ.e.a.s. Lækjarskóíanum og
Öldutúnsskólanum. Okkur
fannst þessi tíðindi harla góð,
ef rétt reyndust og settum
okkur í samband við Geir
Hallsteinsson, íþróttakennara
sem okkur var tjáð að væri
frumkvöðullinn að þessari ný
breyttni, sem margir eru þeg
ar farnir að spá að eigi eftir
að brjóta blað í þróun íþrótta
mála hér á landi.
Efnilegur íþróttakennari
Það er óþarfi að kynna
Geir Hallsteinsson fyrir les-
endum íþróttasiðunnar, því
Geir, þótt ungur sé, er þeim
vel kunnur fyrir handknatt-
leik með F.H., unglingalands
liðinu og nú síðast með ís-
lenzka landsliðinu, en þar er
hann af mörgum talinn
fremstur í flokki, sérlega leik
inn og skemmtilegur keppnis
maður. En það er ekki víst að
allir viti að Geir lauk prófi
frá íþróttakennaraskólanum
að Laugarvatni sl. sumar við
frábæran orðstír.
Knattspyrna 1 klst. í viku
Er við spurðum Geir um
knattspyrnukennslu hans í
barnaskólunum, tjáði hann
okkur að það væri rétt að
hann hafði tekið upp skipu-
lega kennslu í knattspyrnu í
báðum skólunum, þegar eftir
að hann byrjaði að kenna 1.
okt. s.l. — Var þessi ráðstöf-
un tekin í fullu samráði við
yfirvöld skólanna, en forráða
menn þeirra sagði Geir, að
væru sérlega áhugasamir fyr
ir þessari keanslu. Skyldu-
tími drengja eru 3 klst.
íþróttakennsla í viku hverri,
en í Hafnarfirði, sem víðast
hvar annars staðar á landinu,
eru ekki tök á að uppfyJla
þessa kröfu, sem miðast við
kennslu innan húss, sakir
skorts á húsnæði. — Þess-
vegna hefir verið gripið til
þess ráðs að láta drengina
iðka íþróttir úti yfir skóla-
tímann og má þar til nefna
knattspyrnu 1 klst. í viku, en
amk þess handknattleik,
körfuknattleik og ráðgert er
að farið verði í skauta- og
skíðaferðir. —
Hörkuspennandi
knattspyrnukeppni
Að undanförnu hefir farið
fram hörkuspennandi bekkja
keppni innan skólanna, ragði
Geir, en þátt í keppninni
tóku 10, 11, 12 og 13 ára deild
ir skólanna, en í hverri deild
kepptu 4 lið skipuð 8 leik-
mönnum og fóru leikirnir
fram á velli strákafélagsins
Spörtu, sem lesendur íþrótta-
síðunnar kannast við af frá-
sögn af strákaknattspyrnu-
mótunum í Hafnarfirði.
Það hittist þannig á að dag
inn sem við töluðum
við Geir. átti úrslita-
Drengirnir sem léku úrsiltalcikinn í Öldutúnsskólanum, en þar bar 12 ára J sigur af 11 ara
M með 5:2. Standandi frá vinstri, (sigurvegararnir): Jóhann Jóhannsson, Daníel Hálfdánar-
son, Haraldur Árnason, fyrirliði, Leifur Helgason, Steingrímur Steingrímsson, Sæmundur
Stefánsson, Jón Sigurðsson og Óskar Karlsson. — Neðri röð 11 ára M, talið frá vinstri: Krist
ján Hauksson, Guðjón Grétarsson, Frímann Sveinsson, Einar Ingvarsson, Þórir Einarsson, Pét
ur Hermannsson, Gunnar Einarsson og Kristmundur Oddsson. — Með drengjunum á mynd-
inni eru Geir Hallsteinssen (til vinstri) og Rúnar Brynjólsson, yfirkennari Öidutúnsskólans.
leikur keppninnar að fara
fram og bauð Geir þvi okk-
ur suður í Fjörð til að vera
viðstadda. Við Vorum svo lán
samir að geta horft á úrslita-
leikinn í Öldutúnsskólanum.
— Marga knattspyrnuleiki
hofum við séð og skýrt frá.
en um þennan leik má með
sanni segja, að sjaldan höf-
um við séð ánægjulegri
keppni, bæði hvað snerti
skemmtilegheit og spenning
í leik, sem og leikgleði og
atorku í framkvæmd ollri. —
Frí hafði verið gefið í skól
anum í tilefni leiksins og
voru allir nemendur og kenn-
arar mættir til að hvetja leik
menn, og var það óspart gert
og lá enginn á liði sínu i
því efni. Úrslit urðu þau að
12 ára J vann 11 ára M 5:2,
en yngri drengirnir höfðu
samt leitt leikinn með eins
marks mun fram að hálfleik.
Síðar um daginn var ekki
síður spennandi leikur háður
af hálfu 13 ára A og 12 ára A,
sem léku til úrslita í bekkja-
keppni Lækjarskólans, og
sigraði 13 ára A 2:0. —
Keppt um bikara
í hvorum skólanum um sig,
sagði Geir, að keppt hafi ver
ið um bikar, sem Albert Guð
mundsson, knattspyrnukappi,
gaf til þessara keppna, en
auk þessara bikara eru aðrir
tveir í umferð hjá strákafélög
unum í Hafnarfirði, einnig
frá Albert Guðmundssyni,
sem gegnum árin allt frá því
að hánn æfði lið Knattspyrnu
ráðs Hafnarfjarðar og til
dagsins í dag, hefir ávallt
verið reiðubúinn til aðstoðar
við uppbyggingu knattspyrn-
unnar í Hafnarfirði.
Mótið vakti óskerta athygli
og kallaði fram mörg ný
knattspyrnuefni fyrir Hafnar
fjarðarfélögin að vinna úr.
Um mótið í heild sagði Geir,
að það hefði verið áKaflega
garnan að vinna með hinum
ungu knattspyrnumönnum
og ekki hafi orkað neins tví-
mælis um hylli knattspyrn-
unnar meðal nemenda skól-
anna.
Gott dæmi til eftirbreytni
Drengirnir í barnaskólun-
um í Hafnarfirði munu halda
áfram að æfa knattspyrnu úti
einu sinni í viku í vetur og
verður gaman að fylgjast
með hvernig tekst. Vonast er
Framhald á bls. 31