Morgunblaðið - 16.02.1967, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.02.1967, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1967. Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. í lausasölu kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. HVÖT 30 ÁRA C j álf stæðiskvennafélagið ^ Hvöt átti í gær þrítugs afmæli. Það var stofnað 15. febr. 1937 og voru stofnendur félagsins um þrjú hundruð konur. Þetta var fyrsta kven- félagið, sem stofnað var inn- an Sjálfstæðisflokksins. Má því segja, að Hvöt hafi unnið mikið og merkilegt brautryðj endastarf, því síðan hafa ver- ið stofnuð félög Sjálfstæðis- kvenna um land allt. Hafa þau unnið Sjálfstæðisflokkn- um og stefnu hans ómetan- legt gagn. Margar ágætar konur hafa starfað innan vébanda Hvat- ar og í forustuliði félagsins. Engum er gert rangt til, þótt sérstaklega sé getið frk. Maríu Maack, sem var einn af stofnendum félagsins og hefur verið í stjórn þess alla trð síðan. Formennsku í félag inu hefur hún gegnt samtals í 12 ár. Þáttur konunnar í stjórn- málabaráttunni verður stöð- ugt meiri í nútíma þjóðfélagi. Sá tími ei löngu liðinn aðóvið urkvæmilegt sé talið, að kon ur taki þátt í þjóðmálabar- áittu og skipi opinberar stöð- ur og embætti. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur haft sér- staklega góðan skilning á gildi þess framlags, sem kon- an hefur lagt af mörkum til þjóðmálabaráttunnar. Þess vegna hefur hann jafnan haft konur í framboði til þings og bæjarstjórna og lengstum hina síðari áratugi hafa kon- ur setið á þingi innan þing- flokks Sjálfstæðisflokksins. Á þessu kjörtímabili á aðeins ein kona sæti á Aliþingi, frú Auður Auðuns, sem einnig er forseti borgarstjórnar Reykja víkur. Hefur hún jafnan skip- að sæti sitt með prýði og ver- ið kynsystrum sínum til sóma, hvort heldur hefur ver ið á Alþingi eða í borgar- stjórn höfuðborgarinnar. Hvatarkonur hafa haft for- ystu um stofnun sjálfstæðis- félaga víðsvegar um landið. Margar af forustukonum félagsins hafa verið óþreyt- andi í ferðalögum um landið og stuðningi við stefnu og baráttu Sjálfstæðisflokksins í hinum ýmsu kjördæmum. Fyrir þetta á Sjálfstæðis- flokkurinn konunum miklar þa'kkir að gjalda. — Hvöt er stórt og vaxandi félag, sem skipað er ágætlega starfs- hæfum og dugandi konum, ungum sem eldri. Morgunblaðið þakkar Sjálf stæðiskvennafélaginu Hvöt mikið og gott starf á liðnum tíma um leið og það árnar félaginu al'lrar blessunar í framtíðinni. LÍFEYRISSJÓÐUR TOGARA- SJÓMANNA Détur Sigurðsson hefur flutt *■ á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um Lífeyr issjóð togarasjómanna og und irmanna á forskipum og er meginefni þess, að félögum sjómanna er heimilt að tryggja starfsmenn sína í þessum lífeyrissjóði og jafn- framt er útgerð farskipa, varð skipa og togara heimilt að tryggja skipverja sína, þótt þeir séu ekki lögskráðir, ef þeir starfa við skip hennar, sem er í viðgerð, flokkunar- viðgerð eða að öðrum störf- um í þágu útgerðar. Þá er sjómönnum, sem stunda nám í sjómannafræðum slasast eða veikjast ennfremur heim ilt, samkv. frumvarpi Péturs Sigurðssonar, að kaupa sér réttindi í sjóðnum fyrir þann tíma, sem úr hefur fallið af þessum sökum. Lífeyrissjóður togarasjó- manna var settur á stofn ár- ið 1956 og var þá stigið stórt skref í félagslegum umbótum fyrir sjómenn. Árið 1962 var lögum um hann breytt á þann veg, að undirmenn á farskip- um, sem höfðu um nokkurt árabil haft samninga um líf- eyrissjóðsgreiðslur útgerðar- manna, fengu aðild að lífeyr- issjóði togarasjómanna og hef ur þessi breyting orðið sjóðn- um til styrktar og eflingar og er hann nú annar stærsti líf- eyrissjóður landsins, eignir hans nema yfir 70 milljónum króna. Frumvarp Péturs Sigurðs- sonar stefnir að því að bæta úr þeim annmörkum, sem í Ijós hafa komið á lögunum, en samikv. þeim eiga einungis lögskráðir sjómenn aði'ld að sjóðnum. Virðist hér vera um sjálfsagt réttlætismál að ræða og er þess að vænta að frumvarp þetta nái fram að ganga á Alþingi. Lífeyrissjóður togarasjó- manna er nú orðin öflug stofn un, en æskilegt væri, að aðr- ir sjómenn en togarasjómenn og undirmenn á farskipum eigi aðild að þessum sjóði og er nú raunar talið Mklegt, að sú lausn sé í sjónmáli. ÞÓRARINN B. ÞORLÁKSSON T gær voru 100 ár liðin frá -*■ fæðingu eins frumherja Draugar í stjórnmálum S-Vietnam þess að gera öndunum erfið- ara að ferðast, því að þeir gætu villzt þar sem aru,i,lr’ , legsteinn var til að merkjajjfcBHfc gröfina. LÍK bræðranna Ngo Dinh Diem, fyrrv. forseta S-Viet- nam og hins valdamikla Ngo Dinh Nhu, liggja í ómerktum gröfum í kirkjugarði í Saigon, sem minnir á að dulspeki hef- ur enn mikil áhrif á stjóm- mál hjá hinum hjátrúafullu íbúum S-Vietnam og veldur því að lík bræðranna hafa ekki fengið fastan dvalarstað enn sem komið er. Diem bræðurnir voru hrakt ir frá völdum og myrtir í upp reisnarvikunni blóðugu í nóvember 1963. Lík þeirra voru undir öflugum verði í sjúkrahúsi í tvo daga áður en þau voru grafin I aðalstöðv- um hersins nálægt Saigonflug velli. Þó að bræðumir, sem höfðu stjórnað landinu með járn- hendi í 8 ár væru dauðir, sögðu spámenn að spillingar- áhrifa þeirra gætti enn í stjórnmálum landsins. Ngu- yen Huu Co, varnarmálaráð- herra, sem rekinn var frá em- bætti í sl. mánuði var einkar sannfærður um þetta. Hann trúði samráðherrum sínum, að hann hefði sannreynt að andar þeirra bræðra hefðu valdið ágreiningnum og rugl- ingnum á stjórnmálasviðinu 1964 og 1965. 1 augum Vietnambúa hefur gröfin mikið trúarlegt gildi og hefur að þeirra áliti mikil áhrif á anda hinna framliðnu og hamingju eftirlifandi ætt- ingja. Co spurði spámennina ráða, sem lesa framtíðina úr handfylli af mold, sem þeir henda upp í loftið. Þeir sögðu að sálir bræðranna væru ánægðar í gröfum sínum og það þýddi að þeir gætu hald- ið áfram að skapa ringulreið á stjórnmálasviðinu. Eftir þennan úrskirð voru líkin grafin upp með sam- þykki herforingjaráðsins og flutt í kirkjugarð Saigonborg ar og lögð í grafirnar, sem teknar höfðu verið fyrir þá morgunin, sem þeir voru hraktir frá völdum. Spámenn irnir álitu að sálir þeirra yrðu ekki eins ánægðar á þessum stað. Til vonar og vara voru engir legsteinar settir udd t.ii Þessar ráðstafanir gátu þó ekki bjargað Co varnarmála- ráðherra. Meðlimir hershöfð- ingjaráðsins settu hann af, meðan han var á ferðalagi er- lendis. í dag eru aðeins 2 af 12 hershöfðingjum, sem steyptu Diem, enn við völd. Hjátrúarfullir Vietnambúar líta á valdamissi hersivöfðingj anna, sem sönnun fyrir ofbeld iseðli Diems og að taka verði tillit til anda hins látna for- seta. Grafir Diem-bræðranna. íslenzkrar málaralistar, Þór- arins B. Þorlákssonar. Af því tilefni hefur Listasafn íslands efnt til yfirlitssýningar á verkum hans í húsakynnum Listasafnsins og eru 133 mál- verk á sýningunni, hið elzta frá 1890, hið yngsta frá 1924. í ritgerð um listamanninn, sem dr. Selma Jónsdóttir skrifar í myndskreytta sýn- ingarskrá skýrir hún m.a. frá för og dvöl Þórarins við list- nám erlendis, en hann nam fyrst á listaháskólanum í Kaupmannahöfn og síðar á einkaskóla þar og segir dr. Selma í ritgerð sinni: „Bak við þessa ráðbreytni Þórar- ins hlýtur að hafa búið óvenju sterk ástríða til list- sköpunar, þar sem listamað- urinn lagði álitlegar framtíð arhorfur að veði fyrir hug- sjónir, sem vafalítið hafa virzt fjarstæða í augum flestra samtímamanna hans .... Þórarinn gaf okkur eitt- hvað nýtt: íslenzkt landslag fyrst málað og séð af íslenzk- um listamanni og er augljós skyldleiki milli Þórarins og samtíðarmanns hans, Stein- gríms Thorsteinssonar, þeir hafa skynjað landið á sama hátt, þetta sama „idyll“, sömu litir, sami hugblær nokkrum söknuði blandinn .....íslenzk skáld 19. aldar sungu fegurð íslenzkrar nátt- úru inn í okkar þjóðarsál, en Þórarinn B. Þorláksson var fyrstur íslenzkra málara til að sýna okkur þessa sömu fegurð í málverkinú*. Stokkhólmi, 15. feb. — NTB ÍBÚARNIR í Nynæshamn rétt fyrir sunnan Stokkhólm bjuggu sig í dag undir það að snúast gegn innrás rottuskara, sem vof- ir yfirbænum. í skaranum eru mörg þúsund rottur og sækjast þær eftir að komast í hrúgu af skemmdum eplum, sem nú á að hylja mold og síðan rottueitri í þeirri von, að þannig megi af- stýra rottuplágunni. Hammaguir, Alsír, 15. feb. FRAKKAR skutu í dag upp gerfihnetti, sem nota á í því skyni að geta kortlagt jörðina nákvæmar en áður. Gervihnett- inum „Diadem 11“ var skotið á loft fró Hammaguirstöðinni i Alsír og tókst flugskotið veL Bendir allt að svo komnu til þess, að hnötturinn muni fara á rétta braut. Svipaður gervi- hnöttur, seg skotið var á loft 1 sl. viku, fór á braut lægra en ráðgert hafði verið og mistókst því sú tilraun að nokkru leyti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.