Morgunblaðið - 16.02.1967, Blaðsíða 1
28 SÍÐUR OG HEIMDALLUR
54. árg. — 39. tbl. _____________________________FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1967_______________________________Frentsmiðja Morgunblaðsins
— Qeirðir á fyrsta degi kosninganna
Ekkert lát er á hópgöngum rauðra varðliða. Þessi mynd var tekin í Nanking í gær þar sem
um 60000 varðliðar fóru í hópgöngu um stræti borgarinnar og fordæmdu sovézku endurskoð-
un.rsinnana.
ROLEGRA IPEKING
Meira raunsæi af hálfu Kínverja
Peking, Moskvu og Tókíó,
15. febrúar — (NTB-AP)
SAMBANDIÐ milli Sovétríkj-
anna og Kína virðist nú vera
komið á nýtt stig, sem einkenn-
ist af raunsæi af- hálfu Kínverja.
Árásir Kínverja á Moskvu eru
nú aftur komnar meira yfir á
stjórnmálasviðið. Stjórnmála-
fréttaritarar í Peking benda á að
mótmælaaðgerðunum fyrir fram
an sovézka sendiráðið i Peking
hafi nú alveg verið hætt og
myndirnar af Sovétleiðtogunum
hafi verið fjarlægðar af hliði
sendiráðsbyggingarinnar. Þá til-
kynnti kínverska utanrikisráðu-
neytið sovézku sendiráðsstarfs-
mönnunum á sunnudag, að þeir
gætu nú að meira eða minna
leyti tekið upp venjuleg störf
sin á nýjan leik. Það var í byrj-
un sl. viku að ráðuneytið ráð-
lagði Rússununt að fara ekki
út fyrir svæðið umhverfis sendi-
ráðsbygginguna.
Chen Yi utanríkisráðherra
Kína sagði I hádegisverðarboði,
sem sendinefnd frá Mauritaníu
hélt í Peking í dag, að samband
Kína og Sovétríkjanna væri við
það að slitna, vegna fjandskapar
Sovétleiðtoga í garð Kína. Út-
varpið í Peking sagði að Yi hefði
sagt, að er Kosygin var í heim-
sókn í Bretlandi hefði hann
reynt að hreinsa Sovétrikin af
ábyrgðinni á versnandi sam-
skipum landanna. Sagði Yi að
ummæli Kosygins um menning-
arbyltinguna og Mao Tse tung
hefðu einkennzt af örvæntingu,
sem benti til veikleika Sovétríkj
anna.
Yi sagði að samskipti land-
anna hefðu farið stórum versn-
andi, er Sovétmenn réðust á kín-
verska stúdenta og diplómata í
Moskvu. Sagði hann að ekkert
gæti stöðvað hina miklu menn-
ingarbyltingu né varpað skugga
á kenningar hins mikla Mao.
Veggspjöld rauðu varðliðana í
Peking sögðu að Sinkiang á
landamærum Kína og Sovétríkj
anna væri fravarðarlinan gegn
sovézku endurskoðunar- og
heimsvaldasinnunum. Kínve ' a
dagblaðið „The Hong K . 0
Star“ sagði í dag án þess að
nefna heimildir, að kínverskur
hershöfðingi væri nú staddur í
Framhald á bls. 27.
Nýju Delhi, 15. febrúar NTB-AP
ÞAÐ voru langar biðraðir fyr-
ir framan kjörstaðina í morg-
um borgum og bæjum Indlands,
þegar kjósendur um gjörvallt
landið streymdu til kjörklefanna
til þess að kjúsa til nýs þjóð-
þings í morgun. Kosningarnar
munu standa yfir í heila viku
og gert er ráð fyrir, að úrslit
þeirra verði þau, að Kongress-
flokkurinn undir forystu frú
Indira Gandhi forsætisráðherra
muni halda meirihlutanum í
þjóðþinginu, en tapa honum í
nokkrum þingum hinna einstöku
17 sambandsríkja.
Talsvert var um óeirðir á þess
um fyrsta degi kosninganna og
munu að minnsta kosti tveir
menn hafa týnt lífi og all marg-
ir særzt í árekstrum, sem urðu.
Alls hafa um 250 millj. manns
atkvæðisrétt og eru þetta því
umfangsmestu lýðræðilegu kosn
ingarnar, sem fram fara í heim-
inum. Fyrstu kosningaúrslitanna
er að vænta eftir 21. febrúar,
þegar kosningunum er lokið alls
staðar í landinu og talning get-
ur hafizt.
Helztu andstöðuflokkar Kon-
gressflokksins eru tveir hægri
flokkar, Swatantra-flokkurinn,
sem er fylgjandi einkaframtaki í
efnahagslifi landsins og hinn
þjóðernissinnaði Jan Sangh-
flokkur, sem byggir á erfða-
venjum hindúismans, en einnig
kommúnistaflokkurinn.
Vegna matarskorts og hækk-
andi verðlags verða kosningarn-
ar nú hinar erfiðustu fyrir Kon-
gressflokkinn frá því að Ind-
land hlaut sjálfstæði, en flokk-
urinn nýtur ekki lengur forystu
hins sterka leiðtoga Jawaharlal
Nehru, en hann bar í mörg ár
ægishjálm yfir indverska stjórn-
málamenn.
Beztu brezku
leikararnir
London, 15. febrúar — AP
MIClHAEL Caine var í dag kjör
inn bezti kvikmyndaleikari og
Vanessa Redgave bezta leikkona
Bretlands á leiksviði af brezka
fjölleikaklúbbnum.
Caine hlaut þennan heiður
vegna hlutverks síns í myndinni
„Alfie“ og ungfrú Redgave fyrir
frammistöðu sína í „The Prime
of Miss Jean Bordie".
Virginia McKenna var kjörin
bezta kvikmyndaleikkonan fyrir
leik sinn í „Born free“ og David
Warner bezti leiksviðsleikarinn
i fyrir leik sinn í „Hamlet".
Sukarno ekki af
baki dottinn
Jakarta, 15. febrúar AP.
SÚKARNÓ Indónesíuforseti hef-
ur ákveðið að berjast þar til yfir
lýkur fyrir völdum sínum, að því
er áreiðanlegar heimildir í Ja-
karta hermdu í dag. Súkarnó
neitaði í gærkveldi að verða við
kröfum yfirmanna hersins um
að láta af völdum. Talsmaður
herstjórnarinnar sagði i dag, að
forsetanum yrðu ekki gefin
fleiri tækifæri til að láta af em-
bætti með sæmd.
Sagði talsmaðurinn, að Su-
harto hershöfðingi, valdamesti
maður landsins í dag, myndi
hlýða á allar skynsamlegar kröf
ur Súkarnó, en hann myndi ekki
ræða við hann í forsetahöllinni
aftur. Næsta skrefið í baráttunni
gegn Súkarnó er, að ráðgjafa-
þing landsins tekur málið til með
ferðar í næsta mánuði. Suharto
hershöfðingi hefur nú reynt að
koma forsetanum frá völdum í
rúmt ár, en hinar miklu vin-
sældir forsetans víðsvegar í
Indónesíu hafa hindrað að það
tækist.
Vatnið, sem Mao synti í.
Frakkar vilja við- j hollara en mgólk
halda HATO
Háðkvœði eftir Evtusénko
um Rauðu varðliðana
París, 15. febr. NTB.
FRAKKLAND hefur tekið já-
kvæða afstöðu gagnvart því að
halda áfram samvinnunni innan
Atlantshafsbandalagsins eftir
1969, en það ár verður banda-
lagið tuttugu ára. Var frá þessu
skýrt á fundi Nato í París i dag.
Fastaráð Nato hóf fund sinn
í París í morgun og voru þar
fyrst og fremst til umræðu fram
tíðarverkefni bandalagsins með
tilliti til þróunarinnar í alþjóða-
málum. Sendinefndir allra ríkj-
anna — einnig sendinefnd Frakk
lands — létu í ljós jákvæða af-
stöðu gagnvart þörfinni um að
halda áfram samstarfinu í Nato
eftir árið 1969, en eftir það
ár hafa einstök meðlimaríki
heimild til þess að ganga úr
bandalaginu með eins árs fyrir-
vara.
Þrátt fyrir það að de Gaulle
hefur tekið Frakkland undan
hinni sameiginlegu hernaðaryfir
stjórn Nato, er litið svo á banda-
lagið í París, að það sé mjög
mikilvægt fyrir afstöðu austurs
og vesturs.
Moskvu, 15. febrúar — NTB
H IN U umdeilda sovézka
skáldi, Évgenv Évtusénko,
tókst í dag að keppa við all-
ar fréttirnar frá Kina og Viet
nam. í öllum strætisvögnum
og neðanjarðarlestum sátu
sovétborgarar og lásu tvö
ádeilukvæði eftir hann um
Rauðu varðliðana í Kína.
Kvæðin birtust í bókmennta-
tímaritinu „Literaturnaja Gaz
eta“ og seldist það að þessu
sinni upp á fáeinum klukku-
stundum.
í öðru kvæðinu, sem
nefnist „Ganga Rauðu varð-
liðanna", er sólin ásökuð um
tvískinnung, sökum þess að
hún skín einnig yfir Ameriku,
og þess vegna ætti hún að
vera í fangelsi. Þá segir, að
snjórinn sé vafalaust Hvítur
varðliði og að skáldið Homer
hafi ekki bara verið líkam-
Framhald á bls. 27.
Évgení Évtusénko
Þingkosningar
hafnar í Indlandi