Morgunblaðið - 21.02.1967, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967.
Sjdmannasamtokin fá hlut
tíeild í útflutningsgjaldi
ÍJtflutnmgsglald fellt niður af
loðnumjöli og loðnulýsi 1967
LAGT hefur verið fram á
Alþingi stjórnarfrumvarp,
sem felur í sér þá breytingu
á lögum um útflutningsgjald
af sjávarafurðum að sjó-
mannasamtökin fá sömu hlut
deild í útflutningsgjaldinu og
LÍÚ.
Ennfremur eru í frum-
varpinu bráðabirgðaákvæði
þess efnis að útflutningsgjald
af loðnumjöli og loðnulýsi
skuli ekki greitt af fram-
leiðslu ársins 1967 og er það í
samræmi við yfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar þar um.
Ný múl
Steingrímur Pálsson (K) hefur
lagt fram í Neðri deild frv. um
kaup og rekstur á Vestfjarða-
skipi.
Skv. frv. munu sjómannasam-
tökin fá 0,79% af útflutnings-
gjaldi og er það sama hlutfall og
IÍÚ. Eru breytingar þessar í sam
ræmi við yfirlýsingu sjávarút-
vegsmálaráðhenra á Alþingi sl.
vetur og eru þær gerðar skv. ein
dreginni ósk sjómannasamtak-
anna.
í greinargerð frv. segir um
niðurfellingu útflutningsgjalds
af loðnulýsi og mjöli:
Sökum hins mikla verðfalls,
sean orðið hefur á loðnumjöli og
loðnulýsi frá síðustu loðnuvertíð,
hrekkur verðmæti þessara afurða
ekki fyrir algjörum lágmarks-
kostnaði við veiðarnar og vinnslu
aflans, nema útflutningsgjald af
afurðunum verði gefið eftir.
*
Samkvæmt þeim útreikningum
sem oddamaður yfinefndar verð
lagsráðs við ákvörðun loðnu-
verðs á komandi vertíð hefur
lagt fram, nemur algjör lágmarks
kostnaður við að gera út báta á
loðnuveiðar, fremur en að leggja
þeim, um 40 aurum á hvert kg
veiddrar loðnu, og er þá miðað
við reynslu bátaflotans af loðnu-
veiðum síðasta árs. Tilsvarandi
lágmark kostnaðar við bræðsl-
una er 55 aurar á hvert kg hrá-
efnis. Til viðbótar kemur kostn-
aður við akstur frá skipshlið að
verksmiðjuþró, 5 aurar á hvert
kg. Afurðaverðmætið þarf því að
Þingmál í gær
Efri deild
Efri deild.
Frumvarp um breyting á lög-
um um vernd barna og ung-
menna var tekið til þriðju um-
ræðu. Enginn kvaddi sér hljóðs
og frumvarpið samþykkt og
sent til ríkisstjórnarinnar sem
lög frá Alþingi.
Frumvarp Guðlaugs Gísla-
sonar um breyting á lögum um
Stýrimannaskólann í Vestmanna
eyjum var tekið til fyrstu um-
ræðu. Enginn kvaddi sér hljóðs
og var frv. vísað til annarrar
umræðu og mnntamálanefndar.
nema kr. 1.00 á hvert kg hráefn-
is, svo að svari lágmarki kostnað
ar við að veiða og vinna loðn-
una.
Til samanburðar skal tekið
fram, að heildarkostnaður, að
meðtöldum öllum föstum kostn-
aðarliðum, er ekki breytast með
úthaldstíma báta eða vinnslutíma
verksmiðja, mundi samkvæmt
áætlunum beggja aðila nema kr.
1.51 eyri á hvert kg hráefnis,
■ einnig að meðtöldum aksturs-
kostnaði.
Afurðaverðmæti nemur sam-
kvæmt áætlun kaupenda 87 aur-
um á hvert kg hráefnis. Eftirgjöf
þess mundi hækka áætlun afurða
verðmætisins upp í 93 aura á
hvert kg hráefnis.
Með tiliti til þess mikilvægis,
sem veiðar og vinnsla loðnunnar
getur haft fyrir þá, er þann at-
vinnuveg stunda, er lagt til að
á yfirstandandi ári verði fellt nið
ur útflutningsgjald á loðnumjöli
Dagskrá
Alþingis
* dag
EFRI DEII..D
1. Útflutningsgjald af sjávar-
afurðum.
2. Fávitastofnanir.
3. Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins.
4. Jarðræktarlög.
NEDRI DEILD
1. Veiting ríkisborgararéttar.
2. Landhelgisgæzla.
3. Varnir gegn útbreiðslu sauð
fjársjúkdóma.
4. Tekjustofnar sveitarfélaga.
5. Löggilding á verzlunarstað í
Egilsstaðakauptúni.
6. Launaskattur.
7. Vestfjarðaskip.
8. Læknaskipunarlög.
og loðnulýsi, en í núgildandi lög
um, er gjald þetta 6% af f.o.b.
verðmæti.
IXieðri deild
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um námslán og námsstyrki var
tekið til þriðju umræðu. Að lok-
inni lítilsháttar umræðu var
frumvarpið borið undir atkvæðL
Voru breytingartillögur mennta
málanefndar samþykktar, en
tillögur Ragnars Arnalds og
Einars Olgeirssonar felldar.
Frumvarpið var síðan samþykkt
þannig breytt og það sent for-
seta efri deildar til fyrirgreiðslu.
Frumvarp Sigurðar Bjarna-
sonar um breyting á lækna-
skipunarlögunum var tekið til
annarrar umræðu. Framsögu-
maður heilbrigðis- og félagsmála
nefndar, Matthías Bjarnarson,
mælti fyrir nefndarálit'i og lagði
nefndin einráma til að frv. yrði
samþykkt, með þeirri breytingu
að aðsetur læknanna verði ekki
bundið við síldarleitar- eða rann
sóknarskip.
Var breytingartillagan sam-
þykkt samhljóða og frv. vísað
til þannig breyttu til þriðju um-
ræðu.
Fram var haldið fyrstu um-
ræðu um frv. um uppsögn varn-
arsamningsins. Einar Olgeirsson
tók til máls og varð ræðu hans
ekki lokið. Verður ræðunnar
getið síðar ásamt þeim umræð-
um, er á eftir kunna að koma.
Til fyrstu umræðu var frv.
Benedikts Gröndal og fleiri um
breyting á lögum um lögtak.
Frumvarpið felur í sér, að verka-
lýðsfélögum verði heimilt að
innheimta greiðslur atvinnurek-
enda í sjúkra- og styrktarsjóði
verkalýðsfélaga með lögtaki eð-
ur fjárnámi án undangengis
dóms eða Sáttar. Frumv. var vís
að til annarrar umræðu og alls-
herjarnefndar.
„Faðir kjarnorku-
sprengjunnar" látinn
Princeton, N. J., 19. feb. NTB-AP
BANDARÍSKI eðlisfræðingur-
inn J. R. Oppenheimer, sem
nefndur var „faðir kjarnorku-
sprengjunnar“, lézt að heimili
sínu í Princeton aðfaranótt
sunnudags, 62 ára gamall. Opp-
enheimer stjórnaði tilraunum
með kjarnorkuvopn meðan á
annarri heimsstyrjöldinni stóð,
en var á tímum McCarthys og
óamerísku nefndarinnar útilokað
ur frá hvers konar kjarneðlis-
fræðilegum rannsóknum á veg-
um Bandaríkjastjórnar, sakaður
um að vera í tengslum við komm
únista.
heimer árið 1953, en hann neit-
aði því eindregið að hann væri
eða hefði verið kommúnisti.
Hann var útilokaður frá kjarn-
eðlisfræðilegum rannsóknum ár
ið eftir, þegar óameríska nefnd-
in hafði rannsakað afstöðu hans
gagnvart framleiðslu vetnis-
sprengjunnar. Vildi Oppenhe'im-
er ekki framleiða slíka sprengju
og var þar á öndverðum meiði
við manninn, sem kallaður hefur
verið „faðir vetnissprengjunnar“
dr. Edward Teller. Það var að
tilhlutan dr. Tellers, að Oppen-
heimer fékk Fermi verðlaunin,
sem áður er getið.
Atómeðlisfræðingar og Nó-
belsverðlaunahafar á sviði eðl-
isfræðirannsókna hafa látið í
Ijós harm sökum fráfalls Opp-
enheimers.
J. R. Oppenheimer.
Dánargjöf varið til
uppgræðslu í Þjórsárd.
Oppenheimer vakti á ný
heimsathygli, er honum voru út-
hlutuð Enrico Fermi verðlaunin
árið 1963 fyrir starf sitt á sviði
eðlisfræðinnar. Við þessum
verðlaunum tók hann úr hendi
Johnsons Bandaríkjaforseta.
Oppenheimer hóf þó ekki á ný
að starfa fyrir Bandaríkja-
stjórn.
Kommúnistaákærurnar voru
bornar fram á hendur Oppen-
Tvær gjafir
BARNAVINAÚTGÁFAN hefur
ákveðið að láta börn þau, sem
safnað hafa til Hnífsdalssöfnun-
arinnar og barna, sem orðið hr.fa
fyrir heilsutjóni, fá tvö af verk-
um þeim, sem útgáfan hefur gef
ið út. Eru það kvæðin „Skóla-
bjallan" og „Til barnanna", eftir
Sigfús Elíasson, stofnanda útgáf-
unnar.
Afgreiðsla útgáfunnar (sími
19401) gefur upplýsingar um
hvernig börnin geti nálgast þessi
verk.
FRÚ Jóhanna Jórunn Einars-
dóttir, sem andaðist 8. júlí bað
tengdason sinn, Brynjólf Ingólfs
son, ráðuneytisstjóra, skömmu
fyrir andlát sitt að sjá til þess,
að tíu þúsund krónur úr búi sínu
yrðu eftir hennar dag greiddar
til styrktar landgræðslu á íslandi.
Eins og kemur fram í bréfi
Brynjólfs Ingólfssonar, þá kvaðst
Jóhanna sál. nýlega hafa lesið
grein um árangur þann, sem
náðst hefur í sandgræðslu hér á
landi, °g hefði það vakið mikinn
og einlægan áhuga hennar á
málinu.
Ég vil fyrir hönd Landgræðslu
ríkisins þakka af alhug þá rækt
arsemi og hlýhug, sem felst í
þessari gjöf, því hugarfar gef-
andans er mér kærkomnast. f
samráði við erfingja hinnar þjóð
ræknu konu, svo og landbúnaðar
ráðuneytið, hef ég ákveðið að
verja þessum fjármunum til upp
græðslu í Þjársárdal. Mikill hluti
af Þjórsárdal er eins og eyðimörk
þrátt fyrir nærri þrjátíu ára
friðun Skógræktar rlkisins. Eins
og stendur, er ekki veitt sérstakt
ríkisframlag til landgræðslu í
dalnum, en þó er fyrirhugað að
hefjast þar handa nú þegar og
þá fyrst og fremst fyrir fé, sem
kæmi annars staðar að en úr
ríkissjóði.
Páll Sveinsson
Sögur úr Skarösbók
Þriðja bindið í flokki íslenzkra merkisrita
frd fomum tíma og nýjum
FLESTIR kannast af orðspori
við þá bók, sem keypt hefur verið
dýrust til íslands, og margir hafa
léitt hana augum eftir að hún
fluttist heim úr langri útlegð.
Aftur á móti hefur almenningur
átt þess lítinn kost að kynna sér
efni hennar af eigin lestri, þar til
nú, að út eru komnar Sögur úr
Skarðsbók, en það er briðja rit-
ið í Bókasafni AB, hinum nýja
flokki íslenzkra merkisrita frá
fornum tíma og nýjum, sem hófst
fyrir skemmstu með Kristrúnu
frá Hamravík, eftir Guðmund
G. Hagalín, og Lífi og dauða, eft-
ir Sigurð Nordal.
Það er Ólafur Halldórsson cand
mag. sem séð hefur um saman-
tekt og útgáfu þessarar forvitni-
légiu bókar, en hann stendur flest
um íslendingum framar að kunn
áttu í þeim efnum, er lúta að
íslenzkri ritmennsku og bókar-
gerð til forna. Ritar hann skil-
merkilegan inngang að sögunum
þar sem saman er komið mikið af
skemmtilegum fróðleik — og
sumpart allnýstárlegum. Svo er
t.d. um þá upphafskafla, sem
greina frá tæknilegri hlið fornr-
ar bókagerðar allt frá fyrstu verk
um þeirra skinna, sem ætluð voru
til bókfells, og þar til bókin var
fullskráð og bundin, en um alla
þá merkilegu hluti, sem þar til
heyrðu, hafa íslenzk fræðirit og
kennslubækur látið sér furðulega
hljótt. Eða hvað eru þeir margir,
sem vita, að blekið var búið til
úr sortulyngi, svo sem reyndar
tíðkaðist allt fram á þessa öld,
en það virðist einmitt hafa átt
sér ýmsa merkilega eðliskosti,
auk styrkleiks og endingar. Þá
rekur útgefandinn sögu Skarðs-
bókar frá upphafi og loks efni
hennar, en það eru postulaævir
og helgisögur, og „allar þýddar
úr latínu að því er bezt verður
vitað“
Við val efnisins í Sögur úr
Skarðsbók kveðst útgefandinn
hafa einkum haft fremst í huga:
„f fyrsta lagi, að velja það, sem
skemmtilegast er aflestrar, í öðru
lagi þá kafla sem bera af að stíl
og málfari, og í þriðja lagi hafa
verið teknir með fáeinir kaflar
sem gefið geta hugmynd um trú-
fræðilegar vangaveltu: og hug-
myndaheim þeirra manna sem
sömdu sögurnar. Textinn er
prentaður með nútímastafsetn-
ingu, en þó eru ýmsar beygingar
myndir og orðsmyndir teknar ó-
breyttar eftir handritinu. . . . “
Sögur úr Skarðsbók eru að
ajálfsögðu misjafnar að list-
gildi, en þar sem bezt lætur nær
stíll þeirra og frásögn slíkum
hreinleika, að helzt minnir á tig
inn einfaldleik fornrar helgilistar
Og sennilega er það hvergi of-
mælt, sem útgefandinn segir i
lok hinnar merku ritgerðar sinn
ar, að „þeir sem gerðu þýðingar
helgar hafa sumir hverjir verið
mestu stilsnillingar allra alda á
voru máli. Vér höfum ekki efni
á að setja ljós þeirra undir mæli-
ker“. (Frá AB).
Skip fellir vita
Split, Júgóslavíu,
TYRKNESKT flutningaskip
feildi í dag vita við innsigl-
inguna til borgarinnar Split
við Adrialhafið.
Stormur var á þessum slóð-
um og lá flutningaskipið
„Tam 2“ fyrir akkerum ná-
íægt vitanum. Skipið er 10.800
fonn, og beið eftir lestun.
Snemma í morgun slitnaði
skipið upp og rak á land.
Lenti það á vitanum, sem
hrundi og gjöreyðilagðist.
Verið er að reyna að ná skip-
inu á flot.