Morgunblaðið - 20.11.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.11.1966, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 20. nóv. 1966 Ódýrt — Ódýrt Drengja terylenebuxur. Verð frá kr. 395,00. Siggabúð Njálsgötu 49. Já? Nei? Hvenær? Þúsundir kvenna um heim alian nota nú C. D. INDICATOR, svissneskt reikningstæki, sem reiknar nákvæmlega út þá fáu daga í hverjum mánuði, sem frjóvgun getur átt sér stað. Læknavísindi 60 landa ráðleggja C. D. INDICATOR fyrir heilbrigt og farsælt hjónaband, jafnt ef barnaeigna er óskað sem við takmarkanir þeirra. Vinsamlega sendið eftirfarandi afkiippu — ásamt svarfrímerki (kr. 10,00) — og vér sendum yður að kostnaðarlausu upplýsingar vorar. — Ódýrt. — Auðvelt í notkun. íslenzkur leiðarvísir. C. D. INDICATOR, Pósthólf 314, vík. Sendið mér upplýsingar yður um C. D. INDICATOR. Nafn: ......................................... Heimili: ....................................... - Sólveig Eggerz Framhald af bls. 3 maðurinn minn hefur samt á- kveðnar skoðanir á þessu. Þessi heitir svo Sumarnótt. Þarna er sumartunglið út í endanum, kolgrænt, og þarna eru rauðir fuglar. Hreiðurgerð er líka nér. Mínir fuglar eru allt öðruvísi en aðrir fuglar. Ég hef alltaf haft gaman af dýrum og mér þykir vænt um fugla, eins og hann Stubb skítalabba. Hann er nú ógnar- sóði samt. Sú næsta heitir Rosabaugur í kringum tunglið, meira að segja margir rosabaugar utan úna blóðhlaupið tungl. Draumur eða dauði kalla ég þessa. Draumurinn byrpar að rúlla fyrir mér áður en ég sofna. Ég vil hafa minn draum bjartan, en það er máski ósk- hyggja, svo sem eins og í þessari háu og löngu mynd, sem ég kalla Koma þeir aftur? Koma þeir aftur? Xarlmennimir fóru að heim an til aðdrátta, sumir þeirra urðu úti eða drukknuðu á ferðalaginu og komu ekki aft ur. Gamla konan á myndinni er búin að reyna það að missa þá í sjóinn, en í augum hinna er aðeins spurn, ekkert annað að gera en bíða og vona til guðs og biðja, og það er máski mest um vert. Heimþrá, heitir þessi konú mynd. Vinkona min var er- lendis henni leiddist, það var langt í bæinn. Mér fannst ég geta set mig í spor hennar. Stjórnlaus ást, nefni ég þá næstu. Sonurinn er búinn að festa stjórnlausa ást á ein- hverri konu. Fjölskyldan er alveg eyðilögð yfir þessuni syni, sem virðist vera búinn að missa vitglóruna. Kannski það sé líka eiginmaðurinn. Og í framhaldi af þessari er svo myndin Konurán. Þar eru ís- lenzkir víkingar að ná sér í konur. Þeir gera strandhögg á ókunnugri strönd. Karlmenn irnir koma eins og skruggur, eins og þrumur úr heiðskíru lofti, hremma og klófesta. Þetta er rétt eins og í Gerplu. Konurnar bíða og eru hræðsl an uppmáluð, kannski líka ei- SPYRJIÐ EFTIR LEVrS STA-PBEST BUXUM. FYRIRLIGGANDI í ÖLLUM STÆRÐUM OG FJÖLBREYTTU LITAVALL LEVIS STRAUSS. UPPHAFSMENN NÝTÍZKU VINNUFATNAÐAR. EINKAUMBOÐSALI FYRlR LEVIS STRAUSS & CO. VDNN(UFATAGEDR© SSD.ANIDS % IflirS STft-PREST HEFUR VARANLEG BUXNABROT HVER VAR AÐ TALA UM VARANLEG BUXNABROT? lítið spenntar. Konur eru allt af veikar fyrir ævintýrum. Og nú ertu bráðum búinn að sjá alveg nóg, en hér er samt ein í viðbót, sem ég kalla Smalarnir og þokan. Ég hugsa mér þessa þoku upp á Miðdalsheiði, en þar eigum við sumarbústað, sem við nefnum Himnaríki, og þar er himneskt að lifa allar stund ir, en það hlýtur að vera smölum mikil reynsla að vill ast í heiðaþokunni, og ekki vildi ég vera í sporunum þeirra“. Að svo mæltu bauð lista- konan upp á kaffi, og með þvi, að góðum og gömlum ís- lenzkum sið, og Stubbur skíta labbi sezt á höfuð gesta, og það fór líkt og rafstraumfcr um mann, en ostamir og kök urnar fengu þann hroll fljót lega úr manni, og við eyddum kvöldinu í skemmtilegt rabb við þessi elskulegu hjón. Fr. S. Fréttabréf Mykjum 2. nóvember. í HAUST hefur verið hin ágæt- asta tíð, þurrviðrasöm og oftast hægviðri. Nokkurt frost í október af og til, en tekið úr á milli og er jörð nú um það að vera klaka- laus. Aðeins hefur snjóað til fjalla tvisvar eða þrisvar sinnum en tekið fljótt af aftur, þannig að í dag er allt mórautt upp í efstu fjallabrúnir. Sauðfjárslátr- un er nýlokið hér og var tala sláturfjárs hærri en nokkru sinni áður. Veldur því að tvílembingar voru með alflesta móti, og líka hitt að lambaásetningur verður með minnsta mó-ti í vetur, því heyfengur er víða fyrir neðan meðallag. Fé hefur reynzt með rýrasta móti í haust og munar víða um og yfir einu kg á meðal- vigt frá því í fyrra, sem að vísu var gott ár, þannig að bóndi, sem leggur inn jafnmörg lömb í haust og fyrrahaust, stendur nú eftir með svipaða krónutölu og þá. Þ. e. a. s. rýrnunin hirðir þá verðhækkun, sem varð í haust. Auk þess mun svo sláturleyfis- höfum vera fyrii-skipað að halda eftir tveimur krónum á hvert kg dilkakjöts í einhverskonar inn- vigtunargjald, bg er það ágæt uppbót á það sem á undan er gengið í þeim efnum. Miklu var slátrað af kúm í sumar og miklu er óslátrað ennþá og mun kúm fækka hér, og þá fyrst og fremst fyrir það að þeim fækkar stöð- ugt, sem framleiða mjólk. Kart- öfluuppskeran varð mjög léleg í haust og munu ýmsir, sem hafa selt kartöflur á undanförnum ár- um ekki verða sjálfum sér nægir í þeim efnum. Heyfengur varð viða með minna móti í sumar, þó misjafnt sé, en nýting varð góð, og trúlega eru heyin góð. .... í heild stendur Iangt að baki úr Hoitum undanfarinna ára, en þau hafa líka verið mjög góð. í stuttu máli má lýsa þeim þannig —■ eftir langan vetur kom Iítið vor og síðan stutt sumar en gott haust. Ennþá vantar margt fé af fjalli af Landmannaafrétti þó búið sé að gera þrjár leitir. Trú- lega er eitthvað af því komið níður á Rangárvelli, þótt það sé ekki komið til byggða. Nokkrar kindur hafa komið fram úti- gengnar í haust, þrátt fyrir mjög harðann vetur í fyrra. Mjög mik- ill straumur ferðafólks var um Landmannaafrétt á sumrinu og fram eftir öllu hausti, og getur það í sumum tilfellum átt þátt £ að styggja féð £ burtu, einkan- lega þegar liður á sumar. Hér hafa tæplega sézt grágæsir £ háust, ekki heldur rjúpa, enda aldrei mikið um hana hér. Aftur á móti voru álftahjón með þrjá unga á svokallaðri Pulutjörn 1 allt sumar og fram á haust, en þá hirtu einhverjir skotglaðir náungar tvo þeirra og er það ekki £ fyrsta skipti sem það er gert. Annars voru álftarungar óvenju seinþroskaðir i sumar, og um fjallferðir síðari hluta sept- ember, voru þeir víða á afrétt- inum ófleygir og hálfstálpaðir. Margháttaðar framkvæmdir hafa verið hér viðsvegar. Mikið hefur verið ræst fram af mýrum i sumar, bæði í Holtum og Landi, og er unnið að þeim framkvæmd um enn, enda þörfin brýn og mikið verkefni óleyst. Nokkurt land hefur verið brotið til rækt- unar, en byggingar með minnsta móti hér um sveitir. Og svo er kominn vetur, eig- inlega ætti hann að verða góður, það væri nokkur uppbót á síð- ustu misserin. M.G. Oezt að auglýsa í Morgunblaðinu metsölubók úrs'us

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.