Morgunblaðið - 15.01.1967, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1967.
31
— Kina
Framh. af bls. 1.
brotlegur við kommúnista
flokk landsins.
: Jafnframt segir frétta-
stofan Nýja-Kína svo frá, að
í hernum verði í framtíðinni
I tekin upp sú stefna að rækta
nýja manngerð, kommúniska
manngerð. Málgagn hersins
| hefur hvatt til herferðar gegn
I þeim herforingjum, sem and-
stæðir séu stefnu Mao Tze
tungs.
' Fréttamenn blaðanna „Sanbei
Shimbun" og „Yomiuri Shimb-
un“ í Tokio senda báðir þær
fregnir frá Peking, að nýjustu
veggspjöldunum, sem þar hafi
verið komið upp sé skýrt frá
því, að Liu Shao-Chi hafi tekið
i játningu sína eða „sjálfs gagn-
rýni“ til baka og tilkynnt komm
únistaflokknum kínverska, að
I hann hafi komizt að annarri nið-
j urstöðu en þeirri, er hann setti
þar fram Hann telji sig ekki
hafa brotið gegn flokknum, né
orðið á mistök.
Frétt þessi vekur að vonum
eftirvæntingu meðal frétta-
inanna. Flestir eru þeir þeirrar
skoðunar, að varhugavert sé að
taka trúanlegt allt, sem á þess-
um veggspjöldum standi, — en
þess er að gæta, að Liu Shao-
chi, sem áður var talinn Mkleg-
astur eftirmaður Mao Tze tungs
hefur að undanförnu verið tal-
inn einn helzti óvinur menning-
arbyltingarinnar. Fylgjast menn
með örlögum hans og valda-
Stöðu af mikilli eftirvæntingu,
tem kunnugt er lækkaði Liu í
tign í ágúst sl., ofan í áttunda
sæti á valdalistanum, en Lin
Piao, landvarnarráðherra, hlaut
hans sess næst Mao.
! „Sankei Shimbun" segir einnig
frá því, að Rauðu varðliðarnir
hafi náð útvarpsstöðinni í Pek-
ing á sitt vald svo og skóla út-
varpsins. Hafi þeir sent út orð-
sendingu, þar sem segir, að út-
varpið hafi um áramótin 1965
til 1966 sent frá sér andbylting-
arsinnaða dagskrá og jafnframt
eru forráðamenn útvarpsins sak-
aðir um að fylgja borgaralegri
stefnu, bæla niður hugsun Maos
og reyna að hefta framgang
menningarbyltingarinnar.
Aðrar fréttir frá Tokio herma
að þrír kunnir blaðamenn í Pek
ing hafi tekið við starfi áróðurs-
Stjiórans Tao Chus. Var frá þessu
skýrt á veggspjöldum í gær en
ekki á það minnzt, hvort Tao
Chu hefði raunverulega verið
vikið úr embætti. Tao Chu var
til skamms tíma talinn fjórði
mesti valdamaður í Kína, en
fyrir nokkru tóku Rauðu varð-
iiðarnir að halda því fram að
hann væri handbendi Liu Shao
Chis og Teng Hsiao pengs, aðal-
Titara kommúnistaflokksins.
í grein úr málgagni hersins,
sem lesin var upp í Pekingút-
varpinu í morgun var hvatt til
atlögu gegn herforingjum, sem
andstæðir séu Mao Tze tung.
Sagði að þar væri „handfylli
herforingja“, sem fylgdu kapi-
taliskri stefnu andstæðri bylt-
ingarstefnu Maos.
Blaðið ségir, að ástandið 1
hernum verði óþolandi ef endur
Skoðunarsinnar fái að hreiðra
betur um sig í hernium og hvet-
ur til harðrar baráttu fyrir þvi
að losa herinn við þessi borgara
legu endurskoðunaröfl. Telur
það ekki vafa á, að þessir aðilar
innan hersins muni beita öllum
brögðum og ráðum til þess að
halda stöðum sínum.
I.oks skýrir fréttastofan
Nýja Kína svo frá í dag, að í
hernum verði í framtíðinni
tekin upp sú stefna að rækta
nýja manngerð. Hafi yfirstjórn
hersins tekið þessa ákvörðun
eftir lestur rita Mao Tze-
tungs, þar sem segir eitthvað
á þá Ieið, að þá hermenn séu
komnir á það stig, að þeir
geti senn stundað nám, tekið
þátt í landbúnaðarvinnu og
verksmiðjuvinnu, auk her-
mennskunnar, verði herinn
sem stór skóli, þar sem þjálf-
uð verði ný manngerð „komm
únisk manngerð."
— Viefnam
Framh. af bls. 1.
hafa um 5000 borgarar orðið við
áskorun Bandaríkjamanna um
að taka eignir sínar með sér
og flytja sig í skjól að baki banda
rísku víglínunnar.
Snemma í gærmorgun gerði
sveit frá Vieoong raunverulega
sjálfsmorðárás á bandaríska her-
stöð í Quan Tin héraðinu. Búnir
sprengjum réðust skæruliðarnir
á bandarísku hermennina í skjóli
fallbyssuskothríðar. Árás þeirra
var hrundið og biðu þeir mikið
tjón, en tjón Bandaríkjamanna
var lítilvæg. í gær gerðu banda-
rískar flugvélar árásir á 62 báta
meðfram strönd N-Vietnam og
sökktu 34 þeirra.
Bandarísk orrutuþota af gerð
inni Super-Sabre var í gær skot-
in niður um 60 'km. suðaustur
af Saigon, að því er bandarískur
talsmaður skýrði frá. Flugmanns
ins er saknað. Þá sökk bandarísk
ur tundurduflaslæðari 1 fljótinu
Long Tay fyrir suðaustan Sai-
gon, etfir að hafa lent í árekstri
við norskt skip. Þriggja af sjö
manna áhöfn tundurduflaslæðar-
ans er saknað.
Málgagn kommúnistaflokksins
í Norður-Vietnam, Nhan Dan,
lýsti því yfir í dag, að styrjöld-
in í Suður-Vietnam yrði enn þá
heiftúðugri á þessu ári, en það
hefði einungis í för með sér, að
Bandaríkjamenn myndu þeim
mun fyrr bíða fullkominn ósigur.
Samkvæmt frásögn blaðsins,
sem fréttastofa Norður-Vietnams
skírsotar til, hefði Vietcong-hreyf
ingin fellt eða sært 370.000 her-
menn óvinanna, þar af 108.000
Bandaríkjamenn. Þetta sýndi, að
jafnvel 400.000 manna herlið
Bandarikjamanna gæti ekki
megnað að bæta aðstöðu þeirra
og að þeir gætu eklki með nein-
um hætti komizt hjá því að bíða
algjöran ósigur.
Flýgur aftur á
Framh. af bls. 5.
alla vélina og lakka hana?
— Ég gæti trúað að það
tæki um 100 klst. Vélin verð-
ur sem ný þegar þessu er lok-
ið, en allt sem ekki er í full-
komnu lagi verður endurnýj-
að.
— Þeir sögðu okkur að þú
kynnir góða sögu af vélinni.
— Já, hún er kannski ekki
svo vitlaus. Þannig var að ég
var að vinna hérna úti á flug
velli fyrir mörgum árum í
talsverðu roki. Skammt frá
mér var maður, Gunnar
Pálmason, að því er mig
minnir að gera við bílinn
sinn. Allt í einu heyri ég ein-
hvern hávaða, og er ég leit
upp sá ég Ká-zetuna hanga
í loftinu fyrir ofan bílinn, en,
flugmaðurinn hafði opnað
hurðina og vildi ræða lands-
ins gagn og nauðsynjar við
hinn, en lítið varð úr sam-
ræðunum, því að Gunnar tók
eðlilega til fótanna. Ég held
að flugmaðurinn hafi verið
Rúnar Guðbjartsson, sem
núna flýgur fyrir Flugfélag
Islands.
Við spyrjum nú hve marga
km. vélin hafi lagt að baki
og iþeir segja að Runólfur
geymi loggbókina. Eftir
nokkra útreikninga og sam-
lagningu kemur í ljós að hún
hefur verið í loftinu í 1900
klst. og 5 mínútur og er það
lauslega útreiknað, miðað við
160 km. flughraða á klst. um
290000 km.
— Runólfur, hvernig skipt
ið þið notkun vélarinnar ykk
au í milli?
— Á þvi hafa engin vand-
kvæði verið. Við erum svo
sjaldan heima allir í einu og
ef að svo hittist á, tölum við
okkur saman um það. Ómar
fer t.d. oft á skíði upp í
Kerlingarfjöll á vélinni og
svo förum við oft í veiðitúra
einn eða tveir saman. Það
má lenda vélinni svo til alls
staðar. í sumar fór ég t.d. á
henni í sel austur á Landeyja
sand og notaði þá 8 metra
í lendingu og 20 í flugtak og
var þó með kærustuna mína
og 80 kg. sel innanborðs.
Og í sumar fórum ég og kær
astan mín í 10 daga sumar-
frí á vélinni og ferðuðumst
um landið þvert og endilangt.
Það er alveg ómetanlegt að
eiga svona tæki.
Við snúum okkur nú að
Ómári, sem er að yfirfara
hreyfilinn gaumgæfilega og
spyrjum hann hvað það kosti
að eiga svona flugvél.
— Það er ekki dýrt. Ég
gæti trúað að í þessi 3 ár sem
við höfum átt hana, höfurn
við lagt í hana rúmar 10000
kr. á ári. Tryggingarnar
kosta um 7000 kr. á ári og
henzín og olía um 70 kr. á
flugstund. Viðhald og eftirlit
framkvæmum við nær allt
sjálfir.
— Að lokum Ómar, hver
finnst þér munurinn á að
fljúga svona rellu og stórri
farþegaflugvél?
— Það er ekki gott að lýsa
því. Það er mikil tilbreytri
og skemmtun að fljúga svona
vél en eins og Englendingur-
inn segir: „You fly by the
seat of your pants“.
Og við kveðjum þessa
Sannreynið með DATO
á öil hvít gerfiefni
Skyrtur, gardínur, undirföt ofl.
halda sínum hvíta lit,
jafnvel það sem er orðið gult
hvítnar aftur,
ef þvegið er með DATO.
ágætu flugmenn eftir að hafa
hlustað á óteljandi sögur af
flugi og flugferðum, sem
væri efni í margra síðna frá-
sögn.
— Íhj.
Utan úr heimi
Framh. af bls. 16.
um 1 kosningunum. Banda-
ríkjamenn eiga það Edwin
O. Reischauer, fyrrum sendi-
herra sínum í Japan, að
þakka, að þeir skilja betur
aðstöðu Bandarikjamanna en
flestar aðrar Asíuþjóðir. Þótt
meirihluti þjóðarinar sé and-
vígur styrjöldinni eru menn
það yfirleitt sem friðarsinn-
ar, — ekki af stjórnmálaleg-
um ástæðum.
Við fyrrgreind vandamál
Satos bætast nokkur atriði,
sem fyrirrennarar hans
þurftu aldrei að hafa áhyggj-
ur af, — þ.e.a.s. vaxandi
reykjarþokuna (smog) í borg
unum, of mikið álag á opin-
berum samgöngutækjum, háa
húsaleigu og geysilega verð-
hækkun á lóðum og landL
Þessi vandamál voru tæp-
ast til fyrir nokkrum árum.
En Japan er að verða þjóð
borgarbúa, mannaflið leitar
utan úr sveitunum í borgim-
ar, þar sem það sækir í iðn-
aðinn og skrifstofu- og verzl-
unarstörf. Lífið í borgunum
er að verða erfiðara og erfið
ara og óánægja margra mun
eflaust koma fram í kosning-
unum.
En þrátt fyrir alla þessa upp-
talningu, búast flestir stjórn-
málasérfræðingar við, að
flokkur Satos fari með sigur
í kosningunum. Hann hefur
nú 278 sæti í neðri deild
þingsins af 486 þingsætum.
Sosialistar eru næstir með
141 þingsæti og er búizt við,
að þeir fái í mesta lagi 220.
Vissulega gæti það þó gerzt,
að stjórnarandstöðuflokikarn-
ir næðu samanlagt meirihluta
— maður skyldi aldrei segja
aldrei, en það er harla ólík-
legt. Sá flokkur andstöðunn-
ar, sem fylgzt verður með
af mestum áhuga, er Komeito
flokkurinn (sem þýðir „flokk
ur, sem berzt fyrir hreinni
stjórn“). Er það flokkur Búdd
hista, sem þegar hefur 32
þingfulltrúa og kynni hugs-
anlega að fá tuttugu til við-
bótar.
— Varnarliðið
Framh. af bls. 32.
inga og varnarliðsins. Kvað
hann það sér sérstaka ánægju,
að honum hefði verið falið að
sæma Weymouth heiðursmerki
fyrir sín vel unnu störf á ís-
landi. Að lokum bauð hann
Stone aðmirál velkominn til
starfa fyrir NATO, og óskaði
honum heilla í hinu nýja starfL
Strax að athöfninni lokinni
steig Weymouth og fjölskylda
hans um borð í flugvél, sem beið
þeirra og fluttu vestur um haf,
en hann tekur nú að sér yfir-
stjórn kafbátavarna flota á
Kyrrahafi. Stone aðmíráll og
kona hans höfðu eftir athöfnina
í gær boð inni fyrir gestL
Turin, Ítalíu, 14. jan. NTB.
• Sex hakakrossar og hatursyrði
í garð Gyðinga voru í gærkveldi
máluð á veggi skólahúss eins og
verksmiðjuhúss í iðnaðarborginni
Turin á Norður-Ítalíu. Skólinn,
sem um ræðir, er kallaður eftir
Gino Segro, ítölskum vísinda-
manni af Gyðingaættum og eig-
andi umræddrar verksmiðju er
Gyðingur.
Notið BEMIX til þess
að rykbinda, einnig I
slitlag á góllf, bryggj-
BEMIX ætti ávallt að
nota á steinsteypt þök
sprungin, tröjppuhorn
brotin eða pússningin
laus?
Forðið þá frekari
akemmdum og gierið
ekkL og hrindir frá
sér vatnL
BYGGINGAVÖRUVERZLUNIN
NÝBORG
HVERFISGÖTU 76
s
F
S(Mi 12017
Einkaumiboð: STRANDBERG, hieildverzlun.