Morgunblaðið - 21.02.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967.
5
HÖGGDEYFAR
í miklu úrvali.
MOTTUR
AURHLÍFAR
HJÓLKOPPAR
FELGUHRINGIR
tJTVARPSSTENGUR
ÞVOTTAKÚSTAR
CROWN rafgeymarnir
ISOPON og P-3fl til allra
viðgerða, smyrst sem
smjör, harðnar sem stál.
PLASTI-KOTE
sprautulökkin til blett-
unar.
(^£)nausth.f
Höfðatúni 2. — Sími 20186.
HEIMDALLUR
merki félagsins, sem viður-
kenningu fyrir vel unnin störf
í þágu Heimdallar. Eftirtaldir
hlutu gullmerki: Birgir ísl.
Gunnarsson, fyrrv. form.,
Bjarni Beinteinsson, fyrrv.
form., Styrmir Gunnarss., fyrrv
form., Jóhann Ragnarsson, Jón
E. Ragnarsson, Magnús L.
Sveinsson, Ólafur Egilsson,
Ólafur Jensson og Ragnar
Kj artansson.
Auk áðurnefnda gjafa, sem
Heimdalli bárust, var bókagjöf
frá Guðmundi Benediktssyni,
málverk frá Eyverjum F.U.S.
í Vestmannaeyjum, skjala-
mappa frá ónefndum gömlum
Heimdallarfélaga, og peninga-
gjafir frá Málfundafélaginu
Óðni og Landsmálafélaginu
Verði. Einnig gaf Runólfur
Pétursson varaborgarfulltrúi
aðalvinninginn í happdrætti
kvöldsins, sem hann vann, til
launþegaklúbbs Heimdallar.
Hátíðinni lauk kl. 2.30, eftir
að dans hafði dunað nær óslit-
ið í fjórar klukkustundir.
40 ÁRA afmælishátíð Heim-
dallar F.U.S. var haldin laugar-
daginn 18. febr. í Lídó. Hátið-
in hófst með borðhaldi, sem
bæði eldri og yngri Heimdall-
arfélagar sóttu. Eftir að borð-
haldi lauk, var stiginn dans
fram eftir nóttu.
Hátíðin hófst með setningar-
ávarpi veizlustjóra, Jóns E.
Ragnarssonar, cand. jur. Jón
sagði meðal annars, að hann
vonaði að samkon^a þessi og
Heimdallur sjálfur næði aldrei
þeim hápunkti að halla tæki
undan fæti. Jón gat einnig
þeirra árnaðaróska og gjafa,
sem félaginu höfðu borizt í til-
efni afmælisins, en þær voru
margar og góðar. Eftir að gest-
ir voru setztir að borðum flutti
formaður Heimdallar, Ólafur
B. Thors, deildarstjóri, ávarp
og þakkaði f.h. félagsins þann
hlýhug, sem félaginu hafði ver-
ið sýndur. Forsætisráðherra,
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins
flutti Heimdalli árnaðaróskir
f.h. miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins og hvatti Heimdallar-
félaga til enn meira starfs og
sagði m.a., að þið hinir ungu
eigið að vera það afl, sem virkj
ar óróaöflin í þjóðfélaginu.
Björgólfur Guðmundsson
varaform. Heimdallar reis þá
úr sæti og mælti fyrir minni
Heimdallar. Varaformaður
Sjálfstæðisfiokksins, Jóhann
Hafstein, dómsmálaráðherra,
færði félaginuveglegan silfur-
skjöld frá nokkrum gömlum
Heimdallarfélögum. Auk nafns
félagsins og gefenda er letrað
á skjöldinn brot úr kvæði eft-
ir Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi. „Átakið skapar afl og
þrótt, I erfiði dagsins skal gæf-
an sótt.“
Meðan setið var að borðum,
fluttu ávörp Fulltrúaráðs Sjálf
stæðisfélaganna í Reykjavík,
Baldvin Tryggvason, formaður
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, ávarpar hátíðagesti.
Liósmyndari Kristján Magnú
sson.
S.U.S., Árni Grétar Finnsson,
Styrmir Gunarsson, sem jafn-
framt færði félaginu að gjöf
píanó f.h. fyrrverandi for-
manna Heimdallar og Ragnar
Kjartansson, framkvæmda-
stjóri sem færði félaginu að
gjöf vaglegan ræðustól frá nú-
verandi og fyrrverandi fram-
kvæmdastjórum Heimdallar.
Einnig reis úr sæti formaður
Hvatar, María Maack og færði
félaginu að gjöf ferðabækur
Ólafs Ólavíusar. Á hátíðinni
mælti fyrir minni Sjálfstæð-
isflokksins, Sigurður Ág. Jens
son, og fyrir minni fósturjarð-
arinnar, Þorsteinn Pálsson.
Magnús Jónsson óperusöngvari,
söng einsöng við undirleik
Ólafs Vignis^ Albertssonar og
leikararnir Árni og Klemenz
fluttu skemmtiþátt.
Við hátíðarhöldin voru 9
Heimdallarfélagar sæmdir gull
40 ARA
Formaður Heimdallar, Ólafu r B. Tliors, flytur ávarp.
Loksins er komin
Ijósprentunarvélin
sem allir geta eignazt.
PACER STAR
Ijósprentar allt á svipstundu og er einföld og hand-
hæg í notkun.
VERÐIÐ ER ÓTRÚLEGA LÁGT
EDA AÐEINS KR. 3.084.00
Leitið nánari upplýsinga hjá oss.
Einkaumboðið:
Sisli c7. Sofitisen l/.
UMBOÐS- O G HEILDVERZLUN
SÍMAR: 12747 -1B647 VESTURGÖTU 45
Með kremi og rjúmasúkkulaðihúð.
Auk þess 4 tegundir af ískökum.
V. Sigurðsson & Snæbjörnsson hf.
Meredith & Drew Ltd., London,
þekktustu kex bakarar
Bretlands síðan 1830
M & D-kexið er oviðjafnanlegl að gæðum og verði.
Fjölbreyttast úrval.
Cream Crakers (te-kexl, Rich Harvest Digestive (heilhveiti og hafrakex), Family Favourites og Crown Assorted Creams (blandað kex), Royal Orange
Creams Bitter Lemon Creams, Jam Creams og Coconut Creams (krem kex), Fig Roii (fíkju-kex), llich Highland Shorties (skozkt-kex). Ginger Fing-
er (piparkökur), Granny’s Cookies (síróp-kex), Caribaldi og'Fruit Shortcake (kúrennu-kex), Cheese Specials (osta-kex), Plain Chocolate Wholemeai,
Milk Chocolate Wholmeal, Chocolate Orange, Thins, Milk Chocolate Elevenses og Chocomeal (súkk ulaði-kex) o. fl., ó. fl.
Heildsöiubirgðir:
l SlGUKl & SMBJÖRiSOI HF.
Símar: 13425 og 16475.