Morgunblaðið - 15.01.1967, Side 12
12
MORGUNBLAÐTÐ, SUNNUDAGUR U5. JANÚAR 1967.
„Það er ddýrara að gera ekki neitt“
Samtal við Hfagnús Sígurðsson, skólastióra um
happdrætti Hjálparsjóðs æskufólks
„MEGINHL.UXVERK Hjálp-
arsjóðs æskufólks er að fyrir
byggja að börn séu skemmd,
hvort sem það nú er vegna
drykkjuskapar aðstandenda
eða munaðarleysis. Fólk talar
um, að slíkar ráðstafanir séu
dýrar, en óhætt er að full-
yrða það, að dýrarar reynist
að gera ekki neitt, blessuð-
um börnunum tii bjargar",
sagði Magnús Sigurðsson
skólastjóri í samtali við blaða
mann Morgunblaðsins á dög-
unum, þegar við inntum hann
eftir starfi Hjálparsjóðsins,
eg sérstaklega í tilefni þess,
að dregið verður í happdrætti
sjóðsins hinn 2. febrúar n.k.
„Ástæðanna til afbrota hjá
börnum og unglingum, er
oftast nær að leita hjá öðr-
um en börnunum sj álfum, og
brýn nauðsyn er því á, að
nema þær ástæður burtu.
Fólkið, sem við hjálpum, er á
öUum aldri og ástæðurnar
fyiir hjálpinni eru einkan-
lega þrjár: 1) Vanræksla í
uppeldi, 2) Munaðarleysi, 3)
Börn eru nauðstödd.
Við erum svo gjörn á að
telja það sparnað að gera ekki
neitt til hjálpar þessum börn-
um og unglingum, sem líða
neyð af ýmsum orsökum, en
sannleikurinn er oftast, já, nær
alltaf sá, að dýrara reynist
það fyrir þjóðfélagið að fá
þessa unglinga til meðferðar,
þegar þeir eru komnir út á
glapstigu, einmitt vegna þess,
að ekkert var gert í tíma til
að fyrirbyggja slíka þróun.
Hjálparsjóður Æskufóliks er
upphaflega stofnaður af ágóða
af sýningum kvikmyndarinn-
Magnús Sigurðsson skóla-
stjóri.
ar: Úr dagbók lífsins og gjafa-
fé, og var það árið 1962.
Fyrsta styrkveiting úr sjóðn
um var árið 1964, og síðan
árlega. Og margar sögur er
hægt að segja frá því fólki,
sem notið hefur hjálpar hans,
hvernig hægt hefur verið að
hjáilpa því úr örbirgð og
vandræðum til manndóms.
Sögur af börnum, sem voru
hrædd, einstæð í stórum
heimi, þörfnuðust vissulega
hjálpar, eru margar til, og
sumar hörmulegar, og víst
má telja, að þau börn, sem
sjóðurinn hefur hjálpað,
myndu ella hafa farið á mis
við gott atlæti, jafnvel lent á
glapstigum“.
Magnús rakti fyrir ökkuf
nokkrar þessara sagna, og
kom þá berlega í ljós, að sjóð
urinn hefur verið svo lán-
samur, að geta stundum veitt
hjálp á hættunnar stund.
„Sjóðurinn er í vörzlu bisk-
upsskrifstofunnar, og er hann
nú að upphæð um 1.3 milljón
ir króna.
Stjóm sjóðsins skipa nú
þessir þrír menn: Ingólfur
Ástmarsson, biskupsritari,
Gunnar Guðmundsson, skóla
stjóri og Magnús Sigurðsson,
skólastjóri.
En svo við víkjum máli
Okkar að happdrættinu sjálfu,
sem dregið verðiur í hinn 2.
febrúar, má geta þess, að í
því eru 200 vinningar, falleg-
ar innrammaðar myndir eftir
skólabörn í 4 skólum í Reykja
vík, Laugalækjarskóla, Laug-
-arnesskóla, Miðbæjarskóla
og Hlíðaskóla. Bömin máluðu
þessar myndir með glöðu
geði, og gáfu þær fúsliega í
þessu augnamiði. Með þessu
hafa börnin hjálpað til að
hjálpa þeim börnum, sem eru
Þrjár vinningsmyndanna i Happdrætti Hjálparsjóðs æskufólks. Myndirnar eru gerðar eftir
börn í 4 skóium borgarinnar.
Islandssaga ■ nýrri útgáfu
JTÝLEGA er komin út í nýrri út-
fáfu hjá Ríkisútgáfu námsbóka
rtandssaga, 1. hefti, eftir Jónas
Jonsson.
Kristján J. Gunnarsson sá um
þessa útgáfu og breytti m. a. efn-
iaröðun bókarinnar. Halldór Pét-
wsson hefur myndskreytt hana
með uim 70 teikningum úr efni
Islandssögunnar, en auk þess eru
1 bókinni teikningar eftir W. G.
Collingwood og E. Dayes auk
margra ljósmynda.
Setningu annaðist Ríkisprent-
•miðjan Gutenberg, en Litbrá hf
prentaði.
Höfundur bókarinnar fylgir
þessari útgáfu úr hlaði með
nokrum orðum, þar sem hann
segir m. a. :
„Þessi bók á sína sögu. $g
hafði, þegar hún var orðfærð,
umsjón með kennsluæfingum í
Kennaraskólanum. Þar voru 20
börn, piltar og stúlkur 10 til 14
ára. >au voru ósamstæð um ald-
nr, þroska og undirbúning og var
kennt í lítilli kjallarastofu. Sam-
búðin var góð, en vandhæfi að
bæta úr þörfum ósamstæðra
nemend?
íslandssagan var erfið náms-
grein. >ar var notuð kennsluibók,
sem miðuð var við próflestur.
Börnin sögðust ekki ráða við
efnið og báðu mig að segja sér
sögu um efnið.
Ég sá, að börnin höfðu rétt að
mæla. En ég var ekki sagnfræð-
Bræðurnir frá Vestmannaeyjum, Gísli og Arnþór, leika á
hijóðfæri sín.
hjálparþurfi. Auðvitað eru
myndirnar misjafnar að gæð-
uin, en ekki er ólítolegt, að
innan þessa stóra hóps, leyn-
ist eittíhvað af „Kjarvölum“
framtíðarinnar, og kynni þá
að vera nokkurs virði að eiga
mynd frá bernsku þess mál-
ara. Sala á miðunum hefur
yfirleitt gengið vel, og nú er
aðeins eftir lokaspretturinn.
Síðastliðið sumar ferðaðist
ég um stóran hluta landsins,
sýndi úrval af myndunum,
ásamt tvíburabræðrunium úr
Vestmannaeyjum, Arnþóri og
Gísla Helgasonum, sem léku
ýmiss lög á hljóðfæri, og sum
lögin höfðu þeir samið sjálf-
ir. Okkur var mjög vel tekið,
og ég vil nota þetta tækifæri
til að þakka öllum þeim, sem
greitt hafa götu okfcar á þess-
um ferðum, en við ferðuð-
umst um Vesturland frá Snæ
fellsnesi og suður. Suður-
landsundirlendi og Norður-
-land. Hvergi var okkur gert
að greiða húsaleigu fyrir sam
komur, og á tveim stöðum,
þar sem við þurftum að gista
á hótelum, fengum við ekki
að greiða uppihald og gist-
ingu. Allt þetta ber að þakka,
og það er sannarlega upp-
örfun í starfi að finna þenn-
an hlýhug fólksins. Margar
góðar gjafir hafa auk þess
borizt sjóðnum frá einstakl-
ingum, og nú rétt fyrir jólin
barst mér t.d. 8.000.00 krón-
ur frá manni, sem ekki vill
láta nafn síns getið.
Um þessar mundir bostar
sjóðurinn 3 börn á skóla, en
alls hafa 20—30 börn notið
styrktar úr sjóðnum á þess-
um árum.
Og nú er ekkert etftir ann-
að en að hvetja fólk til að
kaupa happdrættismiða sjóðs
ins, og vonandi seljaist mið-
arnir upp, en gefin voru út
24000 miðar, og kostar hver
miði 50 krónur. Farið verður
með miðana í hús, en auik
þess verða þeir seldir á göt-
um hér í Reykjavík, um leið
og sýning á myndunum, hefst
í glugga Morgunblaðsins þann
18. þessa mánaðar.
>á eru miðarnir einnig til
sölu í verzluninni Grettis-
götu 26.
Ég held, að engum geti
blandast hugur um, sem
nofckuð kynnir sér þessi mál,
að hlutverk sjóðsins er mik-
ið þjóðþrifamál, og einskon-
ar slysavarnir og ætti skilið
stuðning sem allra flesta, og
það er einmitt meiningin með
þessu happdrætti, að gefa
sem flestum kost á því að
vera með í þessu starfi, leggja
hönd á plóginn til heilla fyrir
æskulýð íslands“.
Og við göngum með Magn-
úsi niður í kjallara Hlíða-
skóla, þar sem í óðaönn er
verið að innramma þessar
fallegu myndir og búa þær
undir það að verða augna-
yndi fólks, eftir að dregið
hefur verið í happdrættinu
þann 2. febrúar næst kom-
andi. Ekki er að efa, að salan
gengur vel. fslendingar eru
þek'ktir fyrir það að styðja
góð málefni af rausn, og vafa
laust verður hér rösklega
tekið undir, svo að miðarnir
seljist og hverfi eins og dögg
fyrir sólu. — Fr. S.
ingúr, heldur kennari. Ég las
bækur um menn og málefni og
breytti efninu í söguform. >að
líkaði börnunum betur en bókin.
Síðan ri-taði ég kaflana og gaf
þá út.
Á nokkrum árum urðu sögu.
þættirnir vinsælir í barnaskólum
um allt land. Ýmsir voru
óánægðir, einkum eftir að lands-
próf kom til sögunnar, en börnio
Framihald á bls. 14
VERKSMIÐJUÚTSALAN
Seljuru næstu daga,
ýmsar vörur
á ótrúlega lágu verði.
M. a. má nefna
dragtir, herrafrakka,
herrabuxur, drengjabuxur.
Mikið af efnisbútum í úlpur,
buxur og pils.
Sérstaka athygli viljum við vekja á Hollenzkum
teryleneefnum, sem við munum selja á kostn-
aðarverði.
Getum við sniðið og selt til-
legg í buxur og pils úr
þeim efnum.
Einnig saumað eftir númer
um, sé þess óskað.
KJæðagerð, Ytra-Kirkjusandi, sími 33542 —
(Hús Júpíters og Marz)
Gengið inn í portið frá Laugalæk.____________