Morgunblaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1967. 15 Menntaskdlanemar sýna höggmyndir Samtöl við þrjá listamenn, sem eiga myndir á sýningunni LISTAFÉLAG Menntaskól- ans í Reykjavík hefur af lofsverðri framtakssemi komið á fót sýningu högg- mynda, sem opnuð verður í dag og standa mun næsta báifan mánuð. Sýningin verður opin frá kl. 15 dag hvern til kl. 23. Er hún í sýningarsail í nýbyggingu Menntaskólans. Á sýningunni sýna þessir listamenn: Ásmundur Sveinsson sýnir f jögur listaverk, HöfuSlausn (eik 1948), í tröllahöndum (eik 1949), Eva dansar (eik 1959) og Öldugjláfur (brons (1952). Öll verkin eru í eigu listamannsins sjálfs. Guðmundur Elíasson sýnir fimm höggmyndir, Andlitsmynd (weltex 1967), Myndbreyting (járn 1967), og þrjár myndir, sem allar bera sama heitið, Til- brigði um stef (weltex 1967). Öll verkin eru til sölu. Jón Gunnar Árnason sýnir tvö listaverk, 3/6, flokkur K (stáltré 1967) og listaverk, sem er óskírt (1966—67). Verk Jóns eru til sölu. Nína Sæmundsson, eftir hana eru tvær myndir á sýningunni. Stúlka og konumynd í gipsi. Fyrri myndin er í einkaeign, en hinn síðari á Listasafn ís- lands. Ólöf Pálsdóttir á fjórar högg- myndir á sýningunni, Torkel (brons 1952), Greta (gips 1955), Ballerína (terrakotta 1956), Útigangshestar (frumdrög, gips 1959). Allar myndirnar eru í eign listakonunnar, nema sú fyrsttalda er eign Búnaðar- banka íslands. Sigurjón Ólafsson sýnir á sýn ingunni sjálfri fjórar högg- myndir, en fimrnta myndin er utan dyra, eins konar táknmynd sýningarinnar. Nefnist hún Maðurinn og dýrið (grágrýti 1951). Hinar fjórar eru Gríma (gips 1946), Eikarsúla með skrauti (1965), Fjölskyldan sýning myndhöggvara, sem haldin er hérlendis. Einnig voru viðstaddir þrír listamannanna, sem eiga verk á sýningúnni þau, Ólöf Pálsdóttir, Ásmundur Sveinsson og Jón Gunnar Árna- son. Við notuðum tækifærið og spjölluðum lítillega við lista- strakt, heldur meiri áherzla vera lögð á sjálft gildi verks- ins. Hver dæmir t.d. gildi skáld skapar eftir bókmenntastefnu? Hér er eins og nokkurs ótta gæti við _ það að fylgja ekki straumum, ef svo mætti að orði komast. Sannleikurinn er sé að það er brotaminna fyrir menntaðan listamann að tjá sig í svoköll- uðu abstrakt formi, það getur Listafólk, stjórn Listafélagsinsog aðrir, sem unnið hafa við sýninguna, talið frá vinstri: Margrét Reykdal, Kristín Hannesdóttir Sverrir Haraldsson listmálari, frú Ólöf Pálsdóttir myndhöggv- ari, Stefán Stefánsson, forseti Listafélagsins, Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, Jón Gunnar Arnason, myndhöggvari og K istinn Daníelsson, ljósameistari. er eftir Ólöfu Pálsdóttur, en styttan til vinstri er eftir Ásmund (brons 1966) og Samstæða (eir 1966). Verkin eru öll í eigu listamannsins. Blaðamönnum var í fyrradag boðið að skoða sýningunna og var þá stödd í sýningarsalnum stjórn myndlistardeildar Lista- félagsins ásamt forseta þess Stefáni Stefánssyni. Kom þar fram að sýningin er fyrsta sam- 3/6, flokkur K, efttr Jón Gunnar Arnason. fólkið og fyrst tökum við tali frú Ólöfu Pálsdóttur. — Mér finnst mjög skemmti- legt og virðingarvert af nem- endum Menntaskólans að koma þessari sýningu upp. Högg- myndalistin hefur verið hálf- gerð hornreka í íslenzku lista- lífi. Henni er t.d. ekki ætlað annað rúm í Listasafni íslands en anddyrið svo eiginlega hef- ur hún ekki fengið ennþá inn- göngu í sjálft listasafnið. Ég vona að þessi sýning, sem þetta unga og áhugasama skólafólk hefur farið á stað með verði til þess að vekja aukna athygli á höggmyndalist. En hún er ef- laust í senn erfiðust og dýrust allra listgreina og getur þess vegna aldrei orðið almennings- eign í sama mæli og t.d. mál- verkið. — Finnst yður hið opinbera gera of litið fyrir þessa list- grein? — f því sambandi vil ég ekki aðeins ræða um höggmyndalist ina, heldur einnig um málara- list og byggingarlist. Það er skoðun mín að alltof sjaldan sé efnt til samkeppni um ýms verkefni, og þá einnig með þátt töku erlendra listamanna, bæði í samkeppni og dómnefnd um. Ég álít að bæði listamenn- irnir og þeir, sem njóta vilja verka þeirra, myndu græða á því. Samkeppnin á að vera op- inber, sýna á öll þau verk, sem berast til þátttöku og koma þannig á stað rökræðum um þau. Með því myndi færast meira líf í þessar listgreinar. — Hvað um listgagnrýnina? — Að því er varðar högg- myndalist má segja að mér vitanlega eru hér engir, sem hafa reynslu og þekkingu til þess að gagnrýna þá listgrein, þar sem þeir fáu myndhöggv- arar, sem hér eru hafa ekki fengizt við það. Höggmynda- listin er það frábrugðin málara list að þar kemur töluvert ann að til greina. — Nú eru myndir yðar aðal- lega naturalistiskar. Hvað vilduð þér segja um abstrakt list? Erl. virðist mér minria spurt um þetta, abstrakt eða ekki ab- Styttan fyrir framan fólkið Sveinsson. (Ljósm. ól.K.M.) stundum gefið mönnum tæki- færi til að fela vankunnáttu sína. Enginn má þó skilja orð mín svo að ég kunni ekki að meta góða abstrakt list. Hún getur ekki síður náð þroska og hæð en hið naturalistiska list- form. — Hvað um þessar myndir yðar hér á sýningunni? — Þær minni eru fyrst og fremst frumdrög. Hestarnir eru gerðir að vetrarlagi úti í mó- um uppi á Hvanneyri, unnir í gips á staðnum í eins miklu augnabliki og myndhöggvari gétur handsamað. Þeir eru það nýjasta, sem er eftir mig á þessari sýningu. En því miður hefi ég ekki getað unnið neitt að ráði undanfarið vegna veik- inda. — Er ekki erfitt fyrir konu að stunda höggmyndalist? — Læknir í Danmörku sagði einu sinni við mig að það ætti að banna kvenfólki að fást við höggmyndalist, en hvað mig Tilbrigði um stef eftir Guðmund Elíasson snertir er það nú of seint, seg- ir listakonan og brosir. Karl- menn hafa það oft fram yfir konur í þessari listgrein að þeir eru þaulæfðir handverksmenn áður en þeir leggja út á þessa braut, auk þess sem þeir eru lík amlega sterkari. T.d. mun því þannig varið með suma af okk- ar myndhöggvurum. — Hvað finnst yður um lýs- inguna hér? — Það er athyglisvert að sjá, hvað ljósameistarinn hérna getur fengið fram. En sterkt ljós og skuggar, ásamt lituðum ljósgeislum eiga bezt við verk- in, sem eru unnin sem skraut- list (dekoration), segir Ólaf að lokum. —O— Næst tökum við tali Jón Gunnár Árnason og spyrjum hann hvað honum finnist um sýningarsalinn sem slíkan. Hann svarar: — Hann er ágætur, en kannski full lágur fyrir skúlp- túr. Það, sem er sérstaklega sekmmtilegt í sambandi við þessa sýningU er hvernig mynd irnar eru lýstar upp. Það finnst mér athyglisverðast. — Þér eigið tvær myndir hér. Vilduð þér skýra þær? — Þessi hérna, segir Jón Gunnar og bendir á mynd, sem merkt er í sýningarskrá: 3/6, flokkur K og gerð er úr stáli og tré — hún er byggð þannig upp að það eru 7000 göt í þess- ari tréplötu og ég raða 300 ele- Framhald á bls. 20 Gríma eftir Sigurjón Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.