Morgunblaðið - 15.01.1967, Page 10

Morgunblaðið - 15.01.1967, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR «5. JANÚAR 19C7, r mét li f SCMAR og allt fram í miðj an desember var unnið að lagningu vatnsleiðlu úr landi Syðstu-Merkur til sjávar á Krosssandi í Bakkalandi, en vegalengdin er um 22,5 km. Samkvæmt upplýsingum Þórhalls Jónssonar, verk- fræðings, sem unnið hefur að þessari framkvæimd fyrir Vest mannaeyjakaupstað er nú lok- að við að leggja leiðsluna alla leið, en eftir er að þrýstiprófa % hluta hennar. Sagði Þór- hallur að vonazt væri til að unnt yrði að leggja leiðsluna út til Eyja á næsta sumri, en þó gæti það dregizt nokkuð, þar eð enn væri ekki búið að ganga frá kaupum á efni í hana. Gæti því dregizt til árs- Grímur Magnússon, Borgareyrum á dráttarvél, flytur rörin til Vestmannaeyinga er taka við. fjlfar Brynjólfsson, Stóru-Mörk á skurðgröfu á vegum Dofra Eysteinssonar, sem tók að sér skurðgröftinn. sér gröft fyrir leiðslunni með tveimur skurðgröfum. Framkvæmd þessi, sem áætl að er að kosti 13 milljónir, hefur gengið vel, að því er Þórhallur tjáði Mbl. og hafa mennirnir unnið af miklum dugnaði. Við verkið vinna margir Vestmannaeyingar, en einnig menn úr Landeyjunum og undan Eyjafjöllum. * > Mynd þessi er tekin í kaffihléi af vinnuflokknum. (Ljósm. Torfi Haraldsson). klaki fer úr jörðu. Verkið er unnið á vegum Vestmanna- eyjakaupstaðar undir verk- stjóm Hávarðs Sigurðssonar, en Dofri Eysteinsson tók að Hávarður Sigurðsson, verkstjóri. » v'if* wpvf S"<*$í Svipmynd af framkvæmdum við vatnsveitu Vestmannaeyja ins 1068 að vatnið kæmi til Eyja. Ekki er fulllokið að ganga frá leiðslunni, sem lögð var í sumar, við Markarfljótstorú og Álana, en flokkurinn, sem vann að verinu í sumar var skipaður um 30 mönnum og unnu þeir fram í miðjan des- ember, er veður spilltust. Framkvæmdir verða hafnar aftur með vorinu, strax og Ðyravörðurinn og drengirnir Hérmeð óskar Nýja Bíó að taka fram eftirfarandi vegna greinar Sverris Þórðarsonar í Morgunblaðinu 10. þm. „Athuga- semd að gefnu tilefni: Börn og fullorðnir": Sunnudaginn 8. þm. komu meðal annarra fjórir ungir dreng ir í Nýja Bíó rétt fyrir upphaf barnasýningar. Þegar þeir voru búnir að afhenda miðana sá dyra vörður að ekki voru nema þrír miðar. Benti hann drengjunum á það vinsamlega — og hvorki þá né síðar kom til nokkurra átaka eða stympinga — að ekki væri heimilit að fjórir færu inn á aðeins þrjá miða. Einn drengj- anna svaraði þá, að hann gæti setið undir yngsta drengnum. Dyravörður benti honuai á, að þetta væri bannað. Ennfremur sagði hann drengjunum, að mið- ar væru enn fáanlegir að sýn- ingunni, ef þeir vildu kaupa einn til viðbótar. Þeir höfðu þó ekki allir áhuga á þessu, svo dyra- vörður lét drenginn, sem var með þeiru yngsta, fram fyrir dyrnar þar sem hann tafði fyrir öðrum sem inn vildu komast. ' Dyravörðurinn sá, er hér var komið, að drengirnir ætluðu ekki að kaupa viðbótarmiða, svo hann kallaði á einn sæta- vísara bíósins og bað hana að gæta dyranna, en fór á eftir þeim og vildi bæta úr þessu eftir mætti, en drengirnir sinntu honum ekki og héldu á brott við svo búið. Næst vissi dyravörðurinn það, að faðir tveggja drengjanna — greinarhöfundurinn, Sverrir Þórðarson — kom á vettvang og lét í Ijós óánægju sína vegna þess, að drengjunum hefði ekki verið hleypt inn. Dyravörður benti honum á þær reglur, sem hér gilda um þetta efni, og get- ið verður hér á eftir, og rakti fyrir honum málavexti ljóslega og sannleikanum samkvæmt, eins og hér er greint frá. Einnig benti dyravörður Sverri á, að ef hann teldi sig hafa lögmætar kvartanir fram að færa, vildi svo vel til, að forstjóri bíósins væri einmitt nærstaddur í hús- inu og hægt að ná tali af hon- um vegna þessa umkvörtunar- efnis. En Sverrir þáði ekki það boð, kvaðst verða að hafa annan hátt á þessum málarekstri, og birtist sá háttur, sem hann vildi heldur hafa, síðan almenningi í Morgunblaðinu þann 10. þessa mánaðar, eins og fyrr segir. Almenningi til glöggvunar vill stjórn Nýja Bíós benda á, að samkvæmt brunamálasamþykkt Reykjavíkur er óheimilt að leyfa fólki að standa á göngum kvik- myndahúsa eða láta fleiri en einn troða sér í hvert sæti. Er þetta gert til að draga sem mest úr slysahættu — ef hér yrði til dæmis jarðskjálfti — og telur Nýja Bíó sér skylt að hlíta settum reglum í þessu efni. Það er ein af skyldum dyravarðar að sjá um, að reglur þessar séu ekki brotnar, enda slíkt hvorki í þágu kvikmyndahúsa né gesta þeirra. Þeir mörgu, sem þekkja til dyravarðar Nýja Bíós vegna starfs hans um mörg undan- farin ár, vita líka mætavel, að hann er í senn gætinn maður og góðgjarn. Stjórn Nýja Bíós telur ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, en vel hefði Sverrir Þórð arson mátt hugleiða það, sem skráð var löngu áður en Einar Benediktsson orti hið alvöru- þrungna kvæði sitt, er hann vitnar í að menn skulu jafnan „hafa það, er sannara reynist“. Með þökk fyrir birtinguna. Stjórn „Nýja bíós“. ★ Ég hef fengið að gera athuga- semd við þetta greinarkorn for- ráðamanna Nýja Bíós. Grein mín var skrifuð eftir að hafa rætt ítarlega um þetta mál við drengina sem fóru í margnefnda bíóferð. Frásögn þeirra veit ég að ég má treysta og ástæðulaust þessvegna að blanda Ara fróða inn í málið, og vissulega óviðeig andi af Nýja bíósmönnum því hér stendur staðhæfing gegn staðhæfingu: Framburður dyra- varðarins eins annars vegar og hinsvegar framburður drengj- anna allra. Ég vil benda á að greinina skrifaði ég í ákveðnum tilgangl — að gefnu tilefni —, og hún bar það líka með sér. Það var til að mótmæla hverskonar hrottaskap og tillitsleysi, sern svo mjög tíðkast að fullorðnir hafi í frammi gagnvart börnum og unglingum hér í borg. Ég hef aldrei ætlazt til að starfsreglur bíósins væru brotnar vegna bræðranna, eins og virðist vaka fyrir greinarhöfundum að draga fram í dagsljósið. Grein mín stendur því eftir sem áður óhögguð. Sverrir Þórðarson. Mótmælir veiði- heimild togara NÝLEGA samþykkti bæjarstjóm Siglufjarðar mótmæli gegn þvi að togurunum yrði hleypt inn fyrir fiskveiðitakmörkin og voru mótmælin samþykkt sam- hljóða. Þá var samþykkt að skora & viðkomandi aðila, að staðsetja fyrirhugaða lýsisherzlustöð hér á- Sigiufirði. — Fréttaritaii.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.