Morgunblaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 18
MORGtrN'ÉLAÐIÐÍ LAÚGARÖAGUR 18. FÉÖRÚAR Í96Í.
1«
Ingólfur Jónsson loft-
skeytamaour — Minning
MÖNNUM er ávallt kveðinn
harmur að láti góðs vinar og
skiptir þá sjaldnast miklu um
aldur, aðstæður eða aðdraganda.
Aldrei verður þó erfiðara að
koma auga á nokkrar þær stað-
reyndir, er verða mæítu til
styrks eða fróunar, e’.) þegar lifs-
glaður atorkumaður er hrifinn
burt frá hálfnuðu ævistarfi, úr
hamingjusömu hjónabandi og
frá hópi ungra barna, fyrirvara-
laust í hræðilegu slysi.
í dag verður borinn til moldar
Ingólfur Jónsson, loftskeytamað-
ur, til heimilis að Bogahlið 16,
hér í borg. Ingólfur var fæddur
13. marz 1930 í Reykjavík og
var því 36 ára að aldri, er hann
lézt laugardaginn 11. febrúar sl.
Foreldrar hans voru hjónin Vig-
dís Sigurðardóttir og Jón Kristó-
bertsson, frá Súðavík, sem bæði
eru látin fyrir nokkrum árum.
Þessi mætu hjón, sem bæði voru
dugnaðar og sómafólk fluttust
t
Faðir okkar, tengdafaðir
og afi
Páll Ingi Gunnarsson
Brávallagötu 16 A,
andaðist í Borgarspítalanum
15. febrúar.
Gunnhildur Pálsdóttir,
Kristinn Einarsson,
Esther Pálsdóttir,
Friðrik Friðriksson,
Gyða Pálsdóttir,
Haraldur Kristmannsson,
og barnabörn.
t
Systir mín
Elinborg
Aðalbjarnardóttir
kennari, Hjarðarhaga 20,
andaðist 16. febrúar.
Fyrir hönd vandamanna
Sigrún Aðalbjarnardóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi
Kristján Eysteinsson
Hjarðarbóli, Ölfusi,
andaðist á Landsspítalanum
16. þessa mánaðar.
Halldóra Þórðardóttir, börn
tengdabörn og barnaböm.
hingað til Reykjavíkur skömmu
fyrir 1930 og bjuggu hér æ síðan.
Þeim varð sjö barna auðið og
var Ingólfur þeirra yngstur.
Árið 1946 lauk hann gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskólan-
um við Lindargötu og innritaðist
strax sama ár í loftskeytaskól-
ann. Þaðan útskrifaðist hann ár-
ið 1948 og hóf störf hjá Lands-
síma íslands, að loftskeytastöð-
inni á Rjúpnahæð. Ingólfur var
afbragðs gáfum gæddur og gekk
vel nám. Hann hefði þvi náð
langt sem skólamaður, hefði hug-
ur hans staðið til þess, en hann
hafði það lundarfar sem athafna-
og atvinnulífið dregur og kaus
heldur að afla sér sérmenntunar
á ýmsum sviðum af eigin ramm-
leik. Hann náði mjög góðum
árangri og færleik í starfsgrein
sinni og var ávallt vel látinn og
virtur af samstarfsmönnum sín-
um og atvinnuveitendum.
Ingólfur kvæntist árið 1952
eftirlifandi konu sinni, Petru
Þórlindsdóttur, sem ættuð er frá
Fáskrúðsfirði. Þau eignuðust
fimm börn sem öll eru hin mann
vænlegustu; er það elzta fjórtán
ára en hið yngsta 2ja ára. Petra
var Ingólfi heitnum sú trausta
stoð og ástúðlegi förunautur sem
góð eiginkona er jafnán manni
sínum og heimilið sem þau
bjuggu hvort öðru og börnum
sínum, mótað af glaðværð, til-
litsemi og hlýju, var sá horn-
steirm, sem lífi ungra barna er
nauðsynlegri og dýrmætari en
allt annað.
t
Minningarathöfn um
Jakob Jakobsson,
skipstjóra,
verður haldin í Fossvogs-
kirkju mánudaginn 20. febrú-
ar kl. 10,30. Athöfninni verð-
ur útvarpað. Jarðsett verður
frá Norðfjarðarkirkju mið-
vikudaginn 22. febrúar. Þeim
sem vildu minnast hin látna
er vinsamlega bent á Slysa-
varnafélag íslands.
Börn og tengdabörn.
t
Jarðarför
Kristínar Tómasdóttur
Hafsteini, Stokkseyri,
sem lézt 12. þ.m. fer fram frá
Stokkseyrarkirkju þriðjudag-
inn 21. þ.m. og hefst með hús-
kveðju að heimili hinnar
látnu kl. 1,30.
Börn hinnar látnu.
t
Eiginmaður minn,
Klemens Samúelsson,
andaðist á heimili sínu, Gröf,
Miðdölum þann 15. þ.m. Jarð-
arförin hefur verið ákveðin
þriðjudaginn 21. febrúar kl.
13,30 að Kvennabrekku. —
Blóm og kransar afbeðið, en
þeir sem vildu minnast hans
er bent á líknarstofnanir. Bíl-
ferð verður frá Umferðarmið
stöðinni sama dag kl. 8.
Sesselja Daðadóttir.
t
Jarðarför móður okkar,
fósturmóður, tengdamóður
og ömmu
Ilalldóru Sigurðardóttur
frá Siglufirði,
fer fram frá Siglufjarðar-
kirkju mánudaginn 20. þ.m.
kl. 2 e.h.
Guðný Þorsteinsdóttir,
Anna Hallgrímsdóttir,
Ásmundur Þorsteinsson,
Bjarni Þorsteinsson,
Pétur Þorsteinsson,
Þorvaldur Þorsteinsson,
tengdabörn og barnabörn.
Ingólfur var maður skraf-
hreyfinn og skemmtilegur við-
ræðu og hinn bezti heim að
sækja. Fyrir réttum mánuði vor-
um við hjónin gestir hans á glað-
værri kvöldstund, en fylgjum í
dag látnum vini til grafar í þög-
ulli og sárri en þó óljósri vitund
um algeran viðskilnað.
í lifandi lífi hefði fátt verið
Ingólfi vini mínum meiri skap-
raun en tilhugsunin um skjall og
skrúðmælgi um hann látinn. í
samræmi við anda hans hef ég
því orð þessi ekki fleiri, en votta
að lokum eiginkonu hans og
börnum, svo og öðrum aðstand-
endum hina innilegustu hlut-
tekningu og samúð í hinni djúpu
sorg, sem missir ástvina mun
ávallt verða okkur dauðlegum
mönnum.
B. E.
Háa skilur hnetti bimingeimur.
Blað skilur bakka og egg.
En anda sem unnast
fær eilífð aldrei aðskilið.
Ingólfur Jónsson loftskeyta-
maður er horfinn sjónum vorum
og svo skyndilega að erfitt er
að átta sig á hlutunum. Hann var
í blóma lífs síns, 36 ára að aldri.
Allir sem kynntust Ingólfi eru
sammála um hans miklu mann-
kosti, þrotlausri einlægni hans
og leit að meiri þroska og stærri
átaka í lífsbaráttunni. Slíkir
drengskaparmenn eru of fáir með
al vor. Hann er harmdauði öll-
um er hann umgengust.
Sárust er þó sorg hans eigin-
konu, 5 mannvænlegra barna og
öðrum ættingjum. Við biðjum
þess að þeirra harmur verði mild
aður af æðri máttarvöldum í
minningu um góðan dreng og um
hyggjusaman föður.
Ingólfur Jónsson var einn geð
þekkasti og elskulegasti maður,
sem ég hefi kynnzt.
Blessuð sé hans minning.
Guðm. Egilsson.
t
Hjartanlegar þakkir fyrir
auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför konunnar minn-
ar og móður minnar
Önnu Lilju Lýðsdóttur
Sveinn Ólafsson,
Anna Vala Hinriksdóttir.
...... '
t
Innilegar þakkir fyrir vin-
arhug og virðingu vottaða
minningu
Þorsteins Sveinssonar
Kjarval
Fyrir hönd vandamanna
Karitas Bjargmundsdóttir.
Nanna Þ. Gíslason
Miniiing
NANNA Þ. Gíslason kaupkona,
Þingholtsstræti 17 hér í Reykja-
vík, andaðist sl. sunnudag, hinn
12. febrúar. Útför hennaor fór
fram í gáer.
Nanna var fædd í Reykjavík
15. september Í906, dóttir Þór-
unnar Pálsdóttur og Þorsteins
Gíslasonar ritstjóra. Hún vax
hin 3. í aldursröð af 6 börnum
þeirra hjóna og einkadóttir. Á
lífi eru nú fjórir bræður hennar,
allir búsettir í Reykjavík. Nanna
ólst upp í foreldrahúsum, var
raunar alla ævi til heimilis í
Þingholtsstræti 17 og dvaldist
ekki langdvölum annars staðar,
nema meðan hún var við nám
erlendis. Faðir hennar féll frá
1938, og eftir það hélt Nanna
heimili með móður sinni og
þrem bræðrum. Einn þeirra var
Ingi kennari, sem andaðisf 1956.
Móðir hennar dó 14. janúar 1966
88 ára að aldri og hafði þá átt
við bága heilsu að búa um ára-
bil. Hafði Nanna annazt um
hana á heimili þeirra af mikilli
alúð og hlýju. Sams konar um-
hyggju hefur hún sýnt Frey
bróður sínum, sem átt hefur við
vanheilsu að stríða.
Þótt Nanna Þ. Gíslason hefði
ærin verkefni við hússtjórn,
stundaði hún jafnan störf utan
heimilis. Hún var við náun í
menntaskólanum um hríð, en fór
síðan Ung að aldri til Kaup-
mannahafnar til hannyrðanáms,
enda listfeng og smekkvís. Lagði
hún nokkra stund á kennslu
eftir heimkomuna, en aðalstarfið
varð þó við verzlun með hann-
yrðavörur. Var Nanna lengi við
afgreiðslustörf í Silkibúðinni,
sem þá var á horni Bankastrætis
og Ingólfsstrætis. Fyrir tæpum
15 árum stofnaði hún eigin hann-
yrðaverzlun í Þingholtsstræti 17
og rak hana síðan. Nanna hafði
góða þekkingu á því, er þarf til
útsaums og annarra hannyrða,
,og var greiðvikin og áhugasöm
kaupkona. Fyrirtækið var ekki
stórt, en dafnaði þó vel, og munu
hannyrðakonur í borginni og
raunar víðar á landinu hafa talið
sig eiga við hana góð viðskiptL
Margar þeirra þekkti hún per-
sónulega, sumar frá löngu liðn-
um árum, og hafði ánægju af
þeim kynnum.
Nanna Þ. Gíslason var ein
þeirra kvenna, sem allir henni
kunnugir hljóta að minnast, þeg-
ar fórnfýsi og dugnaðar er getið.
Hún hafði agað fas, var jafnan
kjaikmikil, hlý og glaðleg í við-
móti. Þrátt fyrir tafsama vinnu
við verzlunarþjónustu, annaðist
hún um heimili sitt og skyld-
menni af hinni mestu natni og
fórnfýsi. Slíkt er sem betur fer
ekki dæmalaust, en það er jafn-
an aðdáunarvert og fagurt. Um
sjálfa sig hugsaði Nanna minna.
Á sl. ári þótti vinum og ættingj-
um hennar ljóst, að henni væri
brugðið, en hugðu, að þar myndi
segja til sín ofreynsla við störf.
Hún fékkst loks til að taka sér
leyfi og heimsækja gamla vini
í Kaupmannahöfn, en brátt kom
fram, að hún hafði tekið alvar-
legan sjúkdóm, sem ekki verður
læknaður. Eftir skurðaðgerð er-
lendis lá hún í hálfan fjórða
mánuð í Landspítalanum. Hún
hefur nú verið kvödd hljóðlega
eins og bróðir hennar og móðir
á sínum tíma. Var það mjög 1
samræmi við líf hennar allt, há-
vaðalaust starf hennar og hlé-
drægni. Síðustu orðin, sem sá,
er þessar línur setur á blað,
heyrði hana segja með fullri
meðvitund, voru kveðjur til
kunningja hennar, sem komið
höfðu að sjúkrabeðnum. Vafa-
laust hefði hún viljað biðja fyrir
kveðjur til allra kunningja'sinna
og vina og þakka þeim sam-
fylgdina. Við, sem þekktum
Nönnu Þ. Gíslason, erum þakk-
lát fyrir þau kynni og geymum
bjartar minningar um góða
konu.
Þór Vilhjálmsson.
Gísli Gíslason
Stokkseyri
Kveðja frá dætrum hans.
Kvöld er komið. Sól er sigin
síðasta dagsbrún nú er hnigin
bak við himins bláan hjúp.
Söknuð heitan hjörtun geyma.
Helgan frið þig mun þó dreyma
út við hafsins dulardjúp.
Þig við kveðjum, kæri faðir.
Kærleik þinn um áraraðir
munum geyma í hjörtum hljótt.
Eftir að móðir mætust kvaddi,
mest þú veittir, sem að gladdi
og gerði allt svo gott og rótt.
Öll þín sakna afabörnin
alltaf var þeim hlýjust vörnin,
sem þín færði föðurfhönd.
Enginn var þeim afa betri.
Oft þú breyttir dimmu og veiri
þeim í sólblíð sumarlönd.
Oft við horfðum út á hafið
ógnum fyllt og stormum vafið.
bár í faðmi bátinn þinn.
Drottinn varði voði og grandi
veika skel og bar að landi
bléssun djúpsins, „babbi minn“.
Það var stundum þungur róður,
þú vart alltaf hlýr og góður
börnúm þeiih, sém bTðú þTn.
Litlum dætrum brosi og hlíðu
bentir þú í góðu og striðu
að geyma hjarta gullin sín.
Elsku pabbi, elsku þina
ávallt heitt við finnum skina
þótt horfinn sértu hér af jörð.
Orðum þínum aldrei gleymL
Ástbros þín í hjarta geymL
Þér við færum þakkargjörð.
Drottinn tekur. Drottinn gefur.
Dauðans engill þig nú hefur
lukt í faðmi ljúft og hljótt.
Far þú heill til furðustranda
fley þitt ber til sólarlanda.
Góði pabbL góða nótt.
á. n.
Öllum þeim mörgu, sem
minntust mín á áttræðisaf-
mæli mínu þann 9. þessa
mánaðar með skeytum, blóm-
um og dýrum og veglegum
gjöfum, votta ég innilegast
þakklæti mitt.
Jónas Rafnar.