Morgunblaðið - 20.11.1966, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.11.1966, Blaðsíða 7
Sunnudagur 20. nðv. tOW MORGUNBLAÐIÐ 7 — Héraðsfundur Framhald af bls. 6 rétt að leggia þa niöur, en taka n\ a í not.Ju.m. i II. Frumvarp til laga um skip- un prestakalla og prófastsdæma. Framsögumaður í þessu aðal- máli fundaiins var séra Pétur Ingjaldsson Rakti hann og skýrði frumvarpið, eins og það var lagt fyrir síðustu presta-, síefnu, en síðan þær breytingar, sem þar voru gerðar á því. Lagði hann áherzlu á það, að frumvarpiö hefði að mestu verið fellt á Suðurlandi og Breiða- j firði, en að mestu látið halda' sér óbreytt á Vestfjörðum, Norð- ‘ urlandi og Austurlandi. Þetta taldi hann ósamræmi í meðferð xnálsins. Miklar umræður urðu um málið. M. a. kom það fram, að næsta óviðeigandi væri, þegar prestakall væri lagt undir annað prestakall þá íæri ekki prests-j kosning fram fyrr en presta- skipti færu næst fram. í lok umræðna var eftirfar- andi tillaga samþykkt: ,.Héraðst'undur Húnavatns- profastsdæmis haldinn að i Blönduósi 11. september, telur dálítið varhugavert að fækka verulega pvestaköllum í strjál- býlinu. Hins vegar telur fundur- jnn eðiilegt. að prestum sé fjölg- að í þéttbv.'mu samfara allmik- illi fjölgun þjóðarinnar, og ekki um að sakast, þótt það kosti1 ríkið aukin fjárframlög til kirkjumála. Hvað snerti Húna- vatnsprófastdæmi sérstaklega, er fundurion ekki andvigur því, að Breiðabólstaðar- og Tjarnar- görðum í viðunanlegt horf, væri prestakall vorði sameinuð. Verði þá prestssetrið á Breiðabólsstað. Einnig telur fundurinn eðlilegra að orðalag prestakallanefndar verði notað um flutning prests- seturs í Þingeyraprestakalli þannig, að kirkjustjórninni sé heimilt að flvtja prestssetrið frá Steinnesi til Blönduóss". III. Þá hófust umræður um erfiðleika þá, sem víða eru á því að fá organista við kirkjur. Voru í því sambnndi nefnd dæmi, sem sýna, að ekki er nógu vel haldið á þessum inálum af hálfu þeirra, sem til þess eru settir og laun- aðir af rílcr.u. Pram kom eftir- farandi tillaga og samþykkt: „Hérðasfundur Húnavatns- prófastsdæmis, haldinn á Blöndu ósi 11. september 1966 ályktar, að víða urn land séu erfiðleikar í sambandi við vöntun á organ- istum við kirkjur og stafi það m. a. af því að þeir, sem vildu mennta sig til organista og söng- stjórnarstaría, hafi ekki næga möguleika nú tíl þess að hafa lífsframfæri af slíkri menntun. Fundurinn skorar því á kirkju- þing og alþing að setja lög um nýtt embætti, sem heitið gæti héraðssöngstjóri. Verksvið hans verði m. a að annast tón- og söngmenntun æskufólks í skól- um, kennsla í kirkjusöng, stjórn kirkjukóra, þjálfun og stjórn annara kóra eftir því sem ástæður leyfa. Umdæmi héraðs- söngstjóra ákvarði biskupsem- bættið og yfirstjórn fræðslumála í samvinnu. Laun hans greiðist úr ríkisstjóði og að nokkru frá þeim aðilum, sem hann starfar fyrir“. IV. Samþvkkt var einróma eftirfarandi tillaga: „Hérðasfundur Húnavatns- prófastsdæmís haldinn á Blöndu- ósi 11. septeinber 1966 biður vin- samlegast úlvarpsráð að sjá svo um, að þáttur útvarpsins „Barna líminn", sem undanfarin ár hef- ur verið útvarpað á sunnudög- um, hefjist eða endi með barna- guðsþjónu«tu“. V. Á það var minnt, að eigi væru nema 15 ár þai til 1000 ár væru liðin frá því að biskup settist að á Lækjarmóti í Víði- dal og krií,tniboð var hafið hér á landi. Einlægur áhugi kom fram á funiinum um það, að þessa merkjsatburðar þyrfti að minnast á viðeigandi hátt á sín- um tíma. VI. Prófastur flutti fundaslita- ræðu, þar sem hann þakkaði öll- um þeim, sem að messu og fund- arstörfum hefðu starfað. Gat hann þess, að þetta væri síðasti héraðsfundur, sem hann stjórn- aði, þar eð hann, aldurs vegna, léti af störfum á næsta ári. Fund inum lauk með Dæn. Séra Pétur Ingjaldsson flutti þá prófasti þakkir fundarins, en minntist jafnframt að nokkru starfa hans sem prófasts, sem hann sagði að verið hefðu hin farsælustu. Að fundi loknum sátu fundar- menn kvöliverðarboð prófasts- hjónanna, frú Oiinu Benedikts- dóttur og séra Þorsteins B Gíslasonar, að Hótel Blönduós. Margt kemur við sögu í þessum endurminn- ingum Þórarins, bæði menn og málefni, en hann hefur kynnzt aragrúa af fólki, allt frá uppvaxtarárum sínum í Reykjavík og fram á þennan dag, enda starf hans stuðlað að því, að svo hefur hlotið að verða. Fáir menn eru skemmtilegri í viðkynningu og samtali en Þórarinn Guðmundsson, enda er hann léttur í lund og spaugsamur, og fyndni hans og orðheppni er alkunn meðal vina hans og þeirra, sem kynnzt hafa honum að nokkru ráði. Jafnframt er hann manna alúðlegastur í viðmóti. En þó að tal hans sé tíðum blandið glettni, er hann alvörumaður undir niðri með góðvild til alls og allra. Aialfundur Vöku Friðrik Sophusson endurkjörinn formaður SI. þriðjudagskvöld var hald- inn að llútel Sögu aðalfundur Vuku félags lýðræðissinnaðra síúdenta í Iláskúla íslands. A fundinum koni fram einhugur WgÉuMjm í.indarmanna að hefja stórfellda s l rlagsmálum stúdenta og Alþingi um námslán og náms- 1 Dagskrá f..ntlí., in, ^ var: 1. skyrsia frafarandi stjornar, 2. . endurskoðaðir reikningar lagðir , fram, 3. lagabreytingar, 4. kosn bvi, sð samræma lög félagsins ing stjórnar og annarra embættis hreyttu skipulagi yfirstjórnar manna 5. önnur mái. félagsmála. Breytingarnar fela1 einnig í sér fjölgun stjórnar- j manna, breytta verkaskiptingu stjórnarinnar og sjö manna kjör deildarráð. Hlutu tillögurnar sam þykki fundarins. Því næst var gengið til embætt ismannakjörs. Eftirtaldir stúdent ar voru kjöi'nir í stjórn Vöku fyrir starfsárið 1966—67. F°r- maður; Friðrik Sophusson, stud. juris, meðstjórnendur: Ármann j Sveinsson, stud. juris, Bjarni Lúðviksson, stud. juris, Gylfi Þór Magnússon, stud. oecon, Ingólfur Hjartafson, stud. juris, Jóhannes M. Gunnarsson, stud. med., Júlí us S. Olafsson, stud. oecon., og Leifur Dungal, stud. med. Endur- skoðendur voru kjörnir þeir Eggert Hauksson, stud. oecon., og Þráinn Þorvaldsson, stud. oecon. til tíu ára í senn. Var Ármann Sveinsson, stud. juris, kjörinn til þess starfs. Kjörnir voru fimm af sjö kjör deildarráðsmönnum: Brynjólfur Kjartansson, stud. juris, Guðjón Magnússon, stud. med., Sigurður Sigurðarson, stud. theol., Georg Ölafsson, stud, oecon., og Hjört- ur Hannesson, stud. polyt. Að embættismannakjöri loknu voru tekin fyrir önnur mál. Páll Bragi Kristjónsson og Friðrik Sophusson ræddu ítarlega um kosningarnar til stjórnar Stú- dentafélags Háskóla íslands nú í haust. Formaður félagsins flutti svo- hljóðandi tillögu til ályktunar vegna frumvarps ríkisstjórnar- innar um námslán og námsstyrki og var hún samþykkt samhljóða: „Aðalfundur Vöku, félags lýð ræðissinnaðra stúdenta haldinn að Hótel Sögu þriðjudaginn 15. nóv. 1966 fagnar þeirri stefnu, er fram kemur í frumvarpi ríkisstjórnarinnar til laga um námslán og námsslyrki. Fund- urinn telur sérstaklega mikils- vex't: 1. Að íslenzkir námsmenn er- lendis og þeir sem nám stunda við Háskóla íslands, njóti sömu réttinda til opinberrar aðstoðar samkvæmt frumvarpinu. 2. að gert er ráð fyrir jafn- greiðslukei'fi (annuitet) við endurgreiðslu lúna. 3. Að veita skuli fé til kandi- data, sem leggja stund á fram haldsnám til lokaprófs. Hinsvegar bendir fundurinn á brýna nauðsyn þess að fjárfram lög úr ríkissjóði verði aukin að miklum mun, til að þessar breyt ingar nái tilætluðum árangri“. Friðrik Sophusson flutti skýrslu fráfarandi stjórnar. Aðal fund hélt félagið 1. nóv. 1965. Þá voru eftirtaldir menn kosnir í stjórn félagsins: Friðrik Sophus son, formaður Björn Bjarnason varaformaður, og ritstjóri, Þrá- | inn Þorvaldsson, gjaldkeri Sigurð ur Sigurðsson ritari og með- ! stjórnendur þeir Már Gunnars- son, Kristján Sigurðsson og Ól- axur Jónsson. Rakti formaður skipulagsbreytingar þær, er orðið hafa á stjórn félags- og hags- munmála stúdenta. Þá drap for- maður á sjónvarpsmálið svo- nefnda og aðild Vöku að því. Kom fram að ekkert pólitískt félag háskólastúdenta tók afstöðu í því máli. Hins vegar var aðild Vöku óbein með þátttöku fjöl- margra Vökumanna. A starfsárinu hélt félagið nokkra fræðslu- og kynningar- fundi, þar á meðal þrjá fulltrúa ráðsfundi. Á árinu komu út þrjú I Vökublöð, og fjölritað kosninga ! blað. Var þetta 29. árgangur blað sinj. | Fráfarandi gjaldkeri, Þráinn Þorvaldsson, stud. oecon. las og i skýrði reikninga félagsins og> voru þeir samþykktir samhíjóða. j Formaður fylgdi úr hlaði laga- | breytingatillögum, sem miða að , Þing IMiilm- og skipa- smáðasambands íslands 2. ÞING Málm- og skipasmiða- sambands íslands var haldið í Reykjavík dagana 22. og 23. október. Þingforseti var kjörinn Sigur- gestur Guðjónsson frá Félagi bif- vélavirkja. 1. varaforseti var kjörinn Halldór Arason frá Sveinafélagi járniðnaðarmanna á Akureyri og 2. varaforseti Ás- geir Hafliðason frá Járniðnaðar- mannafélagi Árnessýslu á Sel- fossi. Ritarar þingsins voru Tryggvi Benediktsson frá Félagi járniðn- aðarmanna og Helgi Arnlaugsson frá Sveinafélagi skipasmíða. Á þinginu áttu sæti 39 fulltrú- ar frá 9 sambandsfélögum. Formaður sambandsins, Snorri Jónsson, flutti skýrslu miðstjórn- ar og Helgi Arnlaugsson, gjald- keri þess, las og skýrði reikn- inga sambandsins. Að því loknu fóru fram um- ræður um skýrslur miðstjórnar og reikningana. Tvö félög voru tekin í sam- bandið: Málm- og skipasmiða- félag Neskaupstaðar og Málm- og skipasmiðadeild Iðnsveinafélags Keflavíkur. í sambandsstjórn voru kjörnir: Miðstjórn: Formaður Snorri Jónsson, varaformaður Guðjón Jónsson, ritari Sigurgestur Guð- jónsson, vararitari Gunnar Ad- ólfsson, gjaldkeri Helgi Arn- laugsson, meðstjórnendur Hann- es Alfonsson og Tryggvi Bene- diktsson. I sambandsstjórn auk mið- stjórnar: Halldór Arason, Akur- eyri, Haraldur Sigurðsson, Vest- mannaeyjum, Ásgeir Hafliðason, Selfossi, Árni Björn Árnason, Akureyri, Jóhann Zóega, Nes- kaupstað, Guðmundur Sigurðs- son, Keflavík, Árni Magnússon, Akureyri og Guðmundur Hall- dórsson, Selfossi. Varamenn í miðstjórn: Theódór Óskarsson, Karl Árnason, Hörður Jóhanns- son. Varamenn í sambandsstjórn: Jón Þorgilsson, Vestmannaeyj- um, Halldór Pálsson, Keflavík, Sigurður Björnsson, Neskaupstað og Normann Hansen, Akureyri. INGÓLFUR KRISTJÁNSSON STROKIÐ UM STRENGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.