Morgunblaðið - 13.12.1966, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. des. 1966
Smásöludreifendur á öli og gosdrykkjum á Akranesi, í Reykja-
vík og nágrenni, svo og á Suðurnesjum, sem óska að fá:
THULE - lagerol
THULE - maltöl
og SANA — gosdrykkir
af fyrstu sendingum, sem berast frá Akureyri, eru hér með
beðnir um að leggja inn pantanir sínar í dag og á morgun í
síma 40-7-40, 40-9-10 og 24611.
SANA umboðið í Reykjavík
ZANUSSh
Hver einasta húsmóðir, sem sér
ZANUSSI kæliskáp hrífst af hinni
rómuðu ítölsku stílfegurð. Þær
sem hafa reynt ZANUSSI kæli-
skápa þekkja kostina. Komið og
kynnið yður hina sérstáklega
hagkvæmu greiðsluskilmála.
Bergsætt eftir
Guðna Jónsson
— mikið rit komið út
ÚT er komið mikið ritverk um
Bergsætt eftir Guðna Jónsson,
prófessor, og er það í þremur
bindum. Bergsætt er ein af kuim
ustu ættum landsins og sagði
Guðni Jónsson við Morgunblað-
ið, að hér væri um að ræða niðja
tal Bergs hreppstjóra Sturlaugs-
sonar í Brattsholti, en afkomend
ur hans væru nú dreifðir um
allt land og skiptu þúsundum.
Margir þeirra eru þjóðkunnir.
Hér er um að ræða aðra út-
gáfu og ea- hún aukin og endur-
samin. Til að gefa nokkra hug-
mynd um stærð ritsafns þessa
má geta þess, að öll bindin þrjú
eru um 1634 bls. að stærð.
í fyrsta bindinu er formáli fyr
ir verkinu eftir Guðna Jónsson,
Alheimsdrottningin
— af Bergsætt.
en þar næst kemur Bergsþáttur
Áður en hefur Bergs ætt er Á«-
tal Bergs í Brattsholti (f. 1683)
og Heimildaskrá.
Mikil fjölgun
í formálanum segir m.a. að
Bergsætt sé upprunnin úr Ár-
nesþingL Þar um slóðir er hún
mjög fjölmenn enn í dag, en á
19. öld fóru greinar hennar að
kvíslast víðs vegar um landið,
en einkum þó um nágrannahér-
uðin.
Þá er þess getið að ekki verði
í framtíðinni hlaupið að því að
rekja ættina, því á hverju ári
bætast hundruð manna við sem
eiga til Bergs hreppstjóra að
telja. 1932 voru 5135 Bergs ætt-
ar, en nú eru þeir 162i51, ef ná-
kvæmlega et talið. í nafna-
skránni er getið 30 þús. íslend-
inga.
Kvenleg fegurð og
Þá segir ennfremur í formál-
anum: „Fróðlegt hefði verið hér
að lokum að benda á einhver
ákvæðin ættareinkenni Bergs-
ættar. En slíkt er hægara sagt en
gert, og betra að hætta sér ekki
langt í því efni að órannsökuðu
Hann er af Bergsætt
— Páll ísólfsson.
máli. í venjulegum skilningí eru
ættareinkenni í fyrsta lagi eig-
inleikar, andlegir eða líkamlegir
sem eru sameiginlegir tiltölu-
lega mörgum einstaMingum
sömu ættar. Frá því sjónarmiði
má sennilega telja tónlistarhæfi-
leika ættareinkenni í Bergsætt,
þar eð þeir koma ótvírætt fram
í mörgum greinum ættarinnar. Á
sömu forsendum má sennilega
telja kvenlegá fegurð til ættar-
einkenna í Bergsætt, og ber þvl
naumast að líta á það sem til-
viljun, að fyrsta og eina íslenzka
stúlkan, sem kjörin hefur verið
alheimsfegurðardrottning, er af
þeirri ætt.. Glöggur maður og
nákunnugur komst svo að orði
um fjölmenna grein ættarinnar,
að í henni væru gáfumenn og
Guðni Jónsson
smiðir, og víst er um það, a3
svo virðist sem hagleikur sé þar
ættgengur."
Ekki þarf að vitna frekar 1
formálsorð höfundar til að sjá
að hér er um hina merkustu
ætt að ræða, Viðvíkjandi þvi
sem segir um tónlistarhæfileik-
ana má til gamans geta þess, að
tónskáldin Sigfús Einarsson og
dr. Páll ísólfsson eru af Bergs-
ætt.
Loksins
fáanleg
hér á landi
LEKTKA kertin eru alger
nýjung í bílaiðnaðinum.
Mynda þau stjörnuneista,
sem veitir mikið betri
nýtingu eldsneytis, meiri
vélarorku og betri
gangsetningu.
LEKTRA kertin endast yfir 75000 km.
Kristinn Cuðnason hf.
Klapparstíg 27. — Laugavegi 168.
Símar 12314 — 21965 — 22675.