Morgunblaðið - 20.11.1966, Síða 11
Sunnudagur 20. ndv. 1966
MORGU N BLAÐIÐ
11
því þrekvirki, sem Erasmus
leysti af hendi með ritstörfum
sínum. Verk hans hafa verið
gefin út í heildarútgáfu erlend
is á undanförnum árum, og eru
þau mörg bindi og stór.
Nokkur orð um manninn.
Svo mikilhæfur maður var
Erasmus að hann hlaut v.iður-
nefnið „lampi Evrópu“, og um
skeið var enginn höfundur jafn
mikið lesinn. f>ó mótaði hann
hvorki samtíð né sögu svo mjög
sem ýms önnur mikilmenni sið.
bótaraldar. Margir töldu hann
ragan og telja enn, þar á með-
al Bertrand Russell. Menn líta
á það íem veikleika í fari hans
að hann sóttist eftir vinsæld-
um þjóðhöfðingja, en hins veg-
ar ber að hafa í huga að vís-
indasjóðir voru þá ekki til, xg
án stuðnings efnaðra manna
var erfitt að vinna dýr vísinda
störf í þá daga, og sama var
að segja um listræn verk. Fram
an af ævi var Erasmus veru-
lega bjartsýnn á sína eigin
öld: „Alls staðar er lærdómur
inn að blómgast, tungumál,
læknisfræði, eðlisfræði, stærð-
fræði, öll vísindi þrífast, jafn-
vel Skotar og Danir hafa tekið
til að leggja rækt við húman-
istisk vísindi. Jafnvel guðfræð
in ber vott um framfarir, þeir
lærðustu og illviljaminnstu af
guðfræðingunum taka sjálfir
þátt í framfaraverkinu". En
þegar hann sá hvert stefndi,
þegar tekið var að hrinda í
framkvæmd siðbótarhugsjón-
um hans og annarra, varð hann
fyrir vonbrigðum, og áléit öld
sína „hina ógæfusömustu og
spilltustu allra alda“. Og hann
fluttist stað úr stað til að geta
verið í friði og varðvéitt hlut-
leysi sitt. „Ich sorge fúr meine
Ruhe und halte mich, 90viel es
angehet, neutral“. í samtíð
hans sökuðu bæði mótmælend-
ur og kaþólskir hann um tví-
lyndi. Þegar góðvinur hans,
Tómas More, var hálshöggvinn
fyrir að halda fast við ka-
þólsku, þá varð honum að orði:
„Bara að More hefði ekki bland
að sér í þetta hættulega mál og
látið guðfræðingana fást við
málefni guðfræðinnar". Eras-
mus aðhylltist ekki neina
ákveðna heimspeki, afrek hans
er ekki fólgið í hugsjónasköp-
un, heldur í dreifingu margra
hugmynda og endurnýjun
skilnings á fornöldinni. Þó
viriðst tvennt hafa verið aðal-
hugsjón hans: Varðveizla
menningarlegrar einingar
Vesturlanda og eins konar sið-
væðing menningarinnar á
grundvelli Nýja Testamenntis-
ins og klassiskra menuta. Og
ekki verður því neitað að
áhugi hans á biblíulegum fræð
um var mikill, og þekking
langt umfram það sem áður
var. Virðingarverður var áhugi
hans á uppeldislegum umbót-
um, og eins og Lúther vildi
hann að fræðslan tæki emnig
til stúlkna. En Lúther hafði
miklu víðara fræðsluhugtak,
vildi láta kenna náttúruvísindi,
tónlist og sögu, umfram mál,
bókmenntir og kristin fræði,
sem báðum voru sameigmleg.
Þótt margir hafi verið fúsir
til að skemmta sér að gagnrýni
Erasmusar og fyndni, þá virð-
ast menn hafa staðið „kaldir“
gagnvart persónu hans, ef til
vill af því að hlýju hefir vant
að innan um hæðnink og skop-
ið. En hvað sem því líður, þá
erum vér Vesturlandamenn í
mikilli þakkarskuld við „iampa
Evrópu“. Margir siðbótarmenn
Aðalfundur Angliu
FYRSTI skemmtifundur á vetr-
ardagskrá fél. Anglia var haldinn
í Sigtúni hinn 7. okt. sl. Var
samkvæmt venju jafnframt um
aðalfund að ræða. Fráfarandi
formaður, Þorsteinn Hannesson
gaf skýrslu um störf stjórnarinn-
ar á liðnu starfsári og þakkaði
meðstj órnendum og félagsmönn-
um ánægjulegt samstarf á for-
mannstímabili sínu. Þökkuðu
fundarmenn Þorsteini og fráfar-
andi stjórn vel unnin störf. Við
stjórnarkjör var Brian Holt, að-
alræðismaður einróma kjörinn
formaður. Er hér um nokkur
tímamót að ræða í sögu félags-
ins, þar sem Brian Holt er fyrsti
formaður „Anglia“, sem ekki er
af íslenzkum uppruna. Aðrir í
stjórn voru kjörnir Már Elísson,
ritari, Ralph Hannam, gjaldkeri
og þeir Haraldur Á. Sigurðsson,
Donald Brander, Guðni Guð-
mundsson, Valgarð Ólafsson og
Heimir Áskelsson, meðstjórnend-
ur. Formaður skemmtinefndar
var kosinn Leo Monroe.
Að loknum aðalfundarstörfum
hófust skemmtiatriði. Ruth Little
Magnússon söng brezk þjóðlög
við afbragðs undirtektir áheyr-
enda. Últíma og Karnabær sýndu
tízkuklæðnaðinn undir stjórn
Colin Porter. Auk þess voru get-
raunir, leikir, bögglauppboð,
happdrætti og dans. Húsfyllir
var og skemmtu menn sér hið
bezta. Nýkjörinn formaður sleit
hófinu, þakkaði félagsmönnum
sér auðsýnt traust og minnti á
45 ára afmæli félagsins sem er
2. des. nk. Undirbúningúr að
veglegu afmælish"fi er í fullum
gangi.
lærðu jöfnum höndum af hon-
um og Lúther. Á síðustu árum
hans var hins vegar upp runri-
in ný öld „með nýjum dyggð-
um og löstum". Tindale, snjall-
asti biblíuþýðandi Breta, var
ofsóttur í þrettán ár og að lok-
um brenndur. Menn urðu á
þeim árum annaðhvort píslar-
vottar eða sigurherrar, en slík-
ir tímar eru lítt að skapi hlut-
lausum og spenglærðum húm-
anistum.
Erasmus vann mikið og vel,
og þótt hann beitti sér ekki
sem skyldi fyrir sinn eigin mál
stað — siðbótina — þá leikur
ekki vafi á því að hann vildi
vel. Hann var maður friðsam-
legrar sambúðar á sinni öld,
húmanisti, maður mannúðar
og mennta.
Heimildarrit: B. Russell. Hist
ory of Western Philosophy,
1962.
ERASMUS FRA Rotterdam
í KLFN I. 781.
ERASMUS, den kristne hum-
anismes store navn, Roald
Tjngstad 1966. Kirkjasöguleg
verk og skólasaga.
Jóhann Hannesson.
Sjónvarpsloftnet
Loftnet í úrvali fyrir Reykjavík og Kefla'
vík. — Verð við allra hæfi.
Loftnetabúðin
VELTUSUNDI 1.
IJmbúðavörur
Umbúðapappír hvítur í rúllum 40 og 57 cm.
Umbúðappír brúnn 57 cm. rúllur.
Kraftpappír 90 cm. rúllur.
Umbúðapappír í örkum.
Smjörpappír í örkum.
Pappírspokar allar stærðir.
Heildsölubirgðir:
Eggert Kristjánsson & Co. hf.
Sími 1 1400.
sófasett á stálfótum með
Fleiri gerðir. Opið fil
á mánudag.
Glœsileg
snunmgsas
klukkan 10
HÚSGAGNAVERZLUN
KÖPAVOGI
SiMI 41699
AUÐBREKKU 59
dúnahf
m-m
íTaTTí iHj
Björgúlfur læknir Ólafsson, höfundur
þessarar bókar, er löngu orðinn
þjóökunnur maöur sem læknir og
rithöfundur. Fyrri bækur hans fjölluðu
aðallega um Austurlönd, en þar dvaldi
hann um 13 ára skeið sem læknir í
nýlendum Hollendinga. sem nú heita
Indónesia.
I fyrstu tveim köflum þessarar bókar segir frá æskustöðvum
höfundar, í kringum Jökul, viðburðarríkum ferðalögum hér á
landi og fjáröflun til náms erlendis.
I þriðja kafla bókarinnar „Lýst til hjónabands", segir frá ein-
stæðu brúðkaupi höfundar.
Fjórða og siðasta kafla bókarinnar kallar hófundur „Ferða-
gaman", en þar segir hann frá „ævintýrarikum ferðum, fram og
aftur, utan lands og innan, m.a'.'fyrstu ferd hans til Austuríanda
15000 km. sjóferð á Stóru farþegaskiþi' .og að siðustu heim i
prinsaíbúðinni á m/s „Selándia".
Bók þessi ber sannarlega nafn með rentu. Æskufjör og ferða-
gaman blasir við á hverri síðu.
S mrbj ömlí ónss cmS Co.h.f
VOLVO-eigendur
Hef opnað réttinga og viðgerðaverkstæði,
með skyndiþj ónustu.
Skeifan 13
Iðngörðum.